Dagblaðið - 20.10.1980, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1980.
Pólland:
Frjálsu verkalýðssam-
tökin ekki viðurkennd
—munum kjósa stjóm þeirra og halda áfram starfsemi hvað sem stjómvöld gera, segir Walesa
Lech Walsea helzti leiðtogi
samtaka hinna frjálsu verkalýðs-
samtaka i Póllandi sagði að kjörin
mundi stjórn samtakanna og starf-
semin halda áfram ótrufluð, þrátt
fyrir að dómstóll i Varsjá hafi
tilkynnt að hann treysti sér ekki til að
viðurkenna samtökin af laga-
legum orsökum. Segir dómstóllinn að
enn skorti á ýmsar upplýsingar um
samtök þau er Walsea stofnaði í
Gdansk og víðar eftir að allsherjar-
verkföllunum í Póllandi lauk í fyrri
mánuði.
Ljóst er að Walesa nýtur mikilla
vinsælda meðal pólsks almennings og
var honum ákaft fagnað hvar sem
hann fór í gær um suðurhluta
Póllands. Á fundi sem hann hélt í
gær fyrir sex þúsund manns á
markaðstorgi i borginni Krakow hét
hann því að Ijúka því verki er hann
hóf i ágúst siðastliðnum þegar verk-
föllin í Gdansk hófust og krafan um
frjáls verkalýðsfélög í Póllandi fékk
byr undir báða vængi.
Walsea benti yfirvöldum í
Póllandi á að þau gætu ekki snúið
þróuninni við. Verkalýðssamtökin
sem nú hafa um sex milljón félaga
mundu hefja starfsemi í dag, hvort
sem dómstóllinn i Varsjá viðurkenni
tilveru þeirra eða ekki. Sagði hann
verkamönnum að þeir hefðu ekkert
að óttast. Samtök þeirra væru orðin
að fjöldahreyfingu. Ef samtökin fá
ekki skráningu hjá yfirvöldunum
látum við sem við vitum ekki af skrif-
stofuveldinu, sagði Walsea.
Athugun á máli hinna nýju frjálsu
verkalýðssamtaka hefur nú staðið
yfir í tæpan mánuð. f viðtali sem hin
opinbera pólska fréttastofa birti í
gær v» dómarann sem kannar mál
samtakanna segir hann að þau verði
að vera grundvölluð á þeim
samningum sem pólsk yfirvöld og
verkfallsmennirnir hafi samið um og
auk þess á þeirri hugmyndafræði sem
yfirlýst var um hvemig samtökin
ættu að verða.
Haft var eftir dómaranum að á-
kvæði þess efnis fyndust ekki í sam-
þykktum hinna nýju samtaka.
Kommaráðherrar
þinga í Varsjá
Utanríkisráðherrar kommúnistaríkja
Austur-Evrópu komu saman til fundar
í gær í Varsjá í Póllandi. Er talið að
umræðuefni þeirra verði viðtækt og
nái allt frá sambandi austurs og vestur,
styrjöldinni við Persaflóann og að
stjórnmálaástandinu í Póllandi að
loknum allsherjarverkföllum þar og
miklum umskiptum í ríkisstjórn
landsins.
SíkíöwmviðBÐIíl
kl.18.00
FALLEGAR
GJAFAVÖRUR
Fundur utanríkisráðherranna i Var-
sjá var ákveðinn áður en til vinnustöðv-
ana kom í Póllandi og Gierek formaður.
kommúnistaflokksins og fleiri forustu-
menn hröktust frá völdum. Að sögn
kunnugra mun eitt helzta umræðuefnið
á fundi ráðherranna verða hvernig
koma megi lífi í undirbúning undir
Madridfundinn fyrirhugaða um slökun
spennu í Evrópu. Á hann að verða í
framhaldi af fundunum um sama efni í
Helsinki og Belgrad.
