Dagblaðið - 21.12.1979, Side 29

Dagblaðið - 21.12.1979, Side 29
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979. 41 - 1 % M' i. .? ► ■IM * 6 ÍMé^ Nunna úr Hafnarfirði, sem ekki vill láta nafns sins getið, afhenti tvö hundruð þúsund krónur til Kampútseusöfnunarinnar. DB-mynd Bj. Bj. þessari jólavertíð, þá hafa mæður með barnahópa oft erfiða aðstöðu að afla sér mannsæmandi tekna, sérstaklega ef heimilisfaðirinn er veikur eða enginn til. Skýringin á því, að fólk virðist fúsara að gefa bágstöddum hinum megin á hnettinum er auðvitað i fyrsta lagi sú, að eymdin þar er sárari, en líka sú, að fólk veit meira um hana. Hún hefur verið rækilega kynnt i blöðum og sjónvarpi, meðan skortur hér á landi liggur í þagnargildi. Það þykir nöldur að tala um slíkt. Þar við bætist, að söfnun þjóð- kirkjunnar er mjög vel skipulögð og áuglýst, svo hún fer ekki framhjá nein- um, meðan Mæðrastyrksnefnd hefur fjarska hljótt umsig. Hver króna kemst alla leið r í því sambandi er rétt að nefna, að þótt söfnun þjóðkirkjunnar kosti vissulega talsvert fé, rennur hver króna sem inn kemur til Kampútseu. Útgjöld vegna auglýsinga og bíla eru greidd af sérstökum sjóði, sem styrktúr er af ýmsum aðilum. Allir prestar gefa eitt prósent af launum sínum í hann og kristnisjóður og ríkissjóður veita hon- um stuðning. ,,Og starfsmannakostnaður er ekki mikill,” segir Guðmundur. ,,Við erum bara tvö héma á skrifstofunni, auk mín Kristjana Jónsdóttir.” Þau hafa nóg að gera, því áður á árinu hefur verið safnað handa flótta- drengjum í Honduras og flóttafólki í Suðaustur-Asíu, og auk þess til sund- laugar Sjálfsbjargar. Því stofnunin ein- skorðar sig ekki við þá, sem bágt eiga í útlöndum. Á hverju ári eru afgreiddar margar hjálparbeiðnir frá prestum víðs vegar um land fyrir hönd sóknarbarna, sem koma að luktum dyrum í tryggingakerfinu, þegar veikindi eða fátækt herja á. Guð elskar glaðan gjafara Fyrir tvo íslenzka þúsundkalla má kaupa þurrmjólk, sem endist barni í Kampútseu í heilt ár, og fyrir fjörutíu þúsund má byggja skýli handa fiótta- mannafjölskyldu. Og ekki á að þurfa að óttast, að féð lendi i höndum spilltra embættismanna eða renni til hergagna- kaupa, því mikilsvirtar alþjóðlegar stofnanir eins og bæði lúterska og kaþólska kirkjan, Oxfam og fleiri hafa samvinnu um starfslið, sem útdeila gjöfunum til réttra viðtakanda. Það er því alveg óhætt að hvetja fólk til að leggja í grænu baukana, eða inn á gíró 20005. En unt leið má minna á, að Mæðra- styrksnefnd er líka strangheiðarleg og eins og stendur févana. Gjafir má senda á gíró 36600 eða á skrifstofuna Njálsgötu 3, kl. 1—6 í dag og á morgun. Eins og'segir í ritningunni: „Fátæka hafið þér jafnan hjá yður.” -IHH. Götin á íslenzka tryggingakerfinu eru þvi miður stór, og samkvæmt upplýsingum Mæórast.vrksnefndar eru margar mæóur illa settar fyrir þessi jól. DB-mynd: R. Th. ^Hógvær ábending frá Skipstjóra- og stýrimannatal Þetta er rit í algerum sérflokki. — Þrjú stór bindi — yfir 1900 æviskrár — prófskrár Stýrimannaskólans frá upphafi — fróðlegar yfirlitsgreinar um sjó- mannafræðslu, fisk- veiðar og siglingar. Kjörbækur á hverju heimili og sérstaklega tilvaldar jólagjafir. Sven Hazel: Nýja bókin nefnist: Guði gleymdir Flestar bækur Hazel hafa selzt upp á fyrsta ári. Af áður útkomnum bókum hans eru nú aðeins fáanlegar: Dauðinn á skriðbeltum, Hersveit hinna fordæmdu, Martröð undan- haldsins, Monte Cassino og Stríðs- félagar. Fjöldi stríðsbóka hefur verið skrifaður og margar góðar, en fullyrða má að engum er Hazel líkur. Nú er í ráði að kvikmynda bækur hans. Hann hefur hlotið hástemmt lof og bækur hans selzt í milljónaupplögum í yfir 50 lönd- um. I lífsins ólgusjó Ný bók eftir Jóhann J.E. Kúld Enginn sem sér Jóhann Kúld, teinrétt- an, kempulegan og léttan í spori, gæti imyndað sér að þar færi maður með svo ævintýralegan og átakamikinn lifsferil, sem raun ber vitni. Hér segir frá sjómannslífinu á síldarárunum og á öðrum fiskveiðum — siglingum á striðsárunum og kynnum af ótöluleg- um fjölda manna á sjó og landi, af öll- um stéttum og standi. Langvarandi baráttu við berklana, dvöl á