Dagblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1980. BMW520 árg.’78 Renault 12TL árg.’77 BMW 525 autom. árg. ’77: Renault 12 TL árg.’74 BMW320 árg.’79 Renault 12 TL árg. ’73 BMW320 árg.’78 Renault 12 station árg. ’75 BMW316 árg.’78 Renault 14 TL árg. ’79 BMW 2800 árg. ’69 Renault5GTL árg. ’79 Renault 20 TL árg.’78 Renault 4 VAN F6 árg. ’79 Renault 12 Tl. árg.’78 Renault 4 VAN F6 Opið laugardaga kl. 1— árg. ’78 6. KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633 ----------29. júní--------------- Pétur J. Thorsteinsson Aðalskrifstofa stuðningsmanna Péturs J. Thorsteins- sonar er að Vesturgötu 17 Reykjavík Skrifstofan er opin kl. 9—22, sunnudaga kl. 13— 19. Símar28170 og 28171 Á skrifstofunni eru veittar upplýsingar um kjörskrá og allt sem að forsetakosningunum lýtur. Skráning sjálfboðaliða til margvíslegra verkefna er hafin. Lausar stöður Við Mcnntaskólann á Isafirði eru kennarastöður lausar til umsóknar. Kennslugreinar sem um er að ræða eru: Viðskiptagreinar (hagfræði, bók- færsla, viðskiptaréttur), enska, stærðfræði og eðlisfræði, saga og félags- fræði og danska. Einnig er laust við skólann starf húsmóður og húsbónda I heimavist (samtals heil staða), svo og staða fulltrúa. Upplýsingar veitir skólameistari í simum (94)-3599, (94)-3767 eða (94)- 4119. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 17. júnf nk. Umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu. M enntamálaráðuneytið 20. mai 1980. Pylsuvagninn á Lækjartorgi mun freista þess að setja heimsmet i kvartmiíu- akstri pylsuvagna um helgina. Pylsuvagninn á Lækjartorgi veröur aö heiman um hvítasunnuna. Þá munu þau Auöur Eiísabet Guö- mundsdóttir og Hermann Gunnarsson keppa á vagninum í keppni kvartmíiuklúbbsins á laugardag og væntanlega setja heimsmet í kvartmíluakstri pylsuvagna. Sjón er sögu ríkari. PYLSUVAGNINN LÆKJARTORGI t lok fundarins risu fundarmenn úr sætum og sungu tsland ögrum skorið. Á myndinni eru fremstir Sveinn Björnsson, vara- forseti tSt, og Baldur Jónsson vallarstjóri. Við hlið Brynhildar og Alberts er Bergur Guðnason, formaður knattspyrnu- félagsins Vals. DB-mynd RagnarTh. Fundur stuðningsmanna Alberts iiman íþróttahreyfingarinnar: „Hámenntaður í skóla lífsins” — sa'gði Úlfar Þórðarson formaður íþróttabandalags Reykjavíkur um Albert „Veröldin tók kipp þegar Albert Guðmundsson gaf henni spark i fyrsta sinn og hún hefur verið í varnarstöðu gagnvart honum síðan,” sagði Þórir Lárusson, formaður ÍR, á kosninga- fundi stuðningsmanna Alberts Guð- mundsonar innan íþróttahreyfingar- innar í fyrrakvöld. Var fundurinn haldinn á Hótel Borg og var mjög vel sóttur. Starfslið á Hótel Borg sagðist telja að um 800 manns hefðu verið á fundinum. Ýmsir forystumenn iþróttahreyfing- arinnar fluttu ræður til stuðnings fram- boði Alberts, Sigfús Halldórsson tón- skáld lék á píanó og frambjóðandinn flutti ræðu. Fundarstjóri var Úlfar Þórðarson, formaður ÍBR. „Við stuðningsmenn Alberts tökum okkur i munn orð fyrrverandi forsætis- ráðherra: Það er