Dagblaðið - 29.05.1980, Síða 13

Dagblaðið - 29.05.1980, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1980. 13 Eskifjörður: Úrhitabylgju í snjófjúkið Hestir Eskfirðingar eru búnir að slá lóðir sínar og héldu töðugjöld á hvita- sunnu í 20 stiga hita, logni og sól. En á skammri stundu skipast veður í lofti. Seinni partinn á mánudaginn fór að kólna og er á vikuna leið fór hitinn niður í 3 stig, snjófjúk og hvassvirði. Viðbrigðin eru þvi mikil eftir háls- mánaðar hitabylgju. -Regína, Eskifirði. Hafnfirðingar voru i gær að njðta veður- blfðunnar, sem hvarf frá Eskifirði eftir hvitasunnu, meðal annars þessi pipu- reykjandi heiðursmaður. DB-mynd: Ragnar Th. Sigurðsson. Háskólarektor vegna f rétta um dönskukennslu: Lektorsstaða í dönsku er ekki til í Þjóðviljanum og Dagblaðinu voru í síðastliðinni viku viðtöl við fulltrúa vinstrisinnaðra stúdenta i háskólaráði, þar sem alrangt er farið með afgreiðslu ráðsins á beiðni heimspekideildar þess efnis að Peter Soby Kristensen verði áfram settur lektor í eitt ár frá 1. sept- ember nk. að telja. Háskólaráð sam- þykkti hinn 23. april sl. tillögu rektors þess efnis að þess verði farið á leit við menntamálaráðuneytið að það heimili að auglýst verði til umsóknar lektors- staða i dönsku til tveggja ára út á fjár- veitingu til prófessorsembættis i dönsku, enda að því stefnt að auglýsa þá prófessorsembættið aftur. Þær ástæður sem ég tel að vegi þyngst í þessu sambandi eru þessar: 1. Prófessorsembætti í dönsku var aug- lýst árið 1973. Enginn hæfur um- sækjandi fékkst. Menntamálaráðu- neytið heimilaði þá að auglýst yrði lektorsstaða i dönsku til 4—5 ára út á fjárveitingu til prófessorsembætt- isins. Árið 1978 var umrætt prófess- orsembætti enn auglýst. Það fór á sömu leið og áður, enginn umsækj- enda hlaut hæfnisdóm. Peter Soby Kristensen var meðal umsækjenda. 2. Með auglýsingunni 1978 ergreinilega ætlast til að lektorsstöðuheimildin sé úr gildi fallin og í fyrra voru þau 4— 5 ár, sem heimildin náði til, liðin. Því hefði að réttu lagi átt að óska eftir nýrri heimild árið 1979 fyrir lektorsstöðu I dönsku. Sennilega var setning framlengd þar sem álit dóm- nefndar dróst á langinn og tryggja þurfti aðekki yrði kennaralaust. 3. Það er því ekki til nein lektorsstaða í dönsku og ósk heimspekideildar því formlega gölluð og það svo að telja má líkiegt að ráðuneytið geti ekki fallist á slika málsmeðferð. Verði ráðuneytið hins vegar við beiðni há- skólaráðs er eðlilegt að staðan sé auglýst eins og skylt er um stöður hjá hinu opinbera. 4. i 18. gr. reglugerðar fyrir Háskóla íslands er heimild til að skipa lektora og dósenta tímabundinni skipun til allt að S ára i senn. Ég tel að háskól- inn eigi alltaf að tryggja sér sem hæfast starfslið og almennt eigi ekki að setja menn til langframa í stöður án þess að þær séu auglýstar. Með þvi er ekki verið að gagnrýna Peter Saby Kristensen persónulega. Hann getur að sjálfsögðu sótt um stöðuna og fengið hana verði hann talinn hæfastur. Hann fengi þá stöðuna meira að segja til tveggja ára i stað eins árs skv. tillögu heimspekideild- ar. 5. Skylt er að geta þess að menntamála- ráðuneytið óskaði umsagnar rektors um bréf Peter Rasmussen, samkenn- ara og meðumsækjanda Peter Söby Kristenssen, þar sem hann átelur málsmeðferð heimspekideildar árið 1979 og færir rök fyrir því að aug- lýsa beri eftir kennara. 6. Ég tel ekki síst mikilvægt í þessu máli að Háskóli íslands taki ábyrga afstöðu sjálfur en velti ekki ákvörð- un yfir á ráðherra. Ég tel að svo veigamiki! rök mæli með auglýsingu á stöðinni, ef hún fæst, að háskólinn —trúnaðarbrot íStúdentablaðinu tekinfyriránæsta háskólaráðsfundi hafi ekki haldbær gagnrök. 7. Þar sem ég taldi mér ekki fært að mæla með þessu erindi heimspeki- deildar taldi ég rétt að fá álit há- skólaráðs í málinu, þar sem það fer með æðsta ákvörðunarvald innan háskólans. Þetta er kjarni málsins. Hvað sagt var i háskólaráði og hvernig einstakir menn greiddu atkvæði er trúnaðarmál og þvi freklegt brot af hálfu þeirra er skýrðu frá þvi i Stúdentablaðinu. Mun það tekið fyrir á næsta háskólaráðs- fundi. Hvernig unnt er að lesa pólitíska afr stöðu út úr framangreindum athuga- semdum hlýtur að verða mér hulin ráð- gáta. Að lokum óska ég eftir því við Þjóð- viljann og Dagblaðið sérstaklega að þau birti þessa leiðréttingu á jafnáber- andi stað og hina staðlausu stafi. Með þökk fyrir birtinguna. Guðmundur Magnússon rektor HRAUN KERAMIK íslenskur listiðnaður m QLIT HÖFÐABAKKA 9 REYKJAVlK SÍMI 85411 jrumsýnir fAT,er an. "i'inan AN fiu «nd Directed by PAUI Mfl y/m d TONv RAY '«• l.pr, j Hækkað verð. Sýnd kl. 5,7.15 og 9.30. Tværgóðarfrá GOÐA Tjaldsalat Þegar farið er í útilegu, er gott að geta undirbúið nestið sem best heima. Þetta er næringarríkt pylsusalat, sem búa má til, áður en lagt eraf stað.og geymist vel til næsta dags í kælitösku eða matar- kælibrúsa. 400—500 g. GOÐApylsa 5—6 soðnar kaldar kartöflur 5—6 sneiðar rauðrófur (sýrðar) 2 harðsoðin egg 1 dl. sneiddar púrrur eða Vi dl. saxaðurlaukur vínedik vatn matarolía örlítið salt og pipar steinselja (söxuð) Skerið pylsu, kartöflur og egg í sneiðar og rauðrófurnar í ræmur.Hristið sósuna saman í hristiglasi. Blandið öllu saman í plastboxi eða matarkælibrúsa, kælið vel, áður en lok ersett á. Ljúffengt með grófu brauði og smjöri. Berið kaffi, te eða heita súpu með. Goðapýlsur á grillið. $ Kjötiðnaðarstöö Sambandsins Iúrkjusandi sími:86366 Tilíaga að matreiðsh. Sósa: 1 msk. 1 —

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.