Dagblaðið - 18.06.1980, Síða 12
12
Eskfirðingar
gerðu aðsúg að
dómaranum
— eftir að hafa tapað 1-3
fyrir Þór í 2. deild
Þrátl fyrir 3—1 sigur Þórs áttu heimamenn heldur
meira í leiknum lengst af. Þór nárti forystunni meó
marki frá Óskari Gunnarssyni. Hjálmar Ingvarsson
jafnafii fyrir Austra en Þórsarar náóu forystunni
aftur fyrir lcikhlé með marki frá Guðmundi
Skarphéðinssyni. í siðari hálfleik bættti Óskar við
sínu öðru marki og staðan var orðin 3—1 fyrir Þór.
Kftir það fór heldur betur að hitna í kolunum og
dómarinn Steindór Gunnarsson frá Akureyri missti
öll tök á leiknum, sem leystist upp í leikleysu og
slagsmál á köflum. Þegar dómarinn vísaði Sigurjóni
Kristjánssyni út af fyrir kjafthátt 15 mínútum fyrir
leikslok ætlaði allt um koll að keyra. Að leik loknum
gerðu reiðir áhorfendur og forráðamenn Austra
aðsúg að dómaranum þannig að forða varð honum
hurtu. Þjálfari Austra heimtaði að tekin yrði blóð-
prufa af dómaranum.
-VS.
Jafntefli Tékka
og Hollendinga
Kvrópumeistarar Tékka tóku forystuna gegn
Hollendingum á 15. mínútu með marki framherjans
snjalla Nehoda. Hollendingar, sem virtust sterkara
liðið lengsl af, náðu ekki að jafna fyrr en á 58.
mínúlu. Það var markakóngurinn Kees Kist sem
skoraði markið eftir að hafa fengið hnöttinn upp úr
aukaspyrnu. Kftir jöfnunarmarkið reyndi Hollend-
ingar mjög en án árangurs að knýja fram sigurmark.
Tékkar halda þvi 2. sætinu í riðlinum á betri marka-
tölu en Hollendingar og leika um þriðja sætið í
keppninni.
V-Þjóðverjar
efstir í 1. riðli
Lokastaðan í fyrri riðli úrslitakeppni Kvrópu-
keppninnar í knattspyrnu á ítaliu varð þessi.
1. V-Þýzkaland 5stig4—2
2. Tékkóslóvakia 3stig4—3
3. Holland 3 stig 4—4
4. Grikkland lstigl—4
Það verða þvi V-Þjóðverjar sem leika um Kvrópu-
meistaratitilinn annaðhvort gegn Belgum eða
ítölum, eftir þvi hvernig leik þeirra í kvöld lyktar.
Grikkir héldu jöfnu
gegn V-Þjóðverjum
Grikkir komu mjög á óvart er þeir gerðu marka-
iaúsl jafntefli við V-Þjóðverja i lokaleik 1. riðilsins í
úrslitum Kvrópukeppninnar í knattspyrnu á ítaliu.
,,Kg er ekki að afsaka neitt en leikur okkar var rök-
réttur miðað við það, að við höfðum þegar tryggl
okkur rétt til að leika úrslitaleikinn i keppninni,”
sagði Jupp Derwall einvaldur v-þýzka liðsins að
leiknum loknum. Bæði liðin fengu nokkur góð
marktækifæri í leiknum. Þannig átti Grikkinn
Christos Ardizoglou skot í stöng af 25 metra færi.
Karl-Heinz Rummenigge, einn bezti sóknarmaður
Þjóðverja, misnotaði tvívegis góð marktækifæri í
lciknum. Mikinn svip á leikinn setti rangstöðutaktik
Grikkjanna sem þeirra beittu á óvenjulegan hátt eða
á vallarmiðjunni. ,,Kg er yfir mig ánægður,” sagði
þjálfari griska liðsins að leik loknum. „Hcfðum við
nýtt færi okkar liefðum við unnið óvæntan og
minnisstæðan sigur.”
Ingi setti met
í baksundi
Ingi Þ. Jónsson, ÍA, setti nýtt íslandsmet í 100 m
baksundi á Reykjavíkurmeistaramótinu I sundi i
I.augardalslaug í gær. Katrin L. Sveinsdóttir, Ægi
setti bæði telpna- og stúlknamet í i5öö m skriðsundi,
synti á 19:12,4 mín. Ægir sigraði með miklum yfir-
burðum í keppni Reykjavikurfélaganna, hlaut 150
stíg. Ármenningar lilutu 18 stig og KR-ingar 0 stig.
