Dagblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 28
„Kommabylting” í
Skáksambandinu?
— búizt við f ramboði varaforsetans gegn forsetanum
„Það hefur verið talað um þetta
við mig en ég hef enga ákvörðun um
það tekið,” sagði dr. Ingimar Jóns-
son, varaforseti Skáksambandsins, er
Dagblaðið spurði hann, hvort hann
hygðist gefa kost á sér sem forseti
Skáksambandsins á aðalfundi Skák-
sambands íslands sem haldinn verður
31. maí nk.
„Samstarfið innan Skáksambands-
ins hefur ekki verið gott í vetur eða
undanfarin ár og menn hafa lagt á
ráðin um að gera eitthvað í þessu,”
sagði dr. Ingimar.
Því hefur verið haldið fram við
Dagblaðið, að alþýðubandalagsmenn
innan Skáksambandsins hygðu nú á
„sósíalska byltingu” innan þess og
að sex af ellefu mönnum í stjórn og
varastjórn Skáksambandsins væru
alþýðubandalagsmenn, þ.e. Ingimar
Jónsson, Þorsteinn Marelsson, Helgi
Sámúelsson, Stefán Þormar, Guð-
bjartur Guðmundsson og Ólafur H.
Ólafsson.
Um slík byltingaráform sagði dr.
Ingimar, að þau væru „tómt kjaft-
æði”. „Það hefur verið rætt um
þetta og margir vilja fá nýjan forseta.
Meira er það ekki,” sagði dr. Ingi-
mar.
Dagblaðið hafði einnig samband
við Einar S. Einarsson forseta Skák-
sambandsins í morgun. Hann vildi
ekki mikið tjá sig um málið. „Það er
alltaf skemmtilegra að fá mótherja
svo ekki iíti út eins og menn séu
kosnir út úr neyð,” sagði Einar og
bætti því við, að það væri fyrir
nokkru afráðið að hann gæfi kost á
sér á nýjan leik. Um slæmt samstarf
innan stjórnar Skáksambandsins
sagði Einar, að ævinlega væri fyrir
hendi óánægður minnihluti í öllum
stjórnum. f þessu tilfelli væri það
fyrst og fremst dr. Ingimar.
-GAJ
KOMMÚNISTASAMTÖK STOFNUÐ
Kjarnorkumálið:
„Við höfum
annað
að gera”
— segja talsmenn
hersins
„Það koma alltaf annað slagið
fullyrðingar i íslenzkum fjölmiðlum um
kjarnorkuvopn á Keflavikurflugvelli.
Við höfum annað að gera en að blanda
okkur í þær umræður,” sagði Mik
Magnússon blaðafulltrúi bandaríska
hersins við Dagblaðið.
„Við höfum engin kjarnorkuvopn
núna enda engin ástæða til þess. En
auðvitað erum við búnir til að taka við
kjarnorkuvopnum þegar þurfa þykir.
Þannig er það með allar herstöðvar
hvar sem er í heiminum. Það er barna-
skapur að horfa fram hjá þvi,” sagði
Bandaríkjamaður sem ekki vildi láta
nafns síns getið. Hann hringdi á rit-
stjórnina ígær.
Kjarnorkuvopnamálið kom til
umræðu utan dagskrár á Alþingi i gær.
Eiður Guðnason (AF) sagði það
„árvissan atburð hjá íslenzkum
kommúnistum að þyrla upp moldviðri
og halda því fram að hér væru
kjarnorkuvopn.” Hann dró í efa að
hlutleyM'-reglur Útvarps hefðu verið
virtar til fulls með umfjöllun málsins i
Víðsjá. Eyjólfur Konráð Jónsson (S)
og Ólafur Jóhannesson utanríkis-
ráðherra töldu að ísland væri
kjarnorkuvopnalaust land. Ólafur
Ragnar Grimsson (AB) sagði það
skyldu þings og þjóðar að kanna hvað
hæft væri í tilgátum manna um
kjarnorkuvopn hér og sagði þetta vera
mál sem „ekki mætti kenna við her-
ferðir, moldviðri eða kommúnista.”
