Dagblaðið - 21.12.1979, Qupperneq 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979.
/
Blómin og jólin:
Hnetur og matarlauk-
ar í skreytingunum
L igeirsson sKrúðgarðaarkitekt sagðist lengja hjá sér árið með þvi að
vinna um jólin við skreytingar i Alaska i Breiðholtinu. Hann heldur þarna á
minnstu og ódýrustu skreytingunni, sem á boðstólum var, á 3.500 kr. (i hægri
hendi), og á minnstu hyacyntuskreytingunni sem var á 3.900 kr. Til hliðar má sjá
könglana, sem minnzt er á i greininni.
Jólaskreytingar með greni,
kertum, hyacyntum, slaufum, kúlum
og ýmsu öðru eru ofarlega á baugi
þessa dagana, svona rétt fyrir jól.
Fólk þarf enn meira á þeim að halda
meðan rigningin lemur utan dyra og
allt er ójólalegt tilsýndar. Á þetta
ekki sízt við i höfuðborginni, þar sem
varla birtir af degi, eilif rigning og
rok. Við brugðum okkur á þrjá staði
til þess að kynnast þvi sem á
boðstólum er og ekki sízt til að kanna
hvað herlegheitin kosta.
Alaska í Breiðholti
I Alaska í Breiðholti var heil-
mikið af litlum snotrum jóla-
skreytingum á viðarkubbum.
Ódýrasta eru þær á 3.500 kr., en
stærstu skreytingarnar voru upp í 29
þúsund. — Þær sent voru með
hyacyntu kostuðu 3.900 kr.,
hyacynlurnar kosta 1400 kr. í
Breiðhollinu voru líka á boðstólum
einfaldir grenikönglar, sem héngu í
rauðu silkibandi með lítilli grenigrein
og kostuðu 1250 kr. Slikir könglar
fara mjög vel, t.d. í glugga.
veri
Komið og sjáið sýnishom
e&la?erctj,
Eyjagötu 7, Orfirisey
Reykjavik simar 14093—13320
Údýru furuhúsgögnin
komin aftur
Auður Ingólfsdóttir, ein af meyjunum I Blómavali, heldur þarna á tveimur
skreytingum, 1 hægri hendi heldur hún á ódýrustu skreytingunni sem við fundum
I Blómavali sem kostar 2.900kr. og I vinstri hendi er hún með hyacyntuskreytingu,
sem kostar 4.200 kr.
Binni i Blómum og ávöxtum heldur sig jafnan við ákveðnar litasamsetningar.
Hyacyntuskreytingarnareru allar 1 fölfjólubláum litumeins og blómin og hvítu. Ef
myndin prentast vel má sjá þurrkaðar nellikur og venjulegan matarlauk á
skreytingunni sem hann heldur á i hægri hendi.
Blómaval
í Blómavali kostuðu hyacynturnar
frá 1250 kr., algengasta stærðin var á
1450 kr., en einnig voru til mjög litlar
hyacyntur sem kostar 1000 kr.
Ódýrasta kertaskreytingin kostaði
2900, voru til allt upp í 20 þúsund kr.
Algengasta stærð af skreytingum
sem fólk kaupir er á 6—7000 kr.
Hyacyntuskreytingarnar kostuðu
frá 4200 kr. Blómin voru stærri en í
Alaska í Breiðholtinu. Þarna mátti
sjá skreytingar með tveimur stórum
hyacyntum, jólastjörnu og ýmsu
öðru skrauti fyrir 10.500 kr. Þarna
voru einnig til könglar með rauðum
silkislaufum. Þeir kostuðu 3.500 en
voru með heldur stærri slaufu og
rauðum kúlum fram yfir þá í Breið-
holtinu. — í Blómavali eru til úti-
kertaljós á450 kr. stykkið.
Blóm og ávextir
Skreytingarnar í Blómum og-á-
vöxtúm eru mjög frábrugðnar þeim
skreytingum, sem eru á boðstólum
annars staðar. Hendrik Berndsen
sagðist jafnan halda sigvið ákveðinn
lit og i ár eru allar skreytingarnar
annaðhvort i rauðu eða brúnu, eða
að þessum tveimur litum er blandað
saman. Hyacyntuskreytingarnar eru
ajlar i fölfjólubláu, eins og
hyacynturnar.
Hendrik notar mikið þurrkuð
blóm, köngla, hnetur og jafnvel mat-
arlauka í skreytingar sínar. Þarna
voru á boðstólum aðventukransar úr
ofantöldum efnum á 29 þúsund ,
kransar til að hengja á vegg eða
hurðir á 15 þúsund , litlar
borðskreytingar í laginu eins og jóla-
tré á 24 þúsund, og lítil veggskreyting
á 10.500 kr.
Hyacynturnar kosta 1450 kr. og
hyacyntuskreytingarnar kosta frá
4.800 kr.
Hendrik benti á að nauðsynlegt
væri að geyma hyacyntuskreytingar á
köldum stað yfir nóttina. Þá getur
blómið staðið lengi. Einnig benti
hann á að skreytingarnar úr
Blómaskreytingar i Blótnum og
ávöxtum eru mjög frábrugðnar þeim
skreytingum, sem eru á boöstólum
annars staðar. Allar búnar til úr
þurrkuðum blómum, könglum,
hnetum o. fl. náttúrlegum efnum.
Litirnir eru rautt og brúnt.
DB-mynd Ragnar Th.