Dagblaðið - 15.04.1980, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 15.04.1980, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1980. DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1980. íbróttir Iþróttir Sþróttir Iþróttir íþróttir íþróttir Iþróttir Þessi mynd var tekin er börnin gengu fylktu liði um Akureyrarbæ á föstudag. DB-mynd Guðm. Svansson. Keppnisgledin í algeru fyriirúmi —á Andrésar andar-leikunum íHlíðarfjalli um helgina „Litlu ólympíuleikamir” voru haldnir i Hliðarfjalli á laugardag og sunnudag. Á föstudagskvöld kl. 19.30 söfnuðust keppendur og fararstjórar að húsi Búnaðarbankans ú Akureyri, gengu fylktu liði upp að Akureyrar- kirkju þar sem mótið var sett. Síðan var komið með logandi kyndil upp kirkjutröppurnar og kveikt þar á eldi í líkingu við ólympíueldinn. Keppnin hófst á laugardagsmorgun i sól og bliðu og var greinilegt að keppnisgleðin sat i fyrirrúmi hjá hinum ungu keppcndum. Og baráttan var hörð hjá þessu unga og efnilega skiðafólki — oft munaði ekki nema örfáum sekúndubrotum í keppninni um verðlaunin. í flokki 8 ára drengja vöktu nokkrir keppendur gífurlega athygli og þar eru mikil efni á ferðinni. Áhorfendur voru fjölmargir og hvöttu keppendur ákaft til dáða. 1 lok mótsins á sunnudaginn voru verðlaun afhent við Skíðastaði. Keppendur voru alls 250 og er þetta fjölmennasta skíðamót sem haldið hefur verið hér á landi. Var gaman að sjá hversu foreldrarnir, sem komu víðs vegar að af landinu, fylgdu börnum' sínum dyggilega. Úrslit urðu þessi á mótinu: Stórsvig Stúlkur 7 ára og yngri: 1. María Magnúsd., Akureyri 2. Anna Valdimarsd., Bol. 83,3 3. Harpa Hauksd., Akureyri, 84,4 Drengir 7 ára og yngri: 1. Kristinn Björnsson, Ólafs. 76,4 2. SvavarGuðmson, Akureyri 79,4 3. Sig. Hreinsson, Húsavík, 79,9 8 ára stúlkur; 1. Rakel Reynisd., Akureyri 80,5 2. Ása Þrastard., Akureyri 80,9 3. Hildur K. Aðalsteinsd., Bol. 81,0 8 ára drengir: 1. Vilhelm Þorsteinss., Akureyri 73,1 2. Sverrir Ragnarss., Akureyri 74,2 3. JónÓlafurÁrnas., ísaf. 74,6 9 ára stúlkur: 1. Ásta Halldórsd., Bolungarvík 76,2 2. ÞorgerðurMagnúsd., Akureyri81,3 3. SólveigGislad., Akureyri 83,4 9 ára drengir: 1. Ólafur Sigurðsson, ísaf. 70,8 2. Jón Ingvi Árnas., Akureyri 72,0 3. Símon Þór Jónss., Bolungarv. 73,8 10 ára stúlkur: 1. Kristin Hilmarsd., Akureyri 118,0 2. Kristtn Jóhannsd., Akureyri 120,1 3. Þóra Víkingsd., Akureyri, 121,3 lOáradrengir: 1. Jón M. Ragnarss., Akureyri 111,7 2. Jón H. Harðarson, Akureyri, 113,1 3. Valdimar Valdimarss., Akur. 116,1 11 ára stúlkur: 1. Kristín Ólafsd., Reykjavík, 106,0 2. Gréta Björnsd., Akureyri 106,8 3. Auður Jóhannsd., Reykjavík, 107,8 11 ára drengir: 1. Björn B. Gíslason, Ólafsf. 102,6 2. -3. Brynjar Bragason, Ólafsf., og Aðalsteinn Árnason, Ak. 105,3 12 ára stúlkur: 1. Guðrún J. Magnúsd., Akur. 116,9 2. Berglind Gunnarsd., Húsav. 118,82 3. Guðrún Kristjánsd., Akureyri 121,7 12. ára drengir: 1. Guðm. Sigurjónss., Akur. 112,75 2. Smári Kristinss., Akur. 116,06 3. Kristján Valdimarss., Rvík 117,38 Svig Stúlkur, 7 ára og yngri: 1. Harpa Hauksd., Akureyri 91,0 2. María Magnúsd., Akureyri 92,2 3. AnnaS. Valdimarsd., Bol. 93,3 Drengir 7 ára og yngri: 1. Kristinn Björnsson, Ólafs. 