Dagblaðið - 10.05.1980, Side 7

Dagblaðið - 10.05.1980, Side 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. MAÍ1980. 7 Albert Guðmundsson heimsótti Stokkseyri, Eyrarbakka og Selfoss ásamt föruneyti: Skrifa ekki undir bráðabirgðalög —ef mér lízt ekki á þau „Ég mun taka afstöðu til eðlis bráðabirgðalaga hverju sinni og fylgja sannfæringu minni í afgreiðslu mála eins og hingað til. Þeir sem fylgzt hafa með stjómmálastarfi mínu vita að þar hef ég alltaf fylgt eigin sannfæringu fyrst og fremst. Ef mér lízt ekki á bráðabirgðalög sem ríkisstjóm vill setja getur orðið erfitt að fá mína undirskrift á plaggið,” sagði Albert Guðmundsson forseta- frambjóðandi í svari við fyrirspum frá verkamanni i frystihúsinu á Eyrarbakka i gærmorgun. Albert og Brynhildur kona hans sóttu Eyrbekkinga heim í gær ásamt kosningastjórum sínum, rit- höfundunum Indriða G. Þorsteins- syni og Jónasi Guðmundssyni. Verkamaður einn í frystihúsinu vildi fá á hreint afstöðu frambjóðandans til bráðabirgðalaga sem honum fannst of algeng. Honum fannst að forsetar ættu að fara varlega í að skrifa undir þau á vélrænan hátt. Indriði G. kynnti Albert fyrir frystihúsfólkinu í stuttu ávarpi og bað það að hjálpa þeim hjónum í kosningunum 29. júni. Síðan var Albert heilsar Ragnari Runólfssyni i frystihúsinu á Eyrarbakka. Við hlið Ragnars er Karl Þórðarson en fjær situr Bjarnfinnur Sverrisson. DB-mynd: Magnús Karel. haldið í Fiskiver þar sem menn kepptust við að pakka saltfiski. Albert og fylgdarlið röbbuðu við starfsfólkið góða stund, en héldu siðan yfir í Einarshöfn. Þar voru fáir við vinnu, flestallir að vinna við 'skreið í Hveragerði. Einnig var litið inn i Plastiðjuna. Að lokum var vinnuhæliö að Litla-Hrauni heimsótt og heilsað upp á vistmenn og starfs- fólk. t Frambjóðandinn kom ásamt föruneyti sínu frá Stokkseyri til Eyrarbakka. Á fyrrnefnda staðnum hittu þau að máli frystihúsfólk og vistmenn á heimili aldraðra á Kumbaravogi. Frá Eyrarbakka var haldið til Selfoss. Þar voru heimsóttir margir vinnustaðir og um kvöldið var efnt til opins fundar á Hótel Selfossi. Fund- arstjóri var Brynleifur Steingrímsson héraöslæknir og gestur fundarins var Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, for- maður Sóknar. Hvert sæti var skipað i salnum og meira til. Salurinn tekur á annað hundrað manns. -ARH/MKN, Eyrarbakka. Sigurbjörn Einarsson, biskup. Samvizkufangar bænarefni á bænadeginum: Þökkumþá gjöfaðnjóta frelsis — segir biskup í tilefni bænadagsins „Ég vil að þessu sinni sérstaklega minna á það , að víða um heim sæta menn kúgun og ofsóknum vegna trúar sinnar eða annarra skoðana,” segir í bréfi sem biskup íslands, herra Sigur- björn Einarsson, sendir til safnaða landsins vegna hins almenna bænadags sem er á morgun, en bænadagurinn hefur um langt skeið verið haldinn á fimmta sunnudagi eftir páska. „Þrátt fyrir mannréttindaskrá Sam- einuðu þjóðanna og eiðhelda sáttmála á grunni hennar eru frumlægustu mannréttindi fyrir borð borin í fjöl- mörgum löndum. Glæpir gegn einföld- ustu kröfum um mannhelgi eru drýgðir dögum oftar: Handtökur og fangels- anir án saka, pyntingar fanga, lyfja- gjafir til þess að brjóta niður líkamlegt og andlegt þrek þeirra, vistun sak- borninga á geðveikrahælum, þetta og þvílíkt er að gerast á líðandi stundu til og frá um hnöttinn. Meðal þeirra sem svo eru leiknir eru margir, sem hafa ekki annað til saka unnið en að játa Krist opinskátt. Hugsum á bænadaginn til þeirra mörgu, sem þola illt sakir þess að þeir eru í andstöðu við ómennska stjómar- háttu. „Minnumst bandingjanna, sem væruð þér sambandingjar þeirra. Minnumst þeirra^er illt líða” (Hebr. 13:3). ,,í fangelsi varégog þér vitjuðuð mín,” segir Jesús Kristur. Biðjum þess, að allt ofstopans vald reynist nú sem áður „stopult og stökkt” og að rétt- lætið sigri á jörð. Biðjum þess að vér íslendingar gleymum ekki að meta og þakka þá gjöf að fá að njóta frelsis, lýðræðislegra stjórnarhátta og réttar- fars, heldur vökum á verðinum um þessi verðmæti og önnur arfhelg og ómetanleg,” segir að lokum í bréfi biskups. -GAJ. BMW 520 árg. ’78 Rcnault 12TL árg.’77 BMW 525 autom. árg. ’77 Renault 12 JL árg. ’74 BMW 320 árg.’79 Renault 12TL árg.’73 BMW 320 árg.’78 Renault 12station árg.'75 BMW316 árg.’78 'Renault 14 TL árg.’79 BMW 2800 árg.’69 Renault 5 GTL árg.’79 Renault 20 TL árg.’78 Renault4 VAN F6 árg. ’79 Renault 12 TL árg.’78 Renault4 VAN F6 árg.’78 Opið /augardaga ki. 1—6. KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633 SUMARHUS EINBÝLISHÚS, VEIÐIHÚS í ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM Nýttá ísbndi Vöndui falleg, ódýr f.I „I. M.ll. I t !r „HELSESTRÁ" grasplötur á þök sem eru allt í senn sterkar, einangrandi, vatnsþéttar og fallegar. Uppl. í síma 99-5851 alla daga og 84377 virka daga. nfiur vhkuv BLAÐSÖLUBÖRN óskast í Stór-Reykjavík: Skjólin, Meistaravellir, Melar, Hagar, öldugata, Túngata, Suðurgata, Skerjafj., Baldursgata, Skólavörðustígur, Grettisgata, Laufásvegur, Hátún, Skipholt, Stórholt, Gunnarsbraut, Bólstaðarhlíð, Lækir, Teigar, Kleppsholt, Álfheimar, Vogar, Ármúli, Smáíbúðahv., Fossvogshv., Breiðholt, og Árbær. SIMI 27022 - VIKAN AFGREIÐSLA ENNFREMUR VANTAR BLAÐSÖLUBÖRN VÍÐS VEGAR UM LANDIÐ.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.