Dagblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 15
14 '
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1980.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1980.
(t
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþrottir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Wales mætir N-ír-
landi í Cardiff íkvöld
Wales og Norður-írland mælast i Cardiff annað
kvöld og mun leikur þeira nær örugglega skera úr.
um hvort liðið hlýtur Bretlandseyjameistaratitilinn i
knattspyrnu. Upphaflega var leikurinn settur á i Bel-
fast en öllum á óvart samþykktu írar að leika í
Cardiff. Eins marks sigur íra myndi tryggja þeim
sigur i keppninni og jafntefli gæti dugað þeim. Þá
yrði Skotland að vinna England 2—0 til að komast
upp fyrir. Vinni Wales þarf Skotland að vinna Eng-
land 4—0 til að vinna keppnina. Varla gerist það,
svo annað hvort þessara liða hlýtur titilinn.
Tvöfalt hjá Svíum
Svíar unnu Fínna 2—0 i landsleik í knattspyrnu,
sem fram fór i Helsinki í gærkvöld. Mörk Svía
skoruðu Mats Nordgren og Thomas Sjöberg. Þá
unnu Sviarnir Finnana 3—0 i landsleik leikmanna 21
árs og yngri í Stokkhólmi. Tommy Holmgren
skoraði tvivegis og Andreas Ravelli bætti þriðjam
markinu við.
Hvítasunnukeppni
GR á morgun
Hvítasunnukeppni GR fer fram á morgun en þetta
er næstelzta golfmót landsins. Keppnin var fyrst
haldin 1937 og svo allar götur síðan. Hvítasunnu-
keppnin hefst kl. 10 árdegis og þeir sem ekki hafa
skráð sig til þátttöku eru beðnir að gera það hið
snarasta i sima 84735 (Golfskáli) eða i síma 84612.
Það skal tekið fram að þetta er innanfélagsmót.
Börkur sigraði
ífirmakeppni SKRR
Firmakeppni SKRR fór fram i Bláfjöllum laugar-
daginn 3. mai sl. Veður var milt, sunnan, suðvestan
gola og þokuslæðingur. Keppnin var útsláttarkeppni
sem fór fram i tveimur samsíða brautum með um 30
hliðum. Fengu keppendur forgjöf eftir getu, allt upp'
í 9 hlið. Oft var þvi keppni mjög jöfn og spennandi
og blðu þá oft eldri og reyndar keppendur lægri hlut
fyrir þeim yngri. 126 firmu tóku þátt i keppninni og
hljóta 12 fyrstu farandbikara að verðlaunum. Skíða-
ráðið fór með mótsstjórn. Úrslit urðu þessi:
1. Börkur hf/Einar Úlfssson, Á.
2. Vesturröst/Gunnar Smárason, ÍR
3. Gunnar Eggertsson/Árni Guðlaugsson, Á
4. Kristján Siggeirsson/Jóhann Vllbergsson, KR
5. -6. Sport/Þór Ómar Jónsson, ÍR
Sindrasmiðjan/Sveinn Rúnarsson, KR
7.-8. Málning hf./Tryggvi Þorsteinsson, Á
Skartgripaverzlun
Valdimars Ingimarssonar/Rósa Jóhanns-
dóttir, KR
9.-12. Útilif/Guðrún Björnsdóttir, Vik
Hilti hf./Auður Jóhannsdóttir, KR
Borgarhúsgögn/Baldvin Valdimarsson, Á
Ölgerðin
Egill Skallagrímsson hf/Gunnar Helgason,
ÍR
Blakdömumar
á uppleið ÍHSK
Unglingamót HSK í blaki fór fram í íþrótta-
húsinu í Hveragerði sunnudaginn 4. maí sl.
Sex lið mættu f mótið og var leikið þannig að aliir
léku við alla. Úrslit urðu sem hér segir:
Baldur Hvolsv. A-lið
Hveragerði
Hrunamenn
Laugdælir
Baldur Hvolsv. B-lið
Baldur Hraungerðishr.
Rétt er að taka fram að tvö neðstu liðin voru
eingöngu skipuð kvenfólki ogekki þarf að taka fram
að það stóð sig með mlklum sóma. Áfram stelpur.
Viku síðar fór blakmót HSK fram á I.augar-
vatni. Aðeins fjögur lið tóku þátt f mótinu og urðu
Laugdælir sigursælir sem væntg mátti enda
nýbakaðir íslands- og bikarn'.eistarar. Annars varð
röð félaga þessi.