85,3 2. -3. Svavar Guðmson, Akureyri og Sigurður Hreinsson, Húsavík 89,3 8 ára stúlkur; 1. Rakel Reynisd., Akureyri 91,6 2. Ása Þrastard., Akureyri, 92,9 3. Þórunn Pálsd., ísafirði, 94,3 8 ára drengir: 1. Sigurbjörn Þorgeirss., Akur. 81,5 2. Vilhelm Þorsteinss., Akureyri 81,6 3. Sverrir Ragnarss., Akureyri 82,8 9 ára stúlkur: 1. GeirnýGeirsd., Rvík 92,9 2. Sólveig Gíslad., Akureyri 93,5 3. Þorgerður Magnúsd., Akureyri93,6 9 ára drengir: 1. Ólafur Sigurðss., ísaf., 78,9 2. Símon Þ. Jónss., Bol. 82,0 3. Jón I. Árnason, Akureyri, 82,4 10 ara stúlkur: 1. Kristín Hilmarsd., Akureyri 81,54 2. Kristín Jóhannsd., Akureyri 84,75 3. Þóra Víkingsd., Akureyri 84,87 10 ára drengir: 1. Jón M. Ragnarss., Akureyri 80,03 2. Kári Ellertsson, Akureyri, 82,46 3. Jón H. Harðars., Akureyri 82,69 11 ára stúlkur: 1. Kristin Ólafsd., Rvík 88,21 2. Erla Björnsd., Akureyri, 91,45 3. Auður Jóhannsd., Rvík 92,79 11 ára drengir: 1. Brynjar Bragason, Ólafsf., 90,20 2. Hilmar Valsson, Akureyri 93,47 3. Sveinn Rúnarsson, Rvik 93,48 12 ára stúlkur: 1. Guðrún J. Magnúsd., Akureyri85,68 2. Guðrún H. Kristjánsd., Akur.90,23 3. Ragnh. Ragnarsd., Sigluf. 92,76 12 ára drengir: 1. Guðm. Sigurjónss., Akureyri 81,08 2. Þór O. Jónsson, Rvík 83,6 3. Smári Kristinss., Akureyri 86,26 -GS. Stórsigrar gegn ítölum og Portúgölum í badminton: „Sárgrætilegt að hafa tapað naumt fyrir Pólverjum” —sagði fyrirliði íslenzka landsliðsins, Sigf ús Ægir Árnason nokkuð auðveldlega i tvenndar- leiknum,” sagði Sigfús. „Pólverjarnir unnu Svisslendinga 3— 2 hér í kvöld og með þeim sigri ættu þeir að vinna þennan riðil. Okkur þykir því sárt að hafa tapað fyrir þeim mjög naumlega. Við vorum komin í 14—10 í úrslitaleiknum en töpuðum honum 14—17. Við fórum út með það í huga að sigra í öllum þessum leikjum og ætlum okkur ekkert annmað en sigur gegn Svisslendingum i síðasta leiknum í okkar riðli.” Baráttan um Evrópumeistaratitilinn stendur á milli Englendinga og Dana og fer innbyrðisviðureign þessara þjóða fram í Groningen í kvöld. Báðar þjóð- irnar hafa unnið andstæðinga sína i riðlinum, Hollendinga og Svía og því er um hreinan úrslitaleik að ræða í kvöld. Útilokað er að segja fyrir um úrslitin en telja verður Danina sigurstranglegri. Á meðal úrslita i gær má nefna að Englendingar unnu Svia 3—2 og Danir unnu Hollendinga 3—2 i 1. riðli, í 2. riðli sigruðu Skotar íra 4—1 og Rússar unnu V-Þjóðverja 3—2. í 3. riðli sigruðu Walesbúar Austurríkismenn 4— 1, Norðmenn Belga 3—2. í 4. riðli unnu Tékkar Finna og Ungverja 5—0 og Júgóslavar unnu Finnana 4—1. Þá vann Sviss Ítalíu 5—0 í 5. riðli — þeim, sem ísland keppir í. -SSv. Stór dagur hjá Haukum Það var stór dagur hjá körfuknatt- leiksmönnum Hauka á sunnudag. Þá fóru fram úrslit í yngrí flokkunum hjá KKÍ og urðu Haukarnir heldur betur sigursælir. Þeir urðu íslandsmeistarar i 2. og 3. flokki en ÍR-ingar unnu 4. flokkinn. Þá voru Haukarnir útnefndir bezta lið íslands í minni-bolta. Þar er ekki keppt að stigum endilega heldur velja þjálfararnir bezta liðið. Reyndust Haukarnir koma sterkastir út úr því. Annað tap KR Þróttur sigraði KR 3—2 í Reykja- víkurmótinu