Dagblaðið - 20.10.1980, Page 17

Dagblaðið - 20.10.1980, Page 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1980. 17 d íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir I TVBR ÞRUMUSKALLAR ATLA þegar Borussia Dortmund sigraði 1860 Mtinchen 4-1 á laugardag „Þetta var talsvert einkennilegur leikur, þegar við lékum við 1860 Miinchen hér í Dortmund á laugar- dag. Fyrir lcikinn var þýzki landsliðs- maðurinn, Riidiger Abramczik, settur úr liðinu og var varamaður. Geysilegar kröfur hafa verið gerðar til hans siðan hann var keyptur fyrir stórpeninga i sumar frá Schalke og honum hefur reynzt erfitt að uppfylla allar kröfur áhorfenda. Það hvorki gekk né rak hjá okkur framan af leiknum við Múnchen-liðið — en í siðari hálfleiknum kom Abramczik inn á og þá fórum við heldur betur á stað. Skoruðum þrjú mörk og Borussia sigraði 4-1,” sagði Atii Eðvaldsson, þegar DB ræddi við hann í gær. Atli skoraði tvö af mörk- um Borussia, bæði með skalla. Þrumuskallar. Manfred Burgsmliller, sem er markhæsti leikmaðurinn í Bundeslíg- unni, skoraði fyrsta mark leiksins en Miinchen tókst að jafna í 1-1 fyrir hálfleik. Heldur slakur leikur hjá Borussia og var það einnig fyrstu tíu mínúturnar i síðari hálfleik. Þá kom Abramczik inn á og leikur Dort- mund-liðsins breyttist mjög til hins betra. Liðið komst fljótlega í 2-1, þegar Atli skallaði i mark. Fékk fyrir- gjöf frá Abramczik á nærstöngina. Mirko Votava, þýzkur landsliðs- maður, skoraði þriðja markið og Atli það fjórða beint úr hornspyrnu með skalla. Abramczik tók homspyrnuna ,,og þetta var mjög gott mark,” sagði Atli í hógværð sinni í gær. Hann lék miðherja allan leikinn. Áhorfendur vom nokkru færri en i fyrri leikjum í Dortmund — eða um 25 þúsund. „Það var gott að fá Abramczik inn á — þýzku blöðin eru mjög kröfuhörð og hann var beinlínis skrifaður út úr liðinu,” sagði Atli ennfremur. Eins og áður segir er Burgsmliller markhæsti leikmaðurinn í Bundeslíg- unni með tíu mörk. Rummenigge hjá Bayern Munchen er næstur með níu mörk. Tveir hafa skorað 8 mörk og tveir aðrir, ásamt Atla, sjö mörk. í þýzku blöðunum á sunnudag fékk Atli mjög góða dóma fyrir leik sinn á laugardag — eins og hann hefur nær undantekningarlaust fengið frá því hann fór að leika með Borussia Dort- mund í haust. f leiknum á laugardag . kom furðulegt atvik fyrir. Bomssia náði skyndisókn — Atli og annar fram- herji iiðsins áttu við einn varnarmann að etja, þegar þeir hlupu saman félagarnir. Atli stóð en samherji hans féll og dómarinn flautaði. Dæmdi aukaspyrnu á Míinchen og allt ætlaði að verða vitlaust á vellinum, og ekki bætti úr, þegar dómarinn hafði í frammi tilburði að bóka Atla! ! — Af þeirri vitleysu varð þó ekki. AZ '67 vann sinn níunda leik í röð — erliðið sigraði Ajax 2-1 á útivelli AZ ’67 gerír það ekki endasleppt þessa dagana í hollenzku 1. deildinni. í gær lék liðið við meistarana Ajax í Amsterdam og sigraði 2-1, níundi leikurínn í röð sem liðið vinnur i deildinni og liðið er nú langefst með 18 stig eftir niu umferðir. Feyenoord mjakaði sér i annað sætið með 2-0 sigrí á Excelsior, en það lið er í raun litið annað en varalið Feyenoord, svipað og Castilla er varalið Real Madrid. Gamla stórliðið PSV Eindhoven fór á kostum á útivelli gegn Willem 11 Tilburg, sigraði 6-1, en sá sigur nægði ekki tll að koma liðinu í hóp fimm efstu liða. Önnur úrslit i Hollandi urðu þessi: Roda