Dagblaðið - 09.07.1980, Page 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1980.
2
r
VERÐUR ROFA-
BÆR TENGDUR VH>
HÖFÐABAKKAVEG?
Kona í Árbæ hringdi:
Við erum hérna nokkrir Árbæing-
ar og okkur langaði lil að spyrja
borgaryfirvöld hvort til stæði að
tengja Rofabæ við Höfðabakkaveg.
Hjá Guttormi Þormar á skrifstofu
borgarverkfræðings fékk DB þær
upplýsingar, að engin ákvörðun
hefði verið tekin varðandi þessa teng-
ingu. Sú tillaga hefði komið fram að
tengja Höfðabakkaveg við Rofabæ
en engin ákvörðun hefði verið tekin
þar að lútandi.
Brél'ritari krarlar >tir stjiirmileysi íslen/kra knattspyrnuliða.
Lélegri knatt-
spyma nú en
undanfarin ár
Knattspyrnuunnandi skrifar:
Sem einlægur unnandi góðrar
knattspyrnu sæki ég flesta þá leiki
sem ég kemst á. í sumar hafa þeir
verið nokkuð margir en ég get ekki
sagt að þeir hafi verið góðir. Mér
finnst íslenzku knattspyrnunni hafa
farið töluvert aftur, hverju sem um er
að kenna. í dag eru ekki lengur
stjörnur sem trekkja að, allir eru
sokknir niður í djúp meðal-
mennskunnar, þar sem kýlingar og
hugsunarleysi ráða ríkjum. Eina
ráðið sem ég sé við vanda þessum er
að taka upp hálf-atvinnumennsku.
Þá gætum við kannski haldið eilitið
lengur í okkar beztu knatt-
spyrnumenn i stað þess að þurfa að
sjá á eftir þeim til annarra landa
strax og þeir eru orðnir nægilega
gamlir til að ferðast.
C lash spilaði alltol' hátt, hljómhurðurinn »ar lélegur ojj liigin lnert iiðru lik. segir hréfritari.
Clash ekki eins góð
og af var látið
Rokkunnandi skrifar:
Eftir að hafa heyrt margt gott
skrifað um brezku rokkhljómsveitina
Clash ákvað ég að fara á hljómleika
hennar í Laugardalshöll 21. júni sl.
Ég hefði betur látið það ógert þvi mér
fannst harla lítið i leik hennar varið
og hundleiddist megnið af kvöldinu.
Clash spilaði alltof hátt, hljóm-
burðurinn var lélegur og lögin hvert
öðru lík. Þá eru þeir félagar frekar
slappir hljóðfæraleikarar. Margir
kunningar mínir voru alveg á sama
máli og ég og dauðsáu eftir að hafa
látið ginna sig á hljómleikana með
fögrum orðum og fyrirheitum.
Raddir
lesenda
Hins vegar voru Utangarðsmenn
alveg frábærir og hefði betur farið á
því að Clash hefði hitað upp fyrir þá.
Kvartað yfir skemmdu kjötfarsi:
Mannleg mistök sem
koma má í veg fyrir
,,Okkur hafa borizt tvær
kvartanir vegna skemmds kjötfars og
er um tvær mismunandi sendingar að
ræða,” sagði Sigurður Örn Hansson,
forstöðumaður rannsóknarstofu bú-
vörudeildar SÍS. í DB á mánudag
kvartaði íris Randversdóttir yfir
skemmdu kjötfarsi frá Goða en SÍS
framleiðir kjötvörur undir þvi
vörumerki.
Sigurður Örn Hansson sagði að
hann teldi líklegustu skýringuna að
frysting kjötfarsins hefði verið of
hæg. ,,Ef kælikeðjan rofnar, fá
gerlar tækifæri til að fjölga sér og þá
skemmist kjörfarsið. Við erum með
eftirlit á framleiðsluvörum og tökum
sýni með jöfnu millibili. Það er
undantekning en ekki regla að við
fáum kvartanir yfir skemmdu
kjötfarsi og ég tel að hér sé um
mannleg mistök að ræða sem hægt á
að vera að koma í veg fyrir.”
ER JÖRÐIN FLÖT?
—eru blómin spendýr?
Dagbjartur Stígsson Hraunbæ 110
skrifar:
Undarlegt er það og furðulegt að
hópur vel menntaðra og jafnvel stór-
gáfaðra íslendinga skuli leggja sig
niður við að murka lífið úr stórkost-
legustu gestum sem heimsækja þetta
land á sumrin, þar á ég við indíána
sjávarins — hvalina.
Hvers vegna þarf maðurinn alltaf
að drepa?
Við teljum okkur háþróaðar verur
með þekkingu og tækni sem kemur
okkur til annarra hnatta. Þrátt fyrir
það erum við að keppast við að
útrýma einu hugsanlegu vitsmunaver-
unni, auk mannsins, sem er sam-
ferða okkur á þessum hnetti.
Maður hrekkur við að heyra raddir
þeirra sem taka laun sin frá
samfélaginu og hafa umboð til að
vernda og varðveita lífríki jarðar og
eiga að skila því ósködduðu til þeirra
sem erfa það. Svo vel skilja þeir hlut-
verk sitt að þeir senda grasafræðing
Dagbjartur Stígsson vill banna veiðar
á „indiánum sjávarins” — hvölum.
til Alþjóðahvalveiðiráðsins til þess að
fjalla um hvali og friðun þeirra,
grasafræðing sem telur hvali
sambærilega við sauðkind. Þessir
einstaklingar geta ráðið þvi í dag,
með atkvæði okkar hjá Alþjóðahval-
veiðiráðinu, hvort hvalveiðar
stöðvast um allan heim og 20 þúsund
hvölum verður bjargað árlega frá
grimmdarlegum dauðdaga og
maðurinn fær tækifæri til að
kynnast öðruvisi fólki, — hvölum.
Við þá sem vilja halda áfram að
drepa hvali eins og sauðkindur og
trúa því, að þeir séu ekki að útrýma
vitsmunaveru, vil ég segja þetta: Fyrr
á öldum var til sams konar fólk sem
hélt fast við það að jörðin væri flöt.
Enn einu sinni minna lesenda-
dálkar DB alla þá, er hyggjast
senda þœttinum línu, að láta fylgja
jullt nafn, heimilisfang, slmanúmer
(ef um það er að ræða) og nafn-
númer. Þetta er lltil fyrirhöfii fyrir
bréjritara okkar og til mikilla
þœginda jyrir DB.
Lesendur eru jafnframt minntir
á að bréf eiga að vera stutt og
skýr. Áskilinn erfullur réttur tilað
stytta bréf og umorða til að spara
rúm og koma efni betur til skila.
Bréf œttu helzt ekki að vera lengri
en 200—300 orð.
Símatimi lesendadálka DB er
milli kl. 13 og 15 frá mánudögum
tiljbstudaga.
J
m