Þrettán drepnir
íGuatemala
um helgina
Vinstrisinnaðir skæruliðar skutu níu
lögreglumenn til bana í nokkrum
árásum á lögreglustöðvar i höfuðborg
Guatemala um helgina. Að sögn
lögreglunnar réðust skæruliðarnir
einnig á höfuðstöðvar eiturlyfjalögregl-
unnar og sprengdu þær í loft upp. Við
það særðust einnig þrír óbreyttir
borgarar. Auk lögreglumannanna féllu
fjórir óbreyttir borgarar í átökum
lögreglu og skæruliða í þessu stríðs-
hrjáða Mið-Ameríkuriki.
steinsíYlíur
Hollenskar steinstyttur úr muldu
grjóti veita varanlega ánægju
Ytir 100 geróir og margar ólikar
stiltegundir.
krydd &
ilmkeríi
Juitakrydd trá Frakklandi
þrjár kryddblöndui sem geta
mikla möguleika á tilbreytni vió
matargeró. Herbs Irom Pro
vinde, Fterbs lor lish, Tarrgon
blend Ósvikió hunang ur villi
blómum Suður-Frakklands.
Ilmkerti sem eyða matarlykt
og bæla andrúmslottið
brennslulimi 20 klst. um 26 ilm-
geröir
KIRKJUFELL
KLAPPARSTÍG 27 SÍMI: 21090.
Flóttamenn hafa streymt frá oliuborginni Al Faw i trak á undanförnum dögum. Nú munu aðeins fáir vera þar eftir en áður
fyrr voru ibúar borgarinnar 75 þúsund. Miklar loftárásir hafa verið gerðar á borgina. Fyrir styrjöid trak og trans voru um
það bil 800 þúsund tunnur af þeim 3,5 milljónum tunna sem trakar fluttu út af oiiu fluttar um Al Faw.
Jimmy Carter Bandaríkjaforseti:
Reagan eykur hættu
á kjamorkustyrjöld
sem væru Bandaríkjunum hag-
stæðari en nýgerðir samningar um
afvopnun og takmörkun kjarnorku-
vígbúnaðar.
Sjálfur sagðist forsetinn hafa haft
tækifæri til að kynnast þessum
málum náið síðastliðin fjögur ár og
búa með þeim og hugmyndir Reagans
væru allt of áhættusamar.
Ronald Reagan svaraði ræðu
Carters í gærkvöldi og bar þar harð-
lega af sér að hann mundi leiða
Bandaríkjamenn út í kjarnorku-
styrjöld ef hann yrði kjörinn forseti.
í sjónvarpsræðu sem Reagan flutti í
gærkvöld lagði hann fram áætlun í
niu liðum sem hann sagði að mundi
setja Bandaríkin aftur í þá stöðu sem
þau ættu að vera i með hernaðarmál
sín. — Við verðum að byggja vonir
okkar um frið á eigin afli, — sagði
hann.
Við verðum þvi að gera okkur
grein fyrir þeirri sorglegu staðreynd
að Bandaríkin hafa dregizt aftur úr,
bæði á sviði efnahagsmála og hern-
aðarmála.
Jimmy Carter Bandaríkjaforseti
hélt því fram í útvarpsræðu er hann
flutti í gær að líkurnar fyrir kjarn-
orkustyrjöld mundu aukast ef
Ronald Regan yrði valinn forseti
Bandaríkjanna. Hins vegar sagði
hann að likurnar á slíkri styrjöld
minnkuðu yrði hann sjálfur kjörinn.
Carter gagnrýndi mjög þá fyrirætl-
un Reagans að ætla að neita aö skrifa
undir Salt II sáttmálann og neyða
Sovétmenn með vopnakapphlaupi til
að ganga að samkomulagi sem væri
Bandaríkjunum hagstæðara en Salt
II.
Bandaríkjaforseti réðst einnig á
Reagan fyrir að sá siðarnefndi hefði
fullyrt að dregið hefði úr hernaðar-
mætti Bandaríkjanna á valdatíma
sínum. Sagði forsetinn að stefna
Reagans væri sú að neita að sam-
þykkja gerða samninga, hefja siðan
vigbúnaðarkapphlaup við Sovétríkin
og taka áhætuna af því að hræða
Sovétmenn til að ganga til samninga
Hefur bæöi dregiö úr hernaöar- og
efnahagsmætti Bandaríkjanna í
valdatiö Carters?