Dagblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979.
Þessi
sorglega
háðsaga
eftir
Finn
Soeborg
Hvað er að
gerast í glerhúsunum?
STYRKIR
til háskólanáms í Austurríki
Austurrisk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram í löndum sem aðild
eiga að Evrópuráðinu tvo styrki til háskólanáms í Austurríki háskólaárið
1980—81. — Ekki er vitað fyrirfram hvort annar hvor þessara styrkja
muni koma í hlut islendinga. — Styrkir þessir eru eingöngu ætlaðir til
framhaldsnáms við háskóla. Styrkfjárhæðin er frá 5.000—6.500 austur-
rískir schillingar á mánuði i níu mánuði. Umsækjendur skulu eigi vera
eldri en 35 ára, og hafa lokið a.m.k. 3 ára háskólanámi. Vísað er á sendi-
ráð Austurrikis varðandi umsóknareyðublöð, en umsóknir þurfa að hafa
borist fyrir 1. apríl nk. __ „
Menntamalaraðuneytið
14. desember 1979.
FILMUR OG VÉLAR S.F.
c ov’' \VVS
Hllllllll
Skólavörðustlg 41 — Síml 20235
MYNDAHÚSIÐ
HAFNARFIRÐI
FILMUHÚSIÐ
AKUREYRI
Morgunpósturinn gagnrýndur á tveimur
útvarpsrádsfundum:
„Góð tilbreyt-
ing fyrir þjóðina
að skipta um
stjómendur”
—segir Eiður Guðnason f ulltrúi í útvarpsráði
„Ummæli stjórnenda Morgun-
póstsins um Alþýðublaðið hafa mér
þótt fullkomlega óviðeigandi. Þau
eru kveikjan að gagnrýni minni,”
sagði Eiður Guðnason alþingis-
maður og fulllrúi i útvarpsráði við
Dagblaðið.
Eiður gagnrýndi Pál Heiðar Jóns-
son og Sigmar B. Hauksson á
tveimur síðustu fundum útvarpsráðs
og vitnaði til ummæla þeirra i
Morgunpóstinum um Alþýðublaðið.
Fleiri útvarpsráðsmenn tóku undir
mál Eiðs, samkvæmt heimildum DB.
Árni Gunnarsson, varaformaður
ráðsins, bar fram tillögu um að boða
Sigmar B. og Pál Heiðar á fund með
útvarpsráði til að skiptast á
Eiflur Guðnason alþingismaður og
fulltrúi í útvarpsráði.
skoðunum um þáttinn. Af þeim
fundi hefur enn ekki getað orðið, þar
sem Ólafur R. Einarsson, formaður
ráðsins, er veikur og Árni Gunnars-
son er erlendis.
„Ég hef ýmislegt við Morgunpóst-
inn að athuga,” sagði Eiður Guðna-
son. „Mér finnst stjórnendurnir
þröngir i umfjöllun um einstaka mál
Jafnvel má greina ákveðinn póli-
lískan litarhátt á þættinum. Það er
leiðinlegur andi yfir Morgunpóstin-
um, að mér finnst, og hjá stjórnend-
unum gætir pempiuhroka.
Ég tel að skipta ætti um stjórn-
endur í Morgunpóstinum, það væri
ágæt tilbreyting fyrir þjóðina.”
-ARH.
„Minnsta krafa að
Eiður geri grein
fyrir máli sínu”
—segir Páll Heiðar f .morgunpóstur'
„Enginn útvarpsráðsmaður hefur
komið til mín með mótmæli eða
athugasemdir vegna Morgunpóstsins.
Við fengum boð um að mæta á fund
hjá ráðinu en honum hefur verið
frestað. Ég hef ekki fengið uppgefið
hver ástæðan er fyrir fundar-
boðinu,” sagði Páll Heiðar Jónsson,
annar umsjónarmaður Morgunpósts-
ins i samtali við blaðið.
„Ég hef heyrt utan fið mér að
okkuf-.séu borin á brýn óviðeigandi
umrnæli um Alþýðublaðið. Því
harðneita ég.”
Eiður Guðnason talar um að
„greina megi ákveðinn pólitískan
Páll Heiðar Jónsson, annar
umsjónarmanna Morgunpóstsins.
litarhátt á þættinum” hjá ykkur, Páll
Á það við rök að styðjast?
„Minnsta krafa til manns á borð
við Eið Guðnason, alþingismanns og
fyrrum fréttamanns, er sú, að hann
gerir nánar grein fyrir máli sínu. Það
er sanngirniskrafa og grundvallar-
atriði að Eiður tilgreini hvaða „litar-
hátt” hann á við, hvernig þessi
„litarháttur” birtist og hvenær.
Svona óljósar aðdróttanir myndu
einhverjir flokka undir atvinnuróg.
Menn verða að hætta slíkum vinnu-
brögðum. Fyrr er vart hægt að ræða
málin svo vit sé i,” sagði Páll Heiðar
Jónsson.
-ARH.
Gerið jólainnkaupin tímanlega.
Úrvals hangikjöt, svínakjöt,
diikakjöt, nautakjöt. — Nýtt grænmeti.
Nýir og niðursoðnir ávextir.
Ath. sórstakloga
að tryggja yður jóladrykkina og ístertur
Allt fyrsta flokks vörur á fyrsta flokks verði. me° fynrvara
ERLENDAR KARTÖFLUR
KJÖTB0RG
BÚÐAGERÐ110 - SÍMAR 34945 0G 34999
AUSTURB0RG
STÚRHOLT116 - SÍMI23380