Dagblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 25

Dagblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 25
29 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1980. 13 FEGURÐARDÍSIR KEPPA UM " TITILINN UNGFRÚ ÍSLAND —á Hótel Sögu í kvöld Kristín H. Davíðsdóttir, 17 ára: Ætlar að verða fóstra Kristín H. Davíðsdóttir, 17 ára, var kjörin ungfrú Suðurnes í Stapa í Njarð- víkum 12. apríl sl. Hún er fædd 31. marz 1963 og er 1,72 á hæð. Kristín er nemandi í Fjölbrautaskólanum i Kefla- vík en í sumar starfar hún í verzluninni Fataval. Hún er á uppeldisbraut í fjöl- brautaskólanum og er ákveðin í að verða fóstra. Áhugamál Kristínar er að komast á skíði og fer hún svo oft sem mögulegt er á veturna. Foreldrar hennar eru Svanhildur Kjær og Stefán Harðarson. Ingdís Undal Jensdóttir, 17ára: Keppir í körfubolta Ingdis Líndal Jensdóttir, 17 ára, var kjörin ungfrú Patreksfjörður 2. mai sl. Hún er fædd 15. desember 1962 og er 174 cm á hæð. Ingdis starfar sem gangastúlka i sjúkrahúsinu á Patreks- firði. f framtíðinni hefur hún áhuga fyrir sjúkraliðastarfinu. Áhugamál hennar eru skíði, sund og körfubolti. Hún hefur spilað körfubolta og m.a. unnið bikarinn 1976 með liði sínu. For- eldrar hennar eru Þorbjörg Pálsdóttir og Jens Líndal Bjarnason. Ingdís er fædd og uppalin á Patreksfirði. Lára Krístín Jónsdóttir, 16 ára: Hárgreiðsla eða verzlunar- námí framtíðinði Lára Kristín Jónsdóttir, 16 ára, var kjörin ungfrú Vestfirðir í félagsheimil- inu í Hnífsdal 3. maí sl. Hún er fædd 21. júni 1963 og er 172 cm á hæö. Lára er í grunnskólanum í Bolungarvík. f sumar ætlar hún að vinna í frystihúsinu þar. í framtíðinni hyggst hún leggja fyrir sig annaðhvort hárgreiðslu eða verzlunarnám. Áhugamál hennar eru ferðalög og að fara á skíði, en það segist hún gera mjög oft. Hún er fædd og uppalin i Bolungarvík og eru for- eldrar hennar Rannveig Snorradóttir og Jón Valgeir Guðmundsson. Unnur Eiríksdóttir, 22ára: Dansinn skemmti- legastur Unnur Eiríksdóttir, 22 ára, tók þátt í keppninni ungfrú Austurland 18. og 19. apríi. Hún kemur í ungfrú fsland- keppnina í stað Elsu Dóru Gísladóttur, ungfrú Austurland, sem baðst undan að taka þátt í þessari keppni. Unnur starfar í Landsbankanum á Eskifirði, en vann áður í Sparisjóðnum á Norð- firði. Aðaláhugamál hennar er dans og sagðist hún fara í danskennslu þegar komið væri austur. Hún er fædd 27. febrúar 1958 og er 170 cm á hæð. Unnur er fædd og uppalin í Neskaup- stað og eru foreldrar hennar Ingveldur Stefánsdóttir og Eiríkur Ásmundsson. Margrét Snorradóttir, 18ára: Gæludýr eru áhugamálið Margrét Snorradóttir, 18 ára, var kjörin ungfrú Akranes 11. apríl sl. Hún er fædd 22. október 1961 og er 173 cm á hæð. Margrét vinnur í Landsbankan- um á Akranesi. Hún tók verzlunarpróf úr Fjölbrautaskólanum á Akranesi og hyggst í framtíðinni reyna við stúdents- prófið. Framtíðin er að öðru leyti óákveðin. Aðaláhugamál Margrétar eru sund, íþróttir og gæludýr. Hún á sjálf hund. Margrét er fædd og uppalin á Akranesi og foreldrar hennar eru Helga Kristín Bjarnadóttir og Snorri Hjartarson. Elísabet Traustadóttir, 17 ára: Hef ur áhuga á arkitektúr Elísabet Traustadóttir, 17 ára, var kjörin ungfrú Reykjavík í Þórskaffi 4. maí sl. Hún er fædd 15. ágúst 1962 og er 175 cm á hæð. Elísabet stundar nám við Menntaskólann í Hamrahlíð, á náttúrusviði. í