Dagblaðið - 10.05.1980, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1980.
5
Listamannalaun 1980:
MANUELA BEINT
í EFRIFLOKKINN
Magnús Kjartansson fær poppskammtinn og nýlist
ífyrstasinnáskrá
„Byggðastefna í úthlutuninni, —
ja, ætli við höfum ekki reynt að taka
tillit til listamanna úti á lands-
byggðinni i ríkara mæli en áður,”
sagði séra Bolli Gústavsson, for-
maður úthlutunarnefndar lista-
mannalauna á blaðamannafundi í
gærmorgun, en þar voru kynnt lista-
mannalaun fyrir árið 1980. í
nefndinni eiga sæti auk séra Bolla,
Jón R. Hjálmarsson, fræðslustjóri,
Bessí Jóhannsdóttir kennari, Gunnar
Stefánsson bókmenntaráðunautur,
HaUdór Blöndal alþingismaður,
Magnús Þórðarson framkvæmda-
stjóri og Sverrir Hólmarsson mennta-
skólakennari.
Um listamannalaunin er það
helst að segja að úthlutað var til 186
listamanna alls, sem eru 22 fleiri en í
fyrra. Efri flokkur hækkaði úr 300 í
400 þúsund og neðri flokkur úr 150 í
200 þúsund. Áður hefur Alþingi veitt
heiðurslaun, 1.5 milljón á mann til
12 listamanna.
í efri flokki eru nú 9 nýliðar,
þ.á m. Alfreð Flóki, Ingimar
Erlendur Sigurðsson og Kjartan
Guðjónsson, en nafn Manuelu
Wiesler birtist þar einnig í fyrsta sinn
og hefur hún ekki áður fengið lista-
mannalaun. Neðra flokki hefur verið
talsvert umturnað. 1 honum eru 89
listamenn, þ.á m. um 50 nýliðar. Þar
ber helst til tíðinda að Ágúst
Guðmundsson fær úthlutun, svo og
nokkrir grafíklistamenn,
Guðmundur Ingólfsson jasspíanisti,
Kristján Guðmundsson nýlistar-
maður, en poppskammturinn kemur
í hlut Magnúsar Kjartanssonar
tónlistarmanns.
Bolli Gústavsson sagði ennfremur
að meira væri af tónlistar- og mynd-
listarfólki á listanum en áður, enda
hefðu þessar greinar, að margra
mati, verið í mikilli sókn hér á landi
undanfarin ár. ./VI.
Manuela Wiesler flautulelkari.
Manuela:
Aldeilis
hissa...
,,Ha, er þetta satt. Ja, nú er ég al-
deilis hissa,” sagði Manuela Wiesler
þegar DB tjáði henni að hún hefði
flogið upp i efri flokk. „Þetta er
ofsalega flott. Nú verðum við að fara
aðhugsa um aðeyða þessu”.
Magnús Kjartansson:
r
A ég ekki að gefa
Indjánunum þetta?
DB vakti Magnús Kjartansson tón-
listarmann upp til aö segja honum
fréttimar um listamannalaunin. „Nei,
nú ertu að gera grín að mér. Þú ert
ekki að plata mig? Jæja. Blessaðir
karlarnir, þurftu þeir nú að gera
þetta. Er ekki venja að gefa þetta
Indjánum eða eitthvað í þá veru?
Þetta er aldeilis óverðskuldað. Ég er
bara píanóleikari. Þeir hefðu átt að
hugsa til manns eins og Magnúsar
Péturssonar sem er búinn að spila
árum saman án viðurkenningar”.
-AI.
Magnús Kjartansson hljómlistar-
maður.
Kjartan Guðjónsson:
Hef íhugað mótaðgerðir
Kjartan Guðjónsson listmálari
fékk listamannalaun i fyrra en gaf
þau Myndlistarskólanum á Akureyri
eftir nokkur blaðaskrif. Nú er hann í
efra flokki i fyrsta sinn. „Ég hélt ég
hefði gert þeim grein fyrir afstöðu
minni í fyrra,” sagði Kjartan er
honum vom tjáð tíðindin. „Ég tek
þessu ekki þegjandi og hef reyndar
íhugað mótaðgerðir.”
Ekki vildi Kjartan tjá sig um eðli
þeirra, en kvaðst mundu byrja á
blaðaskrifum. -AI.
Kjartan Guðjónsson listmálari.
Eskifjörður:
Hólmanes af lahæst togaranna
Togarinn Hólmanes frá Eskifirði
aflaði alls 1435 tonna frá áramótum til
28. apríl og varð aflahæstur togaranna.
Hásetahlutur á Hólmanesi á þessum
tíma var 4.7 milljónir króna. Hólma-
tindur byrjaði veiðar 21. janúar en varð
að hætta 10. marz vegna bilana.
Togarinn var þá kominn með 367 tonn.
Hásetahlutur var 1266 þúsund krónur.
Hólmatindur fór síðan aftur á veiðar
nýlega og var væntanlegur inn á
fimmtudag með 70 tonn. Nótaskipið
Jón Kjartansson er að fara til Dan-
merkur, þar sem sett verður ný vél í
hann og er hann væntanlegur aftur í
ágúst.
Trillur á F.skifirði hafa ekki getað
stundað veiðar í vetur, en veiði þeirra
fram á haust í fyrra stóð óvenju lengi
og var góð. Sjaldgæft er að trillur geti
stundað veiðar frá Eskifirði fram i
nóvember eins og þá. Það litla sem
smábátamir hafa reynt að undanförnu
hefurgefistilla.
Mörgum á Eskifirði finnst það
hróplegt ranglæti, að sjávarútvegs-
ráðherra skuli setja þorskveiðibann á
trillurnar einmitt yfir sumarmánuðina
þegar þær geta stundað sjóinn og koma
með bezta hráefnið að landi.
Línufiskur er nú orðinn sjaldgæfur hér
á Austurlandi.
-Regina, Eskifirði.
Ráðgjafi frá Mandeville of London
verður þessa viku hér á landi á eftir
töldum stöðum:
REYKJAVÍK Rakarastofan Klapparstíg, simi 12725, mánudag
12. mai, miðvikudag 14. maí og föstudag 16. mai.
AKUREYRI Jón Eðvarð, rakarastofa, Strandgötu 6, simi
24408, þriðjudag 13. mai.
KEFLAVIK Klippotek, Hafnargötu 25, simi 3428, miðvikudag
14. mai eftir kl. 4.
Enskir
götuskór
úrteðri
Skóbúðin Snorrabraut 38
Sími 14190
Lipurtá, Hafnargötu 58, Kefíavík.
Utur:
Gu/brúnn
Póstsendum
Utur: Brúnn
Stærðir: 37—41
Verðkr. 18.100
Utur.Brúnn
HRAUNBÆR - HRAUNBÆR
TIL SÖLU ER
herb. rúmgóð ibúð í Hraunbæ, »1,».
5ursvalir, gott útsým. Góð sametgn. Sy
- a 1 O 1 <-* 11 rr o Ví\ Q O
1 A
Upplýsingar í síma 85472.
K0MIÐ A KAPPREIÐAR FAKS
Á M0RGUN KL. 14. SNNANDI
™M ..—Hestamannafélagiö Fákur