Dagblaðið - 05.10.1979, Qupperneq 11

Dagblaðið - 05.10.1979, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1979. gætu haft í för með sér er samt mikil! áhugi á að kynna sér nánar aðferðir við oliuvinnslu úr kolum. Hafa menn þá jafnvel í huga einhvers konar sam- vinnu við sérfræðinga í Suður- Afríku. Vitað er um nokkur banda- rísk einkafyrirtæki (Exxon olíufélag- ið), sem þegar eru farin á stúfana þó hljótt hafi farið. Talið er víst að ekki mundi standa á ráðamönnum í Suður-Afríku með að ganga til samstarfs í þessum efnum. Þar mundu þeir sjá sér leik á borði með að rjúfa gat á einan- grunarmúrinn, sem myndazt hefur umhverfis ríki þeirra vegna stefnunn- ar í málefnum svarta meirihlutans i landinu. Fyrirfram er vitað að margháttaðir erfiðleikar munu verða á vegi þeirra vestur-evrópsku og bandarísku fyrir- tækja sem taka vildu upp samvinnu við Suður-Afrikumenn og þá jafn- framt hefja oliuvinnslu úr kolum í sínu heimalandi. Umhverfisvanda- mál mundu hrannast upp, vafi leikur á hvort þessi vinnsluaðferð sé arðbær enn sem komið er miðað við aðrar rikjandi aðferðir. Síðast en ekki sizt má telja víst að alda pólitískra mót- mæia mundi rísa hátt bæði í heima- löndunum og á alþjóðavettvangi. Hvað varðar umhverfismálin þá þarfnast olíuvinnslu úr kolum gífur- legs magns af fersku vatni; fjórð- ungur kolanna, sem til vinnslunnar fara gengur út sem aska og myndar hún heljarhrauka við framleiðslu- staðina. Erfitt gæti orðið að finna heppilegan stað fyrir slíka starfsemi, sem allir áhrifaaðilar gætu sætt sig við. Sasol verksmiðjan nýja tekur til dæmis rými þar sem áður voru fjórtán stórir búgarðar í Transvaal í Suður-Afríku. Flytja verður kolin til fyrirlækisins í eitt þúsund járn- brautarvögnum dag hvern og birgða- stöðin fyrir óunnin kol tekur yfir svæði sem jafnast á við sextíu knatt- spyrnuvelli. Ekki kemur mikið af menguðu vatni frá olíuvinnslunni en loftmeng- un er aftur á móti mikil. Núverandi framleiðsluaðferðir í Suður-Afríku mundu ekki standast þær kröfur sem gerðar eru til varnar loftmengun frá nýjum fyrirtækjum í Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum. Bandarískir aðilar, sem kannað hafa þessi mál, fullyrða þó að ekki verði verulegum erfiðleikum háð að bæta úr þessum ágöllum, þó sumir segi einnig að þeim finnist réttlætan- legt að ráðamenn um umhverfismál sýni vissa tilhliðrunarsemi í byrjun. Ef hugleiðingar um olíuvinnslu úr kolum fengju frekari byr undir vængi á Vesturlöndum er líklegt að margir stjórnmálamenn mundu telja framkvæmdir á þessu sviði fýsilegar vegna mikillar atvinnu sem þeim mundi fylgja. Nú þegar hefursprott- ið upp tuttugu og tveggja þúsund manna bær við aðra hinna nýju vinnslustöðva Sasol, suður-afríska fyrirtækisins. Hvort oliuvinnslan úr kolum yrði samkeppnisfær við aðrar vinnsluað- ferðir er nokkuð á huldu. Suður- afrísk yfirvöld láta lítið sem ekkert uppi um framleiðslukostnað. Bensín- verð í Suður-Afríku er rúmlega helm- ingi hærra en í Bandaríkjunum. Vitað er að Sasol fyrirtækið nýtur nokkurra skattfriðinda þar og fær auk þess nokkra frekari fyrirgreiðslu frá stjórnvöldum. Ýmsir sérfræð- ingar segja þó að þrátt fyrir skatta- ívilnanir sé rekstur fyrirtækisins ekki arðbær ef kostur gefist á olíu unninni á hefðbundinn hátt. Heimildir hjá Sasol fyrirtækinu fullyrða að þeir framleiðj bensín fyrir minna en tvo dollara gallonið og reksturinn hafi gefið af sér arð á síðasta ári. For- sendur fyrir arðsemi olíuvinnslu úr kolum geta þó algjörlega breytzt í framtíðinni og öruggt er að ríki sem ráða yfir auðugum kolanámum munu fylgjast náið með þróun mála. Varðandi pólitískar hliðar málsins innar þvi að svara á þá leið, að með visun til gildandi reglugerðar um toll- frjálsan varning ferðamanna (sbr. til- kynningu nr. 195, 24. maí 1978, sem birt er í B-deild