Dagblaðið - 10.05.1980, Page 1
6.ÁRG. — LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1980. — 106. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI27022.
Kaupmaöur fullyróir við DB:
„STÓRSMYGL Á ARGEN-
TÍNSKU NAUTAKJÖTI”
—íslenzki stofninn annar ekki eftirspum eftirgóðum vörum
—Verzlanirogveitingahússögöíföstumviöskiptum
Argentínskt nautakjöt fæst nú
víða í verzlunum í Reykjavík.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum
DB hefur ólöglegur innflutningur
þess viðgengizt alllengi. Kjötið er
sagt koma með skipum, aðallega frá
Evrópu, og einnig mun eitthvað vera
um kjöt frá Belgíu. Fuilyrt er að kjöt
þetta sé til sölu í verzlunum og veitt á
veitingahúsum.
í viðtali DB við kaupmann kom
fram að mikið framboð sé á þessu
nautakjöti og séu margar verzlanir og
veitingahús með föst viðskipti. Kjöt
þetta er mýkra og grófara en íslenzkt
nautakjöt en bragðminna. Aðallega
er um að ræða innflutning á góðum
vöðvum í betri steikur, lundir og
,,rillet”.
Kaupmaðurinn sagði að það lægi í
augum uppi að islenzki nauta-
stofninn annaði ekki eftirspurn eftir
góðum vöðvum. ,,Ef maður á að
sinna kröfum fólks verður eitthvað
svona að koma til,” sagði kaup-
maðurinn.
Kjöt þetta er geymt i frystihúsum
bæði í Reykjavík og úti á landi. Þá
sagði kaupmaðurinn að fyrir utan
nautakjötssmyglið væri mikið um
annarskonar matvælasmygl og væru
það t.d. kjúklingar og skinka. Slíkt
smygl hefði tíðkazt í mörg ár en þó
mætti segja að nokkuð hefði dregið
úr því eftir að söluskattur var felldur
af matvælum. Síðan væri ekki eins
mikið upp úr sölu á smygluðum mat-
vælum að hafa. Kaupmaðurinn sagði
að smyglaða nautakjötið sem hingað
ibærist væri gæðakjöt og stimplað
sem slíkt erlendis.
Innflutningur á hráu kjöti er
bannaður til íslands, svo sem
kunnugt er.
-JH.
J
Olíumöl
skoðuð
betur
„Olíumalarmálið verður ekki
tekið fyrir fyrr en eftir helgi,” sagði
Eiður Guðnason, formaður fjár-
veitinganefndar Alþingis, í gær.
„Menn eru að skoða máliö í gegn og
\ þingflokkarnir hafa óskað eftir því
aðmáliðyrðiathugaðbetur. Þetta er
töluvert umfangsmikið mál.
Þá má geta þess að sam-
gönguráðherra ererlendisogþarsem
um vegagerö er að ræða snertir það
hans ráðuneyti. Það hefur því verið
óskað eftir þvi að beðið verði með á-
kvörðun í máli Olíumálar þar til hann
kemur heim, en það verður nú um
helgina,” sagði Eiður.
-JH.
Meiri heims-
listíbænum
Það ætlar ekki að verða lát á
merkum erlendum listsýningum hér í
bænum. Nýverið lauk mjög vinsælli
sýningu á norrænni vefjalist að Kjar-
valsstöðum og á verkum úr Sonja
Henie-Niels Onstad safninu í Noregi i
Norræna húsinu. í stað þeirra koma
annars vegar sýning á grafík þýzku
expresssjónistanna og á verkum
sænsk-ungverska myndlistar-
mannsins Endre Nemes.
Fyrri sýningin er haldin að Kjarvals-
stöðum að tilhlutan Germaníu og eru
þar verk eftir nokkra þekktustu
myndlistarmenn 20. aldar, þ.á.m.
Kandinsky, Klee, Kokoschka, Nolde,
Kirchner, Beckmann og Marc.
