Dagblaðið - 20.10.1980, Síða 18
18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1980.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1980.
I
Iþróftir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Forusta Andeiiect
tvö stig í Belgíu
—Arnór Guðjónssen skoraði eitt af mörkum
Lokarenálaugardag
Arnór Guðjohnsen skoraði eitt af mörkum
Lokeren, þegar liðið vann góðan sigur á Courtrai
5-1 í 1. deild í Belgiu á laugardag. Á sama tíma
gerðu Standard og Beveren jafntefli 1-1 í Liege en
Anderlecht sigraði Winterslag. Jók forustu sína í
1. deild í tvö stig.
Úrslit urðu annars þessi í leikjunum í Belgíu i
níundu umferðinni:
Anderlecht — Winterslag
Waregem — CS Brugge
Gent — Berchem
Standard — Beveren
Beringen — Beerschot
Lokeren — Courtrai
FC Brugge — Molenbeek
Waterschei — Lierse
Antwerpen — FC Liege
Staðan er nú þannig:
Anderlecht
2—0
3—2
3—0
1 — 1
1—0
5—1
3—1
3—4
2—0
9 6 11 24—9 15
Beveren
Standard
Molenbeek
Lokeren
Lierse
Waterschei
Waregem
Courtrai
Berchem
Winterslag
CS Brugge
Antwerpen
CS Brugge
Beringen
Gent
Beerschot
FC Liege
2 18-
1 24—
2
3
2
4
4
4
3
5
4
4
5
5
5
6
8
8 13
12 13
9 12
11 11
13 11
16 9
-14
-15
-16
-14 8
-16 8
-19 8
-23 7
-18 6
-14 6
-16 5
-20 1
Þórarar fóru ómjúkum
höndum um löggurnar
Þórarar í Eyjum, sem féllu í 3. deild í vor, léku
sinn fyrsta leik i deildinni á fösludagskvöldið, er
þeir sigruðu hið harðskeytta lið lögreglumanna úr
Reykjavík, Óðinn, 20—16. Lögguliðið undir for-
ystu Bodan Kowalczyk náði sér aldrei á strik í
leiknum og komst aldrei nær Þór en undir lokin, er
staðan var 18—16 fyrir Þór.
í hálfleik höfðu Eyjamenn náð góðri forystu,
12—7, og er grelnilegt að liðið hefur fullan hug á
að endurheimta sæti sitt i 2. deild i vor. Annars var
leikur þeirra nokkuð gloppóttur og verða þeir að
gera betur ef þeim á að takast að vinna sig upp.
Bezti maður Þórs var Ásmundur Friðriksson, en
Andrés Bridde átti einnig ágætan leik og mark-
verðirnir vörðu nokkuð vel. Hjá Óðni báru þeir
nokkuð af Frosti Sæmundsson og Jakob Þórarins-
son.
Flest mörk Þórs gerðu Ásmundur 8, Andrés og
Albert Ágústsson 3 hvor. Flest mörk Óðins gerðu
Jakob 7 og Frosti 3. - FÓV
Magnús Guðmundsson, fyrrum landsliðsmaður úr Víking, skorar eitt af
mörkum KA í gær. DB-myndSvÞ.
SH0USE LEK A KR-KOLKRABBANA
— UMFN sigraði KR naumlega 86-85 ífyrsta leik úrvalsdeildarinnar f körfubolta
Körfuknattleikur Úrvalsdeild,
UMFNtKR, 86:85 (46:39)
Njarðvikingar sigruðu KR-inga
syðra i fyrsta leik íslandsmótsins i
körfuknattleik i Úrvalsdeild og fóru
þar með vel af stað. Sigurinn var samt
naumur. Aðeins eitt stig skildi liðin að,
86:85, i hörkuspennandi leik, frá
upphafsmínútu til seinustu sekúndu, en
þá voru KR-ingar með knöttinn og
reyndu körfuskot. Það var um seinan.
