Dagblaðið - 09.07.1980, Blaðsíða 24
Sjórall’80
Inga enn með
forskot
Gustur frá ísafirði náði í fyrsta sinn
í Sjóralli ’80 10 stigum á einum
siglingarlegg i gær. En þrátt fyrir það
er forskot Ingu enn gott. Á Kópaskeri
er stigatalan þannig að Inga er með 47
stig, Gustur 36 og Lára er með 22 stig á
leið til Kópaskers og fær þar 5 í viðbót.
í minni flokknum fékk Spörri frá
Grundarfirði 10 stig í gær og er með 44
stig. Gáski fékk 7 stig og er með 41 stig
áKópaskeri. -A.St.
—Sjaldgæft vegna samtryggingar
Skipaöir prófdómarar við Mynd- maður og kennari við Myndlista-og auglýsingamenn.
lista- og handíðaskólann hnekktu handiðaskólann sá sér ekki fært að Endurmátu þau próf nemandans
nýverið úrskurði eins kennara gefa nemanda nokkrum nægjanlega svo, að úrskurði Gísla var hnekkt,
skólans um að ákveðinn nemandi háa einkunn til að hann næði próflnu nemandinn fékk nægjanlega háa
hansskyldiná tilteknu prófi, en ekki í auglýsingateiknun, sem nemandinn einkunn til að standast prófið. Sem
falla eins og einkunn kennarans gaf gekk undir hjá honum. Nemandinn fyrr segir hafa nemendur úr flestum
til kynna. Mun sjaldgæft í fram- vildi ekki hlita niðurstöðu Gísla, svo framhaldsskólum hins vegar þá sögu
haldsskólum landsins að skipaðir hann leitaði réttar sins og fékk að segja að samtrygging kennara og
prófdómarar -gangi í berhögg við skipaða prófdómara hjá mennta,- prófdómara sé það mikil að sjald-
áðuruppkveðinnúrskurðkennara. málaráðuneytinu í máli sinu. Voru gæft sé að þeir gangi hvor á móti
Er í þessu tilfelii um að ræða að skipuð þau Þröstur Magnússon og öðrum.
Gísli B. Björnsson auglýsingastofu- Friðrika Gestsdóttir, bæði kunnir -BH.
Vigdís gekk á fund Gunnars í gærdag
Forsetaefni íslendinga, frú Vigdís Finnbogadóttir, gekk í gœrdag en sem kunnugt er tekur Vigdís vió forsetaembœttinu við hútíðlega
kl. 4 ú fund Gunnars Thoroddsen forsœtisrúðherra í Stjórnar- athöfn 1. úgúst nk.
rúðinu. Vigdís og Gunnar rœddust við í u.þ.b. húlfa klukkustund, -JH/DB-mynd: Jón Sœvar.
Ljót aðkoma að sumarbústað í Sauðaneslandi:
ALLT BftOTK) SEM HÆGT
VAR AD BRIÓTAINNI
—með sleggju ef ekki gekk með höndum eða fótum
Það var ófögur aðkoma
sumarbústaðareigenda að sumar-
bústað i Sauðaneslandi, skammt frá
Blönduósi nú um helgina. Eigandi
bústaðarins sagði í morgun að allt
innbú i bústaðnum hefði gersamlega
verið rústað. Allt gler í gluggum var
brotið og meira að segja póstar í svo-
kölluðum frönskum gluggum brotnir
líka. Þá var allt leirtau brotið og
hurðir rifnar af eldhúsinnréttingu.
Ekki létu hinir óboðnu gestir séi
það nægja heldur fóru með sleggju á
eldhúsinnréttinguna og gaseldavél
sem er í bústaðnum. Þá var mat-
vælum troðið ofan í klósettið og
myndir á veggjum brotnar. Hveiti og
sekkjavöru var dreift út um allt og
hent út um gluggana. Þá var ýmsum
húsbúnaði, brotnu leirtaui og sultu
hent út á hlað.
