Dagblaðið - 09.07.1980, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 09.07.1980, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1980. ' ---------------------- 4. DB á neytendamarkaði Emmessréttur ísaldarinnar: Hver á uppskriftina að bezta ísréttinum? Nú er sól hvað hæst á lofti og flestir vilja nota góða veðrið og eyða sem mestum tíma ulandyra. Á sól- björtum dögum er vinsælt að bjóða heimilisfólkinu upp á gómsæta ís- rétti. Við höfum ekki enn heyrt um neinn sem ekki finnst ís vera góður. Uppskriftirnar eru nærri óteljandi, um að gera að gefa hugarfluginu lausan tauminn. Tilvalið er að nota eitt rigningar- kvöld í að ,,finna upp” spennandi is- rétti og geyma þá i frystikistunni eða íshólfinu og grípa til þeirra næst þegar sólin skín í heiði. — Gleymið ekki að skrifa árangurinn niður og senda okkur uppskriftina. Þannig eruð þið orðnir þátttakendur i upp- skriftasamkeppni Emmessíss og Dag- blaðsins. Vegleg verðlaun eru í boði: þrjár utanlandsferðir í leiguflugi með Samvinnuferðum/Landsýn og ísút- tektarvinningar i Klakahöllinni fyrir tiu þúsund kr. ís og ávextir í ,,gamla daga” var gjarnan boðið upp á ,,ís og ávexti” i öllum ferm- ingarveizlum og meiriháttar afmælis- boðum. Þá var ekkert verið að hafa fyrir þvi að útbúa sérstaka rétti heldur opnuð dós af niðursoðnum ávöxtum og isinn borinn fram i heilu lagi, beint úr pakkanum. — Þetta þykir ekki nógu spennandi i dag. Og ætlunin með uppskriftasamkeppninni er einmitt að fá fram sem allra fíestar hugmyndir að íssamsetningum. Eina skilyrðið er að notaður sé Emmessis eða ístertur og frómas frá Emmess. Til þess aðgefa væntanlegum þátt- takendum hugmyndir eru hér nokkrar uppskriftir: Karairu'llurönd meó rjómais vr tihalin í áhætisrétt. (íætið þess aóeins aó hrenna >kkur ekki á sykrinum. Græni liturínn helzt til mikið áberandi GARÐSHORN Blómabeðin voru orðin iskyggilega græn cflir alla rigninguna. Það sér nefnilega enn i mold þegar allt er vel hreinsað þvi garðurinn okkar er ekki orðinn ganutll og gróinn eins og ég vil helzt hafa hann. Það var því ekki um annað að ræða en að bregða undir sig betri fælinum, fara i tréskóna og ná i arfaklórurnar. Annars er það ekki bara arfi sem vex að vild i blóma- beðuntim mínum heldur virðist aldrei vera liægt að ráða niðurlögum gras- stráa, sem sifellt stinga upp kollinum á nýjtim og nýjum stöðum. Það cr ekki ofsögum sagt af þvi hvc grasið er sterkt, ræturnar geta verið allt upp i 25—30 cm langar! Enda hefur bless- að grasið haldið lifinu i okkur Íslend- ingum i ellelu hundruð og sex ár! F.n það er með grasið i blóma- beðunum eins og kaffilykt i troðfull- um strætisvagni, hvort tveggja er óþolandi. Hjá Sölufélaginu eru til ýmiss konar illgresiseyðar en þeir vilja bara vinna bug á fleiru en grasi og arfa. Það leggur gjarnan blómin að velli um leið. Ég var að reyna að laga steinbeðið. Það vantar enn nokkuð mikið af steinbeðsplöntum i það. Ég er búin að sníkja heilmikið af plöntum hjá vintim og kunningjtim og nú verð ég vist að kaupa mér nokkrar plöntur. Þegar maður kaupir fjölærar jurtir virðist maður fá næsta litið fyrir pen- ingana sina. Þær virðast oft vera hálfræfilslegar en gleymum ekki að þær eiga eftir að gleðja okkur um ókomin ár. Stundum vill meira að segja fara svo að okkur þyki við kannski hafa fengið fullmikið i okkar