Dagblaðið - 18.06.1980, Page 24

Dagblaðið - 18.06.1980, Page 24
frfálst, úháð dagblað Jan Mayen: p.Hámarkið hærra en við hefðum viljað” — segir Jakob Jakobsson fiskifræðingur. Loðnuveiði Norðmanna miðuð við Grænlandssvæðið líka, segir Jón L. Arnalds „Vafinn var á því, hvernig fara myndi um mat á þeim 15% af há- marksafla, sem Norðmenn mega veiða eftir að fært hefur verið út við Grænland og Efnahagsbandaiags- löndin kynnu að hefja veiðar þar,” sagði Jón L. Arnalds ráðuneytisstjóri í viðtali við DB. Hann kvað það hafa verið viðurkennt, að hluti Norðmanna yrði miðaður við heild- arveiðina samkvæmt hámarksafla- tölum, ekki aðeins á Jan Mayen- svæðinu, heldur líka hafsvæðum við Grænland eftir útfærsluna þar. „Það er þetta scm er sérstaklega ánægjulegt, hvað sem líður hámarks- aflatölum,” sagði ráðuneytis- stjórinn. „Enda þótt þetta gildi aðeins fyrir næsta veiðitimabil ætti það að vera stuðningur fyrir næstu ákvarðanir. Tveir þriðju hluta afla- magnsins veiðast á svæðinu við Grænland en ekki Jan Mayen. Þess vegna er þetta afar þýðingarmikið og ánægjulegt,” sagði Jón Arnalds. Samkomulag var gert í sameiginlegri fiskveiðinefnd um 775 þúsund tonna hámarksafla. Mega Norðmenn veiða 116 þús. tonn en íslendingar 659 þúsund. í Jan Mayen-samningum segir, að reynt skuli að ná samkomulagi um hámarksafla. Náist samkomulag ekki, geti ísland sem sá aðili sem mestra hagsmuna á að gæta.ákveðið leyfilegan hámarksafla. Þó er þar ákvæði sem segir: ,,Ef ákvörðun þessi er talin bersýniiega ósanngjörn, getur Noregur lýst sig óbundinn af heildaraflamagninu.” „Þetta er náttúrlega hærra en við hefðum viljað, vegna þess að næsta veiðitímabil byggist mest á stofninum frá 1978, sem við erum hræddir um að sé lélegur,” sagði Jakob Jakosson fiskifræðingur í viðtali við DB. „Við hefðum viljað hafa vaðið meira fyrir neðan okkur,” sagði Jakob. „Það var verið að teygja sig eftir samkomulagi og þegar þetta verður endurskoðað i haust, getum við, eftir mælingar sem Hjálmar Vilhjálmsson hefur með höndum, lagt fram gildari rök,” sagði Jakob. Hann sagði að mat á þessum stofni frá 1978 væri byggt á seiða- mælingum fyrir tveim árum. Miðað við þær hefðu íslenzku fiskifræðing- arnir talið öruggara að hafa há- marksaflamagnið lægra. -BS. Florida tekin með trompi: SU NORRÆNA VILDI SVERTINGJANN STRAX — Flugleiðafólk orðið langþreytt á kófdrukknum landanum í Bandaríkjunum Það er ekki ofsögum sagt af íslend- ingum erlendis, þeir eru vanir að „taka staðina með trompi”. Nú eru þeir orðnir leiðir á Spánarferðum og farnir að leggja leið sina vestur um haf til Flórída. Að sögn eru landarnir oft skuggalega drukknir þegar þeir stíga á bandariska grund og starfs- fólk Flugleiða á Kennedyflugvelli orðið iangþreytt á því að hjálpa kóf- drukknu fólki í gegnum útlendinga- eftirlitið. Á dögunum kom mektarfrú úr höfuðstaðnum á Kennedyflugvöll. Var hún meira en lítið drukkin er hún steig úr flugvélinni. Á flugvellinum eru þeldökkir