Dagblaðið - 19.09.1980, Side 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1980.
3
Burt með svartnættismyndir
— Fleiri íslenzk leikrit
Guðmunda Jóna Jónsdóttir frá
Hofi, Dýrafirði, skrifar:
Furðulegt er hvað ráðamenn
sjónvarpsins bjóða gjaldendum upp á
í dagskrá sjónvarpsins. Það er eins og
jreir kappkosti að draga fram allar
þær myndir sem sýna nægan Ijót-
leika. Og nú voru þeir að bæta við
nýjum myndaflokki, Helförinni, sem
ég held að flestir hafi lokað fyrir.
Þessar myndir eru ekki mannbætandi
en öllum til skammar sem hafa
einhverja sómatilfinningu. Þið vitið
vist ekki hvað það veldur miklum
leiðindum á heimilum að þurfa að
reka suma út þegar sýna á Ijótar
myndir sem kannski einn eða tveir á
stóru heimili þola að horfa á. Af
hverju fáum við ekki að sjá frekar
islenzku leikritin, eins og t.d. Skáld-
Rósu, enginn ætti að tapa á því. Eru
þau svo miklu dýrari en þessar
manndrápsmynciir, sem alltaf ganga
fyrir?
Þið sem eigið að stytta því fólki
stundir sem hefur fá tækifæri til að
fara á mannamót, ættuð að hætta að
sýna hryllings- og svartnættismyndir.
Við þökkum vel fyrir allt það góða og
skemmtilega efni sem kemur frá
ykkur.
Skyldu þeir ná bófanum?
\
/
Spurning
dagsins
Hvaða fjall finnst þér
fegurst á íslandi?
Elin Hirst nemi: Það eru svo mörg
falleg, ég veit það ekki. Kannski
Herðubreið.
Maja Greta húsmóðir: Ja, það er nú
það. Mér finnsl Herðubreið alltaf jafn
l'alleg.
ISnaðarblaðið flytur vandaðar greinar og fréttir um iðnað á íslandi og erlendis. Blaðið vill stuðla að nýjungum
og bættu upplýsingastreymi til íslenzks iðnaðar með því að koma á framfæri ýmsum tækninýjungum, sem
notagildi hafa á íslandi og með því að benda á nýja viðskipta- og framleiðslumöguleika í öllum greinum.
Iðnaðarblaðið er fróðlegt og
gagnlegt þeim, sem vilja vera
með í að þróa arðbæran iðnað á
Islandi.
Áskriftarsími 82300 og 82302
Frjálst framtak hf.
Óska eftir áskrift
(ver5júlí-jan. kr. 6.970)
Nafn _____________________________________
Heimili ----------------------------------
Sími -------------------------------------
Sendist til Iðnaðarblaðsins, Ármúla 18, Rvk.
Fjóla Kristjánsdóttir húsmó/llr og
skrifstofumaður: Eyrarfjall við
Skutulsfjörð.
Páll Sigurðsson. flytur hross: Þau eru
nú svo mörg l'alleg, Snæfellsjökull er
anz myndarlegur ogeinnig Baula.
Viggó Nathanaelsson, of gamall til að
starfa: Ég mundi segja að það væri
Arnarnúpur í Dýrafirði.
Gunnar Sigurmundsson, gerír ekki
neitt: Ég á ákaflega erfitt með að gera
upp á milli þeirra. Ég gæti nefnt
Kirkjufell við Grundarfjörð og Þyril i
Hvalfirði.