Dagblaðið - 01.10.1979, Side 20
20
I
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 1979.
Iþróttir
Iþróttir
JPAGBI AOin.MÁNUPAGUR I OKTÓBER 1979.
ÍIwiMEIWbíSWBB
21
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
7,.. --• ■■ •
Pétur skorar og skorar. Um helgina bætti hann
hollenzku 1. deildinni.
sinu
marki
Keegan vill fara
frá Hamburger í vor
Kevin Keegan er sífellt i fréllunum
þessar vikurnar fyrir eitt og annað. Það
nýjasta er að hann myndi yfirgefa félag
sitt næsta vor ef hann þyrfti að gera
upp hug sinn nú. Hann sagði að hann
væri ekki í loppæfingu sem stæði og
margir blaðamenn í Hamborg hefðu
verið ósanngjarnir i hans garð. Að auki
segir hann að félagar sinir í Ham-
borgar-liðinu hafi verið með illkvittnis-
legar aðdróttanir eftir að hann gat ekki
farið með liðinu til S-Kóreu i sumar
vegna veikinda dóttur sinnar.
„Ég á ekki von á því að ég leiki
nokkurn tíma eins vel og ég gerði á síð-
asta keppnistimabili,” sagði Keegan í
viðtali við Wclt am Sonntag . Þá lék
ég betur en nokkru sinni fyrr og
skoraði fleiri mörk en ég hafði gert
áður.
Keegan lék með Hamborg í 3-0 sigri
liðsins yfir Wormatia Worms í bikar-
keppninni um helgina en kvaðst ekki
nema í 80% æfingu eins og er.
Feyenoord er nú
í efsta sætinu
—eftir stórsigur á A jax, 4-0—Pétur með sitt 10. mark
„Þetta var ofsalega gaman og við
lékum frábærlega vei gegn Ajax og
unnum öruggan 4-0 sigur á þeim.”
sagði Pétur Pétursson er við höfðum
samband við hann um helgina.
„Völlurinn var þéttsetinn áhorfendum
og við náðum sérstaklega góðum fyrri
hálfleik. Mér tókst að skora þriðja
mark okkar eftir að hafa fengið
stungubolta á ská við markið. Mark-
maðurinn kom á móti og ég vippaði
yfir hann og i netið.”
Pétur og félagar hans hjá Fcyenoord
gera það svo sannarlcga ekki enda-
slcppt þessa dagana. Um helgina fékk
Feyenoord Ajax, stærsta nafnið í holl-
enzkri knattspymu, í heimmsókn og
sendi þá heim með stóran skell á
bakinu. Ekki þarf að taka það fram að
Pétur er nú markahæstur i hollenzku
deildinni og um leið i Evrópu með 10
mörk í 8 leikjum. Pétur hefur nú
skorað mark eða mörk í öllum I.
dcildarleikjum Feyenoord og það er
ekki svo lítið afrek.
Feyenoord lék stifan sóknarleik allt-
frá byrjun og fljótlega skoraði Van der
Lem. Hinir 65.000 áhorfendur voru vel
með á nótunum og fljótlega bætti Jan
Peters öðru marki liðsins við. Pétur
skoraði siðan það þriðja fyrir hálfleik.
j siðari hálfleiknum bætti Peters fjórða
markinu við og stórsigur Feyenoord
var staðreynd. Við sigurinn skauzt
Feyenoord á topp 1. deildarinnar i
Hollandi og liðið verður ekki svo auð-
veldlega hrakið þaðan ef það leikur
áfram af slikum krafti. Þess má gcta
hér í leiðinni að Feyenoord hefur ekki
tapað leik í hollenzku 1. deildarkeppn-
inni allt frá því Pétur hóf að leika með
liðinu. Liðið hafði tapað tveimur leikj-
um áður en Pétur fór til þess og síðan
tapaði það ckki leik allt keppnistíma-
bilið á enda. Upphaf þessa keppnis-
timabils hefur siðan verið ein allsherjar
sigurganga frá byrjun.
íþróttir
Sigurður
Sverrisson
HSÍ gekkst um helgina fyrír B-stigs námskeiði fyrir handknattleiksþjálfara og var það vel sótt. Sambandið er nú að fara
af stað með skipulagða kennsluherferð en kcnnslu- og tæknimál hafa setið á hakanum allt of lengi hjá þvi. Á þessari mynd
Harðar má sjá landsliðsþjálfarann Jóhann Inga leiðbeina hópi þátttakenda. í hópnum má m.a. sjá þá Framara Sigur-
berg Sigsteinsson, Pétur Jóhannsson og Atla Hilmarssonjens Einarsson úr Vikingi og félaga hans, Einar Magnússon.
Feyenoord á erfiðan leik i UEFA-
keppninni gegn Everton á Goodison
Park á miðvikudag en Rene Notten
skoraði sigurmark Feyenoord í fyrri
leiknum. „Ég er nokkuð bjartsýnn á að
við sigrum Everton,” sagði Vaclay
Jezek, þjálfarí Feyenoord, um helgina.”
