Dagblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 31
MARGSLUNGIÐ
MANNIÍF
SWurK***
FRIDRIK HAMX.RiMSSON
rir jótín
Hofdala-Jónas
Jónas Jónasson frá Hofdölum.
J Bókaforlag Odds Björnssonar hefur gefiö út bókina
Hofdala-Jónas, og er þetta sérlega glæsileg og mikil
; bók. 454 bls. Bókina prýðir fjöldi Ijósmynda.
alls 64 myndir. Þá er einnig nákvæm nafnaskrá í
bókarlok á 12 blaösiðum.
Jónas Jónasson frá Hofdölum í Skagafirði var
kunnur hverju marinsbarni í Skagafirði og á .efri árum
varð hann þjóðkunnur sem snjall hagyrðingur, sagna-
og skemmtunarmaður.
Bókin skiptist í fjóra hluta: Sjálfsævisögu, frásögu-
þætti, úr ýmsum syrpum og bundið mál. Minning-
arnar og frásöguþættirnir eru með því bezta, sem birzt
hefur í þeirri grein. Sýnishornið af Ijóðagerð Jónasar
er staðfesting á þeim vitnisburði, að hann væri einn
snjallasti Ijóðasmiður í Skagafirði um sina daga.
Hofdala-Jónas var af þeirri gæzku gjör að laða að
‘sér fólk, enda var hann aöeðlisfari mikill heimsmaður.
Langferðamenn af öllum stéttum og stigum áttu glaða
Istund með Jónasi i skúrnum. Fólk hvaðanæva af
dandinu á ljúfar minningar um hliðvörðinn.
Kristmundur Bjarnason fræðimaður á Sjávarborg
og Hannes Pétursson skáld hafa séð um útgáfu bókar-
‘innar af stakri nákvæmni og vandvirkni. Bókin er sett,
Iprentuðog bundin i Prentverki Odds Björnssonar hf.
(Akureyri.
Margslungið
mannlíf
eftir Friðrik Hallgrimsson. Bókaforlag Odds Björns
sonar á Akureyri hefur sent frá sér sjálfsævisögu
Friðriks Hallgrímssonar, Sunnuhvoli í Skagafirði og
heitir bókin Margslungið mannlif.
1 þessari bók rekur Friðrik æviminningar sínar, en
hann faeddist í litilli baðstofukytru, að Úlfsstaðakoti
þann 14. janúar 1895, og er því kominn á niræðis-
aldur nú þegar hann sendir frá sér ævisögu sina.
Afkomendur Friðriks orðnir 80 þegar þessi bók kemur
út.
Friðrik er stálminnugur ^sögn hans er leikandi
létt og hann fer iklrei iltili -ð skoðanir sinar á
mönnum og málcfnum sinnar samtíöar. Hann er
óvenjulega bersögull og hivpurslaus. segir frá hverju
atviki eins og það blasn við af eigin sjónarhóli, og
lætur sér hvergi bregða þótt skoðanir hans kunni á
stundum að stangast á við skoðanir annarra.
Bókin er 202 blaðsiður með vandaðri mannanafna-
skrá og margt mynda prýðir bókina, sem er prentuð
og bundin í Prentverki Odds Björnssonar hf. á Akur-
ieyri.
Að sjá öðruvísi
Vikurútgáfan Reykjavík hefur gefið út bókina Að
sjá öðruvísi, Esseiar um mannlegt lif eftir Sigvalda
Hjálmarsson. í bókinni eru 17 ritgerðir og er hún
75. bls.
DAUÐANS
’ ,.. heitai astnóur ■ duhæn spenm |
Dyr dauðans
efatir Frank G. Slaughter.
Bókaforlag Odds Bjömssonar hefur gefið út nýja
skáldsögu eftir hinn kunna rithöfund Frank G.
Slaughter, Dyr dauðans.
