Dagblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1980. Qsjta- og smjörsalan heimsótt: FRAMLEIÐIR HUNDRAÐ TONN AF OSTIÁ MÁNUÐI — eða 40 tegundir „Við seljum á annað hundrað ein gerð af osti, brauðostur meö tonn af osti á mánuði og milli 80 og 90 tonn af smjöri á Reykjavíkur- svæðinu,” sagði Óskar H. Gunnars- son framkvæmdastjóri Osta- og smjörsölunnar. Við heimsóttum söluna í hin nýju húsakynni hennar við Bæjarháls. Salan er nýflutt þangað úr allt of litlum húsakynnum við Snorrabraut. Nýju húsakynnin eru hin veglcgustu og greinilega mikið til þeirra vandað. Þegar við komum í heimsókn voru meni.emiBð koma sér fyrir og enn vantaði nokkuð á að alll væri komið í það horf sem það á að vera. Við spurðum Óskar hvort osturinn yrði eins góður i þessum nýju húsakynnum og í þeim gömlu. ,,Við verðum að vona það. Húsið niður frá var orðið allt of lítið og óframkvæmanlegt að sinna þar allri þeirri starfsemi sem þurfti. Pökkunin var komin í þrot og lagerinn var dreifður um allan bæ. Þetta er ekki skrýtið þvi þegar Osta- og smjörsalan' hóf starfsemi þar árið 1958 var framleiðslan 30% af því sem hún er í dag.” Osturinn með rauðu skorpunni og allir hinir Þegar Osta- og smjörsalan hóf starfsemi sina var aðeins framleidd Dómhildur Sigfúsdóttlr húsmæðra- 'kennari er ráðin af Osta- og smjörsöl- unni til þess aó kynna ostana og ýmis- legt sem búa má til úr þeim. Hún gaf DB-mönnum ost að bragða f heim- sókninni i Osta- og smjörsöluna. DB-myndir Þorri. rauðri skorpu. Hvernig er staðan núna? „Rauði osturinn selst enn lang- mest. Hann er vinsæli vegna jiess hversu bragðlitill hann er og margir komast aldrei svo langt að bragða aðra osta. Við framleiðum núna einar 40 tegundir af ostum þegar allt er talið með og höfum stöðugt verið að bæta^við. Ekki er langt í að enn bætist við núna þegar við erum komin í nýtt hús. Sala á skorpulausum osti og hvers kyns á- Öskar H. Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Osta- og smjörsölunnar. bætisostum hefur aukizt verulega. Bæði þökkum við það auknum auglýsingum og eins hinu að fólk fer nú meira til útlanda en áður og kynnist þá ólikum smftkk og vill gjarna fá fjölbreyttari vörur þegar það kemur heim aftur,” sagði Óskar. Osturinn kemur frá öllum landshornum og fer um allt land Okkur kom á óvart að sjá ekki i Hið nýja hús Osta- og smjörsölunnar er um 5 þúsund fermetrar að flatarmáli. Pökkunarsalurinn er griðarlega rúmgóður og á enn eftir að koma þar fyrir þó nokkrum tækjum, m.a. til smurostagerðar. húsi Osta- og smjörsölunnar stór keröld með osti sem var í gerjun. Óskar sagði að osturinn væri í sjálfu sér ekki framleiddur hjá Osta- og smjörsölunni heldur í hinum ýmsu mjólkurbúum um land allt. Hann kæmi hins vegar til Reykjavikur í pökkun og dreifingu. Smurostur er ekki unnin að öllu leyti úti á landi því í Reykjavik er bætt i hann viðeig- andi bragðefnum. Eins er piparinn settur á piparostinn og fleira þess háttar. Osturinn fer síðan um allt land. Fyrir noröan er framleitt talsvert al fullbúnum ostum og kemur sumt af þeim suður til Reykjavíkur. Meira er hins vegar um hitt að osturinn er sendur norður þar sem hann er á boðstólum, jafnhliða hinum heima- tilbúna osti. Hjá Osta- og smjörsölunni vinna um 40 manns. .Dálítið misjafnt eftir árstíðum, meira'núna, þar sem fólk er farið að tínast í sumarfrí. i bígerð er alls konar útfærsla á starfseminni, til dæmis aukin tilraunastarfsemi með nýjar tegundir af ostuta og nýja ostarétti. En hjá Osta- og smjör- sölunni er ekki bara ostur eins og nafnið gefur i rauninni til kynna. Smjörið skipar þar einnig mikinn sess. Við spurðum Óskar hversu hátt hið fræga smjörfjall væri núna. Kvótakerfið minnkar alla framleiðslu ,,Það er um þúsund tonn núna og á eftir að hækka eitthvað í sumar. Með hinu nýja Mjólkursamlagi á Akureyri minnkar það svo aftur því framleiöslan færist norður en aukin áherzla verður lögð á ostagerð hér. Kvótakerfið í landbúnaðinum kemur einnig til með að minnka alla framleiðslu í landbúnaði og þá verður reynt að miða eingöngu við innanlandsmarkað. Ekki kemur þó til þess að skortur verði á osti, til þess er langt í land. Við höfum undanfarið fært okkar útflutningsmarkað á osti frá Banda- ríkjunum, þar sem innflutningur hefur verið takmarkaður við ákveðinn kvótaog yfir til Evrópu. Þar fáum við auðvitað ekki nema brot af því verði fyrir ostinn sem hann kostar i framleiöslu, en Efnahags- bandalagslöndin hafa sín á milli samið um niðurgreiðslur á osti og upp fyrir þeirra verð getum við auðvitað ekki farið. Áframhaldandi baráttumál hlýtur þvi að verða aukinn markaður í Bandaríkjunum,” sagði Óskar. Við kvöddum Osta- og smjörsöluna eftir að hafa bragðað ;þar á hinum indælu ostum, sem hún sérumaödreifa. -DS. 1—2 minaóa skammtur af hinum vin- sæla brauðosti með rauðu skorpunni blður þarna eftlr að vera tekinn til niðurskurðar og siðan sendur á mark- aö. Ostinum er nú pakkað I loftþéttar umbúðir og hann siðan veginn á tölvuvogum og verð og þyngd er skráð á umbúðirnar. Einnig má finna þar upplýsingar um sfðasta söludag og næringargildi. Ostur f sneiðum er vinsæll meðal þeirra sem fi sér snarl f hideginu á vinnustað.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.