Dagblaðið - 20.10.1980, Síða 20

Dagblaðið - 20.10.1980, Síða 20
20 G DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1980. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir I 38. jafnteflið íderbie-leikjum Liverpool-liðanna: Liverpool vann upp 2ja marka forustu Everton! — Aston Villa hef ur náð Ipswich að stigum í 1. deild — Notts County efst í 2. deild — Martin Peters skoraði í 3. deild — Nýtt leikjamet John Trollope Swindon, 765 leikir Staðan er nú þannig: Martin Peters, heimsmeistari 1966 sem leikmaður West Ham, er nú leikmaður og , framkvæmdastjðri hjá SheRield United i 3. deild. Skoraði sitt annað mark fyrir Shef- field-liðið á laugardag. Ipswich Aston Villa Liverpool Everton Nottm. For. WBA Man. Utd. Sunderland Arsenal Southampton Tottenham Stoke Middlesbro Birmingham Coventry Wolves Leeds Brighton Norwich Leicester C. Palace Man. City Notts Co. West Ham Blackburn Swansea Sheff. Wed. Chelsea Orient Cambridge Derby Newcastle Oldham Preston QPR Bolton Watford Grimsby Wrexham Cardiff Luton Shrewsbury Bristol City Bristol Rov. 1. deild 11 7 12 8 12 6 12 12 12 12 12 12 12 11 12 12 12 12 12 12 3 12 2 11 3 12 3 11 2 12 0 2. deild 12 8 5 2 3 3 8 1 4 0 19-6 2 2 21-11 1 28-12 17 3 23-12 16 3 21-11 15 3 15-12 15 17-9 14 4 3 19-14 14 4 3 14-12 14 3 4 21-16 13 4 3 15-21 12 4 4 14-20 12 3 5 21-21 11 5 4 16-16 11 2 6 14-19 10 2 6 11-16 10 10-19 18 18 3 6 4 6 15-22 2 6 14-23 1 8 9-22 0 9 12-25 4 8 11-26 12 12 12 12 12 12 12 12 12 12 12 12 12 12 12 12 12 4 1 7 12 3 3 6 12 2 5 5 12 2 4 6 12 0 6 6 19-11 19 18-6 18 18- 10 17 21-12 16 19- 14 16 21-15 15 18-14 13 16- 14 13 17- 18 13 11-16 12 9-11 11 9-14 11 18- 13 10 16-17 10 14-17 10 6-12 10 11-13 9 14-19 10- 15 11- 17 8-14 8-20 - hsím. ,,Það má aldrei slappa af augnablik gegn I.iverpool. Það fengu leikmenn Everton að reyna á laugardaginn. Eftir að hafa komizt í 2-0 fljótt í leiknum gáfu þeir aðeins eftir. Hinir leikreyndu leikmennLiverpool gengu á lagið. Jöfn- uðu og voru reyndar óheppnir að hljóta ekki bæði stigin í leiknum. Þrisvar hittu þeir stangirEverton marksins," sagði kappinn kunni, Dennis Law, í BBC eftir að Liverpool-liðin höfðu gert jafntefli á laugardag i 123. Derbie-leik liðanna 1 ensku knattspyrnunni. Ever- ton hefur aðeins betur 1 þeim. Sígrað í 44 leikjum — Liverpool 1 41. Jafntefli í 38 leikjum. Everton fékk sannkallaða óskabyrj- un. Á 14. mín. léku þeir Wright og Gidman fram völlinn. Bakvörðurinn Gidman fékk knöttinn út á kant og gaf vel fyrir. Þar var Asa Hartford fyrir og skoraði fyrsta mark Everton með skalla. Á 22. mín. lék hinn 19 ára Joe McBride á varnarleikmenn Liverpool Komst inn í vítateiginn og umkringdur leikmönnum Liverpool tókst honum að koma knettinum rétta boðleið i mark. 2-0. Mikið einstaklingsafrek hins unga framherja, sem nú er orðinn einn skemmtilegasti leikmaðurinn i ensku knattspyrnunni. En ef leikmenn Everton hafa þarna haldið að þeir stefndu í auðunninn leik þá var það mikill misskilningur. Tveimur mín. síðar tókst Sammy Lee að minnka muninn í 2-1 og 52.565 áhorfendur voru heldur betur