Dagblaðið - 29.05.1980, Qupperneq 1
fríálst,
úháð
Hanhlað
RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLVSINGAR OG AFGREIÐSLA bVERHOLTI ll.-AÐALSÍMI 27022.
OUUSORANUM UR KYNDU
—að beiðni Siglingamálastofnunar ríkisins—svartolía líka í sjóinn«bræðslunni á Neskaupstað
„Það hefur ekki borizt nein kaera
frá Neskaupstað vegna olíumengunar
i sjó, en vegna fréttar DB um
olíumengun og sora í kjölfar KyndiLs
hafði ég samband við borgardóm og
málið veröur rannsakað,” sagði Páll
Ragnarsson aðstoðarsiglingamála-
stjóri i morgun. „Kyndill kemur til
Reykjavíkur í dag, en vegna anna i
borgardómi dregst málið að öllum
iikindum þar til I næsta túr.”
„Sjómenn hafa rætt þessa
olíumengun hér,” sagði Sigurjón
Jónsson lögreglumaður á Nes-
kaupstað í morgun, ,,en engin kæra
hefur borizt. Ég var á sjó í fyrra og
varð þá oft var við mikla
oliumengun, en ástæðu hennar veit
ég ekki. Þess má og geta að óhapp
varð hér í bræðslunni fyrir nokkrum
dögum og misstu þeir nokkuö af
svartoliu i sjóinn. Sjómenn eru þó
vissir á því að það sé ekki orsök
mengunarinnar út af Dalatanga, þvi
þar sé ekki um svartolíu að ræða.”
„Ég ræddi við áhöfnina á Kyndlí í
gær og vildu þeir ekki kannast við
þetta og eru óhressir með að
eingöngu sé bent á þá í þessu máli,”
sagði Magnus Gunnarsson hjá útgerð
Kyndils í morgun, Gunnari Guðjóns-
syni sf. skipamiðlurum. Siglinga-
málastofnun mun hms vegar
rannsaka málið, þannig að bezt er að
geyma öll svör. Við höfum hins vegar
heyn að ástæðurnar séu aðrar en frá
Kyndli og það gelið þið á DB
kannað.”
-JH,
Í
5
t
\
í
i
i
\
i
i
i
i
i
i
Mikill reykur í fjölbýlishúsi:
KVIKNAÐI í ÞEYTIVINDU
Mikinn reyk lagði um ganga i fjöl-
býlishúsi við Hjaltabakka i Reykjavík
er kviknaði þar í þeytivindu í gfcr-
kvöld. Slökkviliðið fór þegar á staðinn
og hafði litið fyrir þvi að slökkva i
vindunni og þvottinum sem verið var
að þurrka. Vindan er ónýt.
-ÁT
6. ÁRG. - FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1980. - 119. TBL.
og fór vel, eins og sjá má á ánægjusvipnum.
DB-mynd: Ragnar Th.
Það stóð stutt —
Gúanórokkarinn Bubbi
Morthens:
Athyglis-
verðasti
popparinn
umþessar
mundir
Bubbi Morthens er sú poppstjarna
hérlend sem vekur hvað mesta athygli
þessa dagana. Gúanórokk i blússtil
kallar hann tónlist sina, — yrkisefnin
sækir hann í frystihúsin og fiskvinnsl-
una þar sem hann virðist býsna hag-
vanur. Enda starfaði Bubbi sem far-
andverkamaður áður en hann sneri sér
að rokkinu.
Bubbi og hljómsveit hans, Utan-
garðsmenn, skemmtu á tónlistarkvöldi
Samtaka alþýðutónlistarmanna og
-tónskáldaí gærkvöld og vöktu verð-
skuldaða athygli. Tónlist þeirra var
eins hrátt rokk og það frekast getur
orðið og fiskverkunartextarnir féllu í
góðan jarðveg áheyrenda. — Hljóm-
sveitin Hljómar átti einnig að skemmta
á tónleikum þessum. Ekki varð af því í
þetta skiptið, þar eð einn Hljómanna
átti ekki heimangengt.
-ÁT/DB-mynd: RagnarTh. Sig.
HAFNFIRZKIR SÓLDÝRKENDUR voru ekki seinir á sér frekar en aðrir i þeim
landshluta þegar lygndi og hiýnaði eftir helgina. Á Norður- og Austurlandi var fremur
kalt i gær — og jafnvel hraglandi eins og á Eskifirði og Akureyri, þar sem Hliðar-
fjallið gránaði. Lögreglumenn viðs vegar um landið sem DB ræddi við, létu i morgun
allir vel af veðri. Á Akureyri og Húsavik var glampandi sólskin, en ekki sérlega hlýtt.
Léttfættir Kópavogsbúar á leið á tveim jafnfljótum i vinnu I Reykjavik urðu jafnvel
varir við skæni á pollum. Þessi pör nutu sólar i hafnfirzkum hraunboila þegar DB áttu
leiðþarum. DB-mynd: Ragnar Th.
Holland:
5000eiturtunnur
fundustíjörðu
undirþorpinu
Guatemala:
Ennmorðáverka-
mannaforingjum
íKók-fyrirtæki
—sjá erl. fréttir
ábls.6og7
„Dragnótin ekki mjög skaðlegt veiðarfæri”
(Nær því hver einasti ibúi í Garði mun hafa ritað undir þau mótmæli við auknum dragnótaveiðum i
Faxaflóa J sumar, sem sagt var frá í DB i gær. t dag er rætt við Aðaistein Sigurðsson fiskifræðing,
sem telur dragnótaveiðar nú á tímum ekki sambærilegar við veiðar áöur fyrr. _
..........1
A