Dagblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1980.
2
Munurinn á sozial
og sozialistisch
Ól. Björnsson skrifar:
í fréttum útvarps 18. þ.m. talaði
Margrét Jónsdóttir fréttamaður um
Franz Josef Strauss sem foringja
„kristilegra sósíalista” i Bayern í
Vestur-Þýzkalandi. Látum nú vera
hó að fréttamaðurinn þekki ekki
nruninn á „sozial’.og „sozialistisch”
eða „S( zialist”, svo aulalegt sem það
samt er af hálfu fréttamanns. En
starfandi fréttamaður sem opinberar
fákunnáttu sína á þennan hátt, þyrfti
endilega að komast á byrjendanám-
skeið. Fáir evrópskir stjórnmála-
menn hafa verið meira áberandi en
Franz Josef Strauss síðustu áratug-
ina. Sá sem ekki veit að hann er einn
stækasti and-sósialisti sem uppi hefur
verið, kann ekki barnalærdóminn i
alþjóðlegum stjórnmálum. Flokkur
Strauss heitir Christlich Soziale
Union (CSU). Eins og sú nafngift ber
með sér á flokkurinn ekkert skylt við
sósialisma, enda er hann yzt á hægri
kantinum.
Þessi fávizkulegi ruglingur hefur
svo senr hcyrzt áður í útvarpinu, t.d. i
„morgunpóstinum” hjá einhverjum
Franz Josef Strauss.
pilti, sem mig minnir að væri titlaður
„okkar maður” einhvers staðar, eins
og það heitir á máli morgunpósts-
manna. Hafa ábyrgir stjórnendur
Ríkisútvarpsins ekkert við svona
fréttaflutning að athuga? Eru allir
hættirað vandasig?
Frá húsi Framkvæmdastofnunar rikisins. en það hús var mjng umdeilt fyrir
nokkru vegna aðstöðuleysis iðnaðarmanna.
DB-mynd Ragnar Th.
Raddir
lesenda
Hrelnlætisaðstaða
byggingarmanna:
Ekkert breytzt
í tuttugu ár
9867-0254 hringdi:
Mig langar til að vekja athygli á
slæmri hreinlætisaðstöðu byggingar-
manna, hvernig hún hefur verið lengi
og hvernig hún er. Það er óskapleg
skömm að byggingarmenn hafi ekki
aðstöðu til að fara á salerni, né að
þeir geti þvegið sér um hendur. Þeir
þurfa að drekka kaffið sitt í óhrein-
um skúrugi. Mér finnsl þetta ekki
vera neitt einkamál þessara manna
heldur mál sem borgarlæknir ætti að
gefa gaum. Jafnvel er þessurn mönn-
um boðið upp á óhitaða vinnuskúra.
Maðurinn minn hefur unnið i 20 ár
í byggingarvinnu og ekkert hefur
breytzt i þessum málum allan þann
lima. Núna er hann nýbyrjaður á
nýjum vinnustað og ég spurði hann
hvort þar væri hreinlætisaðstaða.
Nei, svaraði hann. Ég spurði hann þá
að því hvort ég ætti að tala um það
við meistarann. Hann brást hinn
versti við og spurði mig hvort ég vildi
að hann yrði rekinn strax. Þannig er
þetta.
Þetta er alveg ömurlegt að þessir
menn gvti lariðá salerni án þess
að þvo ser um hendur. Mér finnst að
þessi mál ætti að athuga gaumgæfi-
lega.
Kynnist S.O.S. — sveit atvinnuher
manna sem eru reiðubúnir að berj
ast við hvern sem er, jafnvel djöful
inn sjálfan ef nægir peningar eru
4, sjakalann
SSagan um viðureign S.O.S.-manne
við hryðjuverkamanninn Carlos og
morðingjahóp hans.
PRENTHUSIÐ SF
Undarlegir verzlunarhættir hjá Nesco:
L0F0RÐ 0G
AFTUR L0F0RÐ
— en allt svikið
Magnús l.árusson skrifar:
7. eða 8. apríl sl. fór ég í Nesco hf.
Laugavegi 10 i Reykjavík með það
fyrir augum að kaupa stereoferða-
tæki til að gefa í fermingargjöf 13.
apríl. Tækið var ekki til, en mér var
bent á að ég gæti fengið gjafakort og
mér sagt að tækið gæti ég fengið í
næstu viku. 9. april fór sonur minn
og keypti kortið fyrir mig. Var
honum þá sagt að tækið yrði komið
föstudaginn 18. april. 15. apríl var
hringt og spurt um tækið, en þá var
sagt að það kæmi ekki fyrr en undir
mánaðamót og þá fyrir fermingar 27.
april.
Ekkert hefur staðizt af því sem sagt
var. Seinna var mér sagt að tækið
kæmi öðru hvorum megin við mán.-
mótin april-maí. Mánudaginn 5. maí
fór ég í verzlunina, þá var mér sagt að
tækið kæmi um næstu helgi. Þá fór
ég fram á að fá kortið endurgreitt á
því verði sem tækið kostar núna. Mér
var neitað um það, en boðið upp á þá
upphæð sem ég hafði greitt 9. apríl.
Hins vegar hefur tækið hækkað um
fjögur þúsund krónur.
