Dagblaðið - 09.07.1980, Qupperneq 14
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLl.1980.
r
s
Kvikmyndun á hefst f næstu viku:
Yngri Andrinn „fannst
á Lækjartorgi 17. júní
— .....
Eftir rúma viku hefst kvikmyndun
myndarinnar „Punktur, punktur,
komma, strik”, en myndin er sem
kunnugt er byggð á samnefndri skáld-
sögu Péturs Gunnarssonar. Leikstjóri
myndarinnar er Þorsteinn Jónsson og
hefur hann einnig samið kvikmynda-
handritið ásamt Pétri Gunnarssyni.
Undirbúningur kvikmyndatökunnar
er nú á lokastigi, en myndin verður að
mestu leyti tekin í vesturbænum í
Reykjavík. Einnig verða atriði tekin
víðar í borginni, á Suðurnesjum og
sveitaatriði myndarinnar verða kvik-
mynduð að Indriðastöðum í Skorradai.
Fyrri hluti myndarinnar gerist um
1957, þegar söguhetjan, Andri, er 10
ára, en síðari hlutinn fimm árum síðar.
Þá eru atriði í myndinni frá árínu
1947. Að sögn Þórhalls Sigurðssonar,
aðstoðarleikstjóra, eru útisenurnar frá
1957 teknar á Framnesvegi og Selja-
vegi, en engar útisenur eru frá árinu
1947. Talsverðum erfiðleikum hefur
verið bundið að fá leikmuni frá þessum
árum, einkanlega þó barnaföt, þar sem
fólk geymir þau sjaldan, heldur hendir
þeim þegar þau eru orðin gatslitin. Um
300 manns koma fram í myndinni, svo
nægur klæðnaður frá árunum 1955—
’62 verður að vera til staðar. Þá hefur
einnig alls kyns hlutum og húsgögnum
frá þessum tíma verið safnaðsaman.
Sem fyrr getur koma um 300 manns
fram i myndinni og var farið í skóla í
Reykjavík og nágrenni og lengi leitað
að leikurum. Er nú ráðið í öll meiri-
háttar hlutverk, þó enn vanti fólk í
nokkur aukahlutverk. Er hér aðallega
um að ræða fólk á aldrinum 30—80
ára.
_____''
,<i»**!
í einni skólastofunni i Hagaskóla, þar sem aðalstöóvar kvikmyndagerðarmanna eru, ægir saman alls kyns dóti og munum, sem nota á í myndinni. Björn Björnsson leik
myndasmiður á mikið verk fyrir höndum i þeim efnum.
..jJF
KEFLA VÍK - NJARÐ-
VÍK-ÍBÚD
Rammi h.f. þarf að útvega litla íbúð (1 —2ja
herbergja), helzt með sérinngangi, í Keflavík eða
Njarðvík fyrir starfsmann sinn.
Vinsamlega hafið samband við skrifstofu vora að
Bakkastíg 16, Njarðvík. Sími 92-1601.
trfo s£jp©í«/*
é!
Dönsku hústjötam rra
Trío hafa löngu sannað
ágæti sitt hér á iandi.
Verðfrákr. 180 þús.
Þau eru bæði vatnsheld og vindþolin, rúm-
góð og hlý. Kynnizt þeim af eigin raun og
skoðið þau uppsett að
Tjaktbúdum, Geithálsi
w——yBLm—mmVÍdSudurlandsveg - Simi44392.*—,
Börnin í 10 ára bekknum hans Andra
eru flest úr Öldutúnsskóla i Hafnar-
firði, en mörg barnanna eru úr Lækjar-
skóla og úr ýmsum skólum í Reykjavík.
Andra 10 ára leikur Pétur Jónsson,
strákur úr Breiðholtinu, sem „fannst”
niðri á Lækjartorgi 17. júní, þar sem
hann var ásamt frænku sinni að horfa á
barnaskemmtun. Hallur Helgason
leikur hins vegar Andra 15 ára. Hallur
er úr Flensborgarskóla í Hafnarfirði,
en þaðan eru flestir unglingarnir í
myndinni.
Kristbjörg Kjeld og Erlingur Gísla-
son leika hlutverk foreldra, og Valde-
mar Helgason og Áróra Halldórsdóttir
fara meö hlutverk afans og ömmunn-
ar. Aðrir leikarar eru m.a. Bjarni
Steingrímsson, Halla Guðmundsdóttir,
Karl Guðmundsson, Stefán frá Möðru-
dal, Guðmundur Haraldsson og Ási í
Bæ.
Þess má geta að samkomulag hefur
náðst milli aðstandenda kvikmyndar-
innar um greiðslur til leikara fyrir þátt-
töku í myndinni. Félag islenzkra
leikara og Félag kvikmyndagerðar-
manna hafa enn ekki orðið ásátt um
launataxta, sem fylgja á í sambandi við
kvikmyndagerð. Verða leikurum i
„Punktur, punktur, komma, strik ”
greidd laun samkvæmt væntanlegum
samningi félaganna. Verði taxti þessi
ekki tilbúinn, þá er myndin verður
frumsýnd, skulu leikurum greidd laun,
samkvæmt einhliða launataxta, sem
þeir hafa sett fram.
Gert er ráð fyrir að kostnaður við
myndina verði um 100 milljónir, en
styrkur kvikmyndasjóðs er ekki nema
brot af þeirri upphæð. Að sögn for-
ráðamanna myndarinnar þurfa um
50.000 manns að sjá myndina, eigi
endaraðnásaman.
Kvikmyndataka stendur yfir
dagana 13. júlí til 24. ágúst, en frum-
sýning myndarinnar er áætluð þann I.
marzá næstaári.
-SA.
I jölskyldan saman komin: Hallur Helgason, Andri 15 ára, Krlingur Gislason,
faðirinn, Kristbjörg Kjeld, móðirin, og Pétur Jónsson, Andri lOára.
DB-myndir Bj. Bj.