Við viljum leika i Evrópu næsta ár
lika og slíkt sæti vinnst ekki bara með
einum góðum sigri gegn liði eins og
gömlu erkifjendunum Ajax.
í hinum toppleik helgarinnar í
Hollandi sigraði AZ ’67 Go Ahead
Eagles frá Deventer 2-0 og við sigurinn
náði AZ ’67 þriðja sætinu. Feyenoord
leikur um næstu helgi á útivelli gegn
botnliðinu NAC Breda.
Úrslit i hollenzku 1. deildinni urðu
þessi:
Haarlem-Vitesse Arnhem 3—I
AZ ’67—Go Ahead Eagles 2—0
Utrecht-NAC Breda 1 — 1
Feyenoord-Ajax 4—0
Rod Kerkrade-Excelsior 1 — 1
Twente-Sparta
PEC Zwolle-Den Haag
NEC Nijmegen-Maastricht
Willem Il-PSV Eindhoven
2—0
3—1
2—1
I —I
Staðan í Hollandi er nú jtannig að 8
umferðum loknum:
Feyenoord
PSV Eindhoven
AZ ’67
Ajax
Go Ahead
Twente
Utrecht
Vitesse Arnhem
Excelsior
Den Haag
Willem 11
NEC Nijmegen
Roda Kerkrade
PEC Zwolle
Haarlem
Maastricht
Sparta
NAC Breda
13
12
12
12
3 0 18—6
2 1 20—8
0 2 18—8
15—13
17—10 10
10—14 9
10—9
13—15
12—14
9—13
8—13
0 5 11—13
2 4 10—12
7— 11
10—16
10—12
8— 11
5—15
ÁSGEIR MED
ÞRUMUFLEYG
—sem leiddi til marks hjá Standard
„Ég sá leik Standard og Anlwerpen
i sjónvarpinu og það var þrumufleygur
frá Ásgeiri Sigurvinssyni, sem leiddi til
annars marks Standard. Markvörður-
inn hélt ekki knettinum og annar leik-
maður kom og potaði tuðrunni í
netið,” sagði Pétur Pétursson við DB í
morgun.
íslendingaliðin, Standard Liege og
Lokeren, gerðu það bæði gott um
helgina og sigruðu í sinum leikjum.
Lokeren heldur enn forystunni — hcfur
aðeins tapað einu stigi eftir 7 umferðir.
hefur 13 stig. CS Brugge, Molenbeek
og Standard hafa öll 11 stig.
Úrslitin í Belgiu urðu, sem hér segir:
5—0
0—2
2—0
2—1
3—1
0—0
3— 0
2—1
4— 0
Anderlechl-Waterschei
Hasselt-Molenbeek
Winterslag-Charleroi
Beerschot-FC Brugge
CS Bruggc-Beveren
Berchem-Waregem
Lokeren-Beríngen
Standard-Antwerpen
Lierse-FC Liege
Júgóslavar unnu
Júgóslavar unnu Frakka 3-0 í landsleik i knatt-
spyrnu á Miðjarðarhafsleikunum, sem lauk í Split
um helgina. Leikurínn var til að fá úr því skoríð
hvort liðið hlyti efsta sæti keppninnar. Júgóslavarn-
ir urðu þvi sigurvegarar og Frakkarnir í 2. sæti. Þá
komu Alsírbúar, Grikkir, Tyrkir, Marokkóbúar,
Túnisbúar og Egyptar.
Juventus
með nauma
forystu á Ítalíu
Úrslitin i 3. umferð ítölsku 1. deildarkeppninnar i
knattspyrnu urðu sem hér segir:
Ascoii—Cantanzaro 2—2
Avellino—Toríno 0—2
Cagliari—AC Milanó 0—0
Fiorentina—Napóli 0—0
Inter Milanó—Lazio 2— 1
Juventus—Pescara 3—0
Perugia—Udinese 2—0
Roma—Bologna 1—2
Staða efstu liða að þríðju umferðinni lokinni er
sem hér segir:
Juventus 3210 5—1 5
InterMilanó 3 2 1 0 5—2 5
Tórínó 3 2 1 0 3—0 5
Perugia 3 1 2 0 3—1 4
Bologna 3 1 2 0 4—3 4
ACMiianó 3 12 0 1—0 4
„Við fengum
allar keppnisduft”
Fyrrum sunddrottningin Renate Vogel, sem flúði
frá A-Þýzkalandi fyrr í þessum mánuði, sagði í
viðtali við v-þýzkt blað að sundfólki í hennar heima-
landi værí gefið svokallað „keppnisduft” fyrir
keppnir. Að auki sagði hún að æfingarnar hefðu
verið frá 90 mín. og allt upp i 5 1/2 klukkustund á
dag, auk lyftingaæfinga. Sennilega hefur þetta duft
bara verið glúkósi en þegar við vorum 10 ára gömul
vorum við þegar farín að metast um hver hefði
fengið bezta duftið.