Kristnesi og Reykjahæli, ástvinamissi, fátækt og atvinnuleysi. — Verkalýðsbaráttu, vinnubanni. Novu-slagnum og átök- um í /.jarabaráttunni, tilraun til að svipta ðhann kosningarétti. Bóka- og blaðaút áfu (Jóhann hefur skrifað 10 bækur), - áætlun um stærstu ölverk- smiðju í Evrópu, sem gufaði upp vegna striðsins. — Furðulegum dul- rænum fyrirbærum — og fjölmargt fleira mætti nefna sem sagt er frá af hispursleysi undanbragðalaust í þess- ari stórfróðlegu og skemmtilegu bók. Fyrri bækur Jóhanns hlutu á sínum tíma einróma lof og seldust upp til agna, en þetta er eflaust hans bezta bók. — Frásagnargleði hans er mikil og lífsferillinn svo fjölþættur að fáu verður viðjafnað. Úr gömlum ritdómi: „Hann er fæddur rithöfundur og óvíst er að hann segi betur frá, þó hann hefði gengið í annan skóla en hinn stranga skóla reynslunnar, sem hann hefur staðizt með sæmd.” — Guð- mundur Finnbogason, landsbóka- vörður. í dagsins önn eftir Þorstein Matthiasson Þótt ár liði og margvislegar breytingar verði á þjóðlífs- háttum er sagan ávallt ofin úr önn hins líðandi dags. Þeir, sem lengi hafa lifað, þekkja öðrum betur æða- slög mannlífs i Jandinu á liðnum árum. Sú reynsla og þekking getur orðið framtíðinni hollur vegvisir, ef vel er að hugað. Manngildi skyldi meta eftir því, hve sterkir menn standa, í stormi sinnar tíðar og dug- miklir í dagsins önn. Þeir mætu menn sem hér rekja nokkra æviþræði eru fulltrúar þeirrar kynslóðar sem óbuguð hefur staðið af sér ölduföll ár- anna og skilað framtiðinni betra landi en hún tók við. Vökumaður — Jón Jónsson klæðskeri frá ísafirði. Það er hátt til lofts og vitt tií veggja — Guðbrandur Benediktsson bóndi frá Broddanesi. Minnist þess að blómabörnin skjálfa er berast skóhljóð göngumanni frá — Ingþór Sigurbjarnarson frá Geitlandi. í faðmi dalsins — Snæbjörn Jónsson frá Snæringsstöðum í Vatnsdal. Þorbjörg og Sigurjón, Árbæ í Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu. Þar gróa götur sem gekk ég forðum ungur — Sigurpáll Steinþórsson frá Vík í Héðinsfirði. Það trúir þessu enginn — Magnús Halldórsson frá Síðumúlaveggjum. Leikir af lífsins tafli eftir Hugrúnu Hugrún er mikilvirkur og fjölhæfur rithöfundur. Hún hefur sent frá sér ekki færri en 25 bækur — skáld- sögur, Ijóð, ævi- þætti, smásögur og barnabækur. Samúð og kær- leikur til alls sem lifir er rauði þráðurinn i þessum smásögum Hug- rúnar svo sem er i öllum hennai bókum, ásamt óbilandi trú á hand- leiðslu almættisins. Á þessum tímum efnishyggju og trúleysis er slikt efni ef- laust ekki öllum að skapi, en vonandi finnast þeir sem hafa ekki gleymt guði sínum, og lesa sér til ánægju þessa hugljúfu bók. Denise Robins Ástareldur nefnist nýjasta bókin hennar. Það þarf ekki, dömur mínar, að kynna ykkur bækurnar hennar Denise, þið þekkið þær og ykkur líður vel í návist þeirra. Þar er enginn sori á ferð, þótt barátta við ill öfl og erfið örlög sé með í spil- inu verður hið góða í mannheimi alltaf yfirsterkara. Þess vegna eru bækur Denise Robins góðir og velkomnir kunningjar. Vegferð til vors Ný Ijöðabók eftir Kristin Rey Kristinn kemur viða við i þessari bók sinni. Hann deilir fast á hernaðar- brjálæði, peninga- hyggju og alls kyns óáran í mannlífinu, en hann á fleiri strengi í hörpu sinni. Ást á vori og grOanda skipar veglegan sess og trú á „betri tíð með blóm í haga". Skop og ' fyndni leynist einnig í pokahorninu. Þessi snotra bók er eflaust ljóðavinum kærkomin. Hús hamingjunnar eftir Gertrude Thome Ung, ástfangin hjón, Janet og Andy, i erfa óvænt lítið draumahús. Hjartarúmið reyn- ist fljótlega of stórt 1 fyrir húsið og áöur en varir er það yfir- . fullt af alls konar fólki, skyldu og , vandalausu. Mislit- ur hópur, skritinn og skemmtilegur, en samt er góðvild og skilningur alls ráðandi i litla hús- inu. Þrátt fyrir ýmiss konar smáslys og hrakfarir leið öllum vel og engum leiddist i „húsi hamingjunnar”. Von- andi verður enginn vonsvikinn sem les 'þessa skemmtilegu og þokkafullu sögu. • Góðfúslega, kynnið ykkur vandlega þessa auglýsingu, áður en þiðyeljið jólabækurnar

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.