Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 01.10.1979, Qupperneq 36

Dagblaðið - 01.10.1979, Qupperneq 36
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 1979. Heimavamarliðið—Eitt verð égað segja þér Brezkir hljómplötuútgefendur íham fólks sem hljóðritar plötur ólöglega yfir á kassettur Sé til einhver hlutur sem fer aivar- lega i taugarnar á brezkum hljóm- plötuútgefendum, þá eru það óátekn- ar kassettur. Eftir þvi sem kassettu- tæki verða fullkomnari færist það sí- fellt meir og meir í vöxt að fólk fái lánaðar plötur og hljóðriti þær síðan. Þetta athæfi, sem er ólöglegt, er talið hafa dregið sölu á hljómplötum i Bretlandi saman um sextán prósent upp á siðkastið. Sala á óáteknum kassettum hefur á sama tíma aukizt um tuttugu prósent. Hljómplötuútgefendur telja að um tólf milljónir manna i Bretlandi iðki þá iðju að fá lánaðar plötur og taka þær upp. Þeir hyggja nú á aðgerðir gegn þessu fólki með því að láta lög- regluna rannsaka heimili þeirra sem grunaðir eru um að spara sér aurana með því að hljóðrita söluvarning þeirra. Finnist sönnunargögn verða sökudólgarnir dregnir fyrir rétt og sektaðir. Samtök útgefenda hafa nú fyrir- skipað að það verði tekið skýrt fram á hljómplötum að það varði við lög að hljóðrita þær. Dugi slikt ekki ætla samtökin að gangast fyrir að ráðast inn á heimili fólks með leyfi dóm- stóla. Hins vegar er hægt að taka plötur löglega upp. Þá þarf fólk að sækja um leyfi til útgefcnda og greiða sem svarar um tólf hundruð krónum' fyrir. Engin málaferii vegna Da Ya Think i’m Sexy Deilum Rod Stewarts og brasiliska tónlistarmannsins Jorge Ben um höf- undarréttinn að laginu Da Ya Think Tm Sexy lauk með sættum i siðustu viku. Ben féllst á að láta málið niður falla ef Rod Stewart gæfi Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna allar tekjurnar, sem hann hefur haft af þessu vinsæl- asta lagi sínu til þessa. Nokkuð er siðan Jorge Ben ásakaði Rod Stewart og trommuleikarann hans, Carmen Appice, um að hafa stolið lagi sinu Taj Mahal, breytt þvi dálitið óg sett við það annan texta. Lengi vel ihugaði Ben málaferli, en féllst á að láta þau niður falla gegn fyrrgreindum skilyrðum, sem Stewart gekk að. Um það bil fjörutiu milljónir króna af tekjum þeim, sem Stewart hefur fengið i höfundalaun, renna til brasiliskra barna. BruruUAið - ÚTKALL HLJOMPL ÖTU- UMSAGNIR Brunaliðið — Útkall Útgofandi: Hljómptötuútgófon hf. (JUD-023) Stjóm og útsotningar. Magnús Kjartansson Upptökumaður Jónas R. Jónsson Hijóóritun: Hljóðríti Á tímum sem þessum, þegar fólk hefur almennt ekki efni á að kaupa sér hljómplötur, er það sannarlega djarft tiltæki að vera með tilraunastarfsemi i plötuútgáfu. Alls óvíst er hvort fólki líki útkoman. Tilraunaplatan getur selzt mjög vel, en meiri hætta en ella er á að hún fái ekki hljómgrunn hjá þeim, sem ennþá geta veitt sér þann munað að kaupa plötur. Brunaliðsplatan Útkall er tilraun með breyttan stil hljómsveitarinnar. Þar er einnig þremur ungum, og hingað til óþekktum söngkonum, gefinn kostur á að spreyta sig. Mér skilst að þetta Útkallsdæmi hafi ekki gengið upp. Það er vafalaust krepp- unni i plötuútgáfu að kenna, þvi að Brunaliðið hefur verið með vinsælustu hljómsveitum hérlendum og gerði til að mynda metsöluplötu ársins 1978. Útkall á sína góðu og slæmu punkta. Helzti galli plötunnar er söngurinn, sem er full máttlaus yfir leitt. Undantekningar eru lögin í tdraumi og Ástarsorg. Siðarnefnda lagið syngur Ragnhildur Gísladóttir. Ég man ekki eftir að henni hafi tekizt betur upp en í þessu lagi. Söngglaðir herstöðva- andstæðingar Hoimavamaríióiö - EITT VERÐ ÉG AO SEGJA