Dagblaðið - 10.05.1980, Qupperneq 14
0WW#
» >ji«, mj.
naa;i«t
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1980.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Úrslitaleikurinn á Wembley á milli West Ham og Arsenal í dag:
100.000 áhangendur
munu öskra sig hása
Úrslitaleikur ensku bikar-
keppninnar fer fram á Wembley-
leikvangnum stórkostlega I dag. Þar
mætast Lundúnaliflln West Ham og
Arsenal og er þetta aðeins I þrlðja
sinn í sögu bikarsins að Lundúnalið
mætast I úrslitum. Reyndar hafa
þessir þrir „all-London” leikir allir
farið fram á síðustu 13 árum. Fyrst
sigraði Tottenham Chelsea 2—I 1967
og síðan vann West Ham Fulham 2—
1 1975. Hér á eftlr fer llsti yfir alla
bikarúrslitaleikina frá striðslokum á-
samt smáumsögn um hvern þeirra.
1946: Derby—Charlton 4—1
Þessi leikur er einkum minnis-
stæður fyrir það að Bert Turner
skoraði bæði i eigiö marksvo og and -
stæðingsins. Fyrst færði hann Duby
forystu meö sjálfsmarki en jafnaði
metin innan við minútu síðar er hann
skoraði réttum megin. Framlengingu
þurfti til að knýja fram úrslit og
Derby skoraði þá þrivegis. Stamps
tvívegis og Docherty. Þá má geta þess
að knötturínn sprakk i þessum leik
og varð að fá nýjan.
1947: Cbarlton—Bumley 1—0
í þessum leik sprakk boltinn ekki
aðeins einu sinni, heldur tvisvar og
það hlýtur að vera einstakt.
Leikurinn sjálfur þótti hundleiðin-
legurog framlengja varð til að fá úr-
slit. Chrís Duffy skoraði þá eina
markið.
1948: Mancb. Utd.—Blackpool 4—2
Enn þann dag í dag er þessi leikur
talinn sá bezti á Wembley.
Sannkölluð knattspyrnusýning, sem
lauk með öruggum sigri Manchester
United. Rowley skoraði tvívegis fyrir
rauðu djöflana, Pearson og Ander-
son eitt mark hvor. Stan Mortensen
og Shimwell (vítaspyrna) skoruðu
mörk Blackpool.
1949: Wolves—Leicester 3—1
Þessi sigur varð kveikjan að frá-
bærum árangri Úlfanna næsta ára-
tuginn. Tvö mörk Jesse Pye og eitt
frá Smyth tryggðu sigurinn en
Griffiths skoraði eina mark
Leicester.
1950: Arsenal—Liverpool 2—0
Bob Paisley, núverandi fram-
kvæmdastjóri Liverpool, gat ekki
leikið þennan leik vegna meiðsla og
Liverpool átti aldrei möguleika gegn
sterku liði Arsenal. Reg Lewis
skoraði bæði mörk Lundúnaliðsins.
1951: Newcastle—Blackpool 2—0
Þetta var ákaflega jafn og
spennandi leikur og ef ekki hefði
komið til Jackie Milburn er ekki gott
að segja hvernig farið hefði. Hann
skoraði bæöi mörk Newcastle —
annað af 25 metra færi.
1952: Newcastle—Arsenal 1—0
Arsenal-liðið með aðeins 10 menn
megnið af leiknum hafði næstum
tryggt sér jafntefli í þessum leik.
Wally Barnes meiddist snemma í
leiknum og í þá tíð mátti ekki skipta
inná. Þegar örfáar mínútur voru til
leiksloka og allt stefndi i fram-
lengingu skoraði George Robledo
eftir fyrirgjöf Mitchell.
1953: Blackpool—Bolton 4—2
Þetta var geysispennandi leikur
þar sem Bolton leiddi 3—1 um tíma.
Með stórkostlegum leik Stanley
Matthews tókst Blackpool að sigra og
sigurmarkið skoraði Perry örfáum
sek. fyrir leikslok. Stan Mortensen
skoraði „hat-trick” í þessum leik
fyrir Blackpool en mörk Bolton
geröu þeir Lofthouse, Moir og Bell.
1954: West Bromwich—Preston 3—2
Annað árið í röð var sigurmarkið
skorað skömmu fyrir leikslok.
Griffin skoraði þegar aðeins þrjár
mínútur voru til leiksloka. Al hafði
áður skorað tvívegis fyrir WBA en
Morrison og Wayman svöruðu fyrir
Preston.
1955: Newcastle—Man.City 3—1
Jackie Milburn skoraði strax á 1.
minútu og kom Newcastle af stað.
City missti Meadows útaf vegna
meiðsla en tókst engu að síður að
jafna með marki Johnstone.
Newcastle hafði hins vegar tögl og
hagldir í s.h. og mörk Mitchell og
Hannah tryggðu sigurinn. Þriðji
bikarsigur Newcastle á fimm árum
var í höfn.