Merki um leikslok gall við og fylgjend-
ur UMFN lustu upp fagnaðarópi en
áhorfendapallarnir voru fullskipaðir og
rúmlega það. Körfuknattleikurinn á
sýnilega auknum vinsældum að fagna
hérálandi.
Mörgum lék vafalaust forvitni á að
sjá Daniel Shouse með UMFN, en hann
lék sem kunnugt er með Ármanni
seinasta leiktímabil og skoraði megin-
hlutann af stigum Ármanns í mótinu.
Danny eins og hann er jafnan nefnd-
ur, fór fremur hægt af stað, virtist ekki
finna sig í leiknum framan af og sam-
herjarnir áttuðu sig ekki á snilldarsend-
ingum hans. En þessi „svarti
smaragður” átti aldeilis eftir að ná sér
á strik í leiknum. Áður en yfir lauk
hafði hann skorað 40 stig, auk þess sem
hann spilaði félaga sína upp, eins og
sagt er á íþróttamáli. Mýmörg langskot
hans fóru beint í körfuna og þrátt fyrir
smáan vöxt á körfuknattleiksmanna-
KAfór létt með Armanti
Ekki fór svo að KA-menn héldu
stigslausir aftur heim til Akureyrar eftir
tvo leiki í 2. deild handboltans um helg-
ina. Þeir sigruðu Ármann i Laugardals-
höll I gær 23—17 og bættu sér því upp
tapið gegn Aftureldingu frá þvi degin-
um áður.
KA tók þegar forystuna gegn
Ármanni og leiddi í hálfleik 12—8. Sá
munur hélzt svo út siöari hálfleikinn og
í lokin munaði fimm mörkum
Mörk Ármanns. Einar Eiriksson 5,
Björn Jóhannesson 4/2, Haukur Har-
aldsson, Ívar Jósafatsson og Kristinn
Ingólfsson 2 hver og Atli Jóhannesson
og Vilberg Sigtryggsson 1 hvor.
Mörk KA: Gunnar Gíslason 7/3,
Þorleifur Ananíasson 6, Friðjón Jóns-
son 3, Magnús Guðmundsson, Erlingur
Kristjánsson og Björn Friöþjófsson 2
hver og Magnús Birgisson 1. - SA
mælikvarða gátu KR-risarnir ekki
stöðvað Danny á leið hans undir körf-
una þótt þeir breiddu arma sína eins og
kolkrabbar yfir hann og allt í kring.
Meö lipurð sinni og leikni tókst honum
i flestum tilvikum að snúa á þá.
Fyrstu mínútumar gætti mikils
taugaóstyrks meðal leikmanna beggja
iiða. Hver sóknarlotan af annarri rann
út í sandinn, — knötturinn lenti utan
körfu, í greipum mótherja eða hrein-
lega fyrir utan völlinn. En Gunnar
Þorvarðarson, sá gamalreyndi leik-
maður kom UMFN á bragðið og
Bandartkjamaðurinn i liði KR-inga
sömuleiðis fyrir sitt iið. Eftir það fóru
stigin að hrannast upp sitt á hvað. KR-
ingar voru þó heldur á undan þar sem
Jón Sigurðsson stjórnaði sóknarað-
gerðum með miklum tilþrifum en
Danny og Gunnar reyndu að klóra í
bakkann fyrir UMFN. Náðu KR-ingar
6 stiga forskoti, 19:13, en þá tóku
Njarðvíkingar mikinn fjörkipp og
söxuðu á forskotið jafnt og þétt en þá
var kominn í leikinn ungur piltur,
Valur lngimundarson, sem þarna átti
sinn langbezta leik til þessa og skoraði
samtals 14 stig, sum i mjög snjallri
samvinnu við Danny. Valur er því ný
stjarna í liði UMFN, hávaxinn og kvik-
ur leikmaður.