Lögreglunni á Blönduósi var til-
kynnt um málið og fékk hún aðstoð
Rannsóknarlögreglu ríkisins við at-
hugun. Eigandinn sagði í morgun að
ekki væri alveg vitað hvenær þetta
hefði gerzt en talið var að ekki væri
langt siðan. Til tveggja manna sást á
staðnum á hestum á fimmtudags-
kvöld.
Frímann Hilmarsson lögreglu-
varðstjóri á Blönduósi sagði í
morgun að málið væri i rannsókn og
hefði rannsóknarlögreglumaður
komið þeim til aðstoðar við vett-
vangsrannsókn. Ennþá væri lítið til
að fara eftir, en nokkrir hefðu verið
yfirheyrðir. Sumarbústaðurinn væri
á stað sem væri nokkuð út úr,en þó
væri þar mikil umferð. -JH.
frfálst, úkáð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 9, JÚl.Í 1980.
10 prósent
kauphækkun
1. sept.?
Kauphækkunin 1. september kynni
að verða um 10 prósent samkvæmt
nýjustu útreikningum sérfræðinga
kerfisins um verðhækkanir. I.
september á hækkun verðbóta að koma
til. Kauphækkunin byggist að sjálf-
sögðu á því að stjórnvöld grípi ekki inn
í.
Kauphækkun 1. september fer eftir
því, hversu mikið verðlag hækkar á 3ja
mánaða tímabilinu frá 1. maí til 1.
ágúst næstkomandi. Tímabilið er ekki
liðið, en sérfræðingarnir eru farnir að
spá i, hverjar hækkanirnar á þvi verði
að líkindum. Þannig hefur fengizt sú
niðurstaða, að verðhækkanir verði
10—11 prósent eða hugsanlega nokkru
meiri á þessu 3ja mánaða tímabili.
-HH.
Stal milljón og
gjaldeyri
Lögreglan tók mann í gær fyrir há-
degi eftir innbrot i hús við Hverfisgötu í
Reykjavík. Maðurinn hafði brotizt inn
í húsið og stolið þaðan einni milljón
króna i íslenzkum peningum og einnig
4 þúsund krónum í sænskri mynt.
Kauði komst þó ekki langt með fenginn
því hann var gómaður utan innbrots-
staðarins. -JH.
„Skitnar
platínur sem
biluðu”
„Það voru einar skitnar platínur
sem gáfu sig,” sögðu Óli Skagvík og
Bjarni Sveins við komuna til Kópaskers
í gærkvöld. „Við áttum eftir eina og
hálfa mílu á Hraunhafnartanga er vélin
bilaði og við vorum dregnir inn til
Raufarhafnar. Við misstum um fjóra
tíma og komum hingað kl. 23.14.
Annars er allt í lagi þótt að vísu sé laus
mótorfesting öðrum megin.”
-SA, Kópaskeri.
Kópavogur:
Bílveltaogfimm
f luttir á slysadeild
Fólksbíll valt í gær um kl. 18 við
Útvegsbankann við Smiðjuveg í Kópa-
vogi. Bíllinn fór eina veltu út af
veginum. 1 bílnum var ökumaður og
fjögur börn og voru allir fluttir á slysa-
deild til öryggis. Fólkið hafði hruflazt,
en'ekki meiðzt alvarlega. -JH.
FÍeiri
vitni vantar
—eftileru
Rannsókn á umferðarslysinu
sunnan Digranesbrúar i Kópavogi á
laugardagskvöldið, sem leiddi til dauða
Hólmfríðar Hákonardóttur, stendur
enn yfir. Mikilsverðar upplýsingar
sjónarvotta hafa fengizt en lögreglan i
Kópavogi telur að jafnvel geti enn fleiri
veitt upplýsingar. Eru því allir þeir sem
upplýsingar gætu gefið beðnir að hafa
samband við lögregluna í Kópavogi.
-A.St.
tPKRUpAGARtT
9. júlí 9342
Kodak pocket A I mvndavél.
Vinningshafar hringi
«33622.