Dagblaðið - 21.12.1979, Side 17

Dagblaðið - 21.12.1979, Side 17
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979. 117 Tónlist AF- SLÁTTUR Stór- markaðs- verðá kassettum SS SÚPERMARKAÐUR GLÆSIBÆ SS VIÐHLEMM SS SÚPERMARKAÐUR AUSTURVERI Þorsteinn Hannesson. Ekki alveg búinn Þoratelnn Hannosson, tonór. Hljómplata f útgáfu SG hljómplatna, SG—126. Flytjendur: Þorateinn Hannesson og Frltz Weisshappel viö pianóiö. Á hljómplötu þessari eru upptökur 14 laga, sem Þorsteinn hafði mætur á. Eins og Þorsteinn segir sjálfur á plötuumslaginu hefur varla nokkur maður hugmynd um hvenær þau voru hljóðrituð. Líkleg- ast þykir mér að þau séu hljóðrituð á hálfstolnum stundum í stuttum hlé- um milli stríða, kannski klipnum aftan af kaffitímum í útvarpinu. Undirleikarinn var nærtækur. Hann sá um að reka eina litla sinfóníu- hljómsveit, í lítilli skonsu, nánast klæðaskáp, inn af stúdíói eitt, auk annarra starfa í stofnuninni. Æskuvinur Fritz, sá góði maður prófessor Georg Weinghengst, sagði einu sinni er hann ræddi um hann, að það gilti einu hvort Fritz væri fenginn til að spila undir hjá óperusöngvara eða manni, sem spilaði á sög, hann legði sömu alúð í hvort tveggja. Þannig var Fritz og slíkur er hann á þessari plötu Þor- steins. Hljóðritanirnar eru allar fremur einfaldar, ef ekki frumstæðar. Tækin í útvarpinu voru af sama klassa og togararnir sem við keyptum á þeim árum. Við keyptum síðutogara, þeg- ar vart voru smíðaðir annað en skut- togarar og við keyptum geipivönduð monotæki þegar aðrir voru farnir að brúka stereo og leiðandi menn komu heim af ráðstefnum úr útlandinu og sögðu: Hvað skyldi það vera þetta FM sem allir tönnlast á? Þorsteinn söng sín bestu ár í út- löndum og þá aðallega í Englandi. Oftast heyrðist sagt, að hann hefði snúið heim þegar hann var búinn að vera. Platan sú arna sannar þó, að ekki var karl alveg búinn, þó hann hafiekkináðsínufyrra besta. Sjö ár eru á milli uppfærslanna, og á plötunni koma greinilega í ljós fram- farir kórsins á þessu tímabili. Nokkuð sem erfitt var að gera sér grein fyrir við að heyra í honum einu sinni á ári og ekki alltaf það. Þar kemur einnig fram að upptökutækni Ríkisútvarpsins hefur farið fram. En það sem mest er um vert er að á þessari hljómplötu kemur hvað best fram andi Róberts Abrahams. I stil var hann maður hreinleikans. Það var látlaus göfgi í túlkun hans á Messiasi, þar sem margir kysu skrúð.; Slíkur var Róbert Abraham. Hann þoldi ekki misræmi og var sama við hvaðvarátt í þeim efnum; hvort sem Róbert A. Ottósson. Dr. Róbert Abroham Ottósson Im momorian. Minnlngarhljómplata í útgáfu Söngavaitarinn- ar Flharmóniu. Efnl: Þœttir úr Þýskri sákimessu op. 45 aftir Johannes Brahms og þættir úr óratorfunni Messtas, eftir Georg Friedrich HindeL Flytjendur: Söngsvoitin Flharmónia, Sinfónfci hljómsveit íslands, einsöngvaramir Hanna Bjamadóttir og GuÖfhundur Jónsson, Helga Ingólfsdóttir sembaleHcari undir , stjóm Róberts Abrahams Ottóssonar. Fáir hafa lagt í jafnmörg stórvirki á vettvangi íslenskra tónlistarmála og Róbert Abraham. Það var því ekki seinna vænna að þeir sem lutu forystu hans sæju sóma sinn í því að koma einhverjum af hljóðritunum frá tónleikum undir hans stjórn út á hljómplötu. Og nú er hún loksins komin út, platan atarna. öll þau þrekvirki sem Róbert Abraham vann með óskabarni sínu, Söngsveitinni Fílharmóníu, munu vera til í hljóðritunum hjá Ríkisútvarpinu. Vandinn stóri var einungis að velja. Mér þykir valið hafa tekist nokkuð vel. Það var réttara að velja þannig stuttan útdrátt úr tveimur verkum en smærri brot úr fleirum. En þar kemur svo fleira til. það var misjöfn gerð klukkna Skálholtskirkju, eða óleikurinn sem stórskrýtin heyrð þess húss gat gert tónflytjendum, eða hvort hlaupin í piccoloflautunni komu ekki nógu vel fram, síðast í fimmtu Beethoven. Hann krafðist samræmis i öllum hlutum. Með útgáfu þessarar . hljómplötu hafa aðstandendur hennar reist meistaranum minnis- varða úr vinyl. Má vera að það svarta efni reynist óbrotgjarnara en marmari. MMMSVARDIUR VINYL URVALS KASSETTUR

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.