með á nótunum á köldum sólskinsdegi í Liverpool. Margir töldu að Lee hefði verið rangstæöur, þegar hann skoraði, ,,og störf linuvarða og dómara orkuðu oft mjög tvímælis í leiknum,” sögðu þulir brezka útvarpsins. Þegar tíu mín. voru af síðari hálfleik varð Everton fyrir áfalli. John Gidman varð að yfir- gefa völlinn vegna meiðsla og fimm mínútum síðar hafði Liverpool jafnað. Kenny Dalglish skoraði með skalla. Liverpool náði undirtökunum. Dalg- lish átti skot í þverslá — spyrnti síðan í hliðarnet marksins, þegar hann komst einn inn fyrir. Hinn snjalli mark- vörður, Jim McDonagh, kominn úr markinu. Keyptur frá Bolton í sumar og þar gerði Everton góð kaup. Siðustu mínútur leiksins varði hann tvívegis snilldarlega. Hirti meöal ann- ars knöttinn af tám Dalglish. Bæði liðin sendu knöttinn í mark síðustu 10 mín. McDermott fyrir Liverpool, McBride hjá Everton en þau voru dæmd af vegna rangstöðu. En lítum á úrslitin áður en lengra er haldið. l.deild Arsenal — Sundarland 2-2 Aston Villa — Tottenham 3-0 Coven.ry -- Norwich 0-1 ( Palare — Leicester 2-1 Everton - • Liverpool 2-2 Ipswich - • Man. Utd. 1-1 Man. City — Birmingham 0-1 Middlesbro — Southampton 1-1 Nottm. Forest —,WBA 2-1 Aberdeení Skozku meistararnir, Aberdeen, sem leikið hafa 24 leiki án taps i skozku úr- valsdeildinni, komust á ný i efsta sætið á laugardag. Unnu þá St. Mirren 3-2 en Rangers tókst ekki að ná nema öðru stiginu á heimavelli gegn Airdrie, 0-0. Celtic sigraði Morton á útivelli, 2-3, með mörkum Provan, Aitken og Nico- las. Aberdeen hefur nú 17 stig, Celtic og Rangers 16. í öðrum leikjum urðu úrsllt þau i úr- valsdeildinni að Hearts tapaði fyrir Partick i Edinborg 0-1, og Kilmarnock tapaði á heimavelli fyrir Dundee Utd. 0-1. Stoke — Brighton 0-0 Wolves — Leeds 2-1 2. deild Blackburn — Chelsea 1-1 Bolton — Bristol City 1-1 Itiistol Rov. — Sheff. Wed. 3-3 Cardiff — Cambridge 1-2 Derby County — QPR 3-3 Grimsby — Watford 1-1 Luton — Shrewsbury 1-1 Newcastle — Swansea 1-2 Oldham — West Ham 0-0 Orient — Notts County 0-2 Wrexham — Preston 0-1 3. deild Barnsley — Millwall 2-0 Blackpool — Colchester 1-1 Brentford — Chester • 0-1 Fulham — Oxford 0-4 Huddersfield — Plymouth 2-0 Hull City — Charlton 0-2 Portsmouth — Burnley 4-2 Reading — Chesterfield 2-3 Rotherham — Gillingham 2-0 Sheff. Utd. — Exeter 3-1 Swindon — Carlisle 1-1 Walsall — Newport 1-0 4. deild Bournemouth — Mansfield 0-1 Bradford — Port Vale 2-1 Doncaster — Halifax 0-0 Hartlepool — Lincoln 2-0 Hereford — Wimbledon 1-1 Northampton — Crewe 4-1 Peterbro — Darlington 1-0 Rochdale — Bury 2-1 Southend — Scunthorpe 2-1 Torquay — Wigan 2-0 York — Stockport 1-0 Aston Villa í öðru sœtinu Tottenham, án Ardiles, átti litla möguleika gegn Aston Villa í Birming- ham. Þó var jafnræði lengi vel með lið- unum eða þar til á 40. min.að fyrirliða Tottenham, Steve Perryman, urðu á slæm mistök. Ætlaði að gefa knöttinn aftur til markvarðar. Morley komst á milli og skoraði fyrsta mark leiksins. í síðari hálfleiknum skoraði hann aftur og gamli garpuiinn Petei Withe þriðja markið. Áhorfendur 