Laugdælir,
Mímir,
Hverag. ogÖlfus,
Samhygð.
Ómarsigraði
í skjaldarglÍQiu HSK
Skjaldarglima Skarphéðlns fór fram á Selfossi 2.
mai. Úrslit urðu, sem hér segir:
1. Ómar Úlfarsson, UMF. Heklu, 5 vinningar
2. Kjartan Helgason, UMf. Hvöt, 4 vinningar
3. Eirfkur Ásmundsson, Umf. Hvöt 2J/2 vinningur
4. Ólafur Pálsson, UMf. Ingólfi, 11/2 vinningur
5. -6. Elias Pálsson, Umf. Ingólfi, 1 vinningur
5.-6. Páll Sigurðsson, Umf. Heklu, 1 vinningur.
19
D
Sigurður Halldórsson skorar hér sigurmark tslands á 48. minútu með sannkölluðum þrumuskalla. Norski markvörðurinn er algerlega varnarlaus eins og sést á frábærri
mynd Sigurðar Þorra.
Þórsarar bikarmeistarar KRA
—sigruðu KA 2-1 í úrslitaleiknum um sl. helgi
Nú er lokið bikarkeppni knatt-
spyrnuráðs Akureyrar 1980. Þrjú lið
tóku þátt i mótinu en það voru lið
Þórs, KA og Magna. Lið Völsungs frá
Húsavík hætti við þátttöku ermótið var
hafið og mætti t.d. ekki í sinn fyrsta
leik, hvað þá að láta vita. Olli þetta
töluverðum leiðindum.
íþróttir
Dregið
hjá Leikni
Dregið hefur verið í
afmælishappdrætti Ungmenna-
félagsins Leiknis á Fáskrúðsfirði, sem
eft var til i tilefni 40 ára afmælis
félagsins í ár. Þessi númer hlutu
vinning: Aðalvinningurinn, Majorka-
ferð kom á nr. 87. Úttekt hjá Sport-
vöruverzlun Ingólfs Óskarssonar á nr.
1029. Þá þrir vinningar, nr. 177, 789 og
926, úttekt hjá verzluninni Þór á Fá-
skrúðsfirði. (Birt án ábyrgðar).
Við skulum renna yfir leikina og úr-
slit þeirra. í fyrsta leiknum áttust við
lið KA og Magna. Fyrirfram var búizt
við sigri KA en annað kom á daginn.
Magni hefði eins getað unnið og KA en
leiknum lauk með jafntefli, 1 — 1.
Leikurinn var nokkuð jafn og Magni
komst i 1—Ostrax í upphafi með marki
Jóns Lárussonar eftir góða fyrirgjöf.
Þannig var staðan í leikhléi en rétt fyrir
lok hálfleiksins hafði Jón Ingólfsson
skotið í stöng KA-marksins úr víta-
spyrnu. í siðari hálfleik jafnaði svo
Gunnar Blöndal fyrir KA. Leikurinn
jafn allan leikinn en liðin sóttu á víxl
sinn hálfleikinn hvort þar sem mjög
hvasst var.
í öðrum leik mótsins léku Þór og
Magni. Lék mönnum forvitni á að sjá
hvort góður leikur Magna gegn KA
hefði verið heppni. Svo virtist ekki vera
því Magnamenn gáfu Þórsurum ekki
þumlung eftir og var leikurinn jafn svo
til allan leikinn. Þórsarar voru þó
meira með boltann en Magni komst i
2—0 eftir mistök markvarðar Þórs í
bæði skiptin. Fyrra mark Magna gerði
Jón Ingólfsson úr vítaspyrnu sem
dæmd var á markvörðinn. Skoraði Jón
auðveldlega úr spyrnunni. Annað mark
Magna gerði Hringur Hreinsson eftir
að dæmd hafði verið aukaspyrna,
óbein, vegna of margra skrefa mark-
varðar. Skot Hrings lenti efst í horninu
án möguleika markvarðar á að verja.
Gullfallegt mark. Óskar Gunnarsson
minnkaði muninn fyrir Þór áður en
blásið var til leikhlés. Einnig átti Oddur
Óskarsson hörkuskot í stöng Magna-
marksins i fyrri hálfleik. Er liða tók á
leikinn jafnaði Rúnar Steingrimsson
fyrir Þór er boltinn barst til hans inn i
teig eftir að Ragnar í marki Magna
hugðist handsama knöttinn en gróflega
var brotið á honum en ekkert dæmt og
skol Rúnars gott. Mótmæltu leikmenn
Magna kröftuglega en það dugði
skammt. Mikil harka færðist í leikinn
eftir markið.
