Dagblaðið - 03.10.1980, Side 5

Dagblaðið - 03.10.1980, Side 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1980. I 5 Stuðningsmenn Alberts stof na málfundasamtök: „Til að verja eigin hag í ræðu og riti” „Þar sem þjóðmál eru stjórnmál, eru þetta pólilísk samtök, en ekki flokkspólitísk,” sagði Ásgeir Hannes Eiríksson, verzlunarmaður, í viðtali við DB um stofnun landssamtaka með stuðningsmönnum Alþerts Guðmundssonar frá forseta- kosningunum síðustu. Ráðstefna stuðningsmanna víðs vegar að af landinu, stofnaði siðast- liðinn laugardag málfundasamtök „til að efla félagsmönnum dug til að verja eigin hag í ræðu og riti”, eins og það var orðað í tillögugerð. Talsverður hugur er sagður vera í sumum frammámönnum þessarar samtakamyndunar að hrinda af stað virku starfi málfundasamtakanna. „Forsjá lvðveldisins þarf ekki að vera alfarið í höndum atvinnu- manna,” sagði Ásgeir Hannes i á- varpi ,sínu á ráðstefnunni. í máli manna kom það fram, sem áður var sagt frá, að setja þyrfti niður stéttarig, sem væri að mest heima- tilbúið vandamál stjórnmálamanna og erindreka þeirra. Aukinn skilningur almennings á þessu myndi leiða til heilla, draga óeðlilegt vald í skjóli stéttarigsins úr höndum sljórn- málamannanna og færa það í hendur lólksins. Það ætti flesta hagsmuni sameiginlegaog gagnkvæma. Slétta-- deiluokinu þyrlti að lélta al' þjóð- félaginu. Að sögn boðenda var ráðstelnan vel sótt og af henni fyrirsjáank gur á- vinningur fyrir það fólk, sem ætti samleið um fjölda hagsmunamála, og náð hefði að tengjast í starfinu að kjöri Alberts Guðmundssonar til for- setaembættis fyrr í sumtr. -BS. LAXELDISSTOD RISI BLÁMÓDU ÁLVERSINS —Tilraunir með laxaseiðaeldi í kælivatni Álversins gefa betri raun en áður er vitað um í eldisstöðvum — Engm hætta talin vera a mengun í blámóðunni um 300 metra frá norðurgafli Álversins í Straumsviker nú unnið af kappi að byggingu fyrsta hluta nýrrar fiskeldisstöðvar. Nýtur eldis- stöðin notaðs kælivatns frá Álverinu, en vatnið er 15 gráðu heitt þegar Álverið hefur notað það. Allar rannsóknir á vatninu eru sagðar hafa sýnt að það væri gjörsamlega fritt við alla mengun. Þær tilraunir sem þegar hafa verið gerðar með ftskeldi í þessu vatni hafa gefið betri árangur en fiskiræktarmenn þekkja áður til. Hefur fiskur þarna meira en tvöfaldazt að þyngd á einum mánuði. Það eru arkitektarnir Róbert Pétursson og Magnús Björnsson sem eru aðalhvatamenn en stofnun hluta- félags um stöðina er á stokkunum. Þeir Róbert og Magnús hafa hugað að fiskeldisstöð alllengi. Þeir spáðu í stöð á Húsavík, þar sem Fiskeldi er nú að reisa eldisstöð, en þá var Hitaveitan þar ekki kontin. Þá höfðu þeir auga- stað á Sauðárkróki en tilraun þeirra til byggingar þar strandaði. Siðan sóttu þeir um lóð sunnan Álversins, en var hafnað en hafa nú eftir langa mæðu fengið lóð 300 metra norðan Álversins. Róbert tjáði blaðamanni DB að þeir gætu núna fengið 56 sekúndulítra af 15 gráðu heitu kælivatni frá Álverinu. Þetta hitastig kvað Róbert kjörið til fiskeldis og fór svo hófsamlegum orðum um tilraunir sem gerðar hafa veriðmeð notkun þessa vatns á undan- förnum mánuðum að ,,þær hefðu gefizt mjög vel”. Róbert kvað fyrsta áfanga bygginga þarna vera fólgna í óupphituðu skýli sem rúmaði 200 þúsund laxaseiði. Byggingin er jafn einföld og hlöðubygging, óeinangruð og óupphituð. Við 'suðurvegg þessarar byggingar sem rísa mun í þessari og næstu viku verða útitjarnir, en lóðin sem fengin er rúmar miklu fleiri byggingar af sama tagi og nú ris, ef þurfa þykir. Úti fyrir ströndinni er í framtíðinni ráðgerð hafbeit, en slíkt eru framtíðardaumar. DB-menn brugðu sér á staðinn og hittu tvo menn á staðnum við