Hún og stöllur hennar i boðsundssveit A-Þjóð-
vcrjanna vöktu geysilega athygli á heimsmeistara-
mótinu i sundi i Belgrad 1973. Þá lítu þær allar út
eins og fílefldir karlmenn og vöxtur þeirra liktist
ekki neinu venjulegu kvenfólki. „Það var ekki fyrr
en vinur minn benti mér á að ég talaði eins og karl-
maður og likami minn líktist meira líkama lyftinga-
manns en stúlku að mér varð Ijóst hvað var um að
vera. Við vorum mikið saman stúlkurnar í sundinu
og tókum þvi ekki eins eftir því hversu ólíkar við
vorum öðrum stúlkum á líku reki.”
Vonbrígði Valsmanna eru mikil
Þessi mynd Haröar frá silfurverð-
launaafhendingu íslandsmólsins í
knattspyrnu á laugardag er e.t.v. tákn-
ræn fyrir misheppnað sumar hjá Vals-
mönnum. Öllu heldur má segja að nær-
vera Inga Björns Albertssonar, fyrír-
liöa Vais, á myndinni geri hana tákn-
ræna. Hann horfir vonsviknum augum
á Skagamennina, sem hirtu síðustu von
Valsmanna um Evrópusæti á næsta árí.
Skagamennirnir eru að sama skapi
ánægðir og yngin furða. Fæstir reikn-
uðu með þeim í 2. sæli skömmu fyrir
mótslok.
Raunasaga Valsmanna hefur verið
mikil i sumar. Eftir slæma byrjun náði
liðið sér mjög vel á strik og eftir að
hafa unnið sjö 1. deildarleiki í röð voru
vist flestir á því að íslandsbikarinn
myndi fara að Hliðarenda í 3. sinn á sl.
4 árum. Svo varð þó ekki. Eyjamenn
hirtu íslandsmeistaratitilinn við nefið á
Valsmönnum og upphafið að hruni
Vals var einmitt taplcikurinn í Eyjum,
0-2.
Valsmenn voru í úrslitum bikarsins
— nokkuð sem er orðinn næsta árviss
viðburður i þeim herbúðum. Mótherjar
þeirra voru Fram. Valsmenn náðu sér
aldrei á strik í leiknum og til að kóróna
allt saman fengu þeir á sig vitaspyrnu á
lokaminútu leiksins. Marteini Geirs-
syni urðu engin mistök á í framkvæmd
spyrnunnar og Valur hafði misst af
bikarnum.
Siðasta hálmstráið var sæti i UEFA-
kcppninni. Um fyrri helgi léku Vals-
mcnn og Skagamenn um lausa sætið og
jafntefli varð 0-0 eftir tveggja stunda
leik þar sem Bjarni Sigurðsson hélt
Skagamönnunum á floti með frábærri
markvörzlu. Liðin léku að nýju um
helgina og þá sigruðu Skagamenn sann-
gjarnt 3-1. Heppnin hefur ekki vcrið
fylgifiskur Vals í sumar en þeir geta þó
allténd huggað sig við að það kemur
sumareftirþetta.
fl
609 þúsimdkróniir.
/
H^PTil þmnar^^^H
ráðstófonar eftir 3 mamiði.
Enn á ný hefur Iðnaðarbankinn hækkað
hámark mánaðarlegra innborgana í
IB-lánakerfinu.
Nú úr 75 þúsund í 100 þúsund krónur.
Þar með hækkum við IB-lánin, og . .
ráðstöfunarféð.
Þetta er gert með tilliti til verðlags-
þróunar, — til að mæta þörfum fóiks.
Horfðu þrjá mánuði fram í tímann, þá
geturðu haft til ráðstöfunar allt að
609 þúsundir króna.
Dæmi um nokkra'valkDSti afmöigum semtgóóast.
SPARNAÐAR- DÆMI UM MÁNAÐARLEGA INNBORGUN SPARNAÐUR IDNAÐARBANKINN RÁÐSTÖFUNAR- MANAÐARLEG ENDURGR.
TÍMABIL I LOK TÍMABILS LÁNAR PÉR FÉ MED VÖXTUM ENDURGREIÐSLA TÍMABIL
30.000 90.000 90.000 182.650 31.515
^ / 70.000 210.000 210.000 425.850 73.536 L/
man. 100.000 300.000 300.000 609.000 105.051 man.
40.000 240.000 240.000 495.000 43.579
^ / 70.000 420.000 420.000 866.375 76.264 ^ /
man. 100.000 600.000 600.000 1.238.350 108.948 man.
12 50.000 600.000 600.000 1.272.750 58.510 12
70.000 840.000 840.000 1.781.950 81.914
man. 100.000 1.200.000 1.200.000 2.545.500 117.020 man.
Gerum ekki einfalt dæmi flókið:
Það býður enginn annar IB-lán.
c^Rfi^ BanMþeiim sem byggja aö framtíöinni
æ Iðnaðaitankinn
Aöalbaiíki og útflbú