Dagblaðið - 24.05.1980, Side 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1980.
3
Dauði prinsessu:
Sjónvarpið ætti ekki að sýna
þessa arabísku mynd
— segirSiggiflug
Ég las um það nýlega í blaði að til
stæði að sýna í rikissjónvarpinu ein-
hverja umdeilda mynd, arabíska, um
einhverja prinsessu og elskhuga
hennar.
Mynd þessi sætti mikilli gagnrýni
hjá þeim arabísku og varð það til þess
m.a. að arabarnir létu sendiherra
sinn í London (að ég held) koma
heim eftir að kvikmynd um þetta
ástarævintýri hafði verið sýnd í Eng-
landi.
Mörgum finnst kvikmyndin sýna
mikla grimmd, en svo eru lög þeirra
þarna í arabaríki einnig. Mætti likja
þeirra lögum við okkar lög um stóra-
dóm, sem ekki þótti sérstaklega
mildur.
í einhverju blaði las ég að til stæði
Góð þjónusta
á bfla-
verkstæði
K.A. skrifar:
Vert er að geta þess sem vel er gert.
Ég lenti í því óláni að bíllinn minn,
sem er mér ómissandi, bilaði. Þar
sem hann er af þeirri tegund að fá
bilaverkstæði geta gert við hann var
upppantað marga daga fram i tímann
hjá þeim sem geta það.
Hins vegar var einn þeirrá mér svo
hjálplegur að taka bilinn þrátt fyrir
að hann væri yfirhlaðinn verkefnum.
Það var bílaverkstæði Tómasar á
Laugarnestanga. Það verkstæði
sýndi mér fádæma kurteisi og sann-
girni hvað varðar kostnað. En ég hef
heyrt að vart sé hægt að fara með bíl
á verkstæði fvrir innan við hundrað
þúsund krónur. Þetta vil ég kalla
góða þjónustu.
Vörubfla-
drasl
óprýðir
umhverfið
Ibúðareigandi hringdi:
Mig langar að koma þvi á fram-
færi við vörubílstjóra sem búa inni i
íbúðarhverfum að þeir safni ekki
rusli i kringum íbúðarhús sin. í þeirri
götu sem ég bý i býr vörubilstjóri sem
hefur verið að gera upp bílinn sinn.
Hann hefur keypl gamla bíla og rifið
þá i sundur til að fá úr þeim vara-
hluti.
Þetta er i sjálfu sér allt i lagi nema
hvað ógurlegt drasl safnast kringum
húsið hans, til mikillar óprýði fyrir
götuna. Til dæmis er gatan auðkennd
með þessu drasli. Ég heyrði konu
spyrja til vegar um daginn og hún
benti í áttina að götunni og sagði:
,,Nú, er það þarna sem allt vörubíla-
draslið er?”
Mér datt svona í hug að benda á
þetta þar sem þetta er nánast ófremd-
arástand.
að við tækjum upp stjórnmálasam-
band við Saudi-Arabíu og hefur
utanrikisráðuneytið þetta nú til at-
hugunar í sambandi við hugsanleg
olíukaup þaðan. Oliuna á siðan að
hreinsa, t.d. í Danmörku eða ein-
hverju vestrænu landi.
Það er sérstaklega mikil spenna
milli hins vestræna heims og hins
austræna og virðist allt vera nærri
„suðumarki”.
Ég held þvi að við eigum ekki að
sýna þessa arabísku mynd, eða þessa
mynd um arabískt efni, á meðan við
erum að hugsa um að gera samning
við þá fyrir austan.
Þeir þarna fyrir austan eru sérstak-
lega hörundssárir nú um stundir og
litla ísland finnst mér ekki hafa ráð á
að taka afstöðu til viðkvæmra mála
með því að sýna myndina.
Mér datt þetta (svona) í hug.
Siggi flug, 7877-8083.
r--------------------------------
Sjónvarpið hefur tekið þá ákvörðun að sýna umdeilda mvnd um arabiskt ástar-
ævintýri. Eflaust eiga eftir að spinnast miklar umræður manna á meðal og rétt-
mæti þess að Islendingar sýni myndina. Meðfylgjandi mvnd er ekki úr þessari um-
deildu mynd en sýnir engu að siður refsingu.
Núer
SQMQ'
sumar
VEÐBANKI
STARFAR
Munið kappreiðar Fáks
á annan hvítasunnudag
að Víðivöllum
Hefjast kl. 13.30 með góðhestasýningu.
Kl. 15:00 hefjast æsispennandi hlaup.
Spurning
Áttu von á verk-
föllum hér á landi á
nœstunni?
Friðbjörg Friðbjarnardóttir húsmóðir:
Ég veit ekki, ég hef fylgzt svo ósköp
lítið með þessum málum.
Bragi Friðbjarnarson, vinnur hjá Skelj-
ungi: Nei, ekki á ég von á því. Aftur á
móti væru verkföll mér ekki á móti
skapi.
Anna Jórunn Guðmundsdóttir nemi:
Ég veit ekki. Ég held að það geti alveg
eins verið.
Ólafia Ásgelrsdóttlr nemi: Nei, ég
hugsa ekki. Annars veit ég það ekki,
hef svo lítið pælt i þessu.
Sigríður Lárusdóttir skrifstofustúlka:
Það vona ég svo sannarlega ekki.
Sigurður Þorláksson póstur: Ætli það
ekki. Ekki veit ég svo sem hvaða til-
gangi það ætti að þjóna.