Dagblaðið - 21.04.1980, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. APRÍL 1980.
Ný kenning um jaröiðragas
sem leystgæti alla orkuþörf
—Nútíma stjömueðlisfræði styður kenningu um að
langt undir núverandi kola- ogolíulögumséaðfinna
miklu orkuríkari eldsneytislög
Ef framkomnar kenningar um til-
veru ólífrænna kolvetna i iðrum
jarðar reynast réttar kunna jwr að
breyta framtíðarhorfum i orku-
málum heimsins á byltingarkenndan
hátt og það jafnvel i náinni framtíð.
Samkvænu þessum kenningum er um
að ræða svo mikið magn gass i jörðu
að það verður súrefnismagnið í and-
rúmsloftinu sem nauðsynlegt er til
brennslu gassins, sem vcrður hinn
takmarkandi stuðull.
Bandariski prófessorinn Thomas
Gold er frumkvöðull kenninganna
um þetta mikla magn af jarðiðragasi.
Kynnti hann kenningar sínar fyrir
troðfullu Rúsi verkfræðinga "ög
visindamanna i sögufrægum fundar-
sal Bohr-stofnunarinnar i Kaup-
mannahöfn nýverið og Jörgen
Koefoed prófessor ritar um það i
,,lngeniören” 21. marz sl. Þykja
honum kenningarnar mjög áhuga-
verðar vegna þess að grundvöllur
þeirra sé núverandi þekking á
uppbyggingu jarðarinnar, en jafn-
framt sé um að ræða nokkuð
byltingarkenndar vísindalegar ágizk-
anir, sem hvorki sé hægt að sanna né
afsanna nú.
Ljós var þó að kenningar Golds
hittu beint i mark og vísindamönnum
þóltu þær sannfærandi.
Vegna fyrirsjáanlegrar orkukreppu
i heiminum hafa kenningar sem
þessar meira gildi en ella og orku-
skorti er það að þakka eða kenna að
leitað hefur verið nýrra efna til að
metta orkuþörf heimsins. Staðreynd
er að bæði í Bandaríkjunum og í
Sovétrikjunum hefur fundizt mikið
magn metans i ýmsu formi i jörð á
miklu dýpi (5—10 km). Það er rikj-
andi skoðun að gas, olíur og kol séu
lífræn brennsluefni i þeim skilningi
að þau myndist af leifum lifrænna
efna. Talið er að þessi lífrænu efni
hafi komizt djúpt i jörðfu vegna
hreyfinga jarðskorpunnar, en vart sé
þess að vænta að það sé ncma mjög
takmarkað magn sem komizt hafi
djúpt i jörð á þann hátt og slikar
leifar sé aðeins að finna á tak-
mörkuðum svæðum.
Á þessum stað, þar sem hinn al-
menni skilningur manna á tilurð
eldsneytis i jörð endar, hefjast kenn-
ingar Thomas Gold. Kenningarnar
eru flóknar, nánast sem pússluspil.
Sumt er þekkt, annað ekki. En
kenningarnar eru þannig samsettar
að þær veita innsýn í hið áður
óþekktaefni — jarðiðragasið.
Kol úr
geimnum
Nútíma stjörnueðlisfræði Jiefur
kennt visindamönnum að einfaldar
lífrænar sameindir séu í gífurlegu
magni í geimnum. Efnagreining loft-
steina hefur sýnt að margir innihalda
umtalsvert magn lífrænnasambanda,
og þar sem talið er að jörðin sé
mynduð við samsöfnun -loftsteina-
efnis er mjög liklegt að mikið af
þeim kolefnum sem í jörðinni eru séu
þangað komin og hafi geymzt þar
sem kolvetni, einnig i lögum á miklu
dýpi.
Það er gastæming þessara djúpu
laga sem er aðalatriði kenninga
Golds. Vatnsgufa og koldioxíð eru
aðalefnin sem streyma út vtð eldgos,
en ildingin gæti hafa átt sér stað á
siðustu stigum útstreymisins. í
kolanámum og olíulindum finnst oft
metan, og hugsanlegt er að það hafi
komið neðan frá (dýpra að), hugsan-
lega með öðrum kolvetnum og átt
þátt í myndun kolanna og olíunnar.
Spurningin stóra er hversu langt
„aftöppun” gasefna hinna djúpu
laga er komin, eða hvort ennþá
finnast kolvetni í gifurlegu magni i
iðrum jarðar.