31 þús. Bezt hjá Villa í haust. Við sigurinn náði Villa Ipswich að stigum. Bæði lið hafa 18 stig. Ipswich náöi aðeins jafntefli á heimavelli gegn Man. Utd., liðinu, sem það sigraði með 6-0 á sama stað leiktimabiliö áður, 3;0 í hittifyrra. Nú mátti Ipswich frekar þakka fyrir jafnteflið. Alan Brazil lék með á ný en hins vegar meiddist hol- lenzki landsliðsmaðurinn Franz Thij- sen í fyrri hálfleiknum. Það virtist hafa slæm áhrif á Ipswich-liöið. Því tókst þó að ná forustu með marki Paul Mariner á 55. mín. úr þröngri stöðu. Eftir það náði Man. Utd. sinum bezta leik, þó liðið sé enn án margra aðalmanna sinna. Sóknarloturnar buldu á vörn Ipswich og í einni þeirra — á 67. mín. — átti markvörðurinn, Paul Cooper, ekki annan kost en fella Steve Coppell, þegar markið blasti opið við enska landsliðsmanninum. Vitaspyrna og úr henni skoraði Sammy Mcllroy. Ward til Forest Peter Ward fór frá Brighton til Nott: ingham Forest á föstudag fyrir 500 þús- und sterlingspund. Hann lék þó ekki með Forest á laugardag gegn WBA. Forest-liðið byrjaði þar vel og hefði átt að skora þrjú mörk á fyrstu sjö mínút- unum. John Robertson lék þá hvað eftir annað á svarta bakvörðinn Brendan Batson. Gaf síðan á félaga sína, sem ekki gátu skorað. Það gerði blökkumaðurinn Moses hins vegar fyrir WBA á 14. mín. eftir hornspyrnu Peter Barnes. Ian Bowyer tókst að jafna fyrir Forest á 36. mín. og fjórum mín. síðar skoraði Gary Mills, Það reyndist sigurmark Forest, þrátt fyrir þunga sókn WBA í síðari hálfleik. Leikmenn liðsins hittu stangir og þver- slá marks Forest en tókst ekki að jafna. Mark, sem margir töldu gilt, var dæmt afWBA. Á Highbury sáu 32.135 áhorfendur skemmtilegan leik Arsenal og Sunder- land. Liðin deildu stigunum. Fjögur mörk skoruð og mikið um marktæki- færi. Steve Gatting náði forustu fyrir Arsena! í fyrri hálfleik. í síðari hálf- leiknum komst Sunderland yfir með mörkum Gary Rowell og Stan Cumm- ins. Willie Young jafnaði fyrir Arsenal en rétt í lokin var 18 ára piltur, Cook, sem lék í stað Pop Robson (meiddur), mikill klaufi að tryggja Sunderiand ekki bæði stigin. Fékk auðvelt tæki- færi, sem hann misnotaði — tækifæri, sem Robson hefði skorað úr með lokuð augun. Annar sigur Palace Um aðra leiki er það að segja, að Crystal Palace, sem nú er án fram- kvæmdastjóra, vann sinn annan sigur í 1. deild. Sigraði Leicester með mörkum Vince Hilaire og Allen víti. Norwich, einnig án framkvæmdastjóra síðan John Bond fór til Man. City, krækti sér í bæði stigin í Coventry. Downes skoraði eina mark leiksins. Hins vegar tapaði Man. City á heimavelli og er í neðsta sætinu i 1. deild. Það verður erfitt fyrir Bond að koma í veg fyrir fall liðsins í 2. deild. Archie Gemmill skoraði sigurmark Birmingham úr vítaspyrnu, þegar tvær mínútur voru til leiksloka — og liðið hafði verið skárra í slökum leik. Leeds náði forustu eftir aðeins 55 sekúndur gegn Úlfunum. Terry Connor skoraði. En leikmönnum Leeds tókst ekki aö fylgja þessu eftir. í siðari hálfleik jafnaði fyrirliði Úlfanna, Emlyn Hughes, og John Richards skoraði sigurmarkið. Mark Hughes er hið fyrsta, sem hann skorar frá því hann fór frá Liverpool til Úlfanna. Á þriðjudag fer kappinn í leikbann — þriggja leikja bann. Júgóslavinn Jankovic náði forustu fyrir Middles- brough — enski landsliðsmiðvörðurinn Dave Watson jafnaði fyrir Dýrlingana. í 2. deild komst Notts County, elzta knattspyrnufélag heims, í efsta sæti eftir góðan sigur á Orient í Lundúnum. Félagið hefur ekki leikið í 1. deild síðan ! 