Dagblaðið - 09.07.1980, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 09.07.1980, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLl 1980. Bflasala Eggerts svarar: VltlOERDIN KOSTAÐI 2,5-2,7 MILUÓNIR Spurning dagsins Hlustarðu meira á útvarp eftir afl s|ón- varpifl fór í sumar- leyfi? Magnús Jónasson skrifar fyrir hönd Bílasölu Eggerts. Bílasala Eggerts viil með athuga- semd þessari mótmæla frétt þeirri sem birtist í Dagblaðinu hinn 25. júni sl. um bilakaup er Eggert bílasali gerði. Fréttin gefur mjög ranga mynd af þeim viðskiptum sem þarna áttu .sér stað og af henni verður varla annað ráðið en að Eggert og/eða bílasalan hafi reynt að féfletta þennan viðskiptavin sinn. Það er þó öðru nær og skal hér reynt að sýna fram á hið rétta i málinu. Má það merkilegt vera að blaða- menn þeir sem sömdu fréttina skuli hafa birt hana án þess að reyna að ná í Eggert eða einhvern þann sem gæti veitt upplýsingar fyrir hans hönd, eða þá að biða með fréttina þar til slikt hefði reynzt unnt. Það er enn merki legra þar sem annar blaðámannanna er fréttastjóri Dagblaðsins en hann hefur ekki haft í huga hversu æru- meiðandi slík frétt getur verið. Bílasala Eggerts vill taka fram eftirfarandi atriði sem sýna það að ekki var um neinn óheiðarleika að ræða af hálfu Eggerts eða bílasöl- unnar við kaup þessa bíls. „misferli og svik”. Það er ekki rétt þvi pilturinn leitaði til Rannsóknar- lögreglu ríkisins í því skyni að fá lið- sinni hennar til að rifta kaupunum. Fréttin hefur valdifl álitshnekki Bílasala Eggerts vill að lokum ítreka óánægju sina með meðhöndl- un Dagblaðsins á þessari frétt. Bíla- salan skilur það að dagblöðin eigi í samkeppni um fréttir en þrátt fyrir þetta má ekki gleyma að frétt á að túlka atburði á sem hlutlausastan hátt og i-máli sem þessu er það ekki mögulegt nema eftir upplýsingum beggja málsaðila. í þessu tilfelli var frétt Dagblaðsins röng og villandi og hún gæti orðið hættuleg afkomu fyrirtækisins komi hið sanna ekki fram. Bílasala Eggerts vill að Iokum beina þeim eindregnu tilmælum til Dagblaðsins að það birti þessa athugasemd á sama stað í blaðinu og hin umrædda frétt var, ef það gæti orðið til þess að fyrrverandi sem væntanlegir viðskiptavinir reki augun í hana og geri sér grein fyrir staðreyndum málsins. Aths.: Sú staðreynd að forráðamenn bílasölu Eggerts féllust á að rifta gerðum kaupum um leið og Iögreglan var komin í spilið segir meiri sögu en allar athugasemdir frá bílasölunum. Hvað varðar þá full- yrðingu Magnúsar Jónassonar að af hálfu DB hafi ekki verið gerð tilraun til að ná í Eggert Sveinbjörnsson þá skal á það bent að hann var sagður í laxveiði og ekki hægt að ná i hann. Fullyrðingin er því röng. Þess má geta til upplýsingar fyrir lesendur að bréf Magnúsar Jónas- sonar er önnur athugasemdin sem DB hefur borizt frá Bílasölu Eggerts vegna fréttar blaðsins um þessi viðskipti. í þeirri fyrri var frétt blaðsins af viöskiptunum staðfest lið fyrir lið. Síðan hafa komið upp bak- þankar á bílasölunni, fyrri athuga- semd var dregin til baka og þessi send inn í staðinn. Hún segir í veiga- miklum atriðum allt aðra sögu og fegurri fyrir bílasöluna. Hin upphaf- lega frétt blaðsins af þessum viðskiptum stendur þvi enn óhögguð. -ÓV. Raddir lesenda Aðdragandi kaupanna „Hafnfirðingurinn ungi” kom á Bilasölu Eggerts ásamt tveim félögum sínum og bauð Eggerti bíl- inn til kaups. Hann hafði áður farið með bílinn i Bílabankann í Reykjavík og fengið þar tilboð í hann er hann hafnaði. Allt tal um að honum hafi verið sagt að hann fengi ekki nema fjórar milljónir fyrir bílinn er upp- spuni og geta piltarnir sem með honum voru staðfest það. Pilturinn gekk fast eftir að fá tilboð í bílinn og kvaðst vanta peninga til skemmtana um helgina. Var honum strax bent á að setja bílinn í sýningarsal bílasöl- unnar og bíða tilboða þar sem Eggert myndi ekki bjóða honum jafnmikið og hann gæti fengið með því móti. Sagðist hann ekki geta beðið og bar fyrir títt nefnda helgarskemmtan og fyrirhugaða sjúkrahúsvist sína. Við skoðun á bílnum kom í ljós að hann hafði lent i árekstri oghafði verið illa sprautaður, var alsprautun því nauðsynleg. Fjögur dekk af fimm voru illa farin og pústkerfi lélegt. Lélegur gangur var í vélinni. Eftir þessa skoðun gerði Eggert honum margumrætt tilboð. Var á engan hátt rekið á eftir piltinum af hálfu Eggerts eða bílasölunnar enda var honum að sjálfsögðu frjálst að taka eða hafna tilboðinu. Eftir að hafa falazt eftir láni hjá öðrum félaga sinna vegna tilvonandi helgarskemmtunar, en fengið neitun, ákvað pilturinn í samráði við félaga sína að taka tilboði Eggerts. Var pilturinn margspurður að því hvort bíllinn væri ekki í góðu lagi, að öðru leyti en framan greinir, og kvað hann svo vera. Bíllinn stóð í sýningarsal bílasöl- unnar yfir helgina en á mánudags- morgun kom í ljós stór olíupollur undir bilnum. Var strax farið með bílinn á verkstæði bifreiðaumboðsins og var þar úrskurðað að sjálfskipting bilsins væri ónýt og viðgerð myndi kosta um 900 þúsund krónur. Mundi einhver sem keypti bíl í góðri trú en kemst síðan að því að í honum er galli sem kostar 900 þúsund krónur að gera við taka því þegjandi? Svari nú hver fyrir sig. Varðandi þá upphæð sem sett var á bílinn i sýningarsal var mönnum, sem um hann spurðu, bent á að innifalið í verðinu væri sprautun, ný dekk, nýtt pústkerfi, vélarstilling og viðgerð á sjálfskiptingu. Viðgerð að upphæð 2,5 til 2,7 milljónir króna. Ekki um „misferli og svik" að ræfla í Dagblaðsfréttinni kemur fram að seljandi hafi kært kaupanda fyrir Smáauglýsingar BIAÐSINS Þverholti11 sími 2 70 22 Opið til kl.10 í kvöld Finnur Pétursson: Já, ég hlusta mdra á kvöldin. Annars geri ég það nú oftast með öðru eyranu. Hanslna Traustadóttir: Ég hugsa afi fólk geri það. Sjálf geri ég þafl núna þegar ég er heima yfir sumartimann. Hólmgelr Bjömsson: Ég hlusta aOtáf meira á útvarpið. Það er ekkcrt varið i sjónvarpið. Anna Pála Þorstelnsdóttlr: Já, ég geri meira að þvi. Guðmundur Jónsson: Já, það geri ég.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.