Ægir hlaut að launum mjög veglegan bikar sem
gefinn var til minningar um Bjarna Benediktsson.
-GAJ.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ1980
Sigurður Einarsson, Árm., sýndi mikil tilþrif i spjótkasti og þess er örugglega ekki langt að biða að þessi efnilegi kastari bæti Islandsmet Óskars Jakobssonar.
3. deild - 3. deild - 3. deild - 3. deitd - 3. deild - 3. deild - 3. deild
Einn heimasigur í 9
leikjum á Austffjörðum!
— aðeins Einherji hefur megnað að sigra á heimavelli til þessa
Reynir—ÍK 8—0 (3—0)
Þrátt fyrir 3 mörk í fyrri hálfleik var
leikur Reynis ekki sannfærandi. Allt of
mikið var um háspyrnur en minna um
samleik. í síðari hálfleik réðu heima-
menn lögum og lofum á vellinum enda
allur annar bragur á leik liðsins.
Mörkin gerðu Ómar Björnsson 3, Jón
Guðmann 2, Ari Arason 2 og Júlíus
Jónsson 1.
Léttir—Hekla 1-2
DB tókst ekki að fá upp gefið,
hverjir gerðu mörkin í þessum leik.
Leiknir—Katla 8—0(4—0)
Þetta var eins og tölurnar benda til,
alger einstefna frá upphafi til enda.
Þorsteinn Ögmundsson senti knöttinn
þrívegis í net þeirra Kötlumanna,
Jóhann Sigursteinsson og Hilmar
Harðarson tvisvar hvor og Óli
Guðmundsson gerði áttunda markið.
Afturelding—Stjarnan 5—1 (2—0)
Stjarnan sótti meira i f. hálfl. og fékk
þá nokkur hættuleg marktækifæri sem
ekki tókst að nýta. Afturelding nýtti
hins vegar sin marktækifæri og skoraði
tvivegis. Fljótlega i siðari hálfleik
minnkaði Geir muninn í 2—l en siðan
tók Afturelding leikinn í sínar hendur
og hafði gert fimm mörk áðor £r, yýjr
lauk. Ratir.ár voru mörk Afturelding-
ar sjö talsins en ágætur dómari leiksins,
Jón Gunnar Hilmarsson, dæmdi tvö
þeirra réttilega af. Leikurinn þótti á
köflum ágætlega leikinn og brá fyrir
góðum samleiksköflum. Mörk Aftur-
eldingar gerðu Hafþór Kristjánsson 2,
Atli Atlason l, Rikhard Jónsson I og
Rafn Thorarensen skoraði eitt mark úr
vítaspyrnu. -GAJ.
Grótta—Vfðir 1-1 (1-0)
Tómas Þorsteinsson, jafnaði með
skalla fyrir Víði á síðustu sekúndum
leiksins, mjög gegn gangi hans því
Grótta hafði átt mun meira í leiknum
og mun hættulegri marktækifæri.
Einkum voru þó yfirburðir
Gróttu miklir í síðari hálfleik, enda
léku Víðismenn einum færri mestan
hluta hálfleiksins vegna þess að Daníel
Einarsson var rekinn af leikvelli fyrir
að sparka í einn leikmanna Gróttu
snemma í siðari hálfleik. Mark Gróttu
gerði Gunnar Páll Þórisson um miðjan
fyrri hálfleik. Beztu menn Gróttu voru
körfuboltamennirnir Gísli Gíslason
(ÍS) og Árni Guðmundsson (KR).
Enginn skar sig úr liði Víðis.
GAJ/-emm.
LIMFN — Hverageröi 5—0 (2—0)
Njarðvikingar héldu sigurgöngu
sinni áfram í B-riðlinum á laugardag á
grasvellinum í Njarðvík. Fyrsta markið
skoraði Ólafur Björnsson með góðu
skoti. Skömmu síðar var dæmd víta-
spyrna á Hvergerðinga eftir að Jón
Halldórsson, „vítaveiðari” féll inni i
vítateig. Úr vítaspyrnunni skoraði
Haukur Jóhannsson. Eftir þetta var
leikurinn fremur þófkenndur og fátt
um færi fram að hléi en snemma i
síðari hálfleik batt Ólafur Björnsson
enda á vonir austanmanna m;5 þvj að
skora sitt ann.SÖ mark í leiknum, 3—0.
Et'tir það höfðu Njarðvíkingar öll tök á
leiknum og bættu tveimur mörkum
við. Hið fyrra skoraði Jón Halldórsson
eftir að markvörðurinn hafði misst
hnöttinn fyrir fætur hans. Haukur
Jóhannsson skoraði síðan fimmta
markið skömmu fyrir leikslok. -emm.
