Dagblaðið - 24.05.1980, Side 1
/V
6. ÁRG. — LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1980. — 116. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI 27022.
„Kommabylting í
Skáksambandinu”
—búizt við f ramboði varaforsetans gegn forsetanum
sjá ttffcsíðu
Aöalfundur
Skáksambands
Íslandsí
mánaðarlok:
mJ
Dýr „lykill að
framtíðinni”
—en nauð-
synlegur
— sjábis.6
Sólarhrings
seinkun á
útkomu
vegna
bilunar í
prentsmiðju
Þetta eintak af Dagblaðinu er
sólarhring seinna á ferðinni en
gert var ráð fyrir. Blaðið kom
ekki út i gær vegna bilunar i
prentsmiðju Árvakurs. Er verið
var að prenta Morgunblaðið í
fyrrinótt brotnaði stykki í brota-
vél. Unnið var að viðgerð allan
daginn í gær og í nótt og snemma
í morgun v'ar síðan hægt að hefja
prentun á ný. Vegna frídags
prentara í dag er meginhluti
blaðsins í dag sá sami og hefði átt
að koma út í gær, föstudag. Eru
því timasetningar og efni inn-
blaðsins samkvæmt þvi. Útsiður
blaðsins eru hins vegar miðaðar
við daginn í dag.
Dagblaðið biðst velvirðingar á
þeim óþægindum sem þessi seink-
un á útgáfu blaðsins hefur valdið.
Næsta blað kemur út á þriðju-
daginn.
Ungf rú ísland kjörin í gær:
Elísabet Traustadóttir
fegurðardrottning íslands
Ungfrú tsland, Elisabct Traustadóttir, gengur að krýningarstólnum. Til hægri situr Hlif Hansen sem varð númer tvö og til
vinstri situr Kristin H. Daviðsdóttir sem varð númer þrjú. Ásdis Eva Hannesdóttir stendur i hvitum kjól við stólinn og Lára
Kristfn Jónsdóttir stendur á milli Elisabetar og Hlifar. Á litlu myndinni óska afi og amma Elisabetu til hamingju með titil-
inn, en þau eru Einar Ágústsson stórkaupmaður og Sigriður Einarsdóttir. DB-myndir Ragnar Th. Sigurðsson.
Sautján ára nemandi í Menntaskól-
anum í Hamrahlið, Elísabet Trausta-
dóttir, var í gærkvöldi kjörin fegurðar-
drottning íslands 1980. Elisabet var
kosin ungfrú Reykjavik 4. maí sl., en i
fyrra var hún kjörin ungfrú Útsýn,
þannig að enginn ætti að efast um feg-
urð hennar. Helztu áhugamál hinnar
nýju fegurðardrottningar eru dans og
teikning. Foreldrar Elísabetar eru
Maria Á. Einarsdóttir og Trausti Ólafs-
son.
Úrslitakeppnin fór fram á Hótel
Sögu í gærkvöldi og kepptu þar þrettán
fegurðardísir víðsvegar af landinu. í
öðru sæti varð Hlíf Hansen frá Reykja-
vik, þriðja varð Kristín H. Davíðsdótt-
ir, Suðurnesjum, fjórða varð Ásdís Eva
Hannesdóttir, Reykjavik, og fimmta
Lára Kristin Jónsdóttir, ungfrú Vest-
firðir.
Glæsileg verðlaun bíða ungfrú ísland
1980 og má þar nefna 500 manna
kokkteilboð í Hollywood, demants-
hring frá Gulli og silfri óg utanlands-
ferð fyrir tvo. Stúlkurnar sem komust í
fimm efstu sætin fá gjafir frá Hild i hf.
og Rolf Johansen.
Nánar verður sagt frá úrslitum
keppninnar áþriðjudag. -JH
Allir keppendurnir 13 er þeir komu fram á sundbolum. Ungfrú tsland er númer 10.
DB-mynd Ragnar Th.