Dagblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979. 115 Hver eru kjör íslendinga? Eitt af því sem einkennt hefur íslenska pólitík á undanförnum árum er tilhneiging til að viðhalda þeirri blekkingu að lífskjör séu ekki lakari á íslandi en yfirleitt gerist í öðrum löndum Evrópu. Það sem stjórn- málamenn eru að reyna að fela er í raun og veru ekkert annað en uppgjöf. Þeir hafa gefist upp á að stjórna efnahasmálum landsins fyrir langa löngu. Afleiðingin er verðbólga, falið atvinnuleysi i ákveðnum atvinnugreinum, yfir- gengileg vinnuþrælkun í öðrum, sívaxandi drykkjuskapur, eiturlyfja- neysla, afbrotaöld og almenn upp- lausn og vanlíðan í landinu. Fólks- flótti til annarra landa er staðreynd og segir sina sögu. Sumum kann að þykja það ærin fullyrðing, þegar stjórnmálamönnum er kennt um svo alvarlega hluti og mundu ef til vill segja sem svo að einhverju sök hlytu aðrir að bera — þjóðin öll, þrýstihópar, verkalýðs- hreyfing og atvinnurekendur. Eflaust má það til sanns vegar færa, en þegar öllu er á botninn hvolft: Er ástandið annað an afleiðing lélegrar stjórnunar? Nú er meira að segja komið á daginn að það eina sem stjórnmála- menn okkar hafa getað stært sig af á þessum áratug , — 200 mílna land- helgi, er ekki þeirra verk heldur norskra stjórnmálamanna og NATO. Er þá nokkuð eftir af afrekum nema verðbólga og versnandi þjóðarhagur? Einn liður í þeim blekkingarvef er spunninn hefur verið er að halda almenningi hæfilega fáfróðum um lífskjör með öðrum þjóðum. Annar liðurinn er fjármálaleg fangelsun í landinu, — eignir fólks eru gerðar upptækar í formi frystingar ætli það að setjast að í öðrum löndum. 80% skattahœkkun með smábrögðum Sú staðreynd, að svo illa er ráðið fjármálum þjóðarinnar að enginn vegur er að fólk geti lifað af dag- vinnulaunum, er ein helsta tekjulind ríkissjóðs á sviði skatt- heimtu. Þetta gerist þannig að fólk er neytt til að vinna eftirvinnu og næturvinnu í stórum stíl til þess að endar nái saman í rekstri heimilanna. Samkvæmt samkomulagi milli aðila vinnumarkaðarins og vegna vísindalegra staðreynda er yfirleitt greitt álag á næturvinnukaup vegna þess að eftir dagvinnu er líkaminn búinn að skila sínu og þarfnast eðlilegrar hvíldar. Hvort sem við lítum á þetta álag (80%) sem verðlagningu á hvíldartima eða þreytu, þá er það staðreynd að ríkið skattleggur þessa þreytu eins og hverjar aðrar tekjur án þess að láta nokkuð fyrir í staðinn, næturvinnan hjá almenningi er bein skatta- hækkun, — eða tekjuauki ríkissjóðs. Þegarþess ergætt að álagið er greitt fyrir að vinna við ákveðnar aðstæður, en er ekki greiðsla fyrir af- köst sem slík, er raunar ekki vinnulaun, þá má það vera ljóst að þessi skattheimta orkar tvímælis. Fólk á ekki að greiða skatta af annarri vinnu en dagvinnu og því Kjallarinn Leó M. Jónsson ætti tekjuskattur af næturvinnutíma að vera um 45% lægri en af dag- vinnu. Fátækt Samkvæmt fréttabréfi Kjara- rannsóknanefndar voru meðallaun íslenskra iðnaðarmanna um 1700 krónur fyrir dagvinnutíma á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Á sama tíma hefur sænskur iðnaðarmaður 2810 krónur fyrir dag- vinnutimann (s.kr. 30) og banda- rískur 3523 krónur ($ 9) En launin segja ekki hálfa söguna, segja stjórnmálagarparnir okkur og brosa í kampinn. Það er að sjálf- sögðu alveg hárrétt. Það mætti segja að það sem fæst fyrir tímakaupið gæfi réttari mynd. Dagvinna er eini raunhæfi mælikvarðinn, eftirvinna og næturvinna á ekki að vera fólki nauðsyn til að halda meðaltalslifs- gæðum nema hjá fátækum þjóðum, sem eru að rembast við að halda sér uppi. íslendingar eru ekki fátæk þjóð nema i einum skilningi, — stjórn- leysið er okkar fátækt. Og hvað er eðlilegra en að taka bílinn sem dæmi um þær vörur, sem við getum keypt fyrir launin okkar? Ákveðinn bíll kostar hérlendis 7,1 milljón króna á sama tíma og hann kostar 4,2 milljónir króna í Banda- ríkjunum (4500 dollara) og 7,2 millj. króna í Svíþjóð (77 þús. sænskar). íslenskur