HÞV—Vikingur 2-212-0)
HÞV var sterkara liðið í fyrri hálfleik
og náði þá tveggja marka forystu með
tveimur mörkum Sæmundar Víglunds-
sonar. I síðari hálfleik missti liðið tökin
á miðjunni, sem síðan leiddi til þess að
Víkingur jafnaði. Mörk Víkings gerðu
þeir Hilmar Gunnarsson og Logi
Úlfljótsson. Þegar upp var staðið var
jafntefli sanngjörn úrslit. -AÓ.
Árroðinn—KS 2-2(2-01
Ekki voru liðnar nema fimm mínútur
af leiknum þegar Örn Tryggvason
skoraði fyrir Árroðann. Siðan sótti
Árroðinn mjög hart að marki KS en
Siglfirðingar vörðust mjög vel. Þeim
tókst þó ekki að koma í veg fyrir að
Árroðinn bætti öðru marki við fyrir
hlé. Var þar að verki Rúnar Arason. I
síðari hálfleik skoraði ívar fyrir KS,
heldur klaufalegt mark því knötturinn
breytti stefnu af þúfu áður en hann
hafnaði í netinu. Stundarfjórðungi
fyrir leikslok jafnaði Þórhallur fyrir
Siglfirðinga með heldur ódýru marki úr
þvögu mniíteig. -G. Sv.
Magni—Leiftur 3—1 (1 —i)
Það var Hringur Hreinsson sem tók
forystuna fyrir Magna en Guðmundi
Garðarssyni tókst að jafna leikhlé. Um
miðjan síðari hálfleik gerði Sigurður
Illugason út um leikinn er hann skoraði
tvívegis fyrir Magna. Magni sótti mun
meir og var sigur þeirra sanngjarn.
-G.Sv.
LSoÁH —Reynir 0-1 (0-0)
Það var Björn Friðþjófsson sem tók
forystuna fyrir Reyni úr vítaspyrnu í
siðari hálfleik og reyndist það eina
mark leiksins. Liðin skiptust á um að
sækja en Reynir átti hættulegri tæki-
færi og var sigur þeirra sanngjarn.
-G.Sv.
Efling—Dagsbrún frestað
Dómarinn mætti ekki til leiks og
Rafn Hjaltalín sem hugðist hlaupa í
skarðið gat ekki talið Dagsbrúnarmenn
á að fresta leiknum um tvo klukkutíma
og héldu þeir á brott eftir að rúmur
hálftimi var liðinn fram yfir fyrirhug-
aðan leiktima. -G.Sv.
Hrafnkell — Sindri 1—2(0—11
Leikurinn var fremur slakur og hefði
jafntefli sennilega verið sanngjörnustu
úrslitin. Eina markið í fyrri hálfleik
gerði Gunnar Páll Halldórsson fyrir
Sindra. í seinni hálfleik jafnaði Sverrir
Guðjónsson fyrir Hrafnkel og töldu
flestir að þar hefði verið um rangstöðu-
mark að ræða. Skömmu síðar skoraði
Grétar Vilbergsson með skoti frá víta-
teigslínu. Dómaranum urðu þau
mistök á að flauta leikinn af tiu
minútum of snemma en sá sig síðan um
hönd og lét halda leiknum áfram. -VS.
Leiknir—Einherji 0—2(0—11
Leiknir sótti miklu meira fyrstu 20
minúturnar en fékk þá á sig ægilegt
slysamark. Vigfús Daviðsson skaut
lausu skoti fyrir utan vitateig, sem
markvörður Leiknis missti klaufalega í
netið. Það sem eftir lifði hálfleiksins
var leikurinn mjög jafn. í síðari hálf-
leik var Einherji heldur aðgangsharðari
og þá skoraði Ingólfur Sveinsson
annað mark Einherja. Skaut hann bolt-
anum upp i loftið við vitateigslínu og
boltinn datt niður í hornið fjær. Margir
töldu að brotið hefði verið á markverði
Leiknis. Stuttu seinna hrökk boltinn í
þverslá Leiknismarksins og þá skoraði
Einherji mark sem dæmt var af vegna
rangstöðu. -VS.