Stjórnartiðinda) sé sk'ylt að fara með myndavélina í gegnum rauða hliðið og tilkynna hana. Ef starfsmenn Fríhafnarversl- unarinnar mundu ávallt skýra frá því, þegar keypt er myndavél að verð- mæti meira en 24 þús. krónur, bcri að fara í rauða hliðið, þegar komið verður heim og tilkynna mynda- vélina, mundu allir löghlýðnir íslend- ingar hætta við fyrirhuguð kaup. Staðreyndin er sú, að sala á myndavélum í Fríhafnarversluninni og síðan innflutningur þeirra fer fram eins og starfsmaður verslunar- innar lýsti, þ.e.a.s. einn og einn ferðamaður lendir i því að þurfa að greiða toll af myndavél og e.t.v. einnig sekt, en meginþorrinn sleppur inn með v.élar sínar. Slíkar ólöglega innfluttar myndavélar ber reyndar að gera upptækar til ríkissjóðs, en því ákvæði er ekki framfylgt nema um háar upphæðir sé að ræða. Hvernig tollyfirvöldum leyfist þannig að snið- ganga ákvæði 6. gr. áðurnefndrar reglugerðar, er undirrituðum reyndar ekkiljóst. Við eftirlit á innflutningi tollskylds varnings, sem keyptur er erlendis, verður vart komið við annarri aðferð en nú er viðhöfð, þ.e. að gera úrtaks- kannanir. Hins vegar er ástæðulaust og ósanngjarnt að láta einn og einn greiða toll en meginþorrann sleppa, þegar ríkisvaldið hefur í hendi sér, að hafa upplýsingar um innkaupin, þ.e.a.s. þegar hinn tollskyldi varn- ingur er keyptur í verslun rikisins. Ekkert væri auðveldara en að skrá niður öll kaup íslendinga á einstök- um hlutum, sem kosta meira en 24 þús. kr. og láta þær upplýsingar ganga til tollyfirvalda. Meira aðsegja er í mörgum tilvikum hægt að sjá á farseðli kaupanda, hvenær hann hyggst koma heim og með hvaða flugi. En þvi er slíkt ekki gert? Skyldi það vera af ótta við, að þá mundi sala til íslendinga í Frihafnarversluninni á dýrari hlutum falla niður og þar með mundi hagnaður ríkisins af verslun- inni minnka? Eðlilegast væri að láta jafnt yfir alla ganga, þ.e. að láta alla greiða toll af tollskyldum varningi, sem keypturer í Fríhafnarversluninni eða breyta reglunum þannig, að það sem íslendingar fá að kaupa þar sé tollfrjáls varningur. Reglur um tollfrjálsan varning úreltar Reglur þær, sem nú, 2. október 1979, gilda um tollfrjálsan varning ferðamanna tóku gildi 31. maí 1978. Reglurnar eru miðaðar við verð i ísl. krónum. Augljóst er, að í landi sem íslandi, þar sem gengi krónunnar fer hríðlækkandi og verðlag fcr smá- hækkandi í nágrannalöndum okkar og hratt hækkandi hérlendis, verða slikar reglur fljótt úreltar. Samkvæmt gildandi reglum mega is- lenskir ferðamenn ekki koma með til landsins fyrir meira en 32 þús. kr. að verðmæti. Einstakir hlutir mega ekki kosta meira en 16 þús. kr. Þó má koma með myndavél, sjónauka, út- • „Væri ekki ráölegt aö leggja rauða hliðiö niöur og taka upp fyrra fyrirkomulag? Þannig gæti ríkiö sparaö sér aö hafa í rauðu hliöi tollþjón allan sólarhringinn, sem sýnilega hefur svo til engin verkefni, enda virkar græna hliöiö ekki sem slíkt því þar er leitað eins og ekki væri rautt og grænt hliö.” • „Þegar afgreiðslumaðurinn var spuröur aö því hvort ekki yröi aö greiða toll af myndavélinni þegar heim væri komið var svarió: „Því er ekki aö neita að einn og einn er óheppinn og missir myndavél sína í toll.” n Tankar og leiðslur, sem liggja í allar áttir í Sasol stöðinni í Suður-Afriku. Þannig verjast hvítir viðskiptabanni og refsiað- gerðum Sameinuðu þjóðanna vegna kynþáttastefnunnar. er mjög erfitt að segja hvað verður ofan á. Vilja vestræn ríki fórna vinsamlegum samskiptum við svört Afríkuríki fyrir tæknileg og við- skiptaleg tengsl við Suður-Afríku þó ' um olíuna sé að tefla? Það er ekki Ijóst. varpsviðtæki eða segulbandstæki fyrir 24 þús. kr. Meginþorri íslenskra ferðamanna kemur með varning fyrir hærri upp- hæð, fer í gegnum græna hliðið og er hleypt í gegn athugasemdalaust enda