iðnaðarmaður er 26 mánuði að vinna fyrir þessum bíl í dagvinnu. Sænski iðnaðarmaðurinn er 16 mánuði í dagvinnu að vinna fyrir bílnum. Sá bandaríski er hins vegar einungis tæpan 7 1 /2 mánuð að vinnafyrirsamabíl. Ef við héldum áfram með þetta dæmi og tækjum skattheimtu ríkisins af reksturskostnaði bílsins sigi verulega á ógæfuhliðina fyrir okkur landana. Bensínið er mun ódýrara í Svíþjóð en á íslandi. í Bandaríkjun- um kostar bensínið tæplega fjórðung á við það sem það kostar hérlendis. Tollar af varahlutum, vörugjald og söluskattur er um og yfir 100% á CIF-verð á íslandi eða um helmingi hærra en í Svíþjóð. Við kaupum auk þess lélegra bensín og ökum á vegum, sem ekki eru gerðir fyrir venjulega bíla, og gerir það að verkum, að vióhaldskostnaður meðalbíls er miklu hærri á íslandi en annars staðar tiðkast. Almenningsfarartæki, svo sem strætisvagnar, njóta ekki teljandi vinsælda, t.d. í Reykjavík, og margir ferðast með þeim af illri nauðsyn. Meðan aðrar þjóðir líta á bíla sem farartæki og lið í almennri velmegun, lítur hið opinbera á bila sem tekjulind í mynd hagneyslu eða „lúxus”. Og svo stynjum við brátt undir nýrri stjórn. Leó M. Jónsson, tæknifræðingur. £ Bandarískur iðnaðarmaður er 7 1/2 mánuð að vinna fyrir bíl sem sænskur er 16 mánuði og ísienzkur 26 mánuði að vinna fyrir. Kjallarinn Afleiðingar valdaskeiðs krata: Óðaverðbólga og upplausnarástand Afleiðingar hins ótímabæra þing- rofs Alþýðuflokksins og Sjálfstæðis- flokksins í október láta sig ekki án vitnisburðar, þegar nýtt aiþingi kemur loks saman 12 dögum fyrir jól — og áramót nálgast. Það bætir ekki úr skák að Alþýðuflokkurinn, — sem ber alla ábyrgð á stjórnarslitum vinstri stjórnar Ólafs Jóhannessonar, og höfuðábyrgð á þingrofinu, — hefur reynst tregur og úrtölusamur gagnvart tilraunum Steingríms Hermannssonar til endurreisnar vinstri stjóminni. Hefur það vakið athygli að Alþýðuflokkurinn hefur litið lagt til mála í stjórarmyndunar- viðræðunum og öðrum þræði staðið i makki við Sjálfstæðisfl., eins og formannskjör í fjárveitinganefnd og utanríkismálanefnd ber vitni um. Slík vinnubrögð voru ekki líkleg til þess að efla samstarfsandann í stjórnar- myndunarviðræðum Steingríms Her- mannssonar við Alþýðubandalagið og Alþýðuflokkinn. Þau sýna að í því efni var og er við ramman reip að draga. Hver ber ábyrgðina? Hvað sem stjórnarmyndunar- tilraunum líður er alvarlegast til þess að hugsa, að allt frá þingrofi, 16. okt., sl. til þessa dags hefur ríkt stjórnleysi í landinu undir „leiðsögu” Benedikts Gröndals og Alþýðuflokksins með dyggilegri aðstoð Geirs Hallgrímssonar og annarra sjálfstæðismanna, sem eru opinberir ábyrgðarmenn ráðleysis- stjórnar kratanna. Á valdaskeiði kratanna hefur verðbólgan vaxið hömlulaust og er „Allt frá þingrofi til þessa dags hefur rfkt stjórnleysi i landinu undir „leiðsögu” Benedikts Gröndals og Alþýðuflokksins.” Ingvar Gíslason „Óreiöan blasir alls staöar viö.” nú meiri cn nokkru sinni áður i marga áratugi að sögn Benedikts Gröndals sjálfs. Fjárlög fyrir næsta ár liggia ekki fyrir og óvíst hvenær þau verða afgreidd. Skattalög eru ófrágengin og naumast gerlegt að undirbúa skattaálagningu með skaplegum hætti af þeim sökum. Rekstur ríkissjóðs er því óvissu háður um þessi áramót, og þarf ekki mikla getspeki til að sjá hvaða afleiðingar það hefur á horfur í rekstri annarra þátta þjóðfélagsins. Óreiðan blasir alls staðar við. Þannig eru afleiðingar stjórnar- slitanna og þingrofsins að koma í ljós hver af annarri. Ábyrgðina á þessu á- standi bera þeir sem valdir voru að stjórnarslitum og ótímabæru þing- rofi í haust, þ.e. alþýðuflokksmenn og sjálfstæðismenn undir einka- forystu Geirs Hallgrímssonar. Þessir menn bera ábyrgð á því að nú ríkir stjórnleysi í landinu, svo og að ekki er séð fyrir endann á ráfuskap krata- stjórnarinnar eins og nú s{anda sakir í umræðum um stjómarmyndun. 19/121979 IngvarGislason, alþingismaður.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.