Dagblaðið - 20.10.1980, Side 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1980.
5
, '' '
BUOiSM
Formaður f ulltrúaráðsins féll f
,,Ég held að ég taki umsókn mína
aftur í sjálfstæðisfélag þar sem ég fæ
að sitja fund fyrir náð og miskunn og
með skert réttindi,” sagði Magnús Jó-
hannsson, trésmíðameistari og listmál-
ari, um leið og hann yfirgaf fundarstað
aðalfundar sjálfstæðismannaféiagsins i
Fella- og Hólahverfi siðastliðinn
laugardag.
Magnús er fyrrverandi borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann
situr nú í fulltrúaráði sjálfstæðisfélag-
anna og hefur verið virkur i félagsstörf-
um flokksins um áratuga skeið.
Þó nokkrir sjálfstæðismenn, sem
ekki var leyfð fundarseta nema með
skilyrðum, meðal annars um að taka
ekki þátt í störfum fundarins eða at-
kvæðagreiðslum, fóru i burtu af
fundarstað.
Flest þetta fólk er, eins og Magnús
Jóhannsson, í öðrum hverfafélögum
auk Varðarfélagsins, en er nýlega flutt í
Fella- og Hólahverfi í Breiðholti.
Formaður þessa hverfafélags,
Gunnlaugur Birgir Danielsson, for-
maður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík, beið lægri hlut fyrir
Kristjáni Guðbjartssyni í kosningu um
formann félagsins með litlum atkvæða-
mun. Fékk Gunnlaugur 31 atkvæði en
Kristján 34.
í framboði til stjórnar var í raun
kosið um tvo lista, sem myndaðir voru
af • stuðningsmönnum formannsefn-
anna að mestu leyti Þessir voru kosnir í
stjórn: Erlendur Kristjánsson, 56 at-
kvæði, Örn Valdimarsson, 44, þeir
voru á báðum listum, Ingi Þór Valdi-
marsson, 40, Dóra Gissurardóttir, 36,
Ólafía Þóra Valentínusdóttir og Guð-
jón Valgeirsson, bæði með 30 atkvæði.
Formaðurinn, Gunnlaugur Birgir,
flutti skýrslu stjórnarinnar um starFið á
síðasta starfstímabili. Mark sitt kvað
hann tvennar kosningar hafa sett á
starf félagsins. Þeim hafi fylgt funda-
höld og umfangsmikið kosningastarf.
Hafi doði í félagsstarfi fylgt á eftir.
Ekki hvað sízt vegna þess að flokkur-
inn kom illa út í kosiiingunum. Vék
hann að mörgum öðrum þáttum i starf-
inu, sem unnið hefði verið, meðal ann-
ars í sanivinnu við önnur hverfafélög.
Fyrsta loðnan
til Eskif jarðar
Fyrsta loðnan barst til Eskifjarðar á
miðvikudag er Eldborg landaði 1362
tonnum af góðri loðnu, að sögn Krist-
jáns Guðmundssonar, sem sér um
löndun loðnubáta á Eskifirði.
Tungufoss kom sama dag með 5 þús-
und síldartunnur. þá er saltskip
væntanlegt, en lítið er orðið eftir af
salti eftir hina geysilegu síldarsöltun,
sem hefur staðið yfir að undanförnu.
Loðnubrtéðslan sendi frá sér 250 tonn
af fiskimjöli.
Hólmanesið er væntanlegt á mánu-
dagsmorgun með mikinn afla. Allt er á
fullu hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar
því smábátarnir fiska vel.
- Regína.
Eskifjörður:
Síldarfólkið er
eins og lömb
semfá
fjöruskjögur
Metsala var hjá bátnum Kristjáni
Guðmundssyni, sem seldi 41 tonn í
Grimsby af sérstaklega góðum línu-
fiski. Alls fengust 43,2 milljónir króna
fyrir aflann. Þór sf., sem Ingvar Þ.
Gunnlaugsson er í forsvari fyrir, keypti
bátinn í sumar. Kristján hefur fiskað
sæmilega. Báturinn varð þó fljótlega
að fara rviðgerð eftir að hann kom
hingað og kostaði hún 25 milljónir
króna.
Ég skrapp i búð í morgun og sýndist
mér á fólki, sem unnið hefur stanzlaust
i síldinni, að þaö sé farið að halla undir
flatt eða réttara sagt skjögra eins og
lömb sem fá fjöruskjögur. Timafólkið
hjá Auðbjörgu fær 4—5 stunda svefn,
sumir ekki einu sinni það. Eftir langan
tíma í slíkri vinnu fer að bera á skjögr-
mu‘ - Regína, Eskifirði.
Fella- og Hólahverfi
„Sjálfstædisf lokkurinn ekki bezta dæmið um samhentan
f lokk’sagði Davíð Oddsson, form. borgarmálaf lokksins
„Vantarkonu með
nokkra punkta"
„Það verður ekki sagt um vinstri
flokkana í borgarstjórn, að með þeim
hafi komið „betri tíð með blóm í haga.
