Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 20.10.1980, Qupperneq 2

Dagblaðið - 20.10.1980, Qupperneq 2
2 . * .....'" ....... ' ' Hvaða heilbrigðisstofnun ber sig fjárhagslega? —ógæfulegt að breyta rekstri Fæðingarhéimilisins Ung kona hríngdi: Ég vona að konur taki eftír því að í ráði er að leggja Fæðingarheimili Reykjavíkur niður í þeirri mynd sem það hefur verið rekið. Að margra mati er slikt ógæfulegt. Það vekur athygli mína sem haft var eftir öddu Báru að snöggra breytinga væri ekki að vænta. Auð- vitað fylgja breytíngar í kjölfarið. Ein af rökunum fyrir breytingunni er að Fæðingarheimilið beri sig ekki fjárhagslega. En ég spyr: Hvaða heil- brigðisstofnun ber sig fjárhagslega? 4 Nýfædd börn á Fæðingarheimili Reykjavfkurborgar. Þrjár þyrlur? —tilaðeinséflugfær Þ. K. skrifar: Nú hefur Landhelgisgæzlan fengiö nýja og fullkomna björgunarþyrlu i flotann sinn. Margir hugsa meö sér að með þessari nýju þyrlu séu íslend- ingar loksins orðnir óháðir varnar- liðinu með björgunarflug þvi þessi þyrla sé svo fullkomin og góð. En eitt atriöi langar mig að spyrjast fyrir um og það er hvort ein þyrla sé nóg. Maður hefur heyrt að til þess að tryggt sé að a.m.k. ein þyrla sé i flug-- færu standi þurfi að hafa þrjár því viðhaldið sé svo mikið. Sagt er að þyrlurnar hjá varnarliðinu þurfi 16 klst. í viðhald á móti hverri einni í flugi. Þyrla Landhelgisgæzlunnar, TF-RÁN, i skýli Gæzlunnar. DB-mynd: Þorri. Það virðist því sem við séum ekki björgunarflug og að nokkuð langt sé enn orðnir sjálfstæðir með íaðsvoverði. —m. ÆSKÁN SELFOSSI Sími99 1830 VERSLUNIN TINNI Drafnarfelii 16-18 Sími75713 Glitbrá Lauf’avet’i 70 — Simi 10660 Verslunin Tröð Neðstutröð 8 Sími 43180 Kópavogi. Skólavörðustíg 3 Sími27340 GÆÐANNA VEGNA DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1980. Er ríkisvaldið að þrýsta þjóðinni út f drykkju með þvf að sýna rússneskar kvik- myndir? Fólk lagðist í fyllirí —þegar það f rétti af rússnesku myndinni Eiginmaður konunnar i vesturbæn- um hríngdi: Ég furða mig á dagskrá sjónvarps- ins því það er segin saga að þegar ekki eru sýndar amerískar bíómyndir um helgar leggst öll þjóðin i fyllirí. Þeir sem sáu fyrri hluta þessarar rússnesku bíómyndar, sem virtist í raun vera einskonar strimill þvert yfir sjónvarpsskerminn, horfðu með skelfingu fram á það að þurfa að sjá eitthvert framhald á þessu nk. föstu- dagskvöld. Þaðvar mikil ös í rikinu. Spurningin er hvort rikisvaldið í skjóli ríkisfjölmiðlanna sé að þyngja drykkju landsmanna með þvi að sýna þessa óskaplegu mynd í sjónvarpinu. Mér er kunnugt um að fjöldi manna sem vissi af því að sýna ættí myndina aftur á föstudegi lagðist i gegndar- laust fylliríi sem enginn veit hvar endar. Raddir lesenda mennska úr tízku? Bókin „Stattu þig drengur” vekur spurningar um hvað komið hafl út úr rannsókn á meintu harðræði gagnvart Sævari Cierielski við yfirheyrslur f Geirfinnsmálinu. Rannsóknarblaða- Einn undrandi skrifar: Ég var að ljúka við að lesa bókina um Sævar Ciecielski (Stattu þig drengur). Eftir þá lesningu er Geir- finnsmálið í mínum augum langt frá þvi að vera leyst. En það sem meira er, hvernig er með þessa svokölluðu „harðræðisrannsókn”? Hefur nokkuð meira verið gert i því máli? Á virkilega að leyfa mönnum sem hlaupa með stóla á veggi tíl aö halda föngum vakandi og líma heftiplástur fyrir munninn á þeim af einskærri meinfýsi að halda áfram störfum eins og ekkert hafi í skorizt? Hvar er Vilmundur Gylfason nú? Hvar eru allir rannsóknarblaðamennirnir? Er það kannski ekki lengur í tízku?

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.