Dagblaðið - 19.04.1980, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980.
5
Fraktf lutningar hafa
tvöfaldazt frá 1974
— rætt við f raktsölustjóra Flugleiða
íBandaríkjunum sem
hefur þjónað Loftleiðum og
Flugleiðum Í24ár
Alfred J. Shea fraktsölustjörí Flugleiða 1 Bandaríkjunum. DB-mynd: Bjarnleifur.
Alfred J. Shea fraktsölustjóri Flug-
leiða dvaldist hérlendis í vikunni þar
sem hann ræddi við forráðamenn Flug-
leiða um fraktflutninga félagsins og
einnig við starfsbræður sína í Luxem-
borg, sem einnig komu hingað til
fundarins. Slíkur fundur er haldinn
árlega.
Dagblaðið ræddi stuttlega við Al,
eins og hann er kallaður. Hann er
Bandarikjamaður, en hefur starfað
sem sölumaður og sölustjóri í frakt-
flutningum flugfélaga i 34 ár og þar af i
24 ár sem starfsmaður Loftleiða i
Bandaríkjunum og síðan Flugleiða eftir
sameiningu Loftleiða og Flugfélags
íslands. Hann er því málum þessum
gjörkunnugur. Hann hefur komið til
íslands a.m.k. einu sinni á ári þessi ár
og fylgzt með þeim miklu breytingum,
sem orðið hafa á öllu þjóðlífi hérlendis
og hann hafði sérstaklega orð á.
„Við förum í gegnum áætlanir um
pláss og ferðatíðni á þessum fundum
okkar,” sagði Al. „Ég er ábyrgur fyrir
sölu á fraktflutningum í Bandaríkjun-
um og einnig þjónustu við viðskipta-
vini okkar. DC-8 þotur Flugleiða eru
mjög heppilegar fyrir slíka flutninga,
en þær bera um 5 tonn af vörum þótt
þær séu fullar af farþegum.
Ferðatíðni yfír N-Atlantshafið er að
aukast aftur með tilkomu sumar-
áætlunar og er gert ráð fyrir 10—11
ferðum á viku. Við höfum vissulega
lent í vandræðum í vetur, þegar ferða-
tiðniri dróst mjög verulega saman
vegna erfiðleika félagsins. Það munar
að sjálfsögðu mikið um það, ef ferð-
irnar fara allt niður í tvær á viku, frá
þvi að hafa verið allt að tveimur á dag.
Áætlanir um flug milli Bandarikj-
anna og tslands ná aðeins til haustsins,
þar sem ekki hefur verið tekin
ákvörðun um þetta flug lengra fram í
tímann, en við vonum að sjálfsögðu að
þetta flug haldi áfram og á þessu stigi
er engin ástæða til að halda annað.
Fraktflutningar með flugvélum hafa
aukizt mikið um allan heim undanfarin
ár. Með þessu móti ná fyrirtæki meiri
veltu vörunnar og þar af leiðandi
meiri hagnaði. Það er varla mikið meiri
kostnaður af flutningum með flug-
vélum en skipum, ef þetta er tekið með
i reikninginn og einnig það, að vara
skemmist síður i flugvélum, þarf minni
pakkningar og útheimtir lægri
tryggingakostnað. En að sjálfsögðu er
ekki hægt að flytja alla vöru með flug-
vélum.
Fraktflutningur Flugleiða hefur
tvöfaldazt i tonnum á árabilinu 1974—
1979. Flutningur frá Bandarikjunum til
íslands er yfirleitt nægur, en verr
gengur að fylla fraktrýmið út. Þó hefur
sá flutningur aukizt, t.d. fiskur og ull.
Sá varningur sem mest er flutt af með
fiugvélum er fatnaður og síðan græn-
meti.
Við reynum að bæta þjónustuna
með auknu flugi,” sagði Al Shea, ,,og
framboðið i sumar verður meira en í
fyrrasumar. Þá er það og mitt hlutverk
að aðstoða íslendinga í Bandarikjunum
að ná samböndum, sem opna
islenzkum vörum markað í Bandaríkj-
unum.” -JH.
Hellissandur
Umboðsmann vantar frá 1. maí nk. Uppl.
í símum 93-6749 eða 91 -22078.
MMBIAÐIB
OPIÐ
KL. 9-9
. Allar skraytíngar unnar af fag-
mönnum.
N«.g bllasfcaSI a.n.k. á kvöldia
niOMíAVixrml
HAFNARSTRÆTI Simi 12717
ÍGNBOGII
Q 19 OOO
CAra GTtaNT
Lesue Caton
TÁTHeR Goose
Co-Starring
TrevoR Howaro
GÆSAPABBI
Hvað varðaði Eckland prófessor um svona smámuni eins og heims-
styrjöld? — Bráðskemmtileg gamanmynd með úrvals leikurum. Myndin
var áður sýnd hér fyrir 12 árum.
íslenzkur texti.
Sýndkl. 3,5.05,7.10,9.20.
11.-21. maí kr. 248.000
Gisting í Dublin á Royal Marine og South County. Sérstaklega veröur hugsaö
fyrir óskum golfáhugamanna, valinkunnur kylfingur verður fararstjóri þeirra og
útvegar þeim bestu fáanlegu golfvellina. Knattspyrnuáhugamenn fá heims-
meistara Argentínu í heimsókn til Dublin og geta fylgst þar meö landsleik þeirra
gegn írum.
21.-26. maí kr. 178.000 Sælkeraferð kr. 198.000
Stutt og bráðskemmtileg hvítasunnuferð. Gisting á Royal Marine og South
County. Sérstök dagskrá fyrir sælkera verður einnig skipulögð. Sigmar B.
Hauksson þræðir þá alla bestu veitingastaðina og býður samferðafólki sínu upp
á allt það besta sem til er í írskri matargerð. Smökkunarferðir verða farnar í
helstu bjór- og vínkjallara heimamanna.
Innifalið í verði er flug, gisting með ósviknum og vel útilátnum írskum morgun-
verði, flutningur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn. í sælkeraferðinni er
einnig innifalinn allur flutningur á og af veitingastöðum.
Verslunarferðir í sérflokki. írska pundið 10% hagstæðara en það enska!
Samvinnuferóir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SIMAR 27077 & 28899
W
Odýrar og spennandi
feroir í maí