Valur—Súlan 0-2(0-21
Súlan sótti undan vindi í fyrri hálf-
leik og skoraði þá tvívegis. Mörkin
gerðu Óttar Ármannsson og Einar
Björnsson. í síðari hálfleik gerðist fátt
markvert. Valur átti þó eitt hættulegt
marktækifæri er boltinn rúllaði eftir
marklínu Súlunnar en enginn fylgdi á
eftir. Þá komst Óttar einn inn fyrir
hinum megin en markvörðurinn varði
mjög vel. -VS.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ1980
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþrottir
HELGA ÞREFALDUR SIGUR-
VEGARIÁ17. JÚNÍMÓTINU
— sctti gott íslandsmet í 100 m grindahlaupi — Guðrún Ingólfsdóttir jafnaði íslandsmetið í kúluvarpi
Þrátt fyrir að tvö íslandsmet væru
setl var heldur lítil reisn yfir 17.
júnímótinu í frjálsum iþróttum i Laug-
ardal i gær. Okkar beztu frjálsíþrótta-
menn, Hreinn Halldórsson og Óskar
Jakobsson, voru ekki meðal keppenda
og því voru engin afrek unnin á heims-
mælikvarða. Hins vegar er Ijóst að all-
margir ungir og bráðefnilegir frjáls-
íþróttamenn eru nú að koma fram á
sjónarsviðið sem ættu að geta náð
boðlegum árangri á alþjóðamæli-
kvarða á næstunni. Þannig setti hin
bráðefnilega Helga Halldórsdóttir úr
KR gott íslandsmet í 100 metra grinda-
hlaupi kvenna. Hún hljóp á 13,8 sek.
Helga var hetja þessa móts og sigraði i
þremur greinum. Guðrún lngólfsdóttir
úr Ármanni jafnaði íslandsmet sitt i
kúluvarpi um einn sentimetra er hún
varpaði 13,27 metra. Kom sá árangur
hennar mjög á óvart, þar sem hún
hefur lítið sem ekkert æft sig að undan-
förnu.
í karlagreinum var árangur yfirleitt
heldur slakur. Mesta athygli vakti sigur
Erlendur vill
á 0L í Moskvu
„Kg taldi mig hafa náð þessu lág-
marki og varð því mjög undrandi þegar
ég heyrði að miða ætti við það að senda
aðeins einn mann í hverri keppnisgrein
á ólympíuleikana,” sagði Krlendur
Valdimarsson, kringlukastarinn
góðkunni úr ÍR, i samtali við Dag-
blaðið.
Krlendur benti á að aðeins þrir
íslenzkir frjálsíþróttamenn hafa náð
því lágmarki sem alþjóða frjálsíþrótta-
sambandið setur fyrir þátttöku tvcggja
manna í grein á ólympíuleikunum.
Þessir menn eru Óskar Jakobsson sem
hefur náð ólympíulágmarki bæði i
kringlukasti og kúluvarpi, Hreinn
Halldórsson i kúluvarpi og Krlendur
Valdimarsson i kringlukasti. Sam-
kvæmt stefnu FRl verður aðeins einn
keppandi sendur í hvorri grein. Óskar
fer þá sem kcppandi í kringlukasti en
keppir einnig i kúluvarpi „þar sem
hann er kominn á staðinn hvort eð er,”
eins og talsmaður FRI hefur orðað
það.
„En hvað gera þeir ef ég kasta
lengra en Óskar?” spyr Erlendur. Þá
væri einfaldlega komin upp sú staða að
Óskar væri okkar annar maður bæði í
kúluvarpi og kringlukasti og ætti sam-
kvæmt því að sitja heima. Ég tel að
með þessu sé verið að setja keppendur
hvorn upp á móti öðrum,” sagði
Erlendur. -GAJ.
Kristjáns Harðarsonar, HSH, í lang-
stökki. Kristján, sem er aðeins 16 ára,
setti nýtt og glæsilegt sveinamet 6,79
m. Lengsta stökk hans var 6,82 m en
meðvindur var þá of mikill. E.t.v. á
Kristján eftir að bæta hið gamla met
Vilhjálms Einarssonar (7,46 m)
einhvern tíma i framtiðinni. í 2. sæti
varð Stefán Þ. Stefánsson, ÍR, með
6,80‘m og Friðrik Þ. Óskarsson, ÍR,
varð að gera sér 3. sætið að góðu að
þessu sinni. Hann stökk 6,66 m.
Í fjarveru Hreins og Óskars sigraði
Guðni Halldórsson, KR, í kúluvarpi
með 16,82 m. Tugþrautarmaðurinn
efnilegi Pétur Pétursson, UÍA bættl
sinn fyrri árangur mjög verulega og
kastaði 16,24 m sem er sjöundi bezti
Helga Halldórsdóttir, KR, setti
glæsilegl íslandsmet í 100 melra
grindahlaupi og sigraði einnig i 100 m
og 200 m hlaupum. DB-myndir: S.