ÞÉR Útgefandi: miðnofnd S.H.A. (SHA2) Stjóm og útsotningar Sigurður Rúnar Jóns- son Upptökumenn: Tony Cook og Gunnar Smárí Holgason Hljóðbtöndun: Sigurður Rúnar, Tony og Gunn- ar Smárí Hljóðritun: Hljóðríti, mai og júni '79 ROD STEWART — úm það bil fjörutiu milljónir króna af tekjum hans vegna lagsins Da Ya Think I’m Sexy renna til brasiliskra barna. í staðinn verður ekki höfðað mál á hendur honum fyrír lagsstuld. DB-mynd: Ragnar Th. Sigurðsson. Gamall Wings-gftar- leikari er látinn Líflegar útsetningar, kraftmikill flutningur og starfsgleði flytjendanna er það sem fyrst og fremst einkennir plötuna Eitt verð ég að segja þér. Hún er með hressilegri plötum, sem komið hafa út hér á landi, en þvi miður á stór hópur íslendinga aldrei eftir að kunna að meta þennan hressileika. Eitt verð ég að segja þér er nefnilega rammpóli- tisk plata. Þeim ellefu lögum, sem á plötunni eru, má skipta í tvennt; baráttusöngva gegn Atlantshafsbandalaginu og veru bandariskra hermanna hér á landi annars vegar og hins vegar ættjarðar- lög. Um textana er ekkert nema gott eitt að segja. Allir eru þeir haganlega ortir og sumir frábærlega vel. Mest þykir mér koma til Fylgdar og Völu- visu Guðmundar Böðvarssonar. Þá er Lofsöngur Böðvars sonar hans hnytti- lega ortur, fullur af nöpru háði i garð bandaríska hersins. Háðið er einnig notað miskunnarlaust i Vögguvisu hernámsins eftir Hólmfriði Jónsdótt- ur. Það er Sigurður Rúnar Jónsson sem hefur allan veg og vanda við gerð plöt- Söngsveitin Kjarabót kemur mikið við sögu á plötunni Eitt verð ég að segja þér. unnar Eitt verð ég að segja þér. Hann sá um alla stjórn, útsetti lögin og leikur á fjölda hljóðfæra. Sigurður er nú orðinn einn okkar albeztu stúdió- manna og ekki spillir það fyrir þegar efnið er honum hugleikið, eins og and- staðan gegn herstöðinni á Miðnes- heiði. Sigurður bregður á leik i útsetning- um sínum, til dæmis i laginu Lofsöng- ur. Það er nú komið meðdiskótakt (og ég sem hélt að diskótónlistin væri tákn auðvaldsins i augum vinstrimanna) og lag Þorsteins Valdimarssonar, Þú veist í hjarta þér, er útsett i reggaestíl. Önn- ur lög eru létt poppuð sum hver, önnur niðþung og allt þar á milli. Mikið lið söngvara tekur lagiðá Eitt verð ég að segja þér. Mest mæðir á söngsveitinni Kjarabót, sem sleppur vel frá sínu. Söngur annarra er ærið misjafn. Sumir eru góðir, aðrir síðri. Frumskilyrðið fyrir því að áróðurs- plötur nái eyrum fjöldans er að þær séu vandaðar og skemmtilegar. Eitt verð ég að segja þér uppfyllir bæði þessi skilyrði. London siðasta fimmtudag. Óvist er um dauðaorsök, en rannsaka átti likið áföstudaginn. McCullogh var 26 ára er hann lézt. Hann var einn af upphaflegum liðs- mönnum hljómsveitarinnar Wings.' Með henni lék hann allt frá 1971 til 1977 er hann sagði upp. Ástæðuna fyrir uppsögn sinni sagði hann vera sivaxandi drykkjuskap og geðvonzku. Tónlistin á Útkalli er mestan part „funkættar”. Litið hefur verið um að hérlendar hljómsveitir glimdu við þann stíl, þegar undan er skilin hljóm- sveitin Júdas. Á plötunni Júdas No: I var að finna tónlist sem að mörgu leyti svipar til þess sem Brunaliðið er nú að fást við. Það er þvi ekki úr vegi að álykta að með Útkalli sé framhaldið á Júdas No: I loksins komið. Hvort tón- listin á þessum plötum er það sem fólk- ið vill er aftur á móti önnur saga. En það er alla vega lofsvert að reyna eitt- hvað nýtt i stað þess að hjakka sifellt i sama farinu. ÁT Norður-irski gitarleikarinn Jimmy McCullogh fannst látinn i íbúð sinni i Þrjár af fjórum söngkonum Brunaliðsins. DB-mynd: Bjarnleifur.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.