1956: Manch. C. — Birmingham3— 1
City komst á Wembley annað árið
í röð og í þetta skiptið til þess að
uppskera eitthvað meira en tap.
Hayes, Dyson og Johnstone skoruðu
mörk City en Kinsey svaraði fyrir
Birmingham.
1957: Aston Villa—Man. Utd. 2—1
Meiðsli Ray Wood, ‘markvarðar
United, í fyrri hálfleik komu í veg
fyrir sigur liðsins. Hann varð að fara
útaf og Blanchflower fór í markið.
Peter McParlands skoraði tvívegis á
meðan hann stóö f markinu en síðan
kom Woods aftur I markið. Það
David Whelan. Blackburn var þvi
með aðeins 10 leikmenn allan síðari
hálfleikinn og þá bættu Úlfarnir
tveimur mörkum við. Deeley skoraði
bæði.
1961: Tottenham—Leicester 2—0
Tottenham varð fyrst liða á þessari
öld til að tryggja sér tvöfaldan sigur
„the double” með þessum bikarsigri
yfir Leicester. Bobby Smith og Terry
Dyson skoruðu mörkin.
1962: Tottenham—Burnley 3—1
Stjömulið Spurs var ekki í vand-
ræðum með að leggja Burnley að
velli og vinna bikarinn annað árið í
röð. Leikurínn var þó mjög
spennandi. Jimmy Greaves náði
forystunni fyrir Spurs en Robson
jafnaði. Mörk Smith og
Blanchflower (viti) tryggðu Totten-
ham svo öruggan sigur.
Sigurmark Sunderland gegn l.eeds 1973. Kftir hornspyrnu barst knötturinn til
lan Portersfield, sem skoraói glæsilcga.
dugði þó ekki til sigurs því United
skoraði aðeins eitt mark — Taylor.
1958: Bolton—Manch. Utd. 2—0
United tefldi fram hálfgerðu
skrapliði í þennan leik því megnið af
leikmönnum liðsins fórst í hinu
fræga MUnchen-slysi. Leikmenn
liðsins börðust eins og Ijón en áttu
aldrei möguleika gegn Bolton. Nat
Lofthouse skoraði bæði mörk
Bolton.
1959: Nottm. Forest—Luton 2—1
Eftir aðeins 10 mín. skoraði Roy
Dwight fyrir Forest en eftir hálftima
fótbrotnaði hann svo. Tommy
Wilson hafði áður skorað annað
mark Forest en eina mark Luton
skoraði Pacey í síðari hálfleik. Luton
sótti mjög undir lokin en tókst ekki
aðjafna.
1960: Wolves—Blackburn 3—0
Óheppnin eltir stundum lið á
röndum og það fékk Blackburn að
reyna í þessum leik. Á 41. mín.
skoraði McGrath sjálfsmark og
tveimur mínútum síðar fótbrotnaði
l.eikmenn Ipswich dagana eltir sigurinn a Arsenal 1978.
1963: Manch. Utd. — Leicester 3—1
United hafði rétt sloppið við fall I
2. deild er liðið mætti til leiks á
Wembley. Leikmenn liðsins kunnu
greinilega vel við sig á mjúku grasinu
þar og unnu sannfærandi sigur.
David Herd skoraði tvívegis og Denis
Law einu sinni en Keyworth skoraði
eina mark Leicester.
1964: West Ham — Preston 3—2
Preston, sem lék í 2. deild, reyndist
mun erfiðari mótherji en gert hafði
verið ráð fyrir. Staðan var jöfn, 2—
2, þegar venjulegum leiktima var
lokið en tima hafði verið bætt við
vegna meiösla. Þá skoraði Ronnie
Boyce sigurmark Hammers. John
Sissons og Geoff Hurst höfðu áður
skorað en Holden og Dawson svarað
fyrir Preston.
1965: Liverpool — Leeds 2—1
Þetta varð hálffúll úrslitaleikur og
vonbrigðin voru mikil þvi bæði liðin
voru mjög sterk á þessum árum.
Ekkert mark var skorað i venjulegum
leiktima en Liverpool tryggði sér
sigur í framlengingunni með mörkum
Roger Hunt og Ian St. John. Billy
Bremner skoraði eina mark Leeds.
1966: Everton— Sheff. Wed. 3—2
Það kom mjög á óvart aðEverton
skyldi setja miðherja sinn, Fred
Pickering, út úr liðinu. í hans stað
kom ungur leikmaður, Mike Trebil-
cock að nafni. Hann stal algerlega
senunni þvi hann skoraði tvívegis i
leiknum. Wednesday komst í 2—0
með mörkum Jim McCalliog og Ford
en Everton átti síðasta orðið. Derek
Temple skoraði sigurmarkið.
1967: Tottenham — Chelsea 2—1
Þetta var fyrsti úrslitaleikurinn á
Wembley milli tveggja Lundúnaliða
og reyndar í fyrsta skipti sem
Lundúnalið léku til úrslita í bikarn-
um. Leikurinn var mjög jafn en
Tottenham marði sigur með mörkum
Jimmy Robertson og Frank Saul.