Vísindamenn telja kenningu Golds
ntjög athyglisverða en enginn getur
sagt neitt afgerandi um hana. En
vinni hún sér fylgi gæti það leitt til
þess að sá spenningur sem rikir varð-
andi olíu framtíðarinnar minnki,
segir prófessor Koefoed í
áðurncfndri grein í Ingeniören.
-A.Sl.
ff
Við höfum sjálf orðið slíkra
kolefna vörí eldgosum hér"
—sagði Gísli Ólafsson verkfræðingur
,Hér er um mjög athyglisverð-
ar kenningar að ræða,” sagði
Gisli Ólafsson verkfrteðingur hjá
Landsvirkjun er DB leitaði álits
hans á frásögninni af kenningum
prófessors Th. Golds.
,,Við höfum orðið þess
margofl vör í eldgosum hér að
koldíoxið stígur upp og leggst ii
bolla og gjótur. Það bendir
óneitanlega til kolefna í jörðu og
séu þau í gifurlegu magni er
kenningin mjög athyglisverð.
Sé allt þetta rétt og menn öðlist
tækni til að bora lengra en þá 5—
10 km sem þegar hefur tekizt að
bora í jörðu, þá er orkukreppa og
orkuskortur úr sögunni um langa
framtið. Við íslendingar ættum
því að flýta okkur að virkja okkar
vatnsafl, þvi vart munum við eiga
kost á að framkvæma þær dýru
boranir sem þarf eftir hugsanlegu
gasi i iðrum jarðar,” sagði Gisli.
Gísli taldi að það myndi innan
skamms koma i Ijós hvort fram-
sett kenning væri rétt eða ekki.
Framfarir væru örar á tækni-
sviðinu. „Ég vil taka fram,”
sagði hann, ,,að ég hef lesið
mikið eftir Jörgen Koefoed
prófessor en aldrei vitað hann
fara með fleipur né halda á lofti
vafasömum kenningum eða öðru
því sem hann sjálfur trúir ekki
á.” -A.St.
Skátasamband Reykjavíkur:
Skátar á fullu. Sigrún Ámundadóttir, Bryndis Bragadóttir og Asta Þorsteinsdóttir.
Ádur en byrjað er þarf að skola pensla og taka til það sem nota þarf við vinnuna. Öll vinna skátanna er unnin í sjálfboða-
vinnu. Á myndinni eru Sigrún Ámundadóttir, Gunnar Atlason, Bryndfs Bragadóttir og Erla Elln Hansdóttir skátaforingi.
DB-myndir: Þorri.
Kristfn Ingvarsdóttir málar hér eitt spjaldið. Bak við það verða sett logandi kerti og
sá sem getur slökkt á kertinu fær verðlaun.
TIVOLISUMAR-
DAGINN FYRSTA
—unnið affullum krafti við uppsetningu
,,Við vinnum núna af fullum krafli
að undirbúningi fyrir sumardaginn
fyrsta. Þá munu skátarnir„i Reykjavik
verða með tívolí-skemmtun í Austur-
stræti. Þetta kostar gifurlega vinnu sem
öll er unnin i sjálfboðavinnu,” sagði
Erla Elín Hansdóttir skátaforingi í
samtali við DB.
,,Við fáum fólk úr öllum skátafélög-
um hérna í bænum til að mála og
srníða. Það þarf að gera alls kyns
dótari, l.d. rúllettur. Það verður boðið
upp á ýmislegt í tívolíinu, s.s.
veðreiðar, tuskukast, „gríptu glerið,"
l.ykla-Pétur, Rósabakka og alls konar
hæfnisspjöld. Siðan á fólk að sýna
hæfni sýna með þvi að hitta. í slaðinn
fær það verðlaun eða endurgreiðslu,”
sagði Erla Elín.
I tívolíinu gilda sumarkrónur sem
kosta eitt hundrað krónur stykkið. Það
er sama verð og við vorum með í fyrra.
Þvi hcfur verið haldið fram að við
séum með þessu að græða á börnum.
Það er alls ekki rélt. Siðustu tvö árin
hefur tívolíið verið rekið með halla.
Skátasamband Reykjavíkur hefur
greitt hallann en það er framkvæmdar-
aðili. Við vonumst til að þetta geti
orðið hallalaust núna.
Þar sem mikil rigning var i l'yrra
þurfti að gera ný spjöld núna, fara yfir
spjöld og hreinsa þau. í þessu hel'ur
hópur skáta verið að vinna. Ásumar-
daginn fyrsta fara skrúðgöngur skáta
bæði frá austur-og vesturbænum. Þær
munu mætast á Lækjartorgi kl. 14,00
þar sem tívoliið byrjar,” sagði Erla
Elín Hansdótlir skátaforingh----Kl.A.