Dagblaðið - 29.05.1980, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 29.05.1980, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1980. Er ekki óþarf i að styrkja sterkefn- aða bændur? Sveinn Sveinsson skrifar: Oft hefur maður heyrt getið um hrossakaup. Sitthvað var brallað í svoleiðis viðskiptum. Ófyrirleitnir viðskiptamenn áttu til að beita brögðum. Sagt var að sumir hefðu gefið gömlum klárum brennivín til að fjörga svipinn, jafnvel var talið að logandi lótorfu hefði stundum verið brugðið undir taglið. Fóru þá gripirnir að ókyrrast sem vonlegt var og héldu menn þá að fjör skepnunnar væri svona mikið. Það hefur margur látið snúa á sig í þessum viðskiptum. Leitt er til þess að vita að stjórnmála- menn okkar tíma skuli vera bendlað- ir við hrossakaup. Ekki mun fyrr- nefndum brögðum vera beitt, en orðið hrossakaup heldur áfram í málinu og er þá venjulega átt við samkomulag um heldur óhrjálegar aðferðir til að koma vafasömum málum fram. Þegar stjórnmálamenn koma sér saman um milljarða útlát til bænda frá þjóðarbúinu mun ekki réttlætið ráða bara. Gaman væri ef einhver talnafróður maður tæki sig til og tæki saman hve mikið kæmi í hlut hvers bónda ef þessu væri skipt ná kvæmlega jafnt á hvern skráðan bónda. Ég veit mörg dæmi þess að smærri bændur verða að fara frá heimilum sínum í atvinnuleit til að geta séð fyrir heimilum sínum. Ekki virðast milljarðarnir vera í þeirra vasa. Með virðingu fyrir öllum, sem bera hag og heill þjóðar vorrar fyrir brjósti vil ég hnýta þessu aftan í: í fyrra fengu bændur 30 milljarða og heimtuðu meira. Er ekki óþarfi að styrkja sterkefnaða bændur. Komast þeir ekki af án styrkja? Ég veit að fjöldi bænda býr við svo þröngan kost að þeir neyðast til að vinna utan heimilis um lengri eða skemmri tíma. Hvert fara milljarðarnir? spyr sá er hvorki veit né skilur. . „Það eru vissulega ánægjuleg tiðindi ef það verður fastur liður að flugvélar Flug- leiða haldi sig við áætlun sina hér eftir,” segir Hjördis Þorsteinsdóttir m.a. i bréfl slnu. Bravó fyrir stund vfsi Flugleiða! Það er vissulega ánægjulegt til þess að vita að Flugleiðir hafi nú loksins tekið upp nýja siði, þ.e. að setja stundvísi ofar öllu. Kl. 9 um morguninn á annan í hvítasunnu stóð 13 ára unglingsstúlka í afgreiðslu Flugleiða á Reykjavíkurflugvelli. Telpan ætlaði með áætlunarflugi norður í land. Afgreiðslufólk Flugleiða lét sig nú ekki aldeilis muna um að greiða götu viðskiptavinarins og því fór flugvélin á réttum tíma þótt telpan stæði 50 metra frá henni. Hún hafði tafizt af „óviðráðanlegum orsökum” eins og það heitir á Flugleiðamáli. Ekki var örtröð eða annir hjá starfsfólkinu í afgreiðslunni þennan morgun, því engir aðrir viðskipavinir voru þar innandyra. En það eru vissulega mjög ánægjuleg tíðindi ef þetta verður fastur liður að flugvélar Flugleiða haldi sig við áætlun sína hér eftir svo ekki skeiki sekúndubroti. Þrælsótti íslendinga, sem neyðast til að fljúga með Flugleiðum, hefur verið til umræðu í sjónvarpi og dagblöðum nú nýlega og þarf því ekki að tíunda hann hér og nú. Einokunarverzlun Dana hefur verið skráð á spjöld íslandssögunnar og svo mun einnig örugglega verða með einokunarverzlun Flugleiða. Mun sú saga verða félaginu og starfs- fólki þess til ævarandi skammar á meðan frjáls verzlun er leyfð i okkar lýðræðisríki. P.S. í spjalli við Hjördisi kom fram að telpan hafi verið mætt út á flug- völl hálfa mínútu yfir níu. Hafi hreyflar vélarinnar enn verið óræstir er þær mættu á afgreiðsluna. Hefði því varla sakað að aðstoða telpuna við að komast um borð i vélina. Hjördís Þorsteinsdóttir, Máyahrauni 9, Hafnarfiröi. .3 Tr---------------- Spurning Fórstu eitthvað um hvítasunnuna? Guðlaug Jóhannesdóttir afgreiðslu- mær: Ég var bara heima, vann í garðin- um, þreif og lagaði til. Halla Sigurðardóttir húsmóðir: Ekki neitt. Var bara heima, slappaði af og hafði það gott. Páll Kristjánsson bllstjóri: Bara heima.Ég fór jú á hestbak og stundaði útiveru. Höfum fyrirliggjandi hina viðurkenndu LYDEX hljóðkúta í eftirtaldar bifreiðar: 0 D D D D D Austin Allegro 1100-1300 ..................... Austin Mini................................... Audi 100s-LS.................................. Bedford vörubila ............................. BroncoO og 8 cyl.............................. Chevrolet f ólksbíla og jeppa................. Chryslor f ranskan............................ Citroen GS.................................... Citroen CX.................................... Daihatsu Charmant 1977—1979................... Datsun disil 100A-120A-120-1200-1600-140-180 . Dodge fólksbila............................... D.K.W. fólksbíla.............................. Rat 1100-1500-124-125-126-127-128-131-132 .. Ford, ameriska f ólksbila..................... Ford Consul Cortina 1300—1600................. Ford Escort og Fiesta......................... Ford Taunus 12M-15M-17M-20M................... Hillman og Commer fólksb. og sendib........... Honda Civic 1500 og Accord.................... Austin Gipsy jeppa............................ Intemational Scout jeppv...................... Rússajeppa GAZ 69............................. Willys jeppa og Wagoneer...................... Jeepster V6................................... Lada.......................................... Landrover bensin og disil..................... Lancer 1200-1400.............................. Mazda 1300-616-818-929 ....................... Morcedes Benz fólksbila 180—190—200—220—250—280 Mercedes Benz vörub. og sendib................ Moskvhch 403-408-412 ......................... . . . hljóökútar og púströr. . . . hljóókútar og púströr. . . . hljóökútar og púströr. . . . hljóökútar og púströr. ... hljóðkútar og púströr. ... hljóðkútar og púströr. ,.. hljóðkútar og púströr. . . . hljóðkútar og púströr. ..............hljóðkútar. hljóðkútar fram og aftan. .. . hljóðkútar og púströr. .. . hljóðkútar og púströr. . .. hljóðkútar og púströr. ... hljóðkútar og púströr. ... hljóðkútar og púströr. ... hljóökútar og púströr. ... hljóðkútar og púströr. ... hljóðkútar og púströr. ... hljóðkútar og púströr. .............hljóðkútar. . . . hljóðkútar og púströr. .., hljóðkútar og púströr. . .. hljóðkútar og púströr. . . . hljóðkútar og púströr. ... hijóðkútar og púströr. ... hljóðkútar og púströr. ... hljóðkútar og púströr. ... hljóðkútar og púströr. ... hljóðkútar og púströr ,.. hljóðkútar og púströr. ,.. hljóðkútar og púströr. ,.. hljóðkútar og púströr. Morris Marina 1,3 og 1,8.................................hljóðkútar og púströr. Opel Rekord, Caravan, Kadett og Kapitan..................hljóðkútar og púströr. Passat 1/4 p......................................................hljóðkútar. Peugeot 204—404—504....................................hljóðkútar og púströr. Rambler Amorican og Classic............................hljóðkútar og púströr. Range Rover............................................hljóðkútar og púströr. Renauh R4—R8—R10—R12—R16—R20...........................hljóðkútar og púströr. Saab 96 og 99..........................................hljóðkútar og púströr. Scania Vabfs L80-L85-LB85-L110-LB110-LB140 .......................hlj&ðkútar. Simca fólksbila........................................hljóókútar og púströr. Skoda fólksb. og station...............................hljóókútar og púströr. Sunboam 1250—1500—1300—1600—...........................hljóðkútar og púströr. Taunus Transit bensín og dísil.........................hljóðkútar og púströr. Toyota fólksbila og station............................hljóðkútar og púströr. Vauxhall og Chevotte fólksb............................hljóðkútar og púströr. Volga fólksb...........................................hljóðkútar og púströr. VW K70,1300,1200 og Golf............................... hljóðkútar og púströr. VW sendiferöab. 1963—77 .................................hljóðkútar og púströr. Volvo f ólksbila.......................................hljóðkútar og púströr. Volvo vörubila F84-85TD-N88-N86- N86TD-F88-D-F89-D................hljóðkútar. Skeifunni 2 82944 Púströraverkstæói Púströraupphengjusett í flestar gerðir bifreiða. Pústbarkar, flestar stærðir. Púströr í beinum lengdum, 11/4” til 4” Setjum pústkerfl undir bíla, sími 83466. Sendum í póstkröfu um land allt. Sigurlaug Jónsdóttir, 10 ára: Ég fór upp í svcit. Ég veil ekki hvað sveitin heitir en það var mjög gaman. Ragnar Guðmundsson ákvæðisvinnu maður: Ég fór einn dag í Þjórsár dal. Þar var gott veður, en ekki svo margt fólk þar sem ég var. Þetta var alveg ágætt. Kristin Þórarinsdóttir, 13 ára: Ég fór á hestbaki uppi í Víðidal. Ég er að fara að kaupa hestinn sem ég fór á.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.