Bobby Tampling skoraði fyrir
Chelsea.
1968: WBA — Everton 1—0
Everton átti mörg hættuleg færi í
þessum leik en tókst ekki að nýta
þau. Allt stefndi því í framlengingu
þegar Jeff Astle skoraði sigurmarkið
rétt fyrir leikslok. Leikurinn þótti
lengst af vera mjög slakur.
1969: Manch. City — Leicester 1—0
Enn mátti Leicester biða ósigur á
Wembley. Leikurinn var mjög opinn
og gat farið á báða vegu. Neil Young
var hins vegar sá eini sem fann leiðina
í markið. Skot hans úr miðjum víta-
teig var þrumufast og Peter Shilton
kom engum vörnum við.
1970: Chelsea — Leeds 2— 1
Liðin skildu jöfn, 2—2, á
Wembley og því varð að fara fram
aukaleikur. Leeds náði forystu á Old
Trafford með marki Mick Jones en
Chelsea gafst ekki upp. Peter Os-
food jafnaði og David Webb skoraði
sigurmarkið í framlengingu með
skalla.
1971:Arsenal — Liverpool 2—1
Fjörugur leikur sem gat farið á
hvorn veginn sem var. Ekkert mark
var skorað I venjulegum leiktíma en
Liverpool tók forystu með marki
Steve Heighway í framlengingunni.
Eddie Kelly og Charlie George sáu
hins vegar til þess að bikarinn
hafnaði I skápnum á Highbury. Mark
George var einkar glæsilegt. Þrumu-
skot af löngu færi efst í markhornið.
Með sigrinum tryggði Arsenal sér
tvöfaldan sigur „thedouble”.
1972: Leeds — Arsenal 1—0
Loks tókst Leeds að vinna bikar-
inn og ekki munaði nema hársbreidd
að liðið ynni 1. deildina líka. Þetta
var 100. bikarleikurínn og Allan
Clarke skoraði sigurmarkið með
lúmskum skalla.
1973: Sunderland — Leeds 1—0
Þriðji úrslitaleikur Leeds á fjórum
árum snerist upp i allsherjar von-
brigði. Það var sama hvað fram-
herjar liösins reyndu, Jim Mont-
gomery var eins og klettur í markinu
hjá Sunderland. Ian Porterfield
skoraði sigurmark Sunderland í fyrri
hálfleik.
1974: Liverpool — Newcastle 3—0
Þetta varð alger einstefna frá upp-
hafi til enda. Liverpool hafði allan
timann tögl og hagldir í leiknum og
Newcastle náði aldrei að ógna sigrín-
um. Kevin Keegan skoraði 2 mörk og
Steve Heighway eitt.
1975: West Ham — Fulham 2—0
Þetta varð afar sviplítill úrslita-
leikur enda liðin ekki upp á marga
fiska. Bæði mörkin skoraði Aian
Taylor eftir mistök Ian Mellor í
marki Fulham. West Ham var mun
betri aðilinn og átti sigurinn skilinn.
1976: Southton — Manch. U. 1—0
Dýrlingarnir komu þarna verulega
á óvart með því að leggja United að
velli, 1—0. United var talið mun
sigurstranglegra fyrir leikinn en það
kom ekki að sök. Bobby Stokes
skoraði eina markið í leiknum og til
hans hefur varla spurzt síðan.
1977: Manch. U. — Liverpool 2—1
Það fór þó aldrei svo að United
ynni ekki bikarinn. Mikið heppnis-
mark færði United bikarinn er
knötturinn barst af baki Jimmy
Greenhoff í stórum sveig yfir
Clemence og í markið. Stuart
Pearson skoraði fyrra mark United
en Jimmy Case jafnaði með þrumu-
skoti.
1978: Ipswich - Arsenal 1—0
Fyrsti bikarsigur Ipswich var afar
glæsilegur þó ekki skildi nema eitt
mark í lokin. Eina markið skoraði
Roger Osborne i síðari hálfleik.
Ipswich hafði algera yfirburði úti á
vellinum og var óheppið að skora
ekki fleiri mörk.. Ferill Osborne hefur
verið alger sorgarsaga eftir leikinn og
hann hefur vart komizt í lið síðan
hann skoraði þetta mark.
1979: Arsenal — Manch. Utd. 3—2
Þrjú mörk á síðustu 5 mínútum
leiksins gera þennan leik minnis-
stæðan. Annars var hann dapur
lengst af og Brian Talbot skoraði
fyrsta markið á 12. mínútu. Síðan var
fullkomlega löglegt mark dæmt af
United áður en Stapleton kom
Arsenal í 2—0 á 43. mínútu. Þannig
stóð þar til 5 mín. voru eftir.
McQueen og Mcllroy jöfnuðu metin
með tveimur mörkum á þremur
mínútum en Arsenal tryggði sér
sigurinn með marki Alan Sunderiand
ásíðustusekúndumleiksins. -SSv.