1926. Löngum leikið í kjallara ensku | deildakeppninnar en hefur vaknað til lifsins á ný við sigurgöngu liins Notting- hamliðsins, Nottingham Forest. West Ham náði stigi í Oldham, útborg Man- chester — og Blackburn og Chelsea deildu einnig stigunum. Stonehouse skoraði enn einu sinni fyrir Blackburn — Walker mark Chelsea. Hans sjöunda í haust. Bristol City hlaut sitt i fimmta stig í þremur leikjum undir stjórn nýja stjórans, Ken Houghton. Gott að ná jafntefli í Bolton, þar sem Alan Gowling skoraði mark heimaliðs- ins. Andy King skoraði tvö af mörkum QPR í Derby — 19 ára piltur Frank Sheridan tvö fyrir Derby i 3-3 jafntefl- inu. í 3. deild er Chesterfield efst með 20 stig, Huddersfield, Plymouth og Rotherham hafa 18 stig. Martin Peters skoraði annað mark sitt fyrir Sheff. Utd. á laugardag — John Trollope, bakvörður, lék þá sinn 765. leik fyrir Swindon. Bætti þar með leikjamet enska landsliðsmannsins Jimmy Dickenson, Portsmouth, hér á árum áður. Hann lék 764 deildaleiki á árunum 1946—1965. í 4. deild er Southend efst með 21 stig, Lincoln og Peterbrough hafa 19 stig, Aldershot 18. Halifax er þar neðst ásamt Bury með 9 stig. Valur stóð fyrir sínu — þráttfyrirstórtap 90-126 gegn Cibona Júgóslavarnir í Cibona voru ekki i vandræðum með að tryggja sér farseð- ilinn í 2. umferð Evrópukeppni bikar- meistara í körfuknattleik, er þeir iéku seinni leik sinn við Val i Laugardaishöll á föstudagskvöldið. Þeir unnu öruggan sigur, 126-90, en i hálfleik var staðan 66-41 fyrir þá. Fyrri leikinn unnu þeir einnig eins og við var búizt og efiaust á lið þetta eftir að ná mjög langt i keppn- inni, kæmi víst fáum á óvart þó þeir myndu vinna hana. Cibona hóf leikinn á föstudag með miklum látum, komst í 18-2 eftir fjórar jog hálfa mínútu og lék mun betur en í 'fyrri leiknum kvöidið áður. Hittni leik- manna liðsins var ótrúleg, skyndisókn- irnar vel útfærðar og allur leikur liðsins mjög agaður. En Valsmenn stóðu einnig vel fyrir sínu, það er afrek út af fyrir sig að skora 90 stig hjá jafnsterku liði. Að öðrum ólöstuðum bar John Johnson af, skoraði 31 stig, mörg hver á stórglæsilegan hátt. Hinn Banda- ríkjamaður Vals.Kenn Burrell, meidd- ist i upphafi síðari háifleiks og varð að fara út af. Það eina sem skyggði á góðan leik var hversu fáir áhorfendur voru á leiknum, synd að ekki skyldu fleiri koma og berja snillingana frá Júgóslaviu augum. Stig Vals: Johnson 31, Burell 14, Torfi, Kristján og Rikharður 8 hver, Jóhann 7, Jón 6 og Leifur og Guð- mundur 4 hvor. Hjá Cibona gerði Petrovic flest stigin eða 28, Susic 21 og Cosic 16. . sa

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.