Þetta er sagan um Lynne Tallman, alræmda
hryðjuverkakonu og útsendara hins illa. Hún fcrst i
flugslysi, en blaðakonan Janet Burke, sem er að
skrifa greinaflokk um Lynne og myrkraverk hennar,
bjargasi naumlega úr slysinu. Frægum skurðlækni
Mike Kerns, sem er sérfræðingur í líkamslýtum, tekst
ekki eingöngu að bjarga lífi Janet — honum tekst
•einnig með skurðaðgerðum að gera hana að stórglæsi-
legri konu sem allir karlmenn sækjast eftir og sjálfur
verður hann ástfanginn af henni. En hinn illi andi sem
|bjó i Lynne Tallman hefur nú skipt um aðsetur og
búið um sig í Janet. Þá hefst baráttan við hinn illa
anda...
Bókin er 252 blaðsíður, prentuð og bundin i Prent
verki Odds Björnssonar hf. á Akureyri. Þýðinguna
gerði Hersteinn Pálsson en bókin heitir á frummálinu
Devil’s gamble.
mabryat
Finnurfrœkni
! Prentsmiðjan Leiftur hefur gefið út Finn frækna eftir
F. Marryat, sem er drengjasaga með myndum. Finnur
frækni og drengurinn Vilhjálmur. sem enn er ungur
og óreyndur sjómaður, lenda i ótal ævintýrum. Bókin
er 167 bls.
Leynigöngin
Dularfulli skugginn
n| Frank G. | .
olauöhter
Prentsmiðjan Leiftur hefur gefið út bækurnar*
Leynigöngin og Dularfulla skuggann, um þá Hardy
bræður, Frank og Jóa, eftir Franklin W. Dixon. Gísli
Ásmundsson þýddi. Spennandi og viðburðarikar
drengjasögur.
Leynigöngin er 128 bls.
Dnlarfulliskugginner 160 bls.
CAROLYN KEENE
Tvœr nýjar Nancy-bækur
Prentsmiðjan Leiftur hefur gefiö út bækurnar Nancy
og gamla albúmið og Nancy og skakki strompurinn
eftir Carolyn Keene. Gunnar Sigurjónsson þýddi.
Nancy Drew er einkadóttir frægs málfærslumanns, og
er þess vegna hálfgerður leynilögreglumaður.
Bækurnareru 175 bls. og 141 bls.
NANCY
og skakki stiompurinn
CAROLYN KEENE
Gunnar Dal
LÍFIÐ
ASTAPA
UfiðáStapa
Vikurútgáfan hefur gefiö út Ijóðabókina Lifið á Stapa
eftir Gunnar Dal. Þetta er 28. bók höfundar og inni-
heldur 41 Ijóð. Lifiö á Stapa er 60 bls.
#
NANCY
og gamla albúmið
N 1 ÐJATAL
fiUNNLAUGS BjöRNSSONAR
á emu^Kj^fím
tHaöTAraw
oc. nGamxtm*
StfmtfciAR ÖJARNADÓmJR
CÍUf»(ÚNÁ» JONSOOTTUR
Ffi&ií i•'!>&((& fogþönm
Niðjatal
Út er komiö Niöjatal Gunnlaugs Björnssonar.bónda á
Óspaksstöðum í Hrútafirði og eiginkvenna hans
Sigríðar Bjarnadóttur og Guðrúnar Jónsdóttur.
Friðrik Theódór Ingþórsson tók saman. Prentsmiðjan
Leiftur gaf út. Niðjatalið er 206 bls. að stærð.
islenzkir á
kristniboðar W
1 bókinni íslenzkir kristniboðar segja frá bregða
höfundar upp myndum úr lifi sinu og starfi og hafa
þau fært í letur margvíslegan og forvitnilegan fróðleik
um störf sin og lifskjör fólksins er þau störfuðu á
meðal. Þau hafa öll starfaðsem kristniboðar i Eþiópiu
í 7—10 ár. Með útgáfu bókarinnar er minnzt 50 ára
afmælis Sambands ísl. kristniboðsfélaga á þessu ári.
Bókin er sett hjá Grágás, prentuð hjá Prentsmíði,
Prentmyndastofan annaðist filmuvinnu og Arnarberg
bókband. Bókaútg. Salt gefur út.