Ágúst Líndal, keflvíski KR-ingurinn,
kom mikið við sögu fram að hléi ásamt
Bjarna Jóhannessyni en Ágúst fellur
mjög vel í KR-liðið enda hefur hann
leikið með þeim áður, — fyrir tveimur
árum. En þrátt fyrir góðan leik þeirra
félaganna höfðu heimamenn sjö stiga
forskot í hléi sem entist þeim skammt í
seinni hálfleik því Keith Yow og
Bjarni ásamt Jóni Sigurðssyni jöfnuðu
metin, 50:50. Seinna náðu KR-ingar
ftmm stiga forskoti,74:69, sem þeir
misstu niður og UMFN jafnaði, 76:76,
en Garðar Jóhannesson, sem virtist
æfmgarlítill, skoraði fyrir KR-inga
78:76;, og fór þá að fara alvarlega um
heimamenn, — Guðsteinn Ingimars-
son, sem hafði verið fremur daufur,
sá að við svo búið mátti ekki standa.
Tók hann á sig rögg og nældi í 4 stig.
Baráttan var því í algleymingi, þegar
tvær og hálf mínúta voru eftir. Danny
læddi knettinum svo i körfuna 82:79,
en Jón Sigurðsson svaraði að bragði
með fallegu langskoti, — síðan fékk
Yow vítaköst, sem bæði lentu á réttum
stað, 83:82, og rúmlega ein mínúta til
leiksloka. Hófst þá æðisgengin barátta,
sem áhorfendur tóku þátt í með
örvunarhrópum „áfram Njarðvik”
enda flestir heimamenn. Heyrðist ekki í
flautum dómaranna en lesa mátti á
töflunni að karfa Danny væri gild og
eins Guðsteins. Yow skoraði fyrir KR-
inga svo að þegar 9 sekúndur voru eftir
var staðan 86:85 og UMFN með
knöttinn, misstu hann en KR-ingum
vannst ekki timi til að nýta sér það og
vildu raunar kenna dómurunum um.
Olli það einhverjum ýfingum að leiks-
lokum, en menn jöfnuðu sig fljótt,
fögnuðu sigri og tóku ósigri karlmann-
lega.
Leikurinn var skemmtilegur á að
horfa en þó geta bæði liðin vafalaust
betur. Menn mega ekki gleyma því að
þetta var fyrsti leikurinn i stóru móti.
KR-ing^r léku án Geirs Þorsteinssonar
sem er tognaður, en hins vegar tefldi
UMFN fram yngri mönnum og
breiddin virðist mikil hjá þeim.
Nokkurrarfestu gætti í leiknum og
g.ngu leikmenn eins langt og dómar-
ainir leyfðu, en þeir Sigurður Valur
Halldórsson og Erlendur Eysteinsson
voru ekki með neinn smásmuguhátt.
Samræmis gætti í dómum þeirra og
það var mál manna að með þeim
tökum sem þeir tóku leikinn hafi hann
verið miklu skemmtilegri en ella.
Stigahæstu leikmenn UMFN voru
þeir, Shouse 40, Valur 14, Guðsteinn
12 og Gunnar 7. — KR: Jón 24, Yow
20, Bjarni 14, Garðar 11 og Ágúst 10.
-emm.
„Kolamolinn” barg ÍS
Bandaríkjamannslausir Ármenning-
ar voru stúdentum auðveld bráð er
liðin mættust í úrvalsdeildinni i körfu-
bolta i Hagaskóla i gærkvöldi. ÍS
sigraði 86-79, og getur þakkað þann
sigur Bandaríkjamanni sínum, Mark
Coleman. „Kolamolinn" átti hreint
frábæran leik, skoraði sjálfur 37 stig
en gaf auk þess margar góðar sending-
ar og var sem klettur i vörninni.