hlut þegar plöntumar fara „eins og eldur í sinu” um allan garðinn. — Þegar slikar plöntur eru gróðursettar er ágætt ráð að gróðursetja þær i botnlausa plastdós til þess að halda þeim i skefjum. Dósin er þá sett í kringum plöntuna og látin alveg niður i moldina. Það kermir í veg fyrir aðplantan ,,fari á flakk”. Enn er hægt að fá plöntur, bæði fjölærar og sumarblóm, i nokkrum gróðarstöðvum höfuðborgarinnar. I Valsgarði er eitthvað smávegis til af fjölærum plöntum sem kosta frá 500 upp i 2000 kr. Það eru steinbrjótar og hnoðrar sem eru ódýrust en dýrasta jurtin er bóndarós. í Garðshorni kosta allar plönturnar 500 kr. og er enn til dágott úrval. Þar eru einnig til sumarblóm á 200 kr. stykkið. Í Alaska í Breiðholti kosta minnstu fjölæru plönturnar 600 kr., eru það steinbrjótar og aðrar litlar plöntur, stærri plöntur kosta 800 kr. Sumar- blóm voru til í Alaska i Breiðholti og kostuðu 210 kr. stykkið. - A.Bj. Flestir íslendingar þekkja regnfang sem er einhver elzta garflplanta hér á landi. Þessi planta óx i öllum görðum i gamla daga og oinnig mátti finna hana i kirkjugörðum vifla um land. í Skrúðgarfla- bókinni segir afl þetta sá gömul lækningajurt og framúrskarandi harflgorð. Hún or hálfrunnakennd og stendur af sár öll veflur án stuðnings. Blöðin em ilmandi og henta vel til afskurflar i vasa bæfli með öðmm blómum og ainnig ein sér. Regnfangi er fjölgað mefl skiptingu. DB-mynd Bjarnleifur. /Ftlazt er til aó ísréttirnir séu ekki hara (■iiðir á hraiióið heldur líka lallegir aó sjá. Klestir eiga l'alleu ttliis til aó hera isrétt aldarinnar fram i. Þetta er hanana- ísinn. Bananaís Karamellurönd Bananasneiðar lagðar í botn á glasi, þar ofan á tvær sneiðar af Emmessís og rjómatoppur efst. Skreytt með söxuðum hnetukjörn- um. Berið súkkulaðisósu með. ís með bláberjum 1 /2 I Emmessís 250 g niðursoðin bláber Eggjasósa: 2 eggjarauður og 2 msk sykur Þeytið eggjarauður og sykur. Skiptið isnum og bláberjumim i fjögur glös og hellið eggjasósunni yfir. Emmes-frómas með jarðarberjarjóma Frómasrönd, Emmess l/2dósjarðarber 1/4 1 þeyttur rjómi Takið fallegustu jarðarberin frá til skreytinga, merjið hin með gaffli og blandið þeim í stífþeyttan rjómann. Hvolfið frómasinu á disk og látið jarðarberjarjómann í miðju hrings- ins. Skreytið með berjunum. með ís 200g sykur 1 msk sykur 2 dl vatn 1/2 litri mjólk 2 dl rjómi I lítri vanilluís Segg Brúnið sykurinn og látið hluta i hringform. Vatnið látið saman við afganginn og soðið þar til úr verður þykkt síróp sem er kælt og geymt þar til síðar. Eggin eru þeytt með sykrin- um og mjólkinni og látið í hringform- ið. Bakað í vatnsbaði i 125°C heitum ofni í um það bil einn klukkutima. Karamelluröndin er kæld, hvolft á fat og fyllt með ís. Smávegis af kara- rnellusirópinu er hellt yfir og afgang- inum blandað saman við stífþeyttan rjómann. Hér á siðunni má sjá seðilinn sem útfylla á með uppskriftunum. Alla seðla á að merkja með dulnefni.Dul- nefnið er siðan sent með i lokuðu um- slagi. Klippið seðilinn úr blaðinu i dag og geymið þar til uppskrift að Emmessrétti isaldarinnar liggur fyrir. F.kkert er þvi til fyrirstöðu að senda fleiri en eina uppskrift. -A.Bj. emmessréttur ísaldarinnar Nafnrcttar Dulnefm sendanda': nú er öldín önntír-nú er emmess ísöld V

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.