Nú var komið að siðasta leik móts-
ins, leik Þórs og KA. Leikur þessi var
nokkuð jafn eins og fyrri leikir þessa
móts. Þórsarar skoruðu fyrsta markið
úr vítaspyrnu og hana framkvæmdi
Árni Stefánsson af öryggi, 1—0 fyrir
Þór, og þannig stóð i leikhléi. í síðari
hálfleik jafnaði Gunhar Blöndal fyrir
KA en Þórsarar bættu svo einu marki
við er Oddur Óskarsson fékk góða
fyrirgjöf og gott skot hans hafnaði i
neti KA-marksins. Var þetta sigurmark
leiksins. Frekar var lítið um spil í leikn-
um en það kom þó frekar frá Þórsur-
um, þeir gerðu frekar tilraun til þess að
ná upp spili heldur en leikmenn KA.
Því var þetta nokkuð verðskuldaður
sigur Þórsliðsins og greinilegt að hið
unga lið er á réttri leið. Til hamingju,
Þórsarar.
- St.A.
Ágúst og Omar hlutu
verðlaun SA í ár
Hjá Skautafélagi Akureyrar hafa
nýlega verið valdir skautamenn ársins
og er það i fyrsta slnn sem það er gert.
Góð þátttaka í f yrsta
frjálsíþróttamótinu
—sem haldið var í Kópavogi fyrir viku
Fyrsta frjálsíþróttamót sumarsins,
var haldið fyrir skömmu á íþrótta-
vellinum við Fífuhvammsveg.
Úrslit i einstökum greinum urðu
sem hérsegir:
100 m hlaup pilta
Sek.
1. Einar Gunnarsson, UBK 12.9
2 Gunnar Guðmundsson, UBK 15.7
lOOmhlaupkvenna: sek.
1. Helga Halldórsdóttir, KR 12.6
2. Geirlaug B. Geirlaugsd., Árm. 12.8
3. Helga O. Árnadóttir, UBK 13.3
100 m hlaup karla: sek.
1. Einar P. Guðmundsson, FH, 11.5
2. ÓlafurÓskarsson, Árm., 11.6
3. Jón Þ. Sverrisson, UBK, 11.6
4. Jónas Egilsson, ÍR, 11.6
400 m hlaup kvenna: sek.
1. Helga Halldórsdóttir, KR 60.0
2. Hrönn Guðmundsd., UBK 62.4
3. Guðrún Karlsdóttir, UBK 66.0
Kúluvarp pilta: m
1. Kristján Guðbjörnsson, UBK 12.36
2. Sigurjón Valmundsson, UBK 9.71
3. Arnþór Sigurðsson, UBK 8.73
Kúluvarp karla: m
Pétur Pétursson, UÍA 15.72
Spjótkast kvenna: m
1. íris Grönfeldt, UMSB 41.66
2. Bryndis Hólm, ÍR 34.32
3. Thelma Björnsd., UBK, 31.60
Spjótkast pilta: m
1. Sigurjón Valmundss., UBK, 34.18
2. Kristján Guðbjörnsson, UBK.24.16
3. ArnþórSigurðsson, UBK, 18.94
800 m hlaup karla: mín.
1. Magnús Haraldsson, FH 2:05.5
2. Óskar Guðmundsson, FH 2:07.2
3. Sigurður Haraldsson, FH 2:17.4
Hástökk karla: m
1. Stefán Friðleifsson, UÍA 1.90
2. Stefán Þ. Stefánsson, ÍR, 1.90
3. Karl West Frederiksen, UBK 1.90
4. Hafsteinn Jóhannesson, UBK 1.90
Langstökk kvenna: m
1. Helga Halldórsdóttir, KR 5.21
2. Bryndís Hólm, ÍR, 5.04
3. Kristbjörg Helgadóttir, Árm. 4.82
Langstökk karla: m.
1. Kristján Harðarson, HSH, 6.55
2. Stefán Þ. Stefánsson, ÍR 6.38
3. Hreinn Jónasson, UBK, 6.20
Fyrir tveimur árum gaf Skúli
Lórenzson brunavörður, félagínu
verðlaunagripi i þessu skyni en þar sem
skautaíþróttin hefur á undanförnum
árum verið i mikilli lægð af ýmsum or-
sökum, hefur þetta val ekki getað farið
fram fyrr. ÓvenjumikjOJif *pf"'hjú
skeutamönnum á siðasftjðnUhj vetrl'qt
er útlit fyrir að gróska sé að koma 1
skautaíþróttina aftur og er það vel.
