Dagblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 35

Dagblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 35
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2i. DESEMBER 1979. 47 Útvarp Sjónvarp I KASTUÓS - sjónvarp kl. 21,20: Mismunun íbúðaverðs og stjómarmyndunin „Við verðum með tvö efni í Kast- ljósi í kvöld,” sagði Ingvi Hrafn Jónsson umsjónarmaður þáttarins. „Annars vegar úttekt á íbúðaverði Byggung, en það er ótrúlega lágt. Við berum það saman við verð á íbúðum Verkamannabústaða og verð á íbúð- um hjá einstaklingsfyrirtækjum. Við munum m.a. reyna að finna út af hverju þessi þrefaldi verðmismunur stafar,” sagði Ingvi Hrafn ennfrem- ur. ,,Þá munum við fjalla um stöðuna í stjórnarmyndunarviðræðum og fá til okkar fulltrúa flokkanna í sjón- varpssal. Mér tii aðstoðar í þættinum verður Jón Björgvinsson.” Meðal annars verður fjallað um mis- mun fbúðaverðs I Kastljósi I kvöld. iS&áS POPP — útvarp kl. 15,00: VILLT STUÐLÖG EF AUGLÝSINGAR LEYFA Vignir Sveinsson verður með sfðasta poppið fyrir jól I dag. „Ég ætla að leika lög af þeim is- lenzku plötum sem hafa komið út nú fyrir jólin,” sagði Vignir Sveinsson aðspurður um Popp i dag kl. 15.00. „Þar má nefna nýju plötu Brim- klóar, Sannar dægurvísur, Bráða- birgðabúgi Spilverks þjóðanna, Villtar heimildir, tuttugu stuðlög, og Ljúfa líf Gunnars Þórðarsonar,” sagði Vignir ennfremur. ,,Auk þess verð ég með nokkrar fleiri islenzkar hljómplötur. Ég þurfti aðstytta þáttinn vegna auglýsinga, en ég er ekki viss um að hann verði flutt- ur. Hann datt úr dagskránni sl. föstu- dag og það má búast við að svo verði aftur.” Þrátt fyrir það kynnum við þáttinn í von um að auglýsingarnar verði færri en síðasta föstudag. Þetta er síðasta poppið fyrir jól sem Vignir er með i dag. - ÉLA KVÖLDVAKA — útvarp kl. 20,45: Þuríöur Páls syngur og frásöguþættir fluttir Kvöldvaka útvarpsins er á dagskrá . í kvöld kl. 20.45. Þar kennir ýmissa auk margs annars grasa sem fyrr. Þuríður Pálsdóttir syngur lög eftir Pál ísólfsson við undirleik Guðrúnar Kristinsdóttur. Séra Gísli Brynjólfsson flytur mið- hluta frásögu sinnar af Staðarhrauns- prestum. Jónina H. Jónsdóttir les kvæði eftir Sigurð Jónsson frá Arnarvatni. Siðan er frásöguþáttur sem nefnist Jólin koma, það er Jónas Jónsson frá Brekknakoti sem segir frá. Haldið til haga nefnist þáttur sem Grímur M. Helgason, forstöðu- maður handritadeildar Landsbóka- safnsins, flytur og að lokum syngur Þjóðleikhúskórinn íslenzk lög. Söng- stjórierdr. Hallgrímur Helgason. Kvöldvakan er einnar og hálfrar stundar löng. - ELA M Þuriður Pálsdóttir syngur nokkur lög I Kvöldvöku útvarpsins I kvöld. Hér er hún ásamt Guðmundi Jónssyni á söng- skemmtuninni Hvað er svo glatt... VAR ÞETTA GLÆPUR? - sjónvarp kl. 22,30: Kúgaður rithöfundur lætur til skarar skríða „Myndin fjallar um draumóra- mann sem vinnur hjá blaðaútgef- anda. Hann skrifar indíánasögur í blaðið. Blaðaútgefandinn er hið versta illmenni og hefur öll ráð rit- höfundarins í hendi sér og fer svi- virðilega með hann,” sagði Björn Baldursson blaðafulltrúi sjónvarps- ins um myndina Var þetta glæpur? i sem sjónvarpið sýnir i kvöld kl. 22.30. ,,Þá kemur til sögunnar kona sem er eigandi þvottahúss. Hún þekkir bæði útgefandann og rithöfundinn ög veit hvernig er farið með þann ,síðarnefnda. Hún hvetur rithöfund- .inn til að gera eitthvað í málinu og þegar hann óvænt fær tækifæri upp í hendurnar grípur hann það fegins hendi,” sagði Björn ennfremur. Myndin er frönsk frá árinu 1936 og nefnist á frummálinu Le crime de monsieur Lange. Leikstjórinn er hinn þekkti Jean Renoir og með aðalhlut- verk fara Jules Berry og René Lefevre Florelle. Myndin er sjötíu og fimm mínútna löng og er hún svörthvít. Þýðandi er Ragna Ragnars. - ELA Pétur Pétursson heildverzlun Suðurgötu 14. Símar21020—25101. • J) D tHdy DUKKAN Lifandi, fal/eg og sérlega meðfæriieg. Skemmtiieg húsgögn og föt íúrvaii. Fæstí flestum leikfangabúðum. KRISTALLAMPAR NÝK0MNIR UOSAKRONUR - VEGGLAMPAR 0G SAMSTÆÐULÝSING 0PIÐ TIL KL. 10 f KVOLD LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL LJÖS & ORKA Suóurlandsbraut 12 simi 84488 ... _

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.