þótt tollverðir hafi litið í ferðatöskur. Stjórnvöldum hlýtur að vera þetta Ijóst á timum sem ferðaskrifstofur skipuleggja „innkaupaferðir” til ná- grannalanda okkar. Sú tilhneiging ís- lendinga að setja og vera með í gildi óraunhæf lög og reglugerðir er ein ástæða þess, hve ólöghlýðni er ríkj- andi hér á landi. Rauða hliðið lokað Komi íslenskur ferðamaður með varning fyrir meira en 32 þús. kr. að verðmæti alls, myndavél, sjónauka, útvarpstæki eða segulbandstæki fyrir meira en 24 þús. kr. að verðmæti, ber honum að fara í rauða hliðið og til- kynna hinn tollskylda varning. Fari ferðamaðurinn i græna hliðið, telst hann hafa tilkynnt, að hann sé ekki með neinn tollskyldan varning, og hefur þvi gerst brotlegur við gildandi reglugerðarákvæði. Finnist í farangri hans tollskyldur varningur, ber að meðhöndla hann sem ólöglega inn- fluttan varning og gera hann upptæk- an til rikissjóðs. Síðastliðið vor komu nokkrir verk- fræðinemar heim úr kynnisfer.ð i Bandaríkjunum og fóru í græna hliðið. í farangri tveggja þeirra fannst tölvubúnaður, sem þeir sam- viskusamlega sögðu, að hefði kostað um 400 dali (um 132 þús. kr.). Eftir að lögreglan á Keflavíkurflugvelli, rannsóknarlögregla ríkisins og sak- sóknaraembættið höfðu fjallað um málið, var verkfræðinemunum boðið upp á dómssátt á þá leið, að tölvu- búnaðurinn verði gerður upptækur til rikissjóðs og að þeir greiði sekt að upphæð kr. 30 þúsund. Þessi harða afstaða byggðist á þvi, að þeir höfðu farið i græna hliðið og ekki tilkynnt tölvubúnaðinn að fyrra bragði. Þeir höfðu hins vegar ekki átt þess kost að fara um rauða hliðið þvi það var lok- að eins og nánar skal nú skýrt frá. Undirritaður, sem var fararstjóri verkfræðinemanna, var með toll- skyldan varning og kom að rauða hliðinu lokuðu. Eftir að hafa farið í næsta græna hlið og skýrt frá hinum tollskylda varningi, sagði tollvörður- inn með ólundartón: ,,Þú átt að fara með þetta í rauða hliðið.” Var þá gerð önnur tilraun, farið að hinu lokaða rauða hliði og hurðinni, sem reyndist ólæst, lokið upp, en fyrir innan var engan tollþjón að finna. Þegar .komið var aftur i græna hliðið Tæknilega má einnig benda á að ýmsar aðrar nýtingarleiðir á kolum eru til athugunar. Vitað er þegar að fjórir tíundi hlutar orkugildis kol- anna nýtast ekki við olíuvinnsluna, hana mætti þó að sögn auka upp í sex tíundu með endurvinnslu loftefna sem verða af vinnslunni. Öll munu mál þessi vafalaust ráð- ast af þróun orkumála í framtíðinni. Hverju þjóðir Vesturlanda vilja fórna fyrir trygga oliu mun síðar konia í ljós. (Byggt á grein í The Christian Science Monitor). „Hver skyldi nú ástæðan vera fyrir þvf að enginn tollþjónn var til staðar í rauða hliðinu?” og skýrl frá þvi, að í rauða hliðinu væri enginn tollþjónn, svaraði toll- þjónninn: „Hann á að vera þar.” Undirritaður svaraði því til, að enda þótt tollþjónn ætti að vera í rauða hliðinu, væri staðreyndin sú, að þar væri enginn. Tollþjónninn í græna hliðinu sagði þá með sama ólundartóninum og áður: „Þú getur skilið þetta eftir hjá mér,” sem var gert. Ekki fékk undir- ritaður neina skriflega staðfestingu á því að hafa afhent ti! tollmeðferðar dýrmætan hlut, til að framvísa við tollafgreiðslu í Reykjavik, en þangað var hluturinn sendur. Hver skyldi nú ástæðan vera fyrir þvi, að enginn tollþjónn var til staðar í rauða hliðinu? Skyldi hún ekki vera sú, að til undantekninga heyri, að þangað komi nokkur? Væri ekki ráð- legt að leggja rauða hliðið niður og taka upp fyrra fyrirkomulag? Þannig gæti ríkið sparað sér að hafa í rauðu hliði tollþjón allan sólarhringinn, sem sýnilega helur svo til engin verkefni, enda virkar græna hliðið ekki sem slikt, því þar er leitað eins og ckki væri rautt og grænt hlið. Gísli Jónssnn prúfessor.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.