Svo vikið sé að gangi leiksins, þá
voru Ármenningar mun atkvæðameiri
til að byrja með, þeir komust í 10—4
eftir fjögurra míriútna leik og leiddu
fram undir miðjan hálfleikinn. Þá var
komið að stúdentum að taka forystuna
og eftir 11 mínútur voru þeir búnir að
ná fimm stiga forystu, 26—21. Upp úr
því fór aftur að draga saman með
liðunum og síðustu mínútur fyrri hálf-
leiksins skiptust liðin á um forystuna,
en í hálfieik var staðan iöfn 30—30
En í síðari hálfleik snerist dæmið
við, nú voru stúdentar ætið í forystu-
hlutverkinu,þeir náðu forystunni þegar
í upphafi hálfieiksins og létu hana
aldrei af hendi. Eftir fjögurra minútna
leik var staðan orðin 49—44 fyrir ÍS og
mestur varð munurinn 13 stig, 69—56.
Lokatölur 86—79.
Sem fyrr getur var Coleman allt í
öllu hjá ÍS, en auk hans átti Steinn
Sveinsson beztan leik stúdenta. Lands-
liðsmaðurinn ungi Valdimar Guð-
laugsson bar af' í liði Ármanns, en
Kristján Rafnsson og Davið Arnar áttu
einnig góðan leik. Lið Ármanns er ungt
að árum og á framtiðina fyrir sér,
margir efnilegir piltar í liðinu.
Stig ÍS: Mark Coleman 37, Steinn
Sveinsson 14, Árni Guðmundsson 12,
Bjarni Gunnar Sveinsson 11, Pétur Óli
Hansson 4, Gísli Gislason og Albert
Guðmundsson 3 hvor og lngi Stefáns-
snn 2.
Stig Ármanns: Valdimar Guðlaugs-
son 25, Kristján Rafnsson 19, Davíð
Arnar 12, lngvar lngvarsson 10,
Hörður Arnarson 7, Atli Arason 4 og
Guðmundur Sigurðsson 2.
-SA.
Létthjá
Haukum
— Sigrudu Kyndilá
báðum leikjunum
íEvrópukeppninni
Haukar úr Hafnarfirði unnu
sér auðveldalega rétt i 2. umferð
Evrópukeppni bikarhafa í hand-
knattleik, þegar þeir sigruðu
Kyndil, Færeyjum, í báðum
leikjum liðanna. Þeir voru báðir
háðir í Þórshöfn.
í fyrri leiknum á laugardag
höfðu Haukar algjöra yfirburði.
Sigruðu með fimmtán marka
mun eða 30—15 eftir að staðan
var 13—9 fyrir þá i hálfleik. í
síðari leiknum, sem háður var i
gær, var munurinn minni. Þá
sigruðu Haukar með fjögurra
marka mun, 23—19. Jafnt var i
hálfleik 10—10. Þjálfari Hauka,
Viðar Símonarson, skoraði flest
mörk Hauka i siðari leiknum eða
sjö. í báðum leikjunum sigruðu
Haukar samanlagt 53—34.
íþróttir
Firmakeppni Gróttu
í knattspyrnu innanhúss verður í íþróttahúsi Seltjarnarness
síðustu helgina í október og fyrstu helgina í nóvember.
Keppt verður um Gróttubikarinn sem er i vörzlu starfs-
mannafélags Pósts og sima.
Þátttaka tilkynnist í síma 21722 f.h. (Már) fyrir 22. okt.
Þátttökugjald er kr. 40.000.
Knattspymudeiid Gróttu
1 2 ÚL E
Nýr kafli
í sögu Pennans
Penninn hefur opnaö nýja deild að Hallarmúia 2, — bókadeild sern
iegcjur áherslu á góöa þjónustu og ráögjöf viö bókaval. Nýja bóka-
deildin fæöist meö hartnær þriggja áratuga reynslu, - reynslu sem
Sissa, deildarstjórinn okkar, hefur eftir 29 ára starf viö bóksölu.
Víötæk þekking afgreidslufólksins er aöali hverrar versiunar. í bóka-
deildinni er Sissa sá sérfræöingur sem svarar öllum spurningum þín-
um um bækur og höfunda og aðstoðar þig viö bókavaliö.
Taktu þér tíma - bílastæðin eru ekkert vandamál.
BOKADEILD
HALLARMÚLA 2
SÍMI83441