i knattspyrnu í gærkvöld. Sigurmark leiksins var skorað í bráðabana og reyndar mörkin öll. Þróttur fær því aðeins tvö stig fyrir þennan sigur því mörk skoruð í bráðabananum gilda ekki til aukastigs, sem annars er gefið fyrír þriðja markið. KFI sigraði Haukar töpuðu fyrir KFÍ í úrslita- leiknum í 2. deildinni í körfuknattleik. Munurinn varð aðeins 1 stig en það nægði ísfirðingunum til að fá aukaleiki við Skallagrim um sæti í 1. deildinni. Mark Hoimes ætlaði að vera með Haukunum í úrslitakeppninni en stakk siðan af án þess að kveðja kóng eða prest. Guðmundur hélt utan Eins og DB hefur þegar skýrt frá gat Jóhann Kjartansson ekki farið utan með badmintonlandsliðinu vegna veik- inda. Jóhann átti einnig að keppa i einstaklingskeppninni en að sjálfsögðu varð ekkert úr því heldur. Guðmundur Adolfsson fór utan i gærmorgun og var nýkominn til Groningen er DB hafði samband við liðið í gærkvöld. Mun Guðmundur taka sæti Jóhanns á Evrópumeistaramótinu en einstaklings- keppnin hefst á föstudag. -SSv. Guðríður Guðjónsdóttir. Heimsmet Eric Heiden bætt Þá eru heimsmetin hans Heiden tekin að falla. Vladimir Sidorov frá Sovétríkjunum bætti f gærkvöld heims- met Heidens i 1500 metra skautahlaupi á móti sem fram fór i Moskvu. Hann hljóp — eða rann öllu heldur — skeiðið á 1 mínútu, 54,58 sek. og bætti heims- metið um 0,21 sek. Þróttur og IR leika íkvöld f kvöld kl. 19 leika Þróttur og ÍR fyrri leik sinn um lausa sætið i 1. deildinni. Búast má við hörkuleik og ÍR-ingar verða að hafa góðar gætur á Sigurði Sveinssyni ef þeir ætla sér sigur í leiknum. Þá munu Þróttarar vafalílið hafa góðar gætur á Bjarna Bessasyni. Vafalítið verður hart barizt og allt á út- opnu því mikið er í húfi. Úrslitin á Selfossi Íkvöld. þriðjudag, fara fram úrslítaleikirnir í bikarkeppni blaksam- bandsins og munu þá nýbakaðir íslandsmeistarar Laugdæla mæta Þrótturum. Liðin mætast á miðri leið og leika á Selfossi. Leikir þessara toppliða blaksins hafa i vetur verið ákaflega fjörugir enda háðu þau grimmt einvígi um íslands- meistaratitilinn. Þróttarar eru staðráðnir í að hefna ófaranna gegn UMFL í vetur og hafa æft vel að undanförnu á meðan Laugdælir hafa verið í páskafríii. Leikurinn hefst kl. 19.30 en á eftir honum munu Víkingur og Þróttur leika til úrslita í bikarkeppni kvenna. Sigri Vikings-stúlkurnar verður það þeirra þriðji titill í vet#r. -kmu. Við unnum mjög auðvelda sigra bæði gegn ítölum og Portúgölum en nú þykir okkur sárgrætilegast að hafa tapað fyrir Pólverjum, 3—2 í leiknum, sem að ölium líkindum skiptir höfuð- máli um röð efstu liða í okkar riðli,” sagði fyrirliði íslenzka badminton- landsliðsins, Sigfús Ægir Árnason, i viðtali við Dagblaðið i gærkvöld. ,,Við lékum við Ítalíu í morgun og unnum þá auðveldlega, 5—0. Sigurður Kolbeinsson sigraði í einliðaleik karla, Kristín Berglind i einliðaleik kvenna og Sif Friðleifsdóttir og Kristin Berglind í tviliðaleik kvenna, Síðan tókst mér og Sigurði að sigra í tvíliðaleik karla og síðan unnum við Sif tvenndarleikinn, r sagði Sigfús Ægir ennfremur. „Leikurinn gegn Portúgölum varð auðveldari en við bjuggumst við fyrir- fram. Við sigruðum þá einnig 5—0 án nokkurra