Dagblaðið - 10.05.1980, Síða 3

Dagblaðið - 10.05.1980, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1980. 3 SOfóstrur íKópavogi um lokun dagvistunarstofnana: Allt markvisst starf myndi leggjast niður —ef bömin og starfsf ólkið værí að tínast í f rí allt sumarið Þrjátíu fóstrur í Kópavogi skrifa: Mikil gagnrýni hefur komið fram á þessari síðu vegna sumarlokunar dagvistunarheimila. Okkur fannst því rétt að leggja orð í belg hvað þetta varðar. Miklar umræður hafa átt sér stað undanfarið ár og er fullur skilnittgur á því að þetta getur verið óþægilegt bæði fyrir foreldra og starfsfólk þessara stofnana, sem verður að taka sitt sumarfrí á þessum tima. Það sem málið snýst um er fyrst og fremst barnið. Dagvistunarheimili eru uppeldisstofnanir og þar vinnur starfsfólk með uppeldismenntun og sérhæft á því sviði. Við fáum ekki sérhæft fólk til að vinna á þessum stofnunumi sumarafleysingum.nema þá að litlu leyti, því fóstruskortur er mikill. Það gefur þvi augaleið að þessar stofnanir yrðu yfir sumarmánuðina geymslustaður þar sem sífellt væru að koma nýir starfsmenn. Allar slíkar breytingar hafa mjög slæm áhrif á börnin og þau verða óörugg og vansæl. Dagvistunarheimili ogskólar eru alveg það sama, þreyta er komin bæði í böm og fullorðna eftir langan Of þung tónlist f poppinu hjá Páli Magnús Skarphéðinsson hringdi: Mig langar að koma því á framfæri við Pál Pálsson, umsjónar- mann Popps, að hann spilar allt of mikið af harðri rokktónlist. Það er mjög lítill hópur þjóðarmnar sem hefur áhuga fyrir þeirri tónlist. í þættinum mætti vera blönduð tónlist og harða rokkið er allt í lagi með. Bæði ég og starfsfélagar mínir erum orðnir þreyttir á þessu þunga rokki. Ég vil líka koma því á framfæri við Pétur Péturss. þul að hann spilar allt of mikið af ættjarðarlögum. hann mætti hafa frjálsara val á tónlistinni. Ragnheiður Ásta er góð og Kristján Róbertsson er langbe/.tur. Jón Múli getur verið ágætur, hann er þó kannski með frekar mikiðaf jassi. Þátturinn hans Þorgeirs Ástvalds- sonar er til fyrirmyndar. En annars finnst mér fullmikið af þyngri tónlist i útvarpinu. „Allar hrevtingar hafa slæm áhrif á börn og þau verða óörugg og vansæl,” segja 30fóstrur í Kópavogi i svari sínu til þeirra. sem eru óánæt'ðir með lokun dag- vistunarstofnana i júlímánuði. DB-tnynd: Bjarnleifur. vetur. Við teljum það hafa ómetanlegt gildi fyrir allt starf á dag- vistunarheimilum að allir fari í frí á sama tima. Að sumarleyfi loknu mætum við íll aftur frísk, endur- nærð ogánægð. Ef þessi regla yrði felld niður væru börnin og starfsfólkið að tinast i frí allt sumarið og þar af leiðir að allt markvisst starf á dagvistunar- heimilunum myndi leggjast niður yfir sumarmánuðina. Gullarm- band týndist Gömul kona hringdi til blaðsins og var i öngum sinum yfir því að hafa týnt gullarmbandi. Sagði hún armbandið vera ættargrip og væri henni sárt um að missa hann. Kvaðst hún halda að hún hafi týnt armbandinu við Hagkaup, Finnandi er vinsamlega beðinn að koma því til lögreglunnar. Fundarlaun eru i boði. Hvað ætlar ríkið að gera fyrir þásem ekki geta ekið bfl? Oryrki á Suöurnesjum hringdi: Rikið hefur hlaupið undir bagga með öryrkjum svo þeir geti keypt sér bíl. Mig langar að spyrja hvað gerir rikið fyrir þá, sem hvorki hafa efni né aðstæður til að eignast bíl? i Reykja- vík fá öryrkjar afslátt í strætisvagna, en hér á Suðurnesjum, þar sem ég bý, er ekkert slíkt um að ræða. Annaðhvort verður maður að kaupa sér leigubil á hæsta verði eða fara i rútubil og þá borgar maður sama gjald og aðrir. Þeir sem ekki geta keypt bil eru að mörgu leyti enn verr settir en þeir sem geta það. Mér finnst hér vera óréttlæti á ferðinni og þvi spyr ég: Hvað ætlar rikið að gera fyrir hina sem ekki geta ekið bil? _ KonicaFS-1 Ennþa SKREF/ Á UNDAN Fyrsta sjálfvirka reflexmyndavélin með innbyggðum trekkjara (auto winder). Þú seturfilmu í vélina og lokar filmubakinu og vélin trekkir fram á jyrstu mynd. innbyggði trekkjarinn í samvinnu við hina þekktu Ijósopssjáljvirkni Konica hjálparþér að ná hröðum myndskiptum. Konica býðurþér upp á mikið úrval aukahluta, m.a. linsurfrá 15 mm til 100.0 mm. Líttu inn og skoðaðu Konica FS 1 eina afmestu myndavélanýjungum í mörgár. Verð með 40 mm FI.8 linsu og tösku kr. 235.200,- Verslunin Austurstrœti 6 — Sími 22955. NÚ ER HÚN KOMtN Spurning dagsins Áttu von á því að erlent herlið hverfi frá íslandi? (herstöðvaandstasflingar spurflir) Guðmundur Georgsson lœknir: Já, ég er þess fullviss. Vonandi verður það fljótlega. Slgbjörn Kjsrtansson neml: Að sjálf- sögðu. Það verður einhvern tima eftir morgundaginn. Pélur Þorleifsson: Ég vona það og að það verði fljótlega. Ingólfur Helgason nemi: Ég vona það og að það verði sem fyrst. Jóhanna Lilja Einarsdóttir nemi: Já, já, það verður bráðlega. Þetta kemur allt saman. Árný Inga Pálsdóttir nemi: Ég vona að það verði fyrr en seinna.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.