Dagblaðið - 19.09.1980, Síða 24
Félag íslenzka prentiðnaðarins:
Formgalli á verk-
fallsboðuninni
- verkfall í dagblaða-
prentsmiðjunum
á fímmtudag ólög-
legt og jafnvel öll
verkfallsboðunin
Almennur fclagsfundur í Félagi
islenzka preniiönaðarins lýsti í gær
furðu sinni á þeim ótímabæru verk-
fallsboðunum bókagerðarmanna,
sem þegar hafa spillt fyrir gangi
samningamála. Fundurinn lagði til við
sambandsstjórn VSÍ að komi til frek-
ari vinnustöðvunaraðgerða einstakra
viðsemjenda FÍP boði VSÍ verkbann
hjá öllum launþegum er starfa innan
FÍP.
Svo sem DB greindi frá í gær
boðuðu Bókbindarafélag íslands,
Grafíska sveinafélagið og Hið
íslenzka prentarafélag til vinnu-
stöðvunar hjá dagblaðaprent-
smiðjunum á fimmtudag, föstudag
og laugardag í næstu viku og hjá
öðrum prentsmiðjum siðan 28., 29.,
og 30. september. Grétar G. Nikulás-
son framkvæmdastjóri FÍP sagði i
morgun að enginn vafi væri á því að
formgalli væri á verkfallsboðun í
dagblaðsprentsmiðjunum og væri
verkfall á fimmtudaginn því ólöglegt.
Boðunarfreslur væri sjö dagar og
hefðu prentarar póstsent verkfalls-
boðunina á miðvikudaginn, en hún
ekki borizt skrifstofu FÍP fyrr en á
fimmtudagsmorgun. Við lýstum því
ábyrgð á þá sem brjóta lög og fara í
verkfall á fimmtudaginn. Raunar má
vera að öll boðunin hjá dag-
blaðaprentsmiðjunum sé ólögleg. ”
Grétar sagði að þær sérkröfur sem
aðallega væri deilt um væri
tölvusetning. Prentarar vildu ekki
blaðamenn á setningartækin og vildu
tryggja sveinum, sem kæmu úr námi,
atvinnuöryggi. ,,Við höfum bent
þeim á að enginn setjari er at-
vinnulaus hér. Okkar samningar eru
miðaðir við samninga í Danmörku og
Svíþjóð og náðist samkomulag um þá
fyrir þremur árum. Krafa þeirra er
hins vegar óskalisti frá Norður-
löndum, sem hvergi hefur verið sam-
þykktur. Þá rekast kröfur þessara
þriggja félaga hverjar á aðra.”
-JH.
Varaformaður Hins íslenzka
prentarafélags:
„VIÐBRÖGD
FÍP SETJA
MEIRIHÖRKU
í DEILUNA”
— ekki um formgalla að ræða og
furðulegt að FÍP skuli hengja sig
á þetta atriði
,,Ég álít að hér sé ekki um form- við höfum engin svör fengið. Það er
galla við boðun að ræða,” sagði Ijóst, að ef við fáum ekki
varaformaður Hins íslenzka meðákvörðunarrétt í þeim málum, er
prentarafélags í morgun. „Við póst- atvinnuöryggi okkar stefnt í hættu.
settum verkfallsboðunina á Við förum fram á það að prent-
. miðvikudag kl. 14.30, bæði express iðnaðarfólk sjái um prentiðnina sem
og í ábyrgð. Boðunin berst skrifstofu hingað til og fylgjum þar fordæmi al-
FÍP hins vegar ekki fyrr en þjóðasamtaka okkar og raunar
morguninn eftir og er það með ólík- einnig samþykkt alþjóðasambands
indum frá hálfu Póstsins. Viðsemj- blaðamanna, sem er sammála því að
endur okkar líta þvi ekki á fimmtu- prentarar sjái áfram um tæknihliðina
daginn sem löglega boðaðan verk- á prentuninni.
fallsdag. Það er furðulegt af þeim að Við höfum ekki ákveðið framhald
hengja sig í þetta atriði og eigurn við á aðgerðum okkar eftir þessi verk-
eftir að athuga það nánar. En ljóst er föll. Þessar stuttu aðgerðir eru til
að þessi viðbrögð FÍP setja meiri þess að knýja á um raunhæfar
hörku í deiluna. viðræður og við vonum að svo
Kröfur okkar um tæknimál og at- verði.”
vinnuöryggi hafa verið ræddar, en -JH.
Hvað varðar mig um Atlantshafsflug, hækkandi verð á kjöt-
skrokkum eða kennaraþras i Grindavík? Bezt að nota tímann vel
á meðan maður er ungur og leika sér sem mest og bezt.