árangur íslendings i greininni frá
upphafi.
Gamla kempan Valbjörn Þorláks-
son, KR, sigraði enn einu sinni í 1 10 m
grindahlaupi á ágætum tima, 15,1 sek.
í 2. sæti varð Stefán Þ. Stefánsson, ÍR,
á 15,5 sek.
Oddur Sigurðsson úr KÁ sýndi að
hann er til alls liklegur i sumar er hann
hljóp 200 metrana á 21,5 sek. í 2. sæti
varð Þorvaldur Þórsson, ÍR, á 22,3
sek. og þriðji varð Gísli Sigurðsson,
UMSS, á 23,1 sek. í 100 m hlaupinu
sigraði Þorvaldur á 11,0 sek. Annar
varð Gisli á 11,3 sek. og þriðji Jón Þ.
Sverrisson, UBK, á 11,5 sek.
Gunnar P. Jóakimsson, ÍR, hljóp
800 m hlaup á ágætum tíma 1:53,1
min. og annar varð Guðmundur Sig-
urðsson, UMSE, sem stórbætti sinn
lyrri árangur og hljóp á 1:57,5. Þriðji
varð Steindór Tryggvason, KA, á
1:58,8.
Hinn bráðefnilegi Sigurður Einars-
son, Árntanni, sigraði með yfirburðum
i spjótkasti. Hann kastaði lengst 69,46
m að þessu sinni og var nokkuð frá sínu
bezta. Sigurður er mjög slerkur kastari
er á örugglega eftir að bæta íslandsmet
Óskars Jakobssonar i greininni innan
tíðar. Elias Sveinsson, FH, varð annar
með 60,12 m kasti og Hreinn Jónasson,
UBK, varð þriðji með 59,52 m.
Árangurinn i 1500 m hlaupi varð
heldur slakur. Þar sigraði ungur
hlaupari, Magnús Haraldsson, FH, á
4:15,6 mín. Gunnar Snorrason, UBK,
varð annar á 4:24,8 mín. og Sigurður
Haraldsson, FH, þriðji á4:26,1.
í hástökki sigraði Stefán Þ. Slefáns-
son, ÍR. Hann stökk 1,95 m. Annar
varð Stefán Friðleifsson, UÍA, með
1.90 m og þriðji Helgi Hauksson,
UBK, 1,85 nt.
Eins og áður segir sigraði Helga
Halldórsdóttir, KR, i þremur kvenna-
greinum, i 100 m grindahlaupi á 13,8
sek. í 100 m hlaupi á 12,0 sek. og 200
m hlaupi á 25,0 sek. Þórdis GísladótIir,.
ÍR, sigraði I hástökki, stökk 1,75 m.
Dýrfinna Torfadóttir, KA, sigraði í
spjótkasti eftir harða keppni við íris
Grönfeld, UMSB. Dýrfinna kastaði
42.90 m en i’ris 42,64 m. Sveit ÍR sigr-
aði i4x 100m boðhlaupi kvennaá49,8
sek. og sveit ÍR sigraði i 1000 m
boðhlaupi karla. -(íAJ.
Pétur sjöundi
frá upphafi
Afrek tugþrautarmannsins efnilega
Péturs Péturssonar, UÍA, í kúluvarpi í
gær er sjöunda bezla afrek íslendings i
greininni frá upphafi. Kemur Pétur nú
næstur á eftir Gunnari Huseby, sem
var Kvrópumeistari í greininni á sínum
tíma eins og alþjóð er kunnugt. Hér á
eflir fara 10 beztu afrek íslendinga í
kúluvarpi frá upphafi.
1. Hreinn Hatldórsson, KR 21,09 m 1977
2. Óskar Jakobsson, ÍR 20,21 m 1980
3. Guðm. Hermannsson, KR 18,48 m 1969
4. Guðni Halldórsson, KR 17,93 m 1978
5. Erlondur Valdimarss., ÍR 17,14 m 1969
6. Gunnar Huseby, KR 16,74 m 1950
7. Pétur Pótursson, UfA 16,24 m 1980
8. Óskar Raykdalsson, KA 16,08 m 1979
9. Skúli Thorarensan, ÍR 18,00 m 1957
10. Jón Pétursson, KR 15,98 m 1968
Cí-AS-H
Popphljómsveit
P 9.á
aratugarins
Missið ekki af þessu ein-
stæða tækifæri til að sjá
eina af beztu rokkhljóm-
sveitum heims á tónleikum í
Laugardalshöll, laugardaginn
21. júní kl. 21.00.
Miðasala í Gim/i. Sími280RR