teljandi erfiðleika. Broddi Kristjánsson vann sinn andstæðing i einliðaleik karla og Kristín Magnús- dóttir vann einliðaleikinn hjá konun- um. Þær nöfnur Kristín Berglind og Magnúsdóttir unnu svo tvíliðaleikinn og mér og Sigurði Kolbeinssyni tókst að leggja okkar mótherja að velli i tví- liðaleiknum. Broddi og Sif sigruðu svo DBáPolar Cup í Ósló Það hefur vart farið framhjá þeim er á annað borð lesa íþróttasiður Dag- blaðsins að Norðurlandamótið I körfuknattleik var háð i Osló um helgina. Að sjálfsögðu hafði DB út- sendara þar, Ólaf Brynjar Halldórsson. Myndirnar hér að ofan og til hliöar voru teknar af Ólafi I leik íslands og Noregs en þann leik vann landinn sem kunnugt er, 83—58. Á efri myndinni „treður” Pétur Guðmundsson knettinum í körfu Norðmanna með miklum tilþrifum en Péfur hlaut öll einstaklingsverðlaun mótsins. Skoraði hann t.d. 100 stig i leikjunum fjórum — 31 stigi meira en næsti maöur fyrir neðan. Þá hirti hann einnig langfiest fráköst og var að auki með beztu vítahittnina. Vakti frammistaða Péturs gífurlega athygli í Noregi. Settu þeir sinn stærsta mann til höfuðs honum en án sýnilegs árangurs. Fastlega má búast við að Pétur gerist atvinnumaður í íþróttinni innan skamms. Simon Ólafsson læðir hér knettinum ofan f körfu Norðmanna. DB-mynd -óbh. Guðríður vann báða titlana — í keppni Dagblaðsins í 1. deild kvenna Um helgina lauk keppni í 1. deild kvenna og um leiö varð það Ijóst að Guðríöur Guðjónsdóttir úr Fram myndi hljóta bæði einstaklingsverð- laun Dagblaösins fyrir frammistöðu sina i vetur. Það ætti reyndar ekki að koma neinum á óvart því Guðriður ber höfuð og herðar yfir aðrar handknatt- leiksstúlkur hérlendis þrátl fyrir ungan aldur. Guðríður hlaut alls 95 stig í 13 leikj- um i einkunnagjöf eða 7,31 i meðalein- kunn. Næstar á eftir henni urðu þær stöllur úr Hafnarfirði Margrét Theódórsdóttir úr Haukum og Kristjana Aradóttir úr FH. Þær hlutu báðar 94 stig í 14 leikjum eða 6,72 í meðaleinkunn. Þessar þrjár skáru sig nokkuð úr. Gutríður vann ekki aðeins verðlaun DB sem bezti leikmaður í I. deild kvenna. Hún varð einnig markahæst í I. deildinni þrátt fyrir að leika einum leik minna en helzti keppinauturinn. Guðríður skoraði 112 mörk í 1. deild i vetur — þar af 48 úr vitaköstum. Margrét Theódórsdóttir varð í 2. sæti yfir tnarkaskorara með 105 mörk — þar af 58 úr vítaköstum. Kristjana Arad., varð 3. með 88 mörk og voru 37 þeirra úr vitaköstum. Það verða því þær sömu þrjár sem hirða verðlaun DB en ætlunin er að afhenda þau nú á næstunni. Lokastaðan í 1. deild kvenna varð þessi: Fram Valur KR Víkingur Haukar FH Þór Grindavik -SSv. Ágúst vann bikarinn til eignar Fyrir nokkru var Álafosshlaupið haldið og urðu úrslit i því sem hér segir: Karlar6.3 km (9 kepp.) min. 1. Ágúst Þorsteinsson, UMSB 18:42 2. Sigurður P. Sigmundsson, FH 18:54 3. Jóhann Sveinsson, UBK 20:04 Ágúst vann bikar í þriðja sinn og til eignar. Konur 3.0 km (3 kepp.) mín. 1. Thelma Björnsdóttir, UBK 11:19 2. Sóley Karlsdóttir, UBK 12:03 3. Margrét Hallgrímsd., Á 13:06 Stúlkur3.0 km (4 kepp.) min. 1. Hrönn Guðmundsd. UBK 11:56 2. Sóley Kristjánsd., UBK 12:18 3., Alfa Jóhannsd., UMFA 12:45 