Nú eru komnar tæpar fjórar vikur
síðan fermt var og þrjár vikur síðan
lækið átti að vera komið. Mér Finnst
ástæða til að vara fólk við svona
verzlunarháttum. Afgreiðslumaður-
inn sagði mér að ca 80 gjafakort
hefðu verið seld. Það gerir tæpar 8
milljónir í veltufé fyrir Nesco.
Svar Nesco hf.:
MISSKILNINGUR
0G RANGFÆRSLUR
Við hörmum óþægindi og leiðindi
sem mál þetta kann að hafa valdið
Magnúsi, en verðum þó að leiðrétta
misskilning eða rangfærslur, er fram
koma i kvörtun hans.
Það almenna í máli þessu er að sú
staða kemur iðulega upp að eftir-
spurn eftir tilteknum tækjum er meiri
en aðdrættir, einkum þegar um sér-
staklega eftirsóttan varning er að
ræða, eins og er í þessu tilviki.
Gefum við þá viðskiptavinum okkar
kost á kaupum, þó tækin séu
ókomin, en hagur þeirra er, að þeir
tryggja sér gildandi verð (við tökum
gengisáhættuna) og tækið eða tækin,
en við okkur viðskiptin.
Ekki mun Magnús hafa komið til
okkar 7. apríl, þvi það var 2. páska-
dagur. Kaup eru gerð i nafni
Magnúsar 9. april og er afgreiðslulof-
orð á sölu einfaldlega „þegar
kemur”. Söluverð tækisins var kr.
98.500. Á þessum tima var reiknað
með að viðkomandi sending kæmi til
landsins upp úr nriðjum mánuði og
að tækin yrðu til afgreiðslu frá okkur
i lok apríl. Vera kann, að hér hafi
skapazt misskilningur, sérstaklega
þar sem Magnús sendi son sinn til að
gera kaupin.
Það er alkunna að Nesco býður eitt
fyrirtækja hér fullan og skilyrðislaus-
an skila- og endurgreiðslurétt á öllum
seldum tækjum i 7 daga frá afhend-
ingu þeirra, hvað þá, ef tæki eru enn
óafhent. Strax og óánægja Magnúsar
kom upp og ekki sízt þar sem í Ijós
hafði komið að cinnar viku seinkun
yrði á komu tækjanna til landsins,
buðum við Magnúsi að kaupin
gengju til baka og að við endur-
grciddum tækið. Söluverð tækisins
hafði hækkað nokkuð i millitiðinni,
vegna gengissigs, eða i kr. 102.500,
og krafðist Magnús með þjósti og
æsingi, sem reyndar einkenndi alla
hans framgöngu i málinu að hann
fengi þá fjárhæð endurgreidda. Á
þetta gátum við að sjálfsögðu
ekki fallizt og áréttuðum við boð
okkar um endurgreiðslu sömu fjár-
hæðar og Magnús hafði greitt, eða að
hann biði eftir tækinu og nyti gengis-
hagnaðarins. Á þessu stigi lá fyrir að
tækin yrðu til afgreiðslu frá okkur i
1. viku maí.
Föstudaginn 9. maí kom svo
Magnús og krafðist endurgreiðslu
frekar en að taka við því tæki sem
hann hafði keypt, en viðkomandi
sending var þá komin i okkar hendur.
Ekki varðar Magnús um viðskipti
okkar við aðra, en þó má upplýsa að
þeir voru 24 sem keypt höfðu umrætl
tæki fyrirfram, ekki 80, og nutu þeir
verulegs gengishagnaðar, því tækið
hafði nú enn hækkað verulega. Hins
vegar lágu einnig fyrir fjölmargar
pantanir, en þeir aðilar urðu að
greiða hið hækkaða verð.
Með kveðju,
NESCOhf.,
Birgir Sigmundsson,
afgreiðslu- og
lagerstjóri.
PÓLITÍKIN RÆÐUR
HJÁ ÞJÓÐVUANUM
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Ég undirritaður vil senda ritstjóra
eða blaðamanni Þjóðviljans fáein
kveðjuorð. Ástæðan er sú að i Þjóð-
viljanum var skýrt frá láti fyrrver-
andi forsætisráðherra, Jóhanns Haf-
stein, en frásögnin var ekki önnur
heldur en sú að hann hefði verið for-
sætisráðherra og nafn ekkjunnar.
Mér finnst þetta algert hneyksli, þar
sem allir vita að Jóhann Hafstein var
einn af helztu leiðtogum þjóðar sinn-
ar. Þar að auki gegndi hann margvís-
legum trúnaðarstörfum fyrir þjóð
sina, sem Þjóðviljinn minnist ekki
einu orði á. Á þessu má sjá að þarna
ræður pólitikin ferðinni. Ég held að
þessir menn ættu að fara heim til að
læra að láta hvern og einn njóta þess
sem í honum býi, burtséð frá allri
pólitik oe gera greinpc^im á léttu oe
röngu þö að audsta-ðingar eigi i hlut.
i'.li'ð.dj::::: .■ -ii ...... , l mai
Olgeirsson, sem skrifaði þá fallegustu
minningargrein um Ólaf heitinn
Thors þótt þeir hefðu verið and-
stæðingar í pólitik, og skrifuðu þó
margir um Ólaf, en minningargrein
Einarsbaraf þeim öllum.