Dagblaðið - 03.10.1980, Síða 1
6. ÁRG. — FÖSTUDAGUR3. OKTÓBER 1980 - 223. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022.
Smyglmálið á fríhafnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli:
Smyglid talið hafa
staðiö 110 mánuði
grunur um að f ríhaf narstarfsmenn haf i látið smíða lykil að tollvörugeymslunni
„Rannsókn hins meinta
smyglmáls á Keflavikurflugvelli
miðar allvel og fjöldi manna hefur
verið yfirheyrður,” sagði Ólafur
I. Hannesson, rannsóknardómari við
lögreglustjóraembættið á Keflavíkur-
flugvelli, í morgun.
„Rannsókn okkar beinist aðallega
að smygli á 10 mánaða tímabili.
Málin hafa nokkuð skýrzt en fleiri
varðhaldsúrskurðir hafa ekki veriA
kveðnir upp,” sagði Ólafur, en
neitaði frekari upplýsingum. Eins og
skýrt var frá í gaer var einn starfs-
nianna Fríhafnarinnar úrskurðaður í
10 daga varðhald á miðvikudaginn.
Hið meinta smyglmál er talið hafa
átt sér stað úr geymslu Fríhafn-
arinnar, sem aðeins tollverðir hafa
lyklavöld að. Um dyr þeirrar geymslu
fara vörubirgðir inn og umbúðarusl
út. Innan við dyr þessarar geymslu
var hafður lykill að dyrunum í
innsigluðum kassa. Hamar lá við hlið
kassans. Var þetta gert í öryggis-
skyni, t.d. ef eldur kæmi upp er
menn væru þarna inni við vinnu og
þyrftu að komast út, en lykil þarf
hvort sem farið er inn eða út um
dyrnar.
Grunur leikur á um að tekizt hafi
að ná í lykilinn úr innsiglaða kassan-
um og smíða annan lykil eftir hon-
um. Innsiglaða lyklinum var svo
aftur komið fyrir á sínum stað án
þess verksummerki sæjust á innsigli
tollgæzlunnar.
Ólafur Hannesson sagði að
Kristján Pétursson deildarstjóri Toll-
gæzlunnar á Keflavíkurflugvelli
aðstoðaði við rannsókn málsins,
bæði vegna sumarleyfa við lögreglu-
stjóraembættið og eins vegna þess að
umrætt brot gerðist á yfirráðasvæði
tollvarða.
Athygli hefur vakið að rannsókn
tfiálsins virðist mjög afmörkuð. Bein-
isl hún að fámennum hópi starfs-
manna þarna syðra, en ekki er rætt
við aðra.
-A.St.
Ölympíulid íslands
í Kópavogi um helgina:
ALLIR ÞEIR
BEZTUMED
Skákáhugamenn hafa ástæðu til
að vera léttir i lundu þegar þeim er
hugsað til helgarinnar framundan. 1
Vighólaskóla í Kópavogi verður
nefnilega haldið eindæma skákmól,
hið sterkasta sem yfirleitt er hægt að
halda með islenzkum þátttakendum.
Er hér um að ræða æringamót fyrir
karla- og kvennasveitir íslands sem
taka þátt í ólympíuskákmótinu á
Möltu í nóvember. Meðal þátttak-
enda eru allir alþjóðlegir meistarar
okkar í skák, þar á meðal stórmeist-
ararnir Friðrik Ólafsson og Guð-
mundur Sigurjónsson. Auk þess er
keppt í sérstökum heiðursfiokki þar
sem þátttakendur eru skákkempur af
eldri kynslóðinni sem áður aerðu
garðinn frægan, þeir Ásmundur Ás-
geirsson, Baldur Möller, Sturla
Pétursson og Þráinn Sigurðsson.
Fyrirkomulag á mótinu í
Kópavogi verður þannig að í hverri
umferö er I 1/2 klst. á 30 leiki og
síðan er 1/2 klst. til að Ijúka skák-
inni. Á staðnum verða skákir skýrðar
fyrir áhorfendum. Fyrsta umferð
hefst i Víghólaskóla kl. 19 í kvöld,
næstu umferðir hefjast kl. 10 og 16 á
morgun og kl. 13 og 17 á
sunnudaginn. Lokaumferöin hefst
kl. 18 á mánudagskvöld. Hlaðbær
hf. gefur góð verðlaun sem teflt
verðurumá mótinu. -ARH.
Enn rignir hann, að minnsta kosti
sunnan- og vestanlands, en fremur var
léttskýjað um mestan hluta Norður- og
Austurlands. 4 Þeir ú veðurstofunni
bjuggust I morgun við óframhaldandi
allhvössum skúrum af suðvestan og
jafnvel slyddu. Heldur á þó að lœgja
með kvöldinu og búizt er við kólnandi
veðri um helgina, einkum á Norður- og
Vesturlandi. -DB-mynd: Einar Ölason.
ALITAPAÐIA R0T-
HÖGGI í FYRSTA SINN
— en féllþó aldrei í hríngnum í keppninni við
Lariy Holmes í nótt Leiknum hætt eftir 10
— sjé íþróttir á bls. 12 og21
✓
Hvaðer
áseyði
um
helgina?
ShadyOwens
syngur á Hótei
Esju
TekstVals-
mönnumað
verja titil sinn?
Þríhjóliðfrum-
sýntá
Utla-Hrauni
Litiðviðístærsta
Aski landsins
Danskurgrafík-
listamaðurí
anddyriNorræna
- ogaukþess:
Messurþelgarinnar
Skemmtistaðimir
umhelgina
Sýningarumhelgina
íþróttir helgarínnar
Matsölustaðimir
Útvarpogsjónvarp
næstuviku
ogmargtfleira
- sjá Helgardagbók
_DBábts. 13-20
Víkingurvann
Valíæsi-
spennandi leik
sjá íþróttír
_ábls. 12 og21
Sigurganga
Norðmanna
íbriddsinu
- sjáerl. fréttir
ábls.8og9