framtíðinni langar hana að láéra arkitektúr, en þar sem litlir at- vinnumöguleikar eru hér á landi fyrir það starf, að því er hún segir, gæti það þó breytzt. Áhugamálin snúast um dans og teikningu. Elísabet hefur verið í sýningarflokki hjá Heiðari Ástvalds- syni. Hún teiknar líka heilmikið og þá yfirleitt fríhendis. Elísabet er Reykvík- ingtjr í húö og hár og eru foreldrar hennár Marla Á. Einarsdóttir og Traus\i Ólafsson. hjúkrunamám Svanfríður Birgisdóttir, 18 ára, var kjörin ungfrú Akureyri í Sjálfstæðis- húsinu þar 25. apríl sl. Svanfríður er fædd 10. apríl 1962 og er 162 cm á hæð. Hún er nemandi í Menntaskólan- um á Akureyri, 4. bekk í máladeild. Svanfriður stefnir í stúdentsprófið og eftir það i hjúkrun i háskólanum Áhugamálin eru margvísleg, s.s. golf, að fara á skíði, sem hún segist gera oft á veturna, og sund. Auk alls þessa hefur Svanfríður mikinn áhuga fyrir flugfreyjustarfinu. Á sumrin hefur Svanfríður unnið i Útvegsbankanum á Akureyri. Foreldrar hennar eru Heiða Hrönn Jóhannsdóttir og Birgir Stefáns- son. Hún er fædd og uppalin á Akur- eyri. GuðbjðrgHólm, 19ára: Á kafi í leiklistinni Guðbjörg Hólm, 19 ára, varð númer •tvö í ungfrú Norðurland-keppninni. Edda Vilhjálmsdóttir, ungfrú Norður- land, gat ekki tekið þátt í keppninni og kemur því Guðbjörg í hennar stað. Guðbjörg er fædd 29. desember 1959. Hún er 173 cm á hæð. Hún starfar við afgreiðsluhjáKaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki. Aðaláhugamál Guð- bjargar er leiklist. Hún er áhugaleikari hjá Leikfélagi Sauðárkróks og hefur leikið þar í vetur í leikritinu Týnda te- skeiðin eftir Kjartan Ragnarsson. Leik- rit þetta hefur gert mikla lukku á Norðurlandi og mun leikfélagið fara til Finnlands i sumar og sýna þar. Guð- björg sagðist vera búin að skipuleggja allt árið þar eð hún var að kaupa sér ibúð. Hún er fædd og uppalin á Sauð- árkróki, dóttir þeirra Droplaugar Þor- steinsdóttur og Guðbrands Þ. Þorkels- sonar. Hrafnhildur Krístjánsdóttir, 18 ára: Ekkiáhuga á sveitastörfum Hrafnhildur Kristjánsdóttir, 18 ára, var kjörin ungfrú Suðurland á Hvoli á Hvolsvelli 17. maí sl. Hún er fædd 7. marz 1962 og er 1.71 cm á hæð. Hrafn- hildur er nemandi í Verzlunarskóla íslands. í sumar ætlar hún að vinna í sjoppu á Hvolsvelli, þar sem hún hefur starfað undanfarin sumur. Aðaláhuga- mál Hrafnhildar er dans og hefur hún lært dans hjá Sigvalda siðan hún var sjö ára. Meðal annars tók hún þátt í diskókeppni i Klúbbnum I fyrra. Fkki ihefur Hrafnhildur áhuga fyrir sveita- störfum þráli l'yrir að hún sé bónda- dóttir. l oreldrar hennar eru Gerður Elímarsdóttir og Kristján Ágústsson. Hrafnhildur er frá Hólmum í Austur- Landeyjum og er hún þar fædd og uppalin. Svanfríður Birgisdóttir, 18 ára: Ætlar í Guðrán Samúelsdóttir, 22ára: Flytur inn og selur kventízkuföt íEyjum Guðrún Samúelsdóttir, 22 ára, var kjörin ungfrú Vestmannaeyjar í sam- komuhúsinu þar 16. maí sl. Hún er fædd 7. júli 1957 og er 1.67 á hæð Guðrún rekur eigin verzlun í Vest- mannaeyjum sem nefnist Fansý. Þar selur hún írsk kventízkuföt sem hún kaupir inn sjálf. Hún hefur að sjálf- sögðu mestan áhuga fyrir verzlun sinni, auk þess sem ferðalög heilla hana. Guðrún fiutti til Eyja fyrir fimm árum og líkar vel eyjarlífið. Foreldrar hennar eru Guðbjörg Erlendsdóttir og Samúel Helgason.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.