stutt til Bessastaða,” sagði Þórir Lárusson i lok ræðu sinnar. Anton örn Kjærnested, formaður Víkings, sagði að Albert væri þekktur fyrir að koma málum í höfn þótt öll sund virtust lokuð. ,,Ég kýs mann sem upphófst af sjálf- um sér og veit hvað hann er og hvað hann vill,” sagði Júlíus Hafstein, for- maður HSÍ. „íslenzka iþróttahreyfingin stendur í mikilli þakkarskuld við Albert Guð- mundsson,” sagði Sveinn Björnsson, varaforseti ÍSÍ. „Albert hefur verið óþreytandi við að hjálpa því fólki sem minna má sin í Reykjavík,” sagði Bergur Guðnason, formaður Vals. Hann bætti því við að Albert kæmi alltaf hreint og beint fram. „Hann segist reiðubúinn til að takast á við embættið meðan aðrir láta gangaáeftirsér.” ,,Ég styð Albert Guðmundsson af þvi að hann getur sagt nei,” sagði Baldur Jónsson vallarstjóri og bætti því við, að þingmennirnir hefðu ekki verið atvinnulausir í marga mánuði í vetur ef Albert hefði verið kominn á Bessastaði. Flestir ræðumanna minnt- ust einnig á Brynhildi, konu Alberts, í ræðum sínum. „Það þarf ekki annað en líta á Albert til að sjá að hún er góður kokkur,” sagði Baldur í gaman- sömum tón og fékk mikið klapp fyrir ræðu sína. „íþróttahreyfingin skuldar mér ekki neitt,” sagði Albert Guðmundsson eftir að hafa þakkað ræðumönnum hlý orð í sinn garð. „Við sem aldir erum upp í íþróttahreyfingunni höfum verið að taka út fyrirfram og við erum að endur- gjalda æskunni það í dag.” „Ég bið um stuðning ykkar því einn get ég ekkert,” sagði Albert. „Ég bið ykkur þó ekki um að ganga gegn sann- færingu ykkar og ekki á móti neinum öðrum frambjóðendum. Ég bið um drengilega baráttu.” Úlfar Þórðarson fundarstjóri sagði meðal annars, að Aibert væri „há- menntaður í skóla lífsins.” í lok fundarins rísu fundarmenn úr sætum og sungu ísland ögrum skorið við undirleik Sigfúsar Halldórssonar. -GAJ Eskifjörður: Hitabylgja og gdður af li Hér hefur sl. viku gengið yfir hita- bylgja og logn. Maður þarf því ekki að vera hissa á þingmönnunum sumum hverjum þótt þeir vilji vinna áfram í þinghúsinu. Mér finnst þessi mikli hiti og sól illþolandi. Fólk á Eskifirði hefur verið að slá lóðir sinar, en grasspretta er mikil. Það er þó alltaf sárt að sjá heyi hent í ruslatunnur. Mikið fiskirí hefur verið hjá Eski- fjarðartogurunum. Hólmatindur kom inn með fullfermi af stórum og góðum fiski eftir 8 daga túr. Aflinn var 125 tonn og skiptaverðmæti 24,9 milljónir kr. Hólmanesið kom einnig inn með góðan afla. Hins vegar hefur verið litil grásleppu-og rauðmagaveiði. • - Regina, Eskifirði. Nýslátraðir hvítasunnugemsar Kjöt af nýslátruðum gemsum kom i nokkrar verzlanir í Reykjavík í gær. Agnar Guðnason, blaðafulltrúi bænda- samtakanna, sagði að slátrað hefði verið 57 gemsum alls, flestir væru þeir fremur magrir en um 20 skrokkar væru ágætir. Þetta nýja kjöt verður selt ófryst undir nafninu hvitasunnugems- ar. Verð þess er hið sama og á 1. flokki af kjötinu sem slátrað var siðastliðið haust. -DS / DB-mynd: R.Th.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.