Kerkrade — Sparta 4-2 Go Ahead Eagles — Wageningen 2-2 Utrecht — NAC Breda 3-0 MVV Maastricht — Haag 3-4 NEC Nijmegen—PEC Zwolle 2-0 Twente Enschede — Groningen 3-1 Staða efstu liða eftir leikina um helg- ina er þessi: AZ '67 9 9 0 0 34-8 18 Feyenoord 9 7 11 19-5 15 Twente Maastricht Ajax 9612 17-12 13 9 5 2 2 17-13 12 9 5 1 3 29-20 11 Bjöm Borg tapaði Mjög óvænt úrslit urðu i gær i sviss- neska innanhússmótinu i tennis í Basel. Til úrslita léku Björn Borg, Sviþjóð, og Tékkinn Ivan Lendl , sem hefur náð heimsfrægð i tennis slðustu mánuði. Lendl gerði sér lítið fyrir og sigraði i fimm lotum 6-3, 6-2, 5-7, 0-6 og 6-4 en það var einmitt hann, sem Borg varð að hætta keppni gegn í úrslitum kana- díska meistaramótsins i sumar. '• ■ .t lUii+atöÍXl'Tí..'.Sjíly , i ! dýfcÍAG W Vs!® Úrslit í leikjunum á laugardag urðu þessi: Bayern Múnchen-Bochum 3—1 Gladbach-Núrnberg 1—4 Frankfurt-Kaisersl. 3—2 Dortmund-1860 Múnchen 4—1 Köln-Karlsruher 4—0 Uerdingen-Duisburg 4—1 Bielefeld-Leverkusen 1 — 1 Schalke-Stuttgart 3—2 Dússeldorf-Hamborg 2—3 Karl-Heinz Rummenigge var i sér- flokki í. leik Bayern og Bochum. Skoraði tvívegis. Bernd Dúrnberger eitt. Kaiserslautern.sem var í öðru sæti fyrir umferðina, tapaði fyrir Eintracht í Frankfurt. Cha Bum frá Kóreu átti stórleik fyrir Frankfurt. Loks náði Köln sér á strik — Rainer Bonhof skoraði tvívegis úr víta- spyrnum i fyrri hálfleik, Tony W'•iu.lcoek og Dieter Múller í þeim síðari. Köln vann þar með sinn fyrsta heimasigur í Bundesligunni í haust. Staða efstu liða: Bayern Hamborg Kaisersl. Frankfurt Dortmund Leverkusen 10 9 0 I 28—12 18 10 7 2 1 22—14 16 10 6 2 2 20—10 1 4 10 7 0 3 22—15 14 10 5 2 3 24—19 12 10 4 2 4 20—15 1 0 hsím- Atli Eðvaldsson fagnar marki hjá Borussia Dortmund. Hann skoraði tvivegis á laugardag og hefur skorað sjö mörk I Bundesligunni. Gunnar Páll sigurvegari Gunnar Páll Jóakimsson, ÍR, sigraði i Öskjuhliðarhlaupi ÍR á laugardag. Keppendur voru 21 í karlaflokki. Gunnar hljóp á 25 mín. og 12 sek. vegalengdina — átta kilómetra. Ágúst Ásgeirsson, ÍR, varð annar og Halldór Matthíasson, KR, þriðji. í kvenna- flokki sigraði Thelma Björnsdóttir, UBK. Þar var vegalengdin 4 km. Leikur í Eyjum tvístöðvaður vegna slagsmála áhorfenda! — HK úr Kópavogi sigraöi Tý fVestmannaeyjum í 2. deild á laugardag Það er óhætt að segja að mikið hafi gengið á í Eyjum á laugardag, þegar Týr og HK léku þar i annarri deildinni í handbolta, er heilmikil slagsmál brutust út meðal áhorfenda. Nokkrir áhangendur HK-manna mættu á leik- Fram vann Víking Fram sigraði Víking 18-14 í 1. deild kvenna í Laugardalshöll i gær. Á Akur- eyri léku Þór og Haukar í söniu dcild. Haukar sigruðu 16-15 eftir 8-8 í hálfleik. inn og hvöttu sína menn ákaft, og fór það illa í taugarnar á nokkrum æstum stuðningsmönnum Týs, sem viidu lækka í þeim rostann. Hlutust af þessu töluverð handalögmál. Tvívegis þurfti að stöðva leikinn af þeim sökum, meðan forstöðumaður hússins gekk á milli fylkinganna. Um leikinn er það annars að segja að HK sigraði örugglega 19-13 án þess þó að sýna neinn stórleik, staðan í leikhléi var þó 8-7 fyrir Tý, en strax i byrjun síðari hálfleiks skildu leiðir. Kópavogs- piltarnir juku forskotið jafnt og þétt, og munaði þar mestu um mjög góða markvörzlu Einars Þorvarðssonar í marki HK. Markvarzla Emils færði Aftureldingu bæði stigin — Einar Magnússon skoraði átta mörk og Af turelding