Dagblaðið - 10.05.1980, Page 24

Dagblaðið - 10.05.1980, Page 24
LAIJGARDAGUR 10. MAt 1980. Bókun Birgis ísleifs og Alberts í borgarráði: Engir Ikarus- samningar — verðigerðirán afskipta borgarráðs og borgarstjómar „Tilefni bókunarinnar er mis- munandi túlkun borgarfulltrúa á samþykktri tillögu frá meirihluta borg- arráðs frá 17. apríl um, „að þegar í stað verði teknar upp viðræður við fyrirsvarsmenn Ikarus-verksmiðjunnar í Ungverjalandi um kaup á 3—5 vögnum frá verksmiðjunni til reynslu”,” sagði Birgir ísleifur Gunn- arsson borgarfulltrúi og alþingismaður við Dagblaðið. Birgir ísleifur og Albert Guðmunds- son létu bóka á borgarráðsfundi á dögunum þar sem fram kom krafa um að „engar ákvarðanir verði teknar og engir samningar gerðir eða undir-' ritaðir, nema þeir verði fyrst lagðir fyrir borgarráð og borgarstjórn til samþykktar eða synjunar.” „Sigurjón Pétursson og fulltrúar vinstri flokkanna að Sjöfn Sigurbjörns- dóttur undanskilinni túlka samþykkt borgarráðs á þá lund, að i henni felist heimild til að ganga til samninga við Ikarus. Sjöfn gerði hins vegar sama fyrirvara og við sjálfstæðismenn um málið í umræðum í borgarstjóm. Meirihluti borgarfulltrúa er því á þeirri skoðun, að allar hugmyndir að kaup- samningi beri að leggja fyrir borgarráð og borgarstjóm,” sagði Birgir ísl. Gunnarsson. -ARH. Þursarnir íÞjóð- leikhúsið Hinn íslenzki Þursaflokkur mun halda tónleika í Þjóðleikhúsinu 19. maí næstkomandi, en flokkurinn hefur leikið undanfarnar vikur rúmlega 30 sinnum víðs vegar um landið. Tónleikar Þursanna verða fyrstu rokktónleikarnir, sem haldnir eru í Þjóðleikhúsinu, en margar rokksveitir hafa áður leitað eftir húsinu til slíks tónleikahalds. „Þetta verður endapunkturinn á þessari hljómleikaferð okkar um landið,” sagði Tómas Tómasson, einn Þursanna, í samtali við DB í gærkvöld, „og við hyggjumst notfæra okkur þetta einstæða tækifæri til að setja upp eftirminnilegan konsert.” -ÓV. 40 ár f rá því að brezkir hermenn stigu á land í Reykjavík: Smjörþefur af vitfirr- ingu heimsstríösins — mótmælaf undur herstöðvaandstæðinga á Lækjartorgi f dag Utlitfyrir samkomu- ■ \ ' •" • v : lagum Jan Mayen — Norðmenn lögðu samningsgrund- völl fyrir íslenzku nefndina ígær Frá Slgurjóni Jóhannssyni frétta- manni DB1 Osló: Margt bendir til þess að norska og islenzka samninganefndin í Jan Mayen málinu nái samkomulagi í dag. Laust fyrir kl. 19 að norskum tima í gærkvöldi fékk íslenzka samninganefndin í hendur uppkast að samkomulagi sem hún skoðaði nánar í gærkvöldi. islenzka samninganefndin átti siöan að segja álit sitt á á samkomulagsdrögunum þegar nefndirnar hittast kl. 10 í morgun, þ.e. laugardag. Samningaviðræðumar hafa verið flóknar og mjög harðar en Norð- menn munu sennilega hafa fallizt á að íslendingar geti ákveöið hve mikið loðnumagn megi veiða á öllu Jan Mayen svæðinu en samt að undan- gengnum fundi þar sem Norðmenn eru með i ráðum. Norðmenn munu hafa þann fyrirvara að ef ákvörðun islendinga um loðnumágn er talin afar ósanngjörn geti þeir neitað að fylgja ákvörðunum íslendinga. Loðnumagnið sem veitt verður innan norskrar landhelgi mun skiptast jafnt milli þjóðanna. Hvað varðar landgrunniö eru Norðmenn meö tillögu um að skipa þriggja manna nefnd þar til nánara samkomulag tekst milli þjóðanna á þessu sviði. Þessa nefnd skulu skipa einn Norðmaður, einn