Þessir menn mega hvergi sjá blóm án
þess að troða á því,” sagði Davíð
Oddsson, borgarfulltrúi í ræðu sem
hann flutti á fundinum.
„Lengi var pylsuvagninn í miðborg-
inni það eina, sem vinstri meirihlutinn
gat stært sig af,” sagði Davíð. „Og
síðan hinar nýju aðferðir við lóðaút-
hlutanir. Samkvæmt reglum þeirra
getur maður fengið stig fyrir að sækja
um lóð sem hann þarf ekki á að
halda,” sagði Davíð. „Það væri ekkert
undrunarefni þótt maður læsi aug-
lýsingu eitthvað á þessa leið: „Vantar
konu — má gjarnan hafa með sér
nokkra punkta.”
„Sjálfstæðisflokkurinn er ekki
bezta dæmið um einarðan, samhentan
og baráttuglaðan flokk,” sagði Davíð.
„Það er hins vegar gott samkomulag í
borgarmálaflokknum. Það þarf að
koma skýrt fram.”
„Þurfum ekki að œfa
minnihlutaaðstöðu"
„Fjölgun borgarfulltrúa á ekki að
þurfa að hafa neikv^eð áhrif á stöðu
Sjálfstæðisflokksins,” sagði Davíð
Oddsson. Hann minnti á, að Sjálf-
stæðisflokkurinn er óvanur því að vera
í stjórnarandstöðu í Reykjavík. „Ég tel
að við þurfum ekki sérstakíega að æfa
okkur í því hlutverki. Ég vona að hlut-
skipti okkar nú heyri til undantekn-
inga.”
„Við beittum glundroðakenningunni
fyrir kosningarnar. Margir telja að hún
hafi ekki sannazt. Ljóst er samt að með
auknum álögum, hækkun fasteigna-
gjalda og útsvara hefur þessi meirihluti
úr meiri peningum að spila en við
höfum haft. Samt má búast við áfram-
haldandi þyngri álögum undir þessari
borgarstjórn en ekki að sama skapi
auknum framkvæmdum ogþjónustu,”
sagði Davíð.
„Vinstri meirihlutinn
hefur hreinsaö til í
vösum borgaranna"
„Borgarstjórinn er ágætismaður, að
mörgu leyti farsæll. Hann er hins vegar
valdalaus með þrjá yfirborgarstjóra.
Vinstri meirihlutinn hefur einungis
hreinsað til í vösum borgaranna og
hvergi annars staðar,” sagði Davíð
Oddsson. Hann vék því næst að skipu-
lagsmálum, þar sem hann taldi, að
Alþýðubandalagsmenn réðu öllu.
Flefðu þeir af fullkomnu siðleysi afhent
arkitektum sínum sívaxandi verkefni,
sem orðið hefði til þess nú þegar að
unnin væru varanleg skaðaverk á borg-
inni. Hann kvað þau dæmi afsanna þá
kenningu sem margir hafi látið glepjast
af, að það væri í lagi að leyfa vinstri-
mönnum að prófa stjórn borgarinnar
eitt kjörtímabil.
Markús Örn Antonsson borgarfull-
trúi þakkaði mikilvægt verk sem
hverfafélagið þarna, eins og raunar
fleiri, hefði unnið fyrir flokkinn.
Gunnlaugi Birgi Daníelssyni, fráfar-
andi formanni, þakkaði hann sérstak-
lega gott samstarf á öllum sviðum.
Hann hvatti félaga til samstöðu í þeim
átökum sem fyrirsjáanleg væru, þar
sem enginn mætti liggja á liði sínu.
„Það bezta sem gert hefur verið á
þessu kjörtímabili, þegar 28 mánuðir
liðnir og 20 eftir, er framkvæmd þeirra
verka sem við höfðum tekið ákvörðun
um og hafið markvissan undirbúning
að,” sagði Markús Örn.
Að lokum mæltu þeir nokkur orð,
fráfarandi formaður og hinn nýkjörni.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var fund-
arstjóri. -BS
BETRIHLJÓMUR
FÆRRI KRÓNUR!
SÉRTILBOÐ AÐEINS KR.
95.000
* ■*
I
• , 1
I
Þegar CROWN-hljómtækin komu fyrst til landsins þa
var þeim frábærlega vel tekið, enda glæsileg hljóm-
tæki á vægu verði.
Þetta var hægt að bjóða með hagkvæmum innflutningi.
Árangurinn nú er sá að 30% íslenzkra heimila eiga
CROWN-hljómflutningstæki.
ÞETTA ER ÍSLANDSMET & JAFN-
FRAMT HEIMSMET ___
miðað við fólksfjölda. .. , j j [ | j I í ’]
Enn eykst fjöldi CROWN kaupenda og þeim sem enn I
eiga eftir að kaupa bjóðum við þægilega greiðsluskil- j |-j C]1";’1 »~j
niáls.
Stadgr.verö: 362.363.- (5% afsl.) r |j 1 gpm■■■ p/j| |ggcr £r~
16.000 tœki seld, efþaö sérverslun *
eru ekki ttieðmceliþá eru litasjónvörp
þau ekki til 0G HLJÓMTÆKI skipholti 19 sími 29800