-ARH.
Pólitíska litrófið á vinstri kantinum
hefur einfaldazt talsvert með því að
félagar í Einingarsamtökum
kommúnista og Kommúnistaflokki
fslands leystu upp bæði samtökin á
sátneiginlegum fundi í fyrrakvöld og
stofnuðu ein samtök í staðinn. Kallast
þau Kommúnistasamtökin. Ari Trausti
Guðmundsson menntaskólakennari var
kosinn formaður, en varaformaður
Gunnar Andrésson rafvirki. Málgagn
Kommúnistasamtakanna verður
Verkalýðsblaðið, sem Einingar-
samtökin gáfu áður út. Einingar-
samtökin voru stofnuð 1975 og
Kommúnistaflokkurinn 1976. Báðir
hópar voru gjarnan kenndir við
maóisma og elduðu grátt silfur saman
framan af. Nú hefur ófriðaröldur lægt
og félagar þeirra gengið í eina sæng
saman. ARH.
Hinn heimsf rægi Rudolf Serkin kom í gær
Hinn heimsfrægi píanósnillingur
Rudolf Serkin kom til landsins í gær
ásamt fleira listafólki frá Bandarikjun-
um. Rudolf Serkin kemur hingað á veg-
um Tónlistarfélagsins í tilefni 50ára af-.
mælis Tónlistarskólans.
Náið samband hefur verið milli Serk-
ins og íslands og hefur hann oft komið
hingað til tónleikahalds. Hann mun
halda tónleika í dag í Þjóðleikhúsinu'
kl. 3 en í Háskólabíói á þriðjudags-
kvöld, en þá koma auk hans fleiri er-
lendir listamenn.
Hagnaður af tónleikum þessum
mun verða notaður til að stofna sjóð til
styrktar ungu, efnilegu tónlistarfólki til
framhaldsnáms erlendis.
Aðgöngumiðasala er hafin. Örfáir
miðar eru eftir á einleikstónleika
Serkins, og enn eru til miðar i Háskóla-
bíói á kammertónleikana. -EVI.
STÚDENTSVEELAISTAÐ FUNDARHALDA
— hjá Guðlaugi
Þorvaldssyni
„Það er anzi hart að lenda í þessum
veikindum núna þar sem ég hef varla
verið veikur síðan ég var níu ára,”
sagði Guðlaugur Þorvaldsson forseta-
frambjóðandi við blaðamann DB í
fyrradag, en þá hóf Guðlaugur kosn-
ingabaráttuna á nýjan leik eftir að hafa
lagzt tvívegis í víruspest að undan-
fömu. Sagðist Guðlaugur raunverulega
hafa misst eina og hálfa viku úr kosn-
ingabaráttunni af þessum sökum.
í hádeginu í fyrradag fór Guðlaugur
í dvalarheimili aldraðra við Lönguhlíð.
Röbbuðu þau hjón Guðlaugur og
Kristín við gamla fólkið og Guðlaugur
las ljóðið Vor eftir Guðmund Böðvars-
son fyrir gamla fólk’ið en flutti enga
kosningaræðu.
Þorvaldur Óttar, sonur þeirra Guð-
laugs og Kristínar var útskrifaður stúd-
ent úr Menntaskólanum við Hamrahlið
í fyrradag, þannig að ekki varð um
frekari fundarhöld að ræða þann dag-
inn en í fyrrakvöld hélt Guðlaugur
norður í land þar sem hann verður með
kosningafundi um helgina.
- GAJ
Guðlaugur og Kristin ásamt syninum og nýstúdentinum Þorvaldi Óttari. Hann sagðist I samtali við DB óráðinn i hvaða
námsgrein yrði fyrir valinu nú að loknu stúdentsprófi en meðan hann hugsaði málið ætlaði hann á fjögurra mánaða lýðhá-
skóla I Holbæk I Danmörku. DB-mynd Þorri.