vann KA16-15 í 2. deild „Ég er sæmilega ánægður með varnarleikinn og markvörziuna og það er alltaf gott að hljóta tvö stig,” sagði Pétur Bjarnason, þjálfari Aftureld- ingar, eftir að leikmenn hans höfðu sigrað KA 16-15 i leik liðanna i íþrótta- húsinu að Varmá i 2. deild á laugardag. Óvæntur sigur fyrír marga og leikurinn var mjög tvisýnn og skemmtilegur. Afturelding komst í byrjun í 4-1 og 5-3. KA jafnaði í 5-5 og komst síðan yfir. Staðan í hálfleik 10-9 fyrir KA. Framan af síðari hálfleiknum lék Afturelding vel. Komst i 12-10, síðan 15-12. En KA jafnaði í 15-15 og spenn- an var mikil. Einar Magnússon, lands- liðskappinn úr Víking hér á árum áður, skoraði sigurmark Aftureldignar úr vítakasti rétt í lokin. Einar var markahæstur í leiknum með átta mörk — fimm vítaköst. Bezti maður á vellinum var hins vegar mark- vörður Aftureldingar, gamli KR-mark- vörðurinn Emil Karlsson. KA hefur misst nokkra góða leikmenn frá því á síðasta leiktímabili — m.a. Alfreð Gíslason til KR. Hins vegar hefur liðið fengið tvo landsliðsmenn úr Víkingi — Magnús Guðmundsson, sem greinilega styrkti vörn liðsins, og Erlend Her- mannsson. Erlendur lék þó ekki með að þessu sinni — var að ganga i það heilaga á laugardag, kvæntist. - hsím. Leikur heimamanna var afburða- slappur í síðari hálfleik, og er aðeins þrjár mínútur voru til leiksloka höfðu þeir aðeins skorað tvö mörk í hálfleikn- um. Langbezti maður Týs í þessum leik var Magnús Þorsteinsson, skoraði fyrri helming marka liðsins og batt vörnina> vel saman. Aðrir voru fremur slappir, annars varði Jens Einarsson vel í fyrri hálfleik. Hjá HK var Einar Þorvarðar- son beztur, varði vel allan leikinn. Hallvarður Sigurðsson og Sigurður Sveinsson voru grimmir í síðari hálf- leik, skoruðu grimmt. Flest mörk Týs: Magnús 7/4, Valþór og Sigurlás 2 hvor. Flest mörk HK: Sigurður Sveinsson 5/3, Hallvarður4. - FÓV Ahorfendur settu tauga- spennu íValsstúlkurnar —400 áhorfendur á fyrstu handboltaleikjunum á Akranesi deild karla. Jafntefli varð 18-18^eftir 8- 6 í hálfleik fyrir ÍA. Sverrir Sverrisson skoraði flest mörk Gróttu eða 8. Gauti Grétarsson 4. Þeir Pétur Ingólfsson og Guðjón Engilbertsson voru markhæstir í liði ÍA með 5 mörk hvor. Jón Hjalta- lín Magnússon lék ekki með ÍA en er byrjaður að æfa með liðinu. - VB Eyjastúlkur fóruvelafstað ÍBV sigraði HK i 2. deild kvenna um helgina 26-5. Ragna Birgisdóttir skoraði 10 af mörkum ÍBV, en ÍBV tekur nú i fyrsta sinn þátt i íslandsmóti kvenna i handbolta eftir sameiningu Eyjafélaganna Þórs og Týs. -FÓV Yfir 400 áhorfendur fylgdust með fyrstu handboltaleikjunum á Akranesi á föstudagskvöld. f 1. deild kvenna léku í A-stúlkurnar, sem unnu sér sæti i deildinni i vor, við Vai. Valur sigraði 13-9 eftir að lengi vel hafði verið jafn- ræði með liðunum. 6-6 í hálfleik. Það var greinileg taugaspenna í leik Vals- stúlknanna — þær ekki vanar að leika, þar sem svo margir áhorfendur eru. Hrópuðu auðvitað með sinu liði. En undir lokin sigu þær framúr þó svo Valsstúlkurnar misnotuðu sex af átta vitum, sem þær fengu i leiknum. Mörk Vals í leiknum skoruðu Harpa Guðmundsdóttir 5, Sigrún Bergmunds- dóttir 3, Erna Lúðvíksdóttir 2, Elín Kristinsdóttir 2, Ágústa Dúa Jónsdóttir 1. Mörk ÍA Lára Gunnarsdóttir 3, Laufey Sigurðardóttir 3 og Kristín Aöalsteinsdóttir 1. Síðan lék Akranes og Grótta i 3.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.