móta- smíði undirstaðna fyrir burðarboga byggingarinnar. Þetta voru Haukur Helgason og Hojby Christensen, sem um margra ára skeið var starfsmaður i fiskeldisstöð Skúla Pálssonar að Laxalóni, sem „kerfið” slátraði sællar minningar. .lafnfrantt var unnið að skurðgreftri fyrir vatnsleiðslu frá Álverinu að byggingunni og að vatns- lögn I eldishúsinu væntanlega. Hojby Christcnsen, sem lengi var starfs- maður á Laxalóni, vinnur hér að undir- búningi vatnslagnar i gólfi nýju eldis- stöðvarinnar. Innan fárra vikna verður hann farinn að hugsa um laxaseiði I nýju stöðinni. ,,Ég hef aldrei séð slíkan seiðavöxt sem hér hefur fengizt I tilraunum, sem gerðar hafa verið,” sagði Christensen. „Þau hafa meira en. tvöfaldazt að þunga og stærð á einum mánuði. Ég veit ekki til að slikt þekkisl annars staðar,” sagði Christensen. ,,Það er ekki vanþörf á að hér sé tekið til hendinni við fiskeldi af alvöru,” bætti hann við. „Það hefur ríkt alger kyrrstaða i þessum málum siðan 1964 meðan aðrar þjóðir, eins og t.d. Norðmenn, hafa grætt milljarða á laxeldi. Það raunalegasta er að kyrr- staðan hér stafar af togstreitu embættismanna um það hver eigi að ráða ferðinni og hvernig að eigi að standa. En þetta er allt á uppleið og það verða margir til að hefja fiskeldi hérna. Ég held t.d. að Skúli Pálsson risi upp aftur og verði stór í laxeldinu á nýjan leik,” sagði Hojby Christiensen. Hann stóð þarna með skófiu i hönd og vann að uppbyggingu stöðvar- hússins. Innan skamms tíma fer hann að fást við seiðin sem dafna vel í blá- 300 metra frá norðurvegg Álversins er nú unnid af kappi við grunn fiskeldisstöðvar. Skurðgrafan sem ber I Álverið er að grafa skurð fvrir kælivatnslögnina til eldisstöðvarinnar. DB-mynd Ragnar Th. Sig. móðu Álversins og ylvolgu vatni af vélum þess. -A.St. Haukur Helgason stjórnar byggingarframkvæmdum. Greina má undirstöðurnar fyrir burðarbita eldisstöðvarinnar. Uppi eru áætlanir um hafbeit eldisfisks úti fyrir strönd- inni i framtiðinni. FX-310 BÝÐUR UPP Á: • Algebra og 50 visindalegir möguleikar. • Slekkur á sjálfri sér og minnið þurrkast ekki út. • Tvær rafhlöður sem endast í 1000 tima notkun. • Almenn brot og brotabrot. • Aðeins 7 mm þykk i veski. • 1 árs ábyrgð og viðgerðar- þjónusta. Verð kr. 39.900.- C-801 BÝÐURUPP Á: • Klukkust., min., sek. • Mánuð, dag, vikudag. • Sjálfvirka dagatalsleiðréttingu um mánaðamót. • Nákvæmni + — 15 sek. á mán. • 24 og 12 tíma kerfi samtimis. • Skeiðklukka 1/100 úr sek. og millitima. • Tölva með + -» X -+- og konstant. • Ljóshnappur til afiestrar í myrkri. • Rafhlaða sem endist ca 15 mán. • Ryðfritt stál. • 1 árs ábyrgð og viðgerðar- þjónusta. CASIO-umboðið Bankastræti 8. Sími 27510 ATH. Vantar umboðsmenn um land alh. F-7C BÝÐUR UPP Á: • Klukkust., mín., sek. • Mánaðardag og vikudag. • Sjálfvirka dagatalsleiðréttingu um mánaðamót. • Ljóshnappur til aflestrar i myrkri. • Ein rafhlaða sem endist i 3 ár. • Ryðfritt stál. • 1 árs ábyrgð og viðgerðarþjónusta Armbandsúr með vekjara BÝÐURUPP Á: • Klukkust., mín., sek. • Mánaðardag og vikudag. • Sjálfvirk dagatalsleiðrétting um mánaðamót. • Ljóshnappur til aflestrar I myrkri. • Skeiðklukka með millitima. • Vekjari. • Hljóðmerki á klukkustundar- fresti. • Ein rafhlaða sem endist i 3 ár. • Ryðfritt stál. • 1 árs ábyrgð og viögerðarþjón- usta. Verðkr. 71.600.- Kvenmannsúr L-20 BÝÐUR UPP Á: • Klukkust., min. sek. • Mánuð, dag, vikudag. • Sjálfvirka dagatalsleiðrétt- ingu um mánaðamót. • Skeiðklukka. • Ljóshnappur til aflestrar í myrkri. • Ein rafhlaða sem endist i ca. 15 mán. • Ryðfritt stál. • 1. árs ábyrgð og viðgerðar- þjónusta. Verðkr. 55.500.-

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.