íshokkimaður ársins var útnefndur
ðjhru^ Stefánsson, markvörður liðsins,
en hann tók geyailegum framförum á
síðastliðnum vetri og átti drjúgan þátt i
sigri SA á fyrsta Islandsmótinu i ís-
hokkí, sem haldið var á Akureyri.
Hraðhlaupsmaður ársins var út-
nefndur Ágúst Ásgrímsson, 14 ára
piltur sem skaut mörgum hinna full-
orðnu aftur fyrir sig á hlaupabrautinni.
Verðlaunahafar SA í ár, þeir Ómar
Stefánsson (t.v.) og Ágúst Ásgrimsson.
Framarar!
Laugardaginn 24. mai kl. 12.45
munu stuðningsmenn Fram koma
saman í félagsheimilinu við Safamýri
og stofna formlega stuðningsmanna-
klúbb, „Framherjar Fram”.
TV0 GLÆSIMORK SIGURÐAR
— þegar íslenzka unglingalandsliðið sigraði það norska 2-1 í Laugardal í gær
„Þetta var ánægjulegur sigur hjá
okkur og ég er vissulega ánægður með
mörkin, sem ég skoraði,” sagði
Sigurður Halldórsson, maður leiksins,
er íslendingar sigruðu Norðmenn 2—I
í landsleik leikmanna 21 árs og yngri.
Sigur fslands var í alla staði sanngjarn
þó svo að norska liðið hafi leikið mun
betur úti á vellinum. íslenzka liðið
skapaði sér mun hættulegri færi en það
norska og aðeins fáránleg dómgæzla
kom í veg fyrir fleiri mörk. í raun var
dómgæzlan í þessum leik alveg kapítuli
út af fyrir sig. Óli Ólsen stóð sig með
fádæmum illa og Þorvarður Björnsson
á línunni var í öðrum heimi allan tím-
ann. Vilhjálmur Þór komst hins vegar
frá leiknum á sómasamlegan hátt.
nlji
Leikurinn var n)jög rólegur framan
af og það var ekki fyrr en á 10. mín. að
færi skapaðist og þá var algert dauða-
færi sem Pétur Pétursson fékk. Boltinn
barst hins vegar svo óvænt til hans að
hann átti erfitt með að athafna sig
Norski markvörðurinn, Andersen
varði í horn. Á sömu minútu komst
Ómar Jóhannsson i dauðafæri en skot
KR-ingar kræktu í
Hilmar Bjömsson
„Jú, það er afráðið að ég verð með
KR-ingana næsta vetur,” sagði Hilrnar
Björnsson er DB náði tali af honum
nokkrum mínútum áður en hann hélt
til Flórída með Valsmönnum í gærdag.
Það verður því um eins konar kveðju-
ferð að ræða hjá Hilmari, sem hefur
náð frábærum árangri með Valsmenn á
siðustu árum.
Geysilegur hugur er nú í KR-ingum,
sem fengu nasasjón af frægðinni í vetur
er þeir komust i úrslit bikarkeppninnar.
Hins vegar varð gengi þeirra i deildinni
slakt þegar á heidina er litið þvi liðið
Uilmar Björnsson þjálfar KR næsta
vetur.
fékk aðeins 3 stig úr siðustu 8 leikjum
sínurn eftir að hafa nælt sér i 8 stig úr
fyrstu sex leikjunum.
Hilmar mun hefjast handa strax og
hann kemur aftur frá Bandaríkjunum
en meistaraflokkslið Vals mun dvelja
þar um þriggja vikna skeið og slappa
hressilega af eftir erfiðan og viðburða-
ríkan vetur.
Börkur í eins
leiks bann
Börkúr IngVarsson .í KR.ar á þriðju-
dag dæmdur i eins leiks bann ÚT' bga-
nefnd KSÍ þar sem hann hafði farið
yfir 10 stiga mörkin. Margir leikmenn
eru komnir á yztu nöf og þurfa ekki
nema eitt gult spjald til að fá leikbann.
Sem stendur er Sigurlás Þorleifsson i
tveggja leikja banni og hefur fjarvera
hap|, veikt framlinu Eyjamanna veru-
lega. Dómarar nuir^u í sumar taka mun
harðar á grófum brotum og þá einkum
,ojg sér í lagi tæklingum aftan frá sem
éru hreinasta eitur i þeirra beinum.