burðarmenn og einn þeirra bar sig til við að aðstoða frúna við töskuflutning. Frúin gerði sér lítið fyrir og vildi fá þann þeldökka til lags við sig og það á stundinni. Hugðist hún nota töskukerruna til athafnárinnar. — Sá þeldökki flúði felmtri sleginn yfir vergirni þessarar norrænu víkingakonu. Tókst hvorki betur né verr en að konan dó brenni- vinsdauða þvert yfir töskurnar á vagninum. Sá þeldökki sá aumur á henni og ók töskunum og frúnni í gegnum „nálaraugað”. Var viðstöddum að vonum brugðið, — en ekki fara frekari sögur af „sigrum” frúarinnar i heimsborginni. A.Bj. MIÐVIKLDAGUR 18. JÚNÍ 1980. Þjóðhátíiin: Minni drykkja en mikill sóðaskapur Lögregiumenn í Reykjavik og víðast um landið eru tiltölulega ánægðir með þjóðhátíðarhald landsmanna. í Reykjavík var drykkjuskapur talinn minni en verið hefur undanfarin ár, og sömu sögu er að segja frá flestum öðrum stöðum, sem DB hafði samband við. „I miðborginni voru engin skemmdarverk unnin, en sóðaskapur var mikill og mikið verk beið hreinsunarmanna sem mættu til leiks um óttubil,” sagði varðstjóri í morgun. „Það var talsvert kennderi, en það var eins og þeir sem engri helgi sleppa hafi verið búnir að rasa út er að þjóðhátið á þriðjudegi kom,” sagði annar. -A.St. Selfyssingar fá fullkominn sjúkrabíl: Höfðingleg gjöf f rá 81 árs verkamanni „Ég er sjúkrahúsvinur og hef þurft á sjúkrahúsvist að halda. Núna er ég hér á sjúkrahúsinu vegna sykursýki, en ég fer nú sennilega heim i dag,” sagði Stefán Ketilsson, sem gaf í gær sjúkra- húsinu á Selfossi glæsilegan nýjan Citroén sjúkrabíl, búinn hinum full- komnustu tækjum. Stefán á heima í Sætúni á Stokks- eyri. Sagðist hann fyrst hafa fengið hugmyndina að gjöfinni fyrir einum átta árum. Hann hugsaði sig um i 4 ár og byrjaði svo að safna. Það tók önnur 4 ár. Stefán er 81 árs og vonast til þess að geta haldið áfram að vinna eilthvað við sína verkamannavinu. Billinn.kostaði kr. 9 milljónir „Hann hefði kostað um 20 milljónir hefðu tollar og önnur gjöld ekki verið felld niður. Ég er skuldlaus við menn en hvort ég er skuldlaus við Guð það veit égekki,” sagði Stefán. -EVI. Yfirvinnubannið: Flugumferðar- stjórar bíða — Atkvæðagreiðsla síðar í vikunni „Við ákváðum að skjóta öllum ákvörðunum varðandi yfirvinnubannið og önnur tengd mál á frest þar til siðar í vikunni,” sagði Baldur Ágústsson, for- maður félags flugumferðarstjóra i samtali við DB í morgun. Á mánudag var haldinn fundur í félaginu þar sem þessi ákvörðun var tekin. Síðar í vikunni verður höfð alls- herjaratkvæðagreiðsla innan félagsins um yfirvinnubannið. -SA. Úr lausamölinni á toppinn BUaleigubrfreið af Lada-gerO lentí út af vegi skammt ofan G/Júfra- bíinum og slapp fó/kið meö minni háttar meiðsli. Orsök s/yssins er steins í Mosfellsdal um sjöleytíð á þjóðhátíðardaginn. Tvennt var i talin lausamöl, sem varð tílþess að ekillinn misstístjórn á ökutækinu. A.St/DB-mynd Sveinn.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.