Sigurður Þorrifesti ungan svein á filmu þar sem hann var að leik
á gœzluvelli við Asparfell I Breiðholti.
Launaflokkasamningar við öll sérsambönd ASI:
SAMNINGAR VID KOKK-
ANA SIGLDU í STRAND
Samningafundir matreiðslumanna
og viðsemjenda þeirra um röðun
starfsheita i launafíokka stóðu frá kl.
14 tll miðnættís í gær án þess að
samningar tækjust. Aðallega var
deilt um röðun í einn launaflokk.
Tallölbr að anhar fundur verði boð-
aödrá morglin.
.........■ i
Þá hittust aðilar að kjaradeilu
bókagerðarmanna hjá sáttasemjara í
gærkvöldi. Sem kunnugt er boða
bókagerðarmenn verkfall hjá dag-
blöðUnum i lok hæstu viku.
Samningar tókust í gær við Sam-
band byggingarmanna og Málm- og
skipasmiðasamband islands um
launaflokkaröðun. Með þessu nýja
launaflokkakerfi einfaldast launa-
kerfi iðnaðarmanna mikið og álaga-
kerfi þeirra er þar með afnumið.
Hafa nú öll sérsambönd ASl samið
um launaflokkaröðun og eru menn á
einu máli um að mikilvægum áfanga
sé náð. Éf næst á dagskrá að snúa sér
að sjálfum launakröfum verkalýðs-
hreyfingarinnar.
í dag er boðaður fundur kl. 14 með
múrurum, pípulagningarmönnum,
veggfóðrurum og málurum og kl. 15
með bökurum, hárgreiðslufólki,
kjötiðnaðarmönnum og nótagerðar-
mönnum. -ARH
irjálst, óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 19. SEPT. 1980.
Forsetakosningamar
í sumar:
Réðu konur
úrslitum
um kjör
Vigdísar
1 forsetakosningunum í sumar var
kosningaþátttaka kvenna 0,8% meiri
en karla, en hún hefur ævinlega verið
minni. 64519 karlar greiddu atkvæði
eða 90,1% og 65076 konur eða 90,9%.
Þetta kemur m.a. fram i nýjum hag-
skýrslum sem gefnar eru út um forseta-
kjör 1980. Gæti þetta rennt stoðum
undir þá kenningu að það hafi verið
konur, sem komu Vigdísi Finnboga-
dótturá Bessastaði.
Þá kemur einnig fram að minnstu
munaði á þátttöku kvenna og karla
áður í forsetakosningunum 1968 1,7%
og við alþingiskosningar 1978 og 1979
2.3%. Við þjóðaratkvæðagreiðslu árið
1944 munaði ekki nema 0,3 % hve þátt-
taka karla var meiri, en atkvæða-
greiðsla fór þá fram með óvenjulegum
hætti. Hún stóð í 4 daga og heima-
kosningar voru leyfðar.
Mest þátttaka í forsetakosningunum
í sumar var í Suðurlandskjördæmi 92%
en minnst í Norðurlandskjördæmi
vestra 88,6%. Þátttáka karla var mest í
Suðurlandskjördæmi og Austurlands-
kjördæmi 91,4% og kvenna í Suður-
Tandskjördæmi 92,6%. í öllum
kjördæmum nema i Vesturlands-
kjördæmi var þátttaka kvenna meiri en
karla.
Miðað við kjördæmisskipan þá
sem nú gildir hafði þátttaka kvenna
verið meiri en karla einu sinni áður
siðan 1946, er kosningaþátttaka
kvenna komst í núverandi horf, það
var i Reykjaneskjördæmi 1949.
Líklegt er að framboð konu í fyrsta
sinn hafi ráðið einhverju hér um' og
konur almennt drifið sig á kjörstað til
að kjósa sér konu sem forseta. -ELA.
L0ÐNU-
VEIÐIN
DRÆM
„Það er ekkert fjör í þessu enn. Við
vonum bara,” sagði Andrés Finnboga-
son hjá Loðnunefnd er blaðamaður DB
jleitaði fréttaæf loðnuveiðum í morgun.
„Þetta hefur hreínlegá ékkert verið
;undanfarið en það getur breytzt
fljótt,” sagði Andrés. Hann sagði að
hæpið væri að búast við miklum
veiðum í þessum mánuði. Þó hefði
fundizt loðna nær landi en áður.
Siðastliðinn sólarhring tilkynntu fimm
'bátar um afla. -GAJ
UJKKUDAGAR:
19. SEPTEMBER 21677 I
Vöruúttekt aö eigin vali
frá Liverpool.
Vinningshafar hringi
ísjnw3362í^^