fslendingur og einn erlendur hafréttarfræðingur. Ekkert af þessu eru í raun stað- festar fréttir. Knut Frydenlund varðist allra frétta af þeim „pakka”, sem Norðmenn iögðu fram siðdegis í gær, þar sem málið væri á mjög viðkvæmu stigi og islenzka samn- inganefndin þá nýbúin að fá tillög- urnar. Frydenlund og Ólafur Jóhannesson voru þó báðir nokkuð bjartsýnir á að samningar tækjust. Enn er of snemmt að spá hvort það verður í dag og Ólafur Jóhannesson sagði í gær að ef samningar tækjust nú væri auðvitað eftir að leggja þá fyrir Alþingi. Skrifað yrði undir með þeim fyrirvara. -JH/SJ, Osló. voríð hafi tekið eitt skref aftur á bak um hríð. Né heldur varðar hana um verðbólgu og aðra óáran í þjóðfélaginu... hvað sem síðar verður. DB-mynd: Þorri. t. „Megininntak þessara aðgerða verða mótmæli gegn kjarnorkuvopnum hérlendis, hin geigvænlega hætta sem skefjalaust vígbúnaðarkauphlaup hefur leitt yfir heiminn, og staða fslands í hugsanlegum átökum,” segja Samtök herstöðvaandstæðinga í yfir- lýsingu sem gefin er út i tilefni dagsins, 10. mai. Herstöðvaand- stæðingar efna til mótmælaaðgerða í dag kl. 14 á Lækjartorgi og minnast þess að 40 ár eru liðin frá hernámi íslands. Þar verða ræðuhöld, leikþáttur og söngur. Að fundi loknum verður gengið fylktu liði að sendiráði Bandaríkjanna og sendiherranum afhent mótmæla- skjal. „Eins og nú stendur á, óska ég að íslenzka þjóðin skoði hina brezku hermenn, sem komnir eru til fslands sem gesti og samkvæmt því sýni þeim eins og öðrum gestum fulla kurteisi í hvivetna.” Þetta voru lokaorð í ávarpi Hermanns Jónassonar forsætis- ráðherra til þjóðarinnar í útvarpi að kvöldi 10. mai 1940. Forsætis- ráðherra skýrði í fáum orðum þá at- burði, sem gerzt höfðu þá um nóttina, það að brezkur her var settur á land í Reykjavík; fsland var með byssur um öxl marseruðu um götur bæjarins eða tóku sér stöðu við mikilvægar byggingar. Brezka útvarpið skýrði frá því að brezka setuliðið myndi taka sér aðsetur á fslandi og dvelja hér þar til styrjöldinni lyki. Hernámið væri gert í öryggisskyni. Ríkisstjórn fslands mótmælti og sagði „hlutleysi fslands freklega brotið og sjálfstæði þess skert.” Ennfremur: „Þess er að sjálfsögðu vænzt, að bætt verði að fullu tjón og skaði, sem leiðir af þessu broti á löglegum réttindum fslands sem frjáls og fullvalda hlut- lauss ríkis.” Hernámið setti auðvitað svip sinn á þjóðlífið og umhverfið. Fljótlega fór að kvisast að hernámið ógnaði siðferði í landinu. Konur þóttu hafa fuUnáin samskipti við komumenn, sbr. „Það er draumur að vera með dáta,” og aUt það. „Ástandsmálin” komust i hámæli þegar landlæknir skrifaði dómsmálaráðuneytinu. Segir í tilskrifinu að lögreglan hafi „flett ofan af svo geigvænlegum staðreyndum um þessi mál, að ekki má kyrrt vera. Er það sök fyrir sig, að hér er nú vitað um kvenfólk í tuga taU á allra lægsta þrepi skækjuUfnaðar.. .” -ARH. Islenzkir smástrákar — sem nú eru Uklega um fimmtugt — fá að sitja á vögnum brezkra hermanna á fyrstu dögum hernámsins 1 mai 1940. hemumið land. Reykvíkingar fengu akkeri á ytri höfninni, tundurspillir að finna smjörþefmn af vitfirringu lagðist upp að hafnarbakkanum heimsstríðsins. Herskip köstuðu framan við Hafnarhúsið. Hermenn LUKKUDAGAR: Vinningshafar hringi ísíma 33622. io.mai 3885 Henson æfingargalli.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.