Pylsuvagnar anrtarrolandamtéga nú vara sig:
Pylsuvagninn í
kvartmflukeppni
— metið væntanlega skráð íheimsmetabók
Guinnes
Islendingar eiga nokkur met í
heimsmetabók Guinnes svo sem vitað
er. Hins vegar gæti farið svo að eitt
metið enn verði skráð i þá
mikilsmetnu bók eftir daginn í dag.
Þau Auður Elísabet Guðmundsdóttir
og Hermann Gunnarsson ætla i dag,
að setja heimsmet i kvartmiluakstri
pylsuvagna. Ekki hefur áður verið
keppt í þeim flokki el tir þvi sem bezt
er vitað.
Á myndinni leiðbeinir Hálfdán
Jónsson, formaður Kvart-
míluklúbbsins þeim skötuhjúum við
að stilla 4,5 hestafla pysluvagna-
mótorinn. Síðan er ætlunin að skora
á pylsuvagninn á Ráðhústorginu i
.Kaupmannahöfn í kappakstur og
keppa heima og heiman. Eftir það
verður væntanlega skorað á helztu
pylsuvagna heims og áður en langt
um liður eigum við kannski orðið
nokkuð mörg met í heimsmeta-
bókinni. . .
-ELA/DB-mynd: RagnarTh.
Srjálst, óháð dagblað
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1980.
Philidor-skákmótið:
Jón vann
biðskákina
Jóni L. Árnasyni tókst um síðir að
knýja fram sigur í skák sinni við
Bandaríkjamanninn Blocker. Skákin
hafði tvívegis farið í bið og varð rúmir
80 leikir áður en yfir lauk.
í 11. umferð gerði Jón jafntefli við
skákmann frá Sri Lanka. Jón og
Kudr'tn eru nú efstir og jafnir með 8
vinninga. Jón hefur teflt 10 skákir en
Kudrin hefur teflt 11 skákir. Hættuleg-
asti keppinautur Jóns á mótinu er
sennilega rússnesk-bandaríski skák-
maðurinn Zlotnikov. Hann hefur
hlotið 7,5 vinninga úr 9 skákum.
Um hvitasunnuhelgina verður gert
hlé á Philidorskákmótinu og þá tekur
Jón þátt í sterku, opnu skákmóti. Þar
verða tefldar 6 umferðir eftir Monrad-
kerfi, tvær umferðir ádag. -GAJ.
„Frábært mót”
— segir norski skákmað-
urinn Helmersígrein
sem hann hef ur ritað
um Reykjavíkurmótið
„Mótið var frábært á allan hátt.”
Þannig kemst norski skákmaðurinn
Knut J. Helmers meðal annars að orði i
grein um Reykjavíkurskákmótið, hið
níunda í röðinni, sem haldið var í
febrúar og marz síðastliðnum. Grein
Helmers birtist i „Norsk Sjakkblað”
fyrir skömmu.
Eins og menn muna varð Helmers
að hætta þátttöku i mótinu eftir
nokkrar umferðir vegna veikinda.
„Allt var fullkomið, nema heilsa mín,”
segir Helmers í greininni. „Mótið var
mjög skipulagt fyrir þátttakendurna og
mótsstjórnin gerði allt sem í hennar
valdi stóð og það var hreint ekki svo
lítið.” í greininni gerir Helmers að
umtalsefni hin nýju tímamörk, sem
teflt var eftir, hið svokallaða
„Icelandic Modern” kerfi. Lætur
Helmers þá skoðun í ljós, að þessi
tímamörk séu það sem koma skal,
„lausn framtíðarinnar”.
-GAJ.
Hvftasunnan:
Móttaka smá-
auglýsinga
Dagblaðið i dag er siðasta blað fyrir
hvítasunnu. Næsta blað kemur út á
þriðjudaginn. Móttaka smáauglýsinga
er lokuð i dag, laugardag, og á morg-
un, sunnudag, en móttaka smáauglýs-
inga hefst aftur annan hvitasunnudag
kl. 18 og er opin til kl. 22.
LUKKUDAGAR:
23. MAÍ: 20326
Sjónvarpsspil
Vinningshafar hringi
ísíma 33622.