Síðari sýningin fer fram í
Norræna húsinu. Endre Nemes, sem
er af ungverskum uppruna, hefur
•haft mikil áhrif á þróun sænskrar
máiaralistar undanfarna ártugi. í.
verkum sinum blandar hann saman
súrrealisma, afstraktlist og öðrum
stílbrigðum, en er þó sinnar gæfu
smiður. Báðar sýningarnar hefjast 1
dag.
„ -AI.
Fundaö um áhrif
kristinna manna í
stjómmálum:
Hefmikinn
áhuga á stof n-
un kristilegs
stjórnmála-
flokks
— segirÁrni Gunn-
laugsson hæsta-
réttarlögmaður
,,Ég get alveg sagt það að ég hef
mikinn áhuga á því að slíkur flokkur
verði stofnaður hér á landi,” sagði
Árni Gunniaugsson hæstaréttarlög-
maður í Hafnarfirði er DB spurði
hann hver hugur hans væri tii þess að
stofnaður yrði kristilegur stjómmála-
flokkur hérálandi.
í framhaldi af fundi sem haldinn
var í Hallgrímskirkju 6. marz síðast-
liðinn til að kynna kristilegu stjóm-
málaflokkana á Norðurlöndum efnir'
Menntamálanefnd þjóðkirkjunnar til
opins umræðufundar um áhrif og á-
byrgð kristinna manna i stjórnmálum
á morgun í Hallgrímskirkju kl. 4 e.h.
Frummæiendur verða sr. lngólfur
Guðmundsson æskulýðsfulitrúi, og
Páll V. Daníelsson, forstjóri Lands-
sambandsins gegn áfengisbölinu.
Menntamálanefndinni höfðu borizt
óskir um að ræða þetta mál nánar á
opinberumvettvangi.
,,Ég tel að kristin áhrif veröi að
vera sem sterkust i þjóðfélaginu og
því tel ég að gagn væri af stofnun
slíks flokks,” sagði Árni.
„Þessir flokkar á Norðurlöndum
hafa haft mjög jákvæð áhrif á aðra
flokka þar og margir telja sömu þörf
á þeitn hér og þar. Ég veit að þaö er
áhugi á þessu,” sagöi Ámi.
Aöspuröur um hvort hann kynni
að beita sér fyrir stofnun slíks flokks
sagði Árni að málin væru ekki komin
svo langt enn að farið væri að vinna
skipulega að stofnun sliks flokks hér
á landi. ,,En ég er mjög hrifinn af
þessum hugsanagrundvelli,” sagði
Árni að lokum.
-GAJ.
Nökkvi VE-65 strandaði í gær:
Skipverjum bjargað
með fluglínustól
Björgunarsveit slysavarnafélagsins
í öræfum bjargaði í gær fjórum
mönnum meö fluglínustól úr Nökkva
VE-65 sem strandað hafði um 3,5
sjómílur vestan Ingólfshöfða.
Það var laust fyrir kl. 11 i gær-
morgun að Homafjarðarradíói barst
tilkynning um að báturinn hefði
strandað. Voru björgunarsveitir
slysavamafélaganna á öræfum og í
Höfn þegar í stað kallaðar út.
Veður var slæmt, austnorðaustan
9 vindstig, og braut nokkuð mikið á
bátnum. Báturinn Þórunn Sveins-
dóttir frá Vestmannaeyjum kom
fljótlega á vettvang og var í sambandi
við Nökkva, sem um hádegisbilið
hafði færzt inn fyrir grunnbrotið.
Um kl. eitt kom björgunarsveit
öræfinga á slysstað en þar var þá
mjög slæmt skyggni. Engu að síður
hafði tekizt að bjarga öllum skip-
verjunum rétt fyrir kl. 2. Voru þeir
blautir en annars amaði ekkert að
þeim. Þá var kominn leki að bátnum,
en að öðru leyti ekki vitað um útlit
varðandi afdrif hans.
Nökkvi VE—65 er 53 tonna eikar-
bátur, smíðaðurá ísafirði 1946.
-GAJ.
Beðið eftirstrœtó.
DB-mynd Þorri.