Framstúikur
með basar
ogflóamarkað
Meistaraflokksdömurnar i Fram
gangast í dag fyrir kökubasar
einum heljarmiklum og flóamarkaði i
Bernhöftstorfunni og hófst hann kl. 10
i morgun. Þetta er liður í fjáröflun
stúlknanna vegna keppnisferðar sem
þær fara i þann 5. júni er þær halda til
Valencia til þátttöku i móti þar. Ættu
handknattleiksunnendur að fjölmenna
niður í miðbæ i dag og styrkja
stúlkurnar þvi það er ekki oft að
kvennaliðum gefst kostur á að keppa
erlendis.
hans fór rétt fyrir. Tíðindalítið var
síðan fram að 30. mínútu er Pétur
Pétursson fékk snilldarsendingu í gegn-
um norsku vörnina frá Guðmundi
Steinssyni. Honum var klossbrugðið
innan vítateigs en Óli Ólsen hafði ekki
kjark til að dæma vítaspyrnu og færði
brotið útfyrir. Þremur mínútum síðar
komst Guðmundur Steinsson í gegnum
vörnina en var illa brugðið utan víta-
teigs. Úr aukaspyrnunni sem dæmd var
átti Pétur hörkuskot sem Andersen
varði snilldarlega.
Andersen kom síðan aftur við sögu á
34. mín. en tókst ekki að komast hjá
marki þrátt fyrir glæsileg tilþrif. Hann
sýndi einstök viðbrögð er hann varði
skot Guðmundar Steinssonar af mark-
teig. Boltinn barst til Sigurðar Hall-
dórssonar, sem kastaði sér fram og
skallaði í netið, 1—0.
Forystan stóð hins vegar ekki nema í
4 min. Þá reyndi Erlandsen skot af 25
metra færi. Bjarni Sigurðsson virtist
hafa knöttinn í höndum sér en missti
hann framhjá sér og í netið. Nokkuð
slysalegt mark en skotið var firnafast.
Siðari hálfleikurinn var á þriðju mín-
útu er Sigurður Halldórsson skallaði
knöttinn glæsilega í netið eftir vel tekna
homspyrnu Ómars Jóhannssonar. Var
einkar glæsilega staðið að þessu marki
hjá Sigurði.
Á 55. mínútu komst Erlandson í
dauðafæri eftir mistök Bjarna í mark-
inu, sem var mjög óöruggur. Bjarni sá
þó við honum á endanum enda skotið
iaust. Skömmu síðar fór Pétur Péturs-
son út af meiddur og við það hvarf öll
ógnun úr leik íslenzka liðsins. Ósjálf-
rátt drógu leikmenn sig aftar og gáfu
Norðmönnum miðjuna. Síðusfu 20
mínúturnar var nær stöðug norsk
pressa á markið án þess aðumeitt ein-
asta færi væri að ræða. Sigurinn komst
aldrei í hættu en ekki munaði nema
hársbreidd, að Pálmi Jónsson, sem
kom í stað Ómars Jóhannssonar, bætti
þriðja markinu við á 69. mínútu er
hann komst í gegn, greinilega kolrang-
stæður. Skotinu var hins vegar bjargað
i horn.
Sigurður Halldórsson var bezti
maður íslenzka liðsins. Geysilega yfir-
vegaður varnarmaður og stórhættu-
legur þegar hann fór fram í sóknina.
Með slíkri frammistöðu hlýtur hann að
koma sterklga til álita í landsliðið.
Pétur Pétursson var einnig mjög góður
á meðan hans naut við og vinnsla hans
hefur aukizt gífurlega frá því sem var á
meðan hann lék hér heima. Stöðugur
ógnvaldur. Ágúst Hauksson var sterk-
ur i bakvarðarstöðunni og Kristján Ol-
geirsson var góður á miðjunni. Bjarni
olli miklum vonbrigðum í markinu.
Var hikandi og óákveðinn og ólíkur
sjálfum sér. Áhorfendur voru 5018 og
hafa vart verið fleiri í annan tima á
unglingalandsleik.
- SSv.
Stuðfundur
hjá Val
Stuðningsmenn Vals (Stuðarar)
halda baráttufund i Valsheimilinu fyrir
leik Vals og Breiðabliks næsta þriðju-
dag 27/5 kl. 6.30. Sagt verður frá fyrir-
hugaðri starfsemi Stuðmanna í sumar.
Rútuferð á leikinn á eftir.