Drengir 3.0 km (3 kepp.) mín. 1. Óskar Þ. Snæland, UMFA 10:08 2. Jón Jónsson, UMFA 10:13 3. Arnþór Sigurðsson, UBK 10:43 Strákar 2.0 km (10 kepp.) mín. 1. Björn Már Sveinbjörnsson, UBK 7:26 2. Hrcinn Hrafnsson, UBK 7:29 3. Jön B. Björnsson, UBK 7:30 Stelpur 2.0 km (7 kepp.) mín. 1. Linda B. Loftsdóttir, FH 7:54 2. Gunnhildur Gunnarsd., UBK 8:08 3. Eyja Sigurjónsd., UBK 8:13 Kvennalandsliðs- hópur valinn Fyrir nokkru var valinn allstór hópur til kvenna- landsliðsæfinga, sameiginlega með tviþætt verkefni fyrir höndum. Annars vegar að byggja upp sterkt A- landsliö og hins vegar (il undirbúnings þátttöku I Norðurlandamóti stúlkna hér á landi i haust en rélt til þátttöku þar hafa stúlkur fæddar eftir 1. janúar 1960. Eftírtaldar stúlkur voru valdar til þessara æfinga, og koma til með að leika við færeyska kvennalandsliðið sem væntanlegt er hingað 24. apríl nk. í framhaldi af leikjum við Færeyinga eru ýmsar hugmyndir á lofti og munu þær skýrasl er fram líöur, m.a. er boð til Bretlands (á„tu> neringu”) i endaöan ágúst. Nafnalisti: Margrét Blöndal, Fram, Guðríður Guðjónsdóttir, Fram, Sigrún Blomsterberg, Fram, Þórlaug Sveinsdóttir, Fram, Kolbrún Jóhannsdóttir, Fram, Jóhanna Halldórs- dóltir, Fram, Oddný Sigsteinsdóttir, Fram, Jenný Lind Grétudóttir, Fram, F.rna Lúðviksdóttir, Val Karen Guönadóttir, Val, Sigrún Bergmundsdóttir, Val, Ólafía Guömundsdóttir, Val, Harpa Guðmundsdóttir, Val, Eirika Ásgrímsdóttir, Víkingi, íris Þráinsdóttir, Víkingi, Sigurrós Birna Bjarnadóttir, Víkingi, Arna Garðarsdóttir, KR, Hjördís Sigurjónsdóttir, KR, Olga Garöarsdóttir, KR, Karólina M. Jónsdóttir, KR, Ása Ásgríms- dóttir, KR, Sóley Indriðadóttir, Haukum, Margrét Theódórsdóttir, Haukum, llalldóra Mathiesen, Haukum, Erla Rafnsdóttir, ÍR, Katrín Friöriksson, ÍR, Ásta Gunnlaugsdóttir, ÍR, Svanlaug Skúla- dóttir, ÍR, Sólveig Birgisdóttir, FH, Katrín Danivalsdóttir, FH, Kristjana Aradóttir, FH, Svanhvit Magnúsdóttir, FH, Eva Baldursdóttir,. Fylki. Æfingar hafa veriö nær daglega síðustu daga og stundum tvistar á dag. Landsliösnefnd kvenna skipa Jón Kr. Óskarsson formaður, Elín Helgadóltir og Sigurbergur Sigsteinsson sem jafnframt er þjalfari stúlknanna. Getrauniraðhætta Í 32. leikviku getrauna komu fram 9 raðir með 11 réttum og var vinningur fyrir hverja röð kr. 238.000,- Með 10 rétta leiki voru 120 raöir og vinningur fyrir hverja kr. 6.400.- Á síðasta ári fóru norsku getraunirnar i fyrsta sinn yfir milljarð norskra króna i ársveltu, eða um 83 milljarða íslenzkra króna i dag. Af rekstrinum varð 365.000.000 kr. hagnaður eða um 30 milljarðar íslenzkra króna og skiptist hann jafnt milli íþrótta- hreyfingarinnar og vísindastarfa. Nú eru aðeins 3 getraunavikur eftir en starfsemi getrauna á þessu voru lýkur með leikjum laugar- daginn 3. maí. Aðeins Árni vann Aðeins Árni Stefánsson var í sigurliði er sænska Allsvenskan hófst um helgina. Lið Árna, Landskrona, sigraði þá Sundsvall léttilcga 4—0. Gautaborg, lið Þorsteins Olafsson, náði aöeins jafntefii gegn nýliðunum Braga, 1—1 og það á heimavelli. Þá gerði Öster, lið Teits Þórðarsonar, markalaust jafntefii.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.