Dagblaðið - 19.09.1980, Síða 2
.
Fyrirbyggjum óhugnanlegan sjúkdóm:
Mætum í ónæmis-
prófin gegn
rauðum hundum
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1980.
Eitthvað er það nú vafasamt að Bandarikjaher vilji fslenzka flugmenn á
orrustuþotur en hvað með þyrlurnar og kafbátacftirlitsvélarnar?
Marluug Kinarsdóttir hringdi: næmispróf vegna rauðra hunda á
Á Heilsuverndarstftftinni f<*r fram öllum konum frá 16 til 40 ára. beim
Sársaukinn af nálinni er sáralitill miðað við þann sem gæti seinna orðið.
DB-mynd BP.
að kostnaðarlausu og hafa verið send
hvatningarbréf til þeirra. Viðbrögð
þeirra eru alls ekki fullnægjandi og
er ég bæði sár og hissa á slíku áhuga-
leysi. Ég tel það mjög mikla framför
að hægt skuli að fyrirbyggja að fleiri
börn fæðist fötluð vegna þessa
óhugnanlega sjúkdóms sem getur
læðzt að fólki í svefni og það ekkert
vitað fyrr en um seinan, eins og i
mínu tilfelli fyrir 13 árum, en þá var
engin slík þjónusta.
Eins og flestir vita eru rauðir
hundar hættulegastir fyrstu mánuði
meðgöngutímans og því kannski
skaðinn skeður þegar konan fer í
fyrstu mæðraskoðun. Því er
nauðsynlegt að konur séu öruggar
áður en þær verða barnshafandi.
Bifreiðaeftirlitsmenn við vinnu slna. DB-mynd: Hörður.
ERU AUGU ÞEIRRA LOKUÐ?
Okuskírteinið var ógilt
H.G. hringdi:
Ég rakst á lesendabréf i Dag-
blaðinu þar sem spurt var hvers
végna Bifreiðaeftirlitið bæði menn
um ökuskírteini þegar þeir kæmu
með bíla i skoðun. Mér fannst það
dálítið broslegt þegar ég sá svar
starfsmanns um að verið væri að
athuga hvort skírteinið væri í gildi
því í sumar komst ég að því að
ökuskirteini mitt væri búið að vera
ógilt i tvö ár. Hafði ég þó sýnt
ökuskirteini mitt við skoðun ’79 en
starfsmenn Bifreiðaeftirlitsins
greinilega ekkert séð athugavert.
Hins vegar var ekkert spurt um
ökuskirteinið þegar ég lét skoða
bilinn minn í ár. Það virðist þvi sem
litið sé á ökuskirteinin með lokuðum
augum.
ISLENZKA ,
FLUGMENN A
ÞYRLURNAR
— Eðlilegur og sanngjarn skerfur
okkar til vama vestrænna
lýðræðisþjóða
„Ættjarðarvinur” hringdi:
í framhaldi af fréttum um ósk
rikisstjórnarinnar um að Flugleiðir
taki að sér flutninga fyrir varnarliðið
langar mig að kasta fram nokkrum
hugmyndum. Væri ekki eðlilegt að
eitthvað af þeim islenzku flug-
mönnum, sem nú ganga um at-
vinnulausir, fengju vinnu hjá varnar-
liðinu? Er einhver munur á því að
fljúga björgunarþyrlum varnarliðsins
eða þyrlum landhelgisgæzlunnar?
Eða að fljúga eftirlitsflugvélum
varnarliðsins eða landhelgis-
gæzlunnar? Ég treysti islenzkum
flugmönnum fullkomlega fyrir þeim
verkefnum sem varnarliðið sinnir og
með því að koma þeim í vinnu hjá
varnarliðinu værum við um leið að
leggja eðlilegan og sanngjarnan skerf
okkar til varna vestrænna lýðræðis-
þjóða.
Tommi og Jemi
eruekkinóg
jSigrún Ragnarsdóttir, Barftaströnd,
skrifar:
Ég skrifa vegna þess að tvær
jsíðustu vikur hefur það gerzt
nokkrum sinnum að myndir, sem
jhafa verið sýndar í sjónvarpinu, hafa
verið bannaðar börnum.
Þessu beini ég til þeirra sem starfa
á sjónvarpinu vegna þess að börn
hafa líka ánægju af þvi að horfa á
sjónvarp ef eitthvað er varið i það.
Þið verðið að sýna myndir sem börn
mega lika horfa á. Tommi og Jenni
eru ekki nóg fyrir börnin.
Heimavinnandi húsmæður:
Komið i mömmuklúbb
Vigdís Stefánsdóttir hringdi:
9. september sl. kynnti ég á les-
endasíðunni hugmynd um,
mömmuklúbba. Nú langar mig að
biðja þær mömmur sem áhuga hefðu
á þvi að koma í svona klúbb að hafa
samband við mig. Ég bý í
Breiöholtinu og siminn er 73849.
Enn um Gervasoni:
Verður að hlíta landslögum
Irlu Magnúsdóttir, gæzlukona,
skrlfar:
Alnafna min, Erla Magnúsdóttir,
er stóryrt í skrifum slnurn I DB þann
16. september, er hún vill bjóða
Patríck Gervasoni velkomlnn.
Vist eigum við islendingar láni að
lagna að þurfa ekki að búa við her-
skyldu og sömulelftls skiljum við flest
þá sem ekki vilja una við hana. En
málið er bara ekki svo einfalt og E.
M. vill gera það. Maðurinn er
Iranskur rlkisborgari og sem sllkur
skyldur til að hllta slnutn lands-
lögum, Þess vegna er deilt um það
hvort hann skuli velkominn eða ekki.
Éúð Pr sjálfsagt að bjóða ypíiiomns
þá sern hingað vilja koma, en gerum
okkur grein fyrir þvi að þegar um það
er að ræða að flýja herskyldu þá
heyrir það undir afbrot I því landi
sem við er átt. Einnig er það þannig I
flestum vestrænum löndum og þá
sennllega I Frakklandi llka, að þeir
sem ýmist vegna trúarskoðana eða
sérsta)<ra Hfsviðhorfa prn á móti hpr-
mpnmlWt 8Pta átt kastá hví aft sinna
öðrum störfum I hernum en þeint sem
við köllum venjuleg hermannastörf.
Raddir
lesenda
En skylduna verða þeir samt að inna
af hendi.
Ómaklegar ásakanir:
BORGIN HEFUR GERT ALLT FYRIR HANA
Hafdís Harftardóttir (3489-9320)
hringdi:
Ég er alls ekki sammála þeim á-
sökunum, sem komið hafa fram á
Félagsmálastofnunina vegna 6 bama
móðurjnnar. Það viil svo til, að ég
þekki aðeins til málavaxta. Þessi
kona býr í húsnæði frá borginni, hún
hefur fengið heimilishjálp frá borg-
inni og einnig er henni útvegað fæði
og |dæði frá borginni- Mér finnst
Félagsmálastofnunin hafa gert ailt
sem hægt er fyrir konuna. Ekki
vinnur manneskjan úti og því þarf
borgin að sjá fyrir henni. Ég veit til
þess að konan hafi ekki hreinsáð
stigaganginn og mér hefur fundizt
stundum að krakkarnir séu algerlega
eftirlitslausir. Börnin hafa áður verið
tekin af henni og fór hún þá með
málið í Visi. Það segir sig sjálft að
þegar gripið er til þess úrræðis að
taka börnin frá henni þá hlýtur eitt-
hvað að vera að.
-