. ; -
Þessi mynd er úr leik Þróttar og iBK.
DB-mynd SSv.
Sigurður tryggði Kefl-
víkingum bæði stigin
skoraöi eina markið \ sigrinum yf ir Þrótti
Islandsmótið i yngri flokkunum
hófst í vikunni með pompi en varla
pragt þvi af 13 leikjum sem voru á
dagskrá fóru 6 ails ekki fram.
íslandsmeistarar Vals i 4. flokki áttu
að hafja titilvörnina á þriðjudag á
heimavelli sínum við Hliðarenda
gegn ÍR. Ekkert varð af leiknum
vegna einhvers misskllnings en þama
hefði tvimælalaust orðið hörkuviður-
eign. ÍR-liðið er skipað þeim leik-
mönnum sem voru i sigurliði félags-
ins í 5. flokki i fyra og eru þar margir
stórgóðir lelkmenn. Þá varð einhver
misskilningur i leik Leiknis og ÍK og
sá lelkur var dæmdur ÍK tapaður.
Leik Stjörnunnar og Gróttu var
frestað þar sem Grótta hafði ekki í lið
einhverra hluta vegna en ekki höfum
við hér upplýsingar um hvenær leikið
verður. Þá var leikjum ÍBÍ og Þórs,
Vestmannaeyjum, og Skallagríms og
Þórs, Þorlákshöfn, frestað og verða
þeir leiknir síðar. Katla frá Vík í Mýr-
dal mætti ekki til leiks gegn Reyni á
Hellissandi og telst leikurinn því'
unninn fyrir Reyni. Tvö ódýr stig
þar. En snúum okkur að þeim leikj-
um, sem fóru fram.
Undirritaður brá sér á leik Þróttar
og Keflavíkur í B-riðli 4. flokks en
varð fyrir nokkrum vonbrigðum.
Leikurinn var slakur — mest miðju-
þóf — og greinilegt var að leikmenn
beggja liða voru þrúgaðir af tauga-
spennu. Það er algengur kvilli í fyrsta
leik í íslandsmóti. Keflvíkingum
tókst að krækja í bæði stigin,
nokkuð sanngjarnt, með marki
Sigurður Ingimundarsonar um
miðjan síðari hálfleikinn. „Þetta var
slakur leikur af okkar hálfu, við
getum leikið miklu betur en við
gerðum i þessum leik,” sagði
Ástráður Guðmundsson, þjálfari
Keflvíkinganna.
Fjórir leikir fóru fram í A-riðlin-
um. KR-ingar tóku Víking í karp-
húsið svo um munaði og sigruðu 5—
0. Víkingur varð í 2. sæti í 4. flokki i
fyrra svo úrslitin koma nokkuð á
óvart. Má þó vera að megnið af leik-
mönnunum hafi gengið upp í 3.
flokkinn.
í Kópavogi var mjög fjörugur
leikur á milli Blikanna og Fram. Blik-
arnir sigruðu 3—2 í mjög spennandi
leik. Á Akranesi sigruðu heimamenn
ÍFylki 2—0 en Akurnesingar voru
með eitt skemmtilegasta liðið í 5.
flokki í fyrra.
í B-riðlinum var einn leikur á
þriðjudag. Selfoss sigraði þá Grinda-
vik 5—2. FH vann svo Ármann á
miðvikudag 5—3 á Ármannsvellinum
en hinir tveir leikirnir í riðlinum voru
ekki leiknir af framangreindum
ástæðum.
í C-riðlinum var aðeins einn leikur
leikinn. Afturelding sigraði Reyni
Sandgerði 4—2.
Það er slæmt til þess að vita að i
tveimur tilvikum af 6 skuli misskiln-
ingur hafa komið í veg fyrir að leik-
irnir færu fram. 1 mótabók KSÍ segir
að allir þessir leikir skuli hefjast kl.
20. Að sögn Leiknismanna 'voru þeir
búnir að fá breytingu á sínum leik-
tíma og vildu leika kl. 19. Það virtust
ÍK-ingar ekki vita um. Sama var uppi
á teningnum hjá Val því ÍR-ingar
mættu út á völl kl. 20 eins og tekið
var fram í mótabókinni en Valsmenn
munu hafa fengið leikinn færðan til
|kl. 19. Verður fróðlegt að sjá niður-
stöðuna úr þessu en óneitanlega er
iþað leiðinlegt að hafa tvö stig af IR
og ÍK á þennan hátt.
- SSv.