Dagblaðið - 10.05.1980, Side 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1980.
DB á ne ytendamarkaði
Nýjung f tilbúnum mat:
Svínalifrarkæfa tilbúin í ofninn
„Kveikjan að því að mér datt íj
hug að fara að framleiða þessa
lifrarkæfu er eiginlega komin fráj
neytendasíðu DB. Þar var oft vikið
að þvi hve nýbökuð lifrarkæfa væri
gómsæt. Gefin var uppskrift og bent
á að kjötkaupmenn væru
tilleiðanlegir til þess að hakka lifrina
fyrir húsmæðurnar. Þeir voru hins
vegar ekkert sérlega hrifnir af því —
og þess vegna datt mér í hug að búai
til svínalifrarkæfu og hafa hana á
boðstólum djúpfrysta og tilbúna
beint í ofninn,” sagði Björn
Björnsson kaupmaður í Kjötbúð
Suðurvers í samtali við Neytenda-
síðuna.
Björn bað okkur um að smakka á
lifrarkæfunni sinni. Hún reyndist
mjög góð, bæði heit og einnig eftir að
hún var orðin köld. Með henni
bárum við fram ristaða sveppi og
harðsteikt beikon, rúgbrauð og
rauðrófur. — Hreinasta lostæti.
Það er óneitanlega hagkvæmt að
get fengið kæfuna tilbúna og
djúpfrysta. Hún er steikt i vatnsbaði í
heitum ofni i fimm stundar-
fjórðunga.
Lifrarkæfutilbúningur er ekki
flókin matargerð, vel að merkja
ef hægt er að fá einhvern til þess að
hakka lifrina. Svínalifur er nokkuð
grófari heldur en lambalifur og því
vill hakkavélin stíflast er hún er
hökkuð.—Ef eitthvað mátti setja út
á lifrarkæfuna hans Björns var það
helzt, að hún var kannski í fingerðara
lagi. Okkar eigin kæfa er að jafnaði
dálítið grófhakkaðri, en það er
auðvitað smekksatriði hvernig fólk
vill hafa sína lifrarkæfu.
Og verðið. Það er mun hag-
stæðara að kaupa lifrarkæfuna
hraðfrysta heldur en tilbúna. Kæfan
er seld bæði i 1/2 og 1/4 kg
álbökkum. Stærri bakkarnir kosta
1250 kr. og þeir minni 625 kr. þannig
aðkg verðer2500kr. -A.Bj.
Þurrger og pressuger
G. Björk í Hveragerði sendi okkur
nokkrar línur með seðlinum sinum og
spyr meðal annars hvort hægt sé að
nota perluger í staðinn fyrir pressuger
og þurrger og þá hvað mikið magn.
Perluger mun vera hið sama og
þurrger. Munurinn á þvi og
pressugeri er sá að pressugerið er
lifandi gerill sem geymist ekki i nema
takmarkaðan tíma á meðan þurrgerið
er frostþurrkað ger sem geymist von
úr viti.
Til þess að geta notað þurrgerið
verður að leysa það upp i 40—50
grá'ða heitu vatni þannig að gerillinn
lifni við. Bezt er að hafa hitamæli við
þetta, svo ekkert fari á milli mála.
Þurrger er mun drýgra en pr^ssuger
og þarf þrisvar sinnum minna af þviL
allar venjulegar uppskriftir. -DS.
í fullkomna máltíð þarf auk
kæfunnar ristaða sveppi,
harðsteikt beikon og sýrðar
rauðrófur. Hráefnið í mál-
tíðina kostar alls um 5000
kr. og dugði vel handa fimm
manns.
DB-mynd Bjarnleifur.
Hvað eru margir í heimili?
ErfHt reikningsdæmi
Upplýsingaseöill
til samanburóar á heimiliskostnaði
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Hvaö kostar heimilishaldió?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttakandi i upplýsingamiðlun
meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið
þér von um að fá nytsamt hcimilistæki.
Kostnaður í aprílmánuði 1980.
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annaö
kr.
Alls kr.
m i ih tv
Fjöldi heimilisfólks
Kona í sveit skrifar:
Mig hefur lengi langað að taka
þátt í heimilisbókhaldinu og læt nú
loksins verða af því. En það er örlítið
snúið eins og þú kemst að raun um.
Heimilið samanstendur af mér og
dóttur minni sem er á 3. ári. Svo er
það eiginmaðurinn sem er á Bænda-
skólanum á Hvanneyri svo hann er
ekki oft heima. Einnig hef ég kost-
gangara ca þrjá daga vikunnar. Svo
verður að geta þess að þetta er tvílyft
hús og við búum á efri hæðinni en
einhleypur maður á þeirri neðri. Við
erum með sameiginlegt klósett og
vaskahús þannig að hreinlætisvörur
borgum við til helminga. í bæinn
förum við cirka einu sinni til tvisvar í
mánuði og erum þá yfir helgi. Þá
dreg ég frá i lok mánaðarins. Dóttirin
hefur reiknast 1/2, ekki borðar hún
það mikið. Kostgangarinn er bara í
hádegismat svo hann er líka 1/2.
Hvað á ég að segja að við séum mörg
í heimili?
Þetta er eitt erfiðasta dæmi sem
fyrir neytendasíðuna hefur verið lagt.
Og satt bezt að segja veit ritari
hennar ekki hvaða ráð skal gefa. 1
fljótu bragði virðist þó eðlilegt að
telja húsfreyju heimilisins og
dótturina sinn heimilismanninn
hvora. Því þó barnið sé ekki stórt
krefst það síns í fæði og klæði. Eigin-
manninum finnst mér að ætti að
sleppa nema greitt sé fyrir fæði hans
á Hvanneyri, þá ætti það að færast
inn á matarreikninga fjölskyldunnar
og þá yrðu heimilismenn taldir þrír.
Kostgangarinn er enn erfiðara mál.
Ef hann borðar bara aðra máltíðina á
dag þrisvar i viku er of mikið að telja
hann sem heimilismann, jafnvel þó
hálfur sé. Maðurinn á neðri hæðinni
getur heldur ekki talizt heimilis-
maður. Sá helmingur hreinlætisvara
sem hann greiðir fyrir ætti hreinlega
alls ekki að koma inn í dæmið. í
sporum konu í sveit mundi ritari
þessarar síðu segja að 2—3 væru í
heimili allt eftir heimaveru eigin-
mannsins.
Raddir
neytenda
V
NYJAR REGLUR UM
ÖRYGGIHITAKÚTA
Sprengingar í hitakerfum húsa
gerðust hér með nokkurra mánaða
millibili um tíma, oft með
skelfilegum afleiðingum. Nú hafa
verið gefnar út nýjar reglugerðir, sem
eiga að hindra að slikt komi fyrir
aftur. Aðalbreytingin i þeim frá eldri
reglugerðum er að mun strangara er
kveðið á um ýmis öryggisatriði
miðstöðvarkatla og neyzluvatns-
geyma. Þá verða tækin að vera
prófuð af Rafmagnseftirliti og
öryggiseftirliti bæði sem ný og eins
með reglulegu millibili. Neytendur
ættu að athuga nánar sín eigin hita-
tæki því frestur til að koma þeim i lag
rennur út núna 1. júlí.
-DS.