Dagblaðið - 21.12.1979, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979.
9.
Engar fyrirff ram pantanir á jólasímtölum til útlanda
VERTU KLAR A SAMTAUNU
OG HAFÐU HJÁ ÞÉR KLUKKU
hver mínúta er dýrmæt í utanlandssamtölum
„Símtöl yfir hátíðarnar verða
eingöngu afgreidd eins og venjulega
en ekki teknar niður pantanir fyrir-
fram eins og gert hefur verið áður,”
sagði ein af „nafnlausu” röddunum i
09 í stuttu spjalli við DB. Röddin var
„nafnlaus”, því þetta var
„opinbert” samtal, hét bara Talsam-
bandið — góðan dag.
Lokað verður hjá talsambandinu
við útlönd kl. 6 á aðfangadagskvöld
til kl. 8 á jóladagsmorgun. Að öðru
leyti er allt eins og venjulega á þeim
bæ.
Margirhafa það fyrir venju að
hringja til ástvina sinna erlendis á
jólum. Einnar mínútu samtal til
Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og
Englands kostar 690 kr., til Dan-
merkur 650 kr., 800 kr. til Þýzka-
lands, 2250 kr. til Bandaríkjanna og
2000 kr. til Kanada. — Það er því
eins gott að vera búinn að ákveða
'hvað á að segja og ekki vera með
neinar vangaveltur. Eins má benda
fólki á að hafa greinilega klukku við
höndina því símaverðirnir koma ekki
inn í símtalið til þess að gefa t'l kynna
hve „mörg viðtalsbil” eru liðin, eins
og þegar talað er i gamaldags lands-
síma innanlands.
-A.Bj.
Jólasveinn
á kvennafari
Ekki að furða þó jólasveinninn sé kampakátur. Þó honum þyki allra manna
vænzt um börnin þegar hátlð gengur I garð, þá er hann mannlegur blessaður og
rennir gjarnan hýru auga til fagurra kvenna.
Hér gengur sá gamli að visu fulllangt — og það á götu úti. Við verðum að
sýna honum ríkan skilning, þvi konan er viðáttufögur. Svona aðferðir við
kvennafar komast engir upp með að nota átölulaust nema jólasveinar. Það er
pottþétt.
VINSÆLAR
JÓLAGJAFIR
Skíðalúffur Skíðagleraugu
Kr. 3.085